Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 30
3Ö ....-.....................................MÖBGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989 t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR TULINIUS, Eikarlundi 10, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Erna A. Tulinius, Halla Tulinius, Carl D. Tulinius, Alfreð Tulinius, Berglind Tulinius, Hrafnkell Tulinius, Hörður D. Tulinius og barnabörn. Sólveig Viðarsdóttir, Bergljót Gunnlaugsdóttir, Egill Einarsson, Helena Jónsdóttir, t Faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÞORSTEINSSON, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 11.00. Sigrfður Kristjánsdóttir, Jón Otti Sigurðsson, Valdimar Indriðason, Ingibjörg Olafsdóttir, Óskar Indriðason, Selma Júliusdóttir. barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um móður mina, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSDÍSI SVEINSDÓTTUR, frá Vestmannaeyjum, verður í Garðakirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 10.30. Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 26. ágúst kl. 11.00. Svava Alexandersdóttir, Tryggvi Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn U- t Eiginmaður minn, GUÐJÓN P. VALDASON fyrrv. skipstjóri, Hásteinsvegi 15b, Vestmannaeyjum, sem lést 17. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Landakirkju laugar- daginn 26. ágúst kl. 16.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim er vildu minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Þorsteinsdóttir. I t Ástkær sonur okkar, bróðir, faðir og ástvinur, ÁSGEIR S. BJÖRNSSON cand. mag., frá Ytra-Hóli, Austur-Húnavatnssýslu, verður jarðsunginn frá Höskuldsstöðum laugardaginn 26. ágúst kl. 14.00. Björg Björnsdóttir, Björn Jónsson, Sigriður Björnsdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Björg Sigrún Björnsdóttir, Björn Þormóður Björnsson, Jón Bjarki Ásgeirsson, Rannveig A. Jóhannsdóttir. Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR HERDÍSAR FRIÐRIKSDÓTTUR (frá Látrum, Aðalvik), Drekavegi 20, Reykjavík, verður gerð frá kirkju Hvítasunnusafnaðarins að Hátúni 2, föstu- daginn 25. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á minningarkort Hvíta- sunnusafnaðarins. Árni Hermannsson, Friðrik Hermannsson, Þórunn Hermannsdóttir, Þorgerður Hermannsdóttir, Gunnar Hermannsson, Jónina Hermannsdóttir, Guðný Hermannsdóttir, Óli Hermánnsson, Ingi Ingvarsson, Gisli Hermannsson, Inga Hermannsdóttir, Heiðar Hermannsson, Anna Ólafsdóttir, Davið Guðbergsson, Gunnar Valdimarsson, Hulda Þorgrímsdóttir, Jakob Sigurðsson, Haltdór Geirmundsson, Guðri'ður Hannibalsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir, Stefán Stefánsson, Herdís Gísladóttir, ömmu og langömmubörn. Baldur Guðmunds- son - Minning Fæddur 14. maí 1911 Dáinn 14. ágúst 1989 í dag er kvaddur hinstu kveðju frá Fossvogskapellu, móðurbróðir minn Baldur Guðmundsson frá Pat- reksfirði. Elskulegur frændi, sem með margvíslegum hætti sýndi mér og mínum ást sína og umhyggju, og langar mig því að minnast hans nokkrum orðum. Baldur var fæddur 14. maí 1911, næstelstur ellefu barna Önnu Helgadóttur og Guðmundar Ólafs Þórðarsonar útvegsbónda á Hóli. Þtjú af bömum þeirra dóu á ungum aldri, en átta voru þau systkinin, sem upp komust og eignuðust sín heimili. Eflaust er fleirum svo farið sem mér, að finnast að dauðinn hafi fullhratt höggvið skörð í þenn- an samheldna systkinahóp. Á rétt- um fjómm ámm er Baldur sá fjórði úr hópnum, sem hverfur héðan. Fyrst dó Helgi 13. ágúst 1985, síðan Freyja 1. apríl 1987, þá Þor- móður 17. júlí 1987 og nú Baldur 14. þ.m. Eftir lifa þau Helga, móð- ir mín Nanna, Ingvar og Guðmund- ur Bjami. Þegar ég man fyrst eftir mér á Patreksfirði var Baldur fluttur til Reykjavíkur, og þó að hann kæmi vestur og við heimsæktum Baldur og Möggu á ferðum okkar til Reykjavíkur, var það ekki fyrr er ég kom í skóla til Reykjavíkur, sem ég kynntist Baldri að ráði og svo eftir að við fluttum suður, varð samgangur meiri. Baldur fékkst við margt um ævina, stundaði sjó framan af, en fór svo í Samvinnuskólann og út- skrifaðist þaðan 1936. Gerðisthann þá kaupfélagsstjóri og fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Pat- reksfjarðar um nokkurra ára skeið, en fluttist suður til Reykjavíkur árið 1943. Þekktastur er Baldur fyrir útgerð sína frá Reykjavík á ámnum 1944- 1972, og þá einkum fyrir fmm- kvæði það, sem hann átti að notkun krafblakkar við síldveiðar hér við land. Man ég hve stolt ég var er nýr bátur hans, sem bar nafn afa míns „Guðmundur Þórðarson", kom til hafnar á Patreksfirði á leið til síldveiða og ekki síður þegar báts- ins var nær daglega getið í hópi aflahæstu báta á síldinni. Baldur kvæntist 27. maí 1944 Magneu Jónsdóttur ættaðri frá Tálknafirði. Magga var yndisleg kona, sem stóð við hlið Baldurs í blíðu og stríðu af mikilli reisn. Nutu ættingjar og vinir mikillar gestrisni á heimili þeirra alla tíð. Baldur og Magga eignuðust sex börn. Yngsti sonurinn Baldur lést árið 1979, og varð missir hans þeim og börnum þeirra þungbær raun. Fimm barnanna lifa foreldra sína, þau eru: Hafliði skipstjóri, sambýliskona hans er Guðlaug Sigmardóttir, Brynja, ritari, gift Guðmundi Jónssyni, Guðmundur Ólafur, rafvirki, kvæntur Helgu Stefánsdóttur, Halldóra, kennari, gift Hilmari Siguijónssyni og Jón, prentari, kvæntur Elínu Bjamadótt- ur. Barnabörnin em orðin 17. Baldur bar mikla umhyggju fyrir velferð bara sinna og gleði hans yfír velgengni þeirra í leik og starfi duldist engum. Þannig var hugur hans einnig gagnvart öðmm í Hóis- fjölskyldunni, og nutu foreldrar mínir og við systkinin þess ekki síst. Ég sá Baldur síðast á ættarmóti Hólssystkinanna, sem haldið var í maí sl. Þetta var í annað sinn, sem afkomendur ömmu minnar og afa, Önnu og Guðmundar, héldu slíkt mót. Baldur var hrókur alls fagnaðar og leyndi sér ekki ánægja hans yfir því að fjölskyldan héldi kynnum sínum með því að stofna til slíkra vinafunda. Að leiðarlokum þakkar móðir mín og við systkinin kæmm bróður og frænda vináttu og samfylgd, og vottum bömum Baldurs og öðmm nákomnum innilega samúð. Blessuð sé minning hans. Guðrún Gísladóttir Bergmann í dag, fimmtudaginn 24. ágúst 1989, verður Baldur Guðmundsson útgerðarmaður til moldar borinn, því dvelur hugur minn við minningu hans. Baldur fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð. Var hann næstelstur 11 systkina. Foreldrar hans vom Guðmundur Þórðarson og Anna Helgadóttir. — Hann komst snemma í tæri við sjómennskuna, enda var faðir hans sjómaður, sem stundaði sjóinn á fjögurra manna fömm. Með honum fór Baldur til sjós um fermingaraldur. Var sjó- mennskan stunduð frá Patreksfirði, en seinna frá Hrísey og fýrir „sunn- an“. Þegar Baldur var orðinn 25 ára fór hann í Samvinnuskólann. Eftir skólanám gerðist hann kaupfélags- stjóri á Patreksfirði og jafnframt veitti hann Hraðfrystihúsi Patreks- ijarðar forstöðu. Hann hóf útgerð sjálfur með því að kaupa tólf lesta bát, Ólöfu, ásamt Andrési Finnbogasyni skipstjóra. Seinna bættu þeir við Gylli og Svan. Stóri báturinn Guðmundur Þórðar- son kom svo seinna eða eftir 1955. Baldur sagði mér eitt sinn, að þeg- ar sá bátur var smíðaður, hafi sú hugsun verið í fyrirrúmi að hann yrði það stór, að vel gæti farið um áhöfnina. Hafði hann sjálfur verið á litlum bátum og vissi hve þröngt og óvistlegt var á þeim mörgum hveijum. Þessi bátur, held ég að hafí verið um eða yfir 200 lestir. Einnig fannst Baldri, að hann þyrfti að útbúa bátinn vel, því furðar eng- an á því, sem þekktu Baldur, að hann yrði fyrstur til þess að búa bátinn kraftblökk, en hún var sett í bátinn 1959. Þetta var nýjung þá, og þótti talsvert í ráðist. Skipstjóri á Guðmundi Þórðarsyni var Harald- ur Ágústsson. Eftir mesta hasarinn í síldinni, söðlaði Baldur aðeins um, og tók að sér að sjá um síldarstöð á Þórs- höfn í tvö ár, en stöðin var í eigu Ingvars Vilhjálmssonar o.fl. En Baldur stússaði í ýmislegu fleiru. Hann var um tíma umsvifamikill brotajárnskaupmaður, sem keypti járn og eðalmálma sem hann síðan seldi til útlanda. Hann stundaði verzlunar- og skrifstofustörf, en síðast en ekki síst var hann formað- ur Útvegsmannafélags Reykjavíkur í ein 15 ár, heiðursfélagi þar og margsinnis ræðumaður á þeirra vegum á sjómannadaginn. Hann var í stjórn LÍÚ lengi vel og í Odd- fellowreglunni var hann. Baldur var kvæntur Magneu G. Jónsdóttur. Eignuðust þau sex börn, Hafliða, Brynju, Guðmund, Halldóru, Jón og Baldur sem nú er látinn. Ég vissi af Baldri löngu áður t Maðurinn minn og faðir okkar, SVEINN TRYGGVASON fyrrv. framkv.stj. Framleiðsluráðs landbúnaðarins, Brekkugerði 18, Reykjavík, verður jarðsunginn föstudaginn 25. ágúst kl. 13.30 frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. Gerður Þórarinsdóttir, Auður Sveinsdóttir, Þórarinn Egill Sveinsson. en ég raunverulega kynntist honum í reynd, þannig mun vera með at- hafnamenn, sem áberandi eru í þjóðfélaginu. Ég hitti hann stund- um, þegar ég hafði þann starfa að selja þorskanet o.fl., en árið 1985 fluttist ég ásamt fjölskyidu minni í Torfufell 26, sem er raðhús, en Baldur átti heima í númer 24 ásamt Jóni syni sínum, eiginkonu hans og börnum þeirra. Það þarf ekki að orðlengja það að okkur nýju nágrönnunum var tekið ákaflega vel. Við Baldur urð- um því fljótt góðir vinir. Hann var ljúfur í umgengni, minnugur, ræð- inn og skemmtilegur og þótt hann væri í aðra röndina alvörugefínn, var stutt niður á léttlyndið. Það lýsir Baldri e.t.v. nokkuð, að þegar hann missti sjónina á öðru auganu, sagði hann: „Þetta er ekki neitt sérlega slæmt, ég hef nú sjón á hinu.“ Mér dettur í hug, þegar ég lít yfír það sem við Baldur töluðum stundum um, og ég hefí hér skrif- að, að í Baldri hafi sameinast dugn- aður, trúmennska, ásamt gáfum, annars hefði honum ekki verið falin þau trúnaðarstörf sem raun bar vitni. Á Patreksfirði var hann i hreppsnefndinni ungur að árum og annars staðar var hann alltaf í far- arbroddi. Mér sýnist að margir geti lært af slíkum og er það í takt við það sem Baldur sagði oft við mig, að hann hefði verið í góðum skóla hjá ýmsum frammámönnum, sem hann vann fyrir. Svona gengur þetta vonandi frá manni til manns. Ég sakna góðs vinar, því með Baldri er genginn mikilhæfur mað- ur sem sjónarsviptir er að. Aðstand- endum hans votta ég mína dýpstu samúð. Ingi Adolphsson Það var árið 1947 sem leiðir okkar Baldurs lágu saman. Hann var þá starfandi á skrifstofu Sveins Benediktssonar, en Sveinn sá um bókhald og hafði framkvæmda- stjórn á hendi fýrir mig, meðan ég átti bát minn mb. Bjöm Jónsson. Með okkur Baldri myndaðist góð- ur kunningsskapur og vinátta, sem hélst meðan báðir stóðu. Það var ekki langur tími, sem Baldur var við skrifstofustörf hjá Sveini, því fljótlega fór hann að sjá um sína eigin útgerð. Við Baldur vorum mörg ár saman í stjórn Útvegs- mannafélags Reykjavíkur og var hann formaður í félaginu frá 1947 til 1962. Árið 1974 var Baldur gerð- ur heiðursfélagi í Útvegsmannafé- lagi Reykjavíkur. Árin líða og það skiptast á skin og skúrir í útgerðinni eins og hefur gerst í gegnum árin og aldirnar. Arið 1957 ræðst Baldur í það að láta byggja fyrir sig 209 tonna bát í Noregi. Þetta þótti mikið og stórt skip á þeim tíma. Mörgum þótti Baldur sýna mikinn stórhug að leggja út í þetta. Skipið kom heim og var þekkt aflaskip í mörg ár. Skipinu var gefið nafnið Guðmund- ur Þórðarson. Á þessu skipi var sigrast á byijunarörðugleikum við að nota kraftblökk. Það var um sumarið 1959, sem þeim tókst það afburðamönnunum Haraldi Ágústs- syni og Birni mínum Þorfinnssyni, sem var stýrimaður hjá Haraldi þetta sumar. Eftir þetta fóru menn almennt að taka kraftblakkir í skip sín. Baldur var kvæntur Magneu Jónsdóttur, mikilli ágætis og yndis- legri konu. Hún lést árið 1981. Þau eignuðust sex mannvænleg börn og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.