Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 38
- MÖRGUNBÍiÁÐÍÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 24. ÁGUST 1989 KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR Hvað sögðu þeir? | Getum kysst vonir okkar ble sagði Guðni Bergsson eftir leikinn Eg held að við getum kysst vonir okkar, um að komast til Ítalíu, bless. Við verðum að vinna í báðum leikjum okkar á heimpelli og auk þess að treysta á önnur lið, það er mjög hæpið. Nú verðum við bara að einbeita okkur að að ná þriðja sæti í riðlinum og standa okkur vel í leikjun- um heima,“ sagði Guðni Bergsson. Ég var þó ánægður með leikinn og held að við séum á réttri leið, hinsveg- ar eiga áhorfendur örugglega betra með að dæma um leikinn." Nýttum ekki færin Það er ekki gott að segja hvort þetta var sanngjarnt. Að mínu mati er það reyndar aldrei sanngjarnt þeg- ar Island tapar!“ sagði Sigurður Jóns- son eftir leikinn. Við fengum góð færi í báðum leikjunum og hefðum átt að nýta þau. Meðan við getum það ekki getum við ekki búist við að sigra.“ Sá boltann of seint „Ég sá ekki boltann fyrr en hann var kominn yfir varnarmennina og þá var það orðið of seint. Þeir hefðu átt að koma út á móti honum í stað þess að gefa honum tækifæri til að skjóta," sagði Bjarni Sigurðsson markvörður um síðara mark Aust- urríkismanna. „Við ætluðum okkur að ná að minnsta kosti öðru stiginu, ef ekki báðum, og erum því ekki án- ægðir. En mér finnst að við hefðum átt: að fá tvö eða þijú stig út þessum tveimur leikjum," sagði Bjarni Sig- urðsson. Litlir möguleikar „Eftir þetta tap eigum við litla sem enga möguleika á að komast í loka- keppnina. Við þurfum að vinna tvo erfiða leiki og treysta á aðrar þjóðir og það er meira en hægt er að gera ráð fyrir,“ sagði Sigi Held. Held hefur tekið við tyrkneska iið- inu Galatasaray og mun líklega ekki stjórna liðinu í leiknum gegn Tyrkjum. „Það verður erfitt að koma því við og reyndar ekki víst hvort ég stjórna í leiknum gegn A-Þjóðverjum. Ef KSÍ getur fundið annan þá er það ágæt lausn, að hann taki strax við liðinu." Hélt hann færi inn „Ég hefði átt að skora, en mark- maðurinn náði einhvern veginn að slá boltann frá. Þó hélt ég að hann færi inn,“ sagði Sigurður Grétarsson, en hann átti eitt besta færi leiksins. Lind- enberger, markvörður Austurríkis, náði að slá skot hans í fyrri hálfleik framhjá. „Þeir léku mjög fast en það var nokkuð sem við mátti búast. Það sem mér fannst þó verst var að dómar- inn flautaði of snemma. Það var agalegt að þeir skyldu komast yfir því ég held að ef við hefð- um náð að halda jöfnu svolítið lengur hefðum við náð að minnsta kosti öðru stiginu.“ Sigurður Jónsson á fullri ferð með knöttinn í gærkvöldi, en hann var einn af bestu mönnum liðsins. -eKki hepP11' Laugardagur kl. 13:55 34. LEIKVIKA- 26. ágúst 1989 Leikur 1 Arsenal - Wimbledon Leikur 2 Aston Villa - Charlton Leikur 3 Chelsea - Sheff. Wed. Leikur 4 C. Palace Coventry Leikur 5 Derby Man. Utd. Leikur 6 Everton Southampton Leikur 7 Luton Liverpool Leikur 8 Man. City Tottenham Leikur 9 Millwall Nott. For. Leikur 10 Norwich - Q.P.R. Leikur 11 Leeds - Blackburn Leikur 12 Leicester - Newcastle Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Enska knattspyrnan »• KNATTSPYRNA / 1. DEILD Hólmbert aðstoðar ÍBK Keflvíkingar hafa fengið Hólmbert Friðjónsson, knatt- spyrnuþjálfara, til liðs við sig í 1. deildarslagnum, en lið þeirra er nú í næst neðsta sæti, og fjór- um stigum á eftir því næsta. Ástr- áður Gunnarsson verður eftir sem áður aðalþjálfari ÍBK, en meining- in er að Hólmbert verði tæknileg- ur ráðgjafi á lokasprettinum. „Það sagði enginn upp og það var enginn rekinn. Hólmbert er einungis ráðinn til að vera bæði þjálfaranum og liðinu innan hand- ar um ráðgjöf," sagði Valþór Sig- þórsson, framkvæmdastjóri knattspymudeildar ÍBK, í samtali við Morgunblaðid. Valþór sagði að eftir tapið gegn KR, svo og sigur Þors á Fram, hefði ekki verið um annað að ræða en að reyna að taka á málum af einurð. „Við ætlum að láta einskis óf- reistað til þess að halda okkur í deildinni, og vinna að því mark- miði eins og samhent fjölskylda. Það er því engri óánægju með þjálfarann til að dreifa, og get ég fullyrt að hann verður ekki látinn fara,“ sagði Valþór. Valþór benti á að þetta væri í fyrsta sinn sem Ástráður þjálfaði meistaraflokk karla, og væri því algjörlega, nýr sem þjálfari í 1. deildinni. Það hefði hins vegar verið álit manna að gott væri að fá gamlan þjálfararef, eins og Hólmbert er, til að hressa upp á liðið. GOLF „MEISTARAMÓT BYRJENDA" GOLF 18 holur m/án forgjafar. Forgjöf 25-36 íþróttabúðin, Borgartúni 20, og Laxalón bjóða öllum kylfingum, konum, körlum og unglingum, með forgjöf 25 og hærri til þátttöku í fyrsta opna meistara- móti byrjenda sunnudaginn 27. ágúst 1989. Forseti Golfsambands íslands, Konráð Bjarnason, mun í mótslok afhenda glæsileg verðlaun frá íþróttabúðinni, Borgartúni 20. Ath.: Þeir kylfingar, sem ekki hafa skráða forgjöf geta fengið forgjöf með því að leika 18 holur á Hvammsvelli í Kjós fyrir laugardag- inn 26. ágúst 1989. Hámarksfjöldi þátttakenda er 110 manns. Þátttökugjald er kr. 1.500,- Æfingahringir vikuna fyrir meistaramótið (21/8-26/8) eru án endurgjalds. (Fyrir skráða keppendur). Skráning og upplýsingar í íþróttabúðinni, Borgartúni 20, þar sem hin glæsilegu verð- laun verða til sýnis. Ath.: Kylfingar þurfa ekki að vera félagar í golfklúbbi. Sími í golf- og veiðihúsi er 91-667023. íHémR FOLK H GUÐNI Bergsson verður heldur betur að sýna hvað í sér býr þegar til London kemur, því Tott- enham hefur fest kaup á nýjum bakverði fyrir 600 þúsund pund. Sá heitir Pat Van den Heuwe og hefur leikið með Everton og welska landsliðinu. Gengið var frá þessum samningi á þriðjudagskvöldið þegar Terry Venables og Tottenham léku gegn Everton, en þeirri viður- eign lauk með 2:1 sigri Liverpool- liðsins. ■ FALKIRK og Hearts leiddu saman hesta sína í deildarbikarnum í gærkveldi og fóru leikar svo að Hearts vann 4:1. Eitthvað hefur samt gengið á í leiknum þeim, því þrír leikmenn Falkirk voru reknir af velli. Þá voru tveir reknir af velli í leik St. Mirren og Motherwell, en St. Mirren sigraði 1:0. ■ WEST Ham varð heldur betur fyrir áfalli á laugardaginn þegar nýi framheijinn þeirra; Frank McAvennay, sem keyptur var frá Celtic fyrir 1200 þúsund pund, fót- brotnaði í leik gegn Stoke. Verður hann frá keppni næstu þijá mánuði. ÚRSLIT 1. DEILD KVENNA: UBK-ÍA...............................0:4 Jónína Víglundsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Margrét Ákadóttir, sjálfsmark 4. DEILD ÚRSLIT: Haukar — Ármann.............6:0 Valdimar Sveinbjörnsson 3, Páll Poulsen 2, Theódór Jóhannsson ENGLAND 1. deild: Aston Villa — Liverpool.......... 1:1 Derby—Wimbledon.................. 1:1 Manchester City — Southampton......1:2 Norwich — Nottingham Forest........1:1 2. deild: Leeds — Middlesbrough..............2:1 Leicester — Blackbum...............0:1 West Ham — Bradford................2:0 SKOTLAND Deildarbikarbm, 3. umferð: Aberdeen — Aidrieonians................4:0 Dunfermline — Dundee...................1:0 Falkirk — Hearts.......................1:4 Hamilton — Dundee United...............2:1 Morton — Rangers.......................1:2 St. Mirren — Motherwell................1:0 VESTUR-ÞÝSKALAND I. deild: Bayer Uerdingen — Hamburg............5:2 (Laudrup, Wolfgang Funkel, Fach, Laudrup, Fach) - (Spoerl, Furtok) Fortuna Duesseldorf — Boclium........2:2 (Klotz, Fuchs) - (Leifeld 2) Bayem MUnchcn — Köln...................5:1 ( Thon 3, Dorfner, Wohlfahrt) - (Goetz) Bayer Leverkusen — Karlsruhe...........1:1 (Kree) - (Kreuzer) Kaiserslautem — Waldhof Mannheim.......2:3 (Kuntz, Foda) - (Muller,, Dais, Freiler) VFB Stuttgart — Eintraeht Franldurt....1:1 (Kastl) - (Falkenmayer) Staðan Frankfurt Bayem Munchen Köln Bayer Uerdingen Werder Bremen VFB Stuttgart Dortmund Gladbach Kaiserslautcm Bayer Leverkusen Mannheim 5 3 2 0 11:4 8 5 3 2 0 12:6 8 5 3 11 9:8 7 5 2 2 1 11:6 6 5 1 4 0 5:3 6 5 2 2 1 4:2 6 5 3 0 2 6:5 6 5 13 1 5:3 5 5 2 12 12:11 5 5 13 1 5:5 5 5 2 1 2 8:9 5 BELGÍA Vináttulandsleikur: Belgía—Danmörk.................3:0 (Marc Degryse, Jan Ceulemans 2) FINNLAND Vináttulandsleikur: Finnland—J úgóslavia...............2:2 (Kimmo Tarkkio, Kari Ukkonen) - (Darko Pancev, Dejan Savicevic) HM3.RIÐILL AUSTURRlKI - ÍSLAND .2:1 Fj. leikja u J T Mörk Stig SOVÉTRÍKIN 5 3 2 0 8: 2 8 AUSTURRtKI 5 2 2 1 6: 6 6 TYRKLAND 5 2 1 2 8: 6 5 ÍSLAND 6 0 4 2 4: 7 4 /A-ÞÝSKAL. 5 1 1 3 4: 9 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.