Morgunblaðið - 29.10.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.10.1989, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGINIIR SUNNUDAGUR 29. OKTOBER 1989» llliiliir ffélags- lega húsnæð- ísins mandí Almenn húsnæðlslán 35% minni en á sama tíma í fyrra Útlán úr Byggingasjóði ríkisins námu 4.141 millj. kr. fram til 1. október sl., þar af 1.333 millj. kr. til nýbygg- inga og 1.806 millj. kr. til eldra húsnæðis. Á sama tíma námu lán úr Byggingasjóði verkamanna 1.863 millj. kr. og virðist ljóst, að hlutur lána til byggingar félagsleg húsnæðis muni aukast venilega á þessu ári. Almenn húsnæðislán eru hins vegar tæpl. 35% minni að raungildi en í fyrra. Kemur þetta íram í upplýsingum frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Ífyrra var lokið við 1604 íbúðir á landinu öllu sam- kvæmt bráðabirgðaupplýs- ingum frá Þjóðhagsstofnun. Það er 2,5% aukning frá árinu á undan, en þá var lokið við smíði 1565 íbúða. Fjöldi fullgerðra íbúða í fyrra var mjög svipaður og meðal- tal áranna 1981-1988, sem er 1635 íbúðir á ári. Mun meira var samt smíðað af nýjum íbúðum á árunum 1971-1980 eða 2081 ný íbúð á ári að meðaltali. Er frá þessu skýrt í nýútkomnu fréttabréfi Húsnæðisstofn- unarinnar. í fyrra var lokið við smíði 849 nýrra íbúða í fjölbýli, sem er hæsta hlutfall fjölbýl- isíbúða frá upphafi og í fyrsta sinn síðan 1972, sem fleiri íbúðir eru byggðar í fjölbýli en í sérbýli. A árun- um 1985-1987 var þetta hlutfall um 40% af heildinni. í fyrra var meðalstærð fullgerðra íbúða á landinu 462 rúmmetrar, sem er svip- uð tala og árið á undan, þegar hún var 451,8 rúm- metrar. Þegar árin 1985- 1988 eru borin saman við. næstu ijögur ár þar á und- an, kemur ennfremur í ljós, að meðalíbúðin hefur minnk- að úr 490 rúmmetrum í 460. Sérbýlishúsnæði fer samt enn stækkandi, þannig að minni meðalstærð nýrra íbúða í heild stafar fyrst og fremst af auknu hlutfalli fjölbýlisíbúða í nýbygging- um. Líkleg skýring á aukningu meðalstærðar sérbýlis á síðasta ári er talin hin mikla aukning kaupmáttar ráð- stöfunartekna, sem varð árin 1985, 1986 og 1987, en hún varð samkvæmt ársskýrslu Seðlabankans 1988 48% að raunvirði á þessu þriggja ára tímabili. Minnkandi meðal- stærð fjölbýiisíbúða er í fyrsta lagi talin geta stafað af mikilli aukningu í bygg- ingu íbúða fyrir aldraða, en þær eru yfirleitt litlar og í öðru lagi af fleiri nýjum fjöl- býlisíbúðum á félagslegum grundvelli, en þær eru yfir- leitt einnig litlar. íbúðirnar í raðhúsinu við Grenihlíð eru á tveimur hæðum, en húsinu er skipt upp í fjórar einingar. Verkamannabústaðir: Atta ny jar íbuólr aff- hentar á Sauóárlcróki í síðastliðinni viku afhenti stjórn verkamannabústaða á Sauðár- króki átta nýjar íbúðir í raðhúsi við götuna Grenihlíð þar í bæ. Bygging ibúðanna hófst á miðju síðasta ári og gekk samkvæmt áætlun. Raðhúsið er í enda götunnar í framhaldi aftveggja hæða húsum, sem þar eru. Sljórn verkamannabústaða, fékk einnig út- hlutað lóð á götunni fyrir ofan og þar er nú nýlega hafin bygging þriggja parhúsa. Ibúðirnar í raðhúsinu við Grenihlíð eru á tveimur hæðum, en húsinu er skipt upp í fjórar einingar. Á jarðhæð hverrar ein- ingar er tveggja herbergja íbúð en á efri hæð er þriggja herbergja íbúð. íbúðirnar eru með sér inn- gang og eru sjálfstæðar að öllu leyti. Bygging íbúðanna var boðin út og var lægstbjóðanda, verktaka- fyrirtækinu Friðrik Jónssyni sf., falið að sjá um framkvæmd þess. Friðrik Jónsson og synir hafa á undanförnum áium verið lægst- bjóðendur í verk, sem hafa verið boðin út á vegum stjórnar verka- mannabústaða á Sauðárkróki, og reyndar fleiri aðila. Tæknideild Húsnæðisstofnunar, sá um gerð deiliskipulags og hönn- un mannvirkja á lóð stjórnar verkamannabústaða, auk gerð út- boðsgagna og verksamningá. Hönnun Grenihlíðar 26-32 var í höndum Sigurbergs Árnasonar, arkitekts og tæknifræðinganna Guðna F. Guðjónssonar og Gísla Gíslasonar, en þeir em starfsmenn á tæknideild Húsnæðisstofnunar. Magnús Siguroddsson rafmagns- tæknifræðingur sá um hönnun raflagna, en Guðmundur Ragnare- son sá um eftirlit með byggingu húsanna af hálfu Sauðárkróks- bæjar. Eins og þetta síðasta verk ber vitni um, þá er vel staðið að upp- byggingu húsnæðis á félagslegum gnindvelli á Sauðárkróki. Auk þeirra íbúða, sem þegar er hafín bygging á, er stjóm verkamanna- bústaða þegar farin að huga að framkvæmdum, sem hún hyggst ráðast í á næstu árum. SMIÐJAIM FJnangnin -raki-mygla Á SÍÐUSTU árum hefúr þó nokk- uð verið rætt og ritað um að þörfsé áað við einangrum hús okkar betur. Húsnæðismálastofn- un hefur veitt húseigendum lán til viðgerða á húsum sínum, m.a. í þessu skyni. Vegna erfiðs veðurfars á landi okkar og ásóknar raka inn í steinsteyptu húsin hallast nú æ fieiri að því að skynsamlegast sé að klæða hús að utan með regnkápu. Því verki fylgir oftast að útveggirnir eru einangraðir að ut- anverðu, undir regnkápunni. Margir sem reynt hafa þessar úrbætur eru hæstánægðir með góðan árangur. Ég ætla að fjalla um nokkur at- riði þessara viðgerða í smiðjunni í dag. Styðst ég þar við lítinn bækl- ing sem sænska húsnæðisstjórnin gaf út fyrir tveimur árum. Ég gríp glefsur úr bæklingnum hérna með. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því hvað skynsamlegast er að gera til úrbóta á hveiju húsi fyrir sig. Enginn vafi er á því að í fjölmörg- um tilvikum er besta viðgerð til einangrunar að einangra útveggina að utanverðu, með því losnum við við flestar kuldabrýr í gegnum ein- angrunina. Sjá 1. myncj. A þessari mynd hefí ég dregið upp þverskurð veggjar á gömlu ein- lyftu húsi sem búið er að klæða að utan. Eftir þessa viðgerð er mun meiri hætta á rakamyndun innan- húss við vissar kuldabrýr, einkum við loft og gólf, gluggakarma og dyrakarma, jafnvel rafmagnsdósir, loftræstiop o.fl. Þetta getur haft þau áhrif á raka- stigið að plastdúkur losni af gólfi á vissum stöðum, og flísalögn af eld- húsi eða baði. Hér er auðvitað náttúrulegt eðlis- lögmál að verki. Eins og við sjáum oft eftir heitan sumardag, þegar loftið kólnar með kvöldinu, þá þétt- ist rakinn í loftinu, því heita loftið heldur í sér raka, sem kaldara loft getur ekki haldið. Sem dæmi nefni ég að ef loft er t.d. 20°C heitt getur það haldið í sér raka sem svarar 17 g vatns í rúmmetra. Falli hitinni niður í 0°C getur loftið ekki haldið nema 5 g vatns í rúmmetra. Það liggur því ljóst fyrir að við kuldabrýr myndast raki og er nauð- synlegt að komast yfir slíka kulda- leiðni. Nefni ég aftur 1. mynd til skýringar. Þar þarf að einangra niður á sökklana og á milli sperr- anna uppi á loftinu, a.m.k. 50 sm breiða rönd inn á loftplötu. Bak við húsgögn og skápa getur myndast raka-mygla. Háaloft eru víða óeinangruð svo að þar verður mikið hitatap og oft slagi og myglulykt. 2. mynd sýnir þverskurð útveggs á timburhúsi. Gamalt timburhús kann að vera óeinangrað, en gömul einangrun inni í grindinni getur líka hafa sigið saman, svo að hún sé aðeins samþjöppuð í botninum á hveiju hólfi grindarinnar. Á skýringarmyndinni hefi ég gert ráð. fyrir að útveggirnir verði einangi’aðir að utanverðu, eins og á steinhúsinu. Á slíku húsi er um að velja einangrun innan á veggi eða utan á veggi, en þriðji valkost- urinn er að fylla inn í grindina með einangrun. Einhver mesti vandi við einangr- un timburhúsa er að gæta þess að ekki séu staðir sem leka heitu lofti innanfrá inn í einangrun eða tré- verkið, þar sem heita loftið kólnar og rakinn þéttist, því þá er skammt í myglu og fúa inni í veggjunum. Ástæða er til að þétta vandlega fyrir útilokun loftstraums við raf- magnsdósir, rofa, tengla og Ijós, við samskeyti lofts eða gólfs og veggja og við dyrakarma, glugga eða önnur op. Bæði á steinhúsum og timbur- húsum þarf að hafa góða loftræst- ingu á milli ystu kápu og einangr- unar, 40-50 mm bil. Þegar hús eru einangruð innan á veggi þarf að hafa í huga t.d. að útloftun og þurkun innanfrá hindr- ist ekki af of þéttum klæðningum. Það getur t.d. átt sér stað ef vegg- urinn hefur verið veggfóðraður með vinyl-veggfóðri, þá verður að fletta því af áður en einangrað er. Heita loftið leitar alltaf út í kald- ara loft. Innan við einangrun þarf því að klæða með þéttri þynnu, annaðhvort plastþynnu eða álpappa eða öðru álíka efni. Á liðnum öidum lærðu bygginga- menn að byggja þannig að eðlileg rotnun náttúrunnar tefðist og hvernig hús varðist best vatni og raka. Þurrt timbur fúnar ekki. Þurr járnplata ryðgar ekki. Sú bygging sem varin er gegn raka stenst um aldir. Jafnvel þótt byggingar nútíma- manna séu flóknari en áður var er viska gömlu meistaranna enn í fullu gildi. Ef við glötum þeirri þekkingu mun hin náttúrlega rotnun byija í húsinu, það er einfalt en satt. Slík hrörnun gengur hratt fyrir sig. eftir B|omo Olafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.