Morgunblaðið - 07.11.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJÚDAGXJR T. NÓVEMBER 1989
Hálfri milljón króna
stolið úr Eymiindsson
Miklum verðmætum stolið ór Austurbæjarskóla
BROTIST var inn í Bókaverslun
Sigfusar Eymundssonar í Aust-
urstræti um helgina og stolið
Virkjana-
samningurinn
samþykktur
NÝR virkjanasamningur til næstu
tveggja ára hefur verið samþykkt-
ur af starfsmönnum við Blöndu-
virkjun með 92 atkvæðum gegn
20. 5 seðlar voru auðir og einn
ógildur. Þetta er annar virkjana-
samningurinn sem gerður er á
þessu hausti, en starfsmenn felldu
fyrri samninginn í síðustu viku.
Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðs-
félags Austur-Húnavatnssýslu fjöll-
uðu um samninginn í gærkveldi.
Stjómir og trúnaðarráð verkalýðs-
félaganna á virkjanasvæðunum
þurfa einnig að samþykkja samning-
inn til þess að liann öðlist gildi, sem
og framkvæmdastjómir landssam-
banda félaga iðnaðarmanna.
þaðan miklum verðmætum, um
hálfri milljón króna í peningum
auk talsverðrar fjárhæðar í
greiðslukortanótum. Miklum
verðmætum var einnig stolið
og spjöll unnin í innbroti í Aust-
urbæjarskóla.
Brotist var inn í fyrirtækið baka-
til, farið inn á skrifstofu á annarri
hæð og peningunum stolið þaf úr
peningaskáp. Unnið er að rannsókn
málsins.
Þá var miklum verðmætum stolið
og mikil spjöll unnin í innbroti í
Austurbæjarskóla aðfaranótt laug-
ardagsins. Farið var víða um húsið
og stolið meðal annars tölvubúnaði
og myndbandstæki. Þá var stolið
hljómplötum sem nemendur komu
með í skólann vegna dansleiks, til
dæmis öllu plötusafni eins nemand-
ans. Verðmæti þýfisins er talið vera
5-700 þúsund krónur. Þeir sem
þarna voru að verki brutu 10 hurð-
ir í skólanum, veltu munum um
koll og sprautuðu úr duftslökkvi-
tækjum þar sem þeir fóru um.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur
að málinu.
Reuter
Fékk raunhæfa
áminningu
Sélfossi.
BÍLSTJÓRI á leið austur fyrir
fjall var nýlega stöðvaður í Svína-
hrauni af lögreglunni í Árnes-
sýslu sem var þar með umferðar-
könnun ásamt Umferðarráði.
Bílstjórinn var ekki með beltið
spennt en fékk þá skipun að setja
það á sig sem hann gerði og sá
ekki eftir.
Nokkru seinna fékk lögreglan
tilkynningu um að bíll hefði farið
útaf Biskupstungnabrautinni undir
Ingólfsfjalli og lent á steini. Þar var
þá kominn bílstjórinn sem áminntur
var um það í Svínahrauninu að setja
á sig beltið. — Sig. Jóns.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heilsar Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra Israels, á skrifstofu hins síðarneftida í Jerú-
salem í gær. ———————
Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísraels um friðarviðræður:
Leggur gífiirlega áherslu
á þjóðarsamstöðu um málið
- segir Þorsteinn Pálsson eftir viðræður við ráðherrann í Jerúsalem
ÞORSTEINN Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er nú í heim-
sókn í Israel í boði þarlendra
stjprnvalda. í gær lagði hann
VEÐUR
1 Z' fr- 7** -f* f * 1
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR ÍDAG, 7. NÓVEMBER:
YFIRLIT f GÆR: Austanátt um sunnan- og vestanvert landiö, sums stað-
ar allhvöss, en norðaustanlands var hægviðri. Rigning eða slydda var á
Suður- og Vesturlandi, en snjókoma á Vestfjörðum. Á Norður- og Aust-
urlandi var skýjað en úrkomulaust. Kaldast var á Akureyri og á Bergstöð-
um, fjögurra stiga frost, en hlýjast 6 stiga hiti á Hellu.
SPÁ: Nokkuð hvöss norðaustanátt, snjókoma eða éljagangur á Vest-
fjörðum en heldur hægari austanátt í öðrum landshlutum. Hiti nálægt
frostmarki og dálitil slydda á stöku stað norðanlands en 2ja-5 stiga hiti
og skúrir um sunnanvert landiö.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: NOfðaustanátt og
éljagangur á Vestfjörðum en austlæg eða suðaustlæg átt og víða
skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. Vægt frost um norðan-
vert landið en yfirleitt frostlaust syðra.
TÁKN:
Heiðskírt
y, Nórðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heif fjöður
er 2 vindstig.
/ / r
/ / / / Rigning
/ / /
* f *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
'm w
Y T 4
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +4 alskýjað
Reykjavik 3 rigning
Björgvin 7 rigning
Helsinki 8 skúr
Kaupmannah. 10 skýjað
Narssarssuaq •f4 skýjað
Nuuk t8 skafrenningur
Ósló 8 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 19 skýjað
Amsterdam 7 þokumóða
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 7 rigning
Chicago 6 alskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 7 skýjað
Glasgow 6 mistur
Hamborg 7 rigning
Las Palmas 22 skúr
London 8 léttskýjað
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 4 skýjað
Madríd 14 alskýjað
Malaga 19 skýjað
Mallorca 16 skýjað
Montreal 8 skúr
New York 13 mistur
Orlando 19 þokumóða
París 10 skýjað
Róm 16 skýjað
Vin 11 rigning
Washlngton 12 léttskýjað
Winnipeg +2 alskýjað
blómsveig að minnismerki i Jerú-
salem um gyðinga sem týndu lífi
í útrýmingarbúðum nasista í
heimsstyrjöldinni síðari. Einnig
átti Þorsteinn viðræður við
frammámenn, þ. á m. Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra og leið-
toga Líkúd-flokksins, og Shimon
Peres, aðstoðarforsætisráðherra
og formann Verkamannaflokks-
ins. Þorsteinn verður í Israel fram
á laugardag og er Kjartan Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, í fylgd með hon-
um.
Er Morgunblaðið ræddi við Þor-
stein kom fram að í samræðunum
við Shamir hefði fyrst verið fjallað
um samskipti landanna tveggja fyrr
og síðar en síðan um stefnu Israels-
stjórnar og alþjóðamál. Forsætisráð-
herrann lýsti friðaráætlun sinni þar
sem kveðið er á um kosningar Pa-
lestínumanna á hernumdu svæðun-
um jafnframt því sem hann ræddi
um samskipti ísraels við Evrópu-
bandalagið (EB). Shamir vakti at-
hygli á nauðsyn þess að Israelar
hefðu áfram aðgang að evrópskum
mörkuðum. Þorstein rakti á hinn
bóginn afstöðu íslendinga í væntan-
legum viðræðum Fríverslunarbanda-
lagsins (EFTA) við EB.
Samsteypustjórn ísraels náði sam-
komulagi á sunnudag um svar við
nýlegum tillögum Bandaríkjamanna
um friðarviðræður ísraela og Pa-
lestínumanna. „Shamir lagði gífur-
lega áherslu á nauðsyn þess að þjóð-
arsamstaða yrði um málið,“ sagði
Þorsteinn. Ljóst væri að sumir
flokksmenn forsætisráðherrans væru
ósammála afstöðu ríkisstjórnarinnar
til tillagna Bandaríkjamanna. Þor-
steinn sagðist telja að Shamir væri
reiðubúinn að láta bijóta á málinu,
svo mikilvægt teldi hann stjórnar-
samstarfið við Verkamannaflokkinn;
ráðherrann hefði ítrekað að samstaða
um friðaráætlun væri mikilvægasta
málið í ísraelskijm stjórnmálum
núna.
Þorsteinn bætti við að sér virtust
menn hóflega bjartsýnir á framgang
þessara mála á næstunni en hann
ræddi m.a. við nokkra þingmenn, auk
áðurnefndra ráðherra.
Síðar í vikunni mun Þorsteinn
heimsækja svæði þar sem Palestínu-
menn búa.
Þórshöfti:
Útgerðarfélagið fær
greiðslustöðvun
ÚTGERÐARFÉLAG Norður-Þingeyinga á Þórshöfn hefúr fengið
þriggja mánaða greiðslustöðvun, en miklir rekstrarörðugleikar hafa
verið hjá félaginu undanfarið. Stakfell, togari ÚNÞ, heftir legið við
bryggju í rúmar þrjár vikur.
Að sögn Sigurðar Friðrikssonar
hjá ÚNÞ á fyrirtækið við erfiða
lausafjárstöðu að glíma, miklar
skammtímaskuldir, síaukinn fjár-
magnskostnað og minnkandi kvóta,
sem hefur minnkað um 600 tonn
síðastliðin þijú ár. Hann telur fjár-
magnskostnað fyrirtækja verá orðinn
það mikinn að einungis stærstu fyrir-
tækin geti borið hann.
Stakfellið er 470 tonna skip, og
var það keypt til Þórshafnar árið
1982. Það landaði ísfiski á Þórshöfn
og Raufarhöfn í fimm ár, og skapaði
mikla atvinnu. Fyrir tveim árum var
skipinu breytt í frystiskip, og þar sem
það skapar ekki lengur atvinnu í
landi, þá réðst ÚNÞ í kaup á Súlna-
felli, sem átti að leysa þann vanda.
Rekstur þess gekk illa í fyrstu vegna
alvarlegra bilana, og rýrði það til
muna stöðu útgerðarfélagsins, og var
það því selt snemma á þessu ári.
Eftir taprekstur Stakfellsins árið
1988 var það rekið á sléttu fyrstu
sjö mánuði þessa árs, en síðan hefur
sigið á ógæfuhliðina.
Sigurður Friðriksson telur að
miklu fyrr hefði þurft að takast á
við vanda útgerðarfélagsins, en
greiðslustöðvunin verði notuð til þess
að koma málum fyrirtækisins í gott
h0rf L.S.
Hótel Reynihlíð verður
lokað fram í febrúar
HÓTEL Reynihlíð við Mývatn hefur verið lokað, og að sögn Arn-
þórs Björnssonar hótelstjóra er ekki gert ráð fyrir að það opni á
nýjan leik fyrr en um miðjan febrúar næstkomandi. Hótelið hefúr
verið opið allan ársins hring undanfarin 20 ár, og yfir vetrarmánuð-
ina hafa starfað þar 7—8 manns.
Arnþór sagði að undanfarin tvö
ár hefði verið mjög lítið að gera á
hótelinu, enda engar verklegar
framkvæmdir í gangi í byggðarlag-
inu. „Það er of dýrt að halda hótel-
inu opnu þegar fátt er úm gesti, og
í vetur virðist þetta vera enn dauf-
ara en undanfarin ár. Við höfum
alltaf reynt að ná í árshátíðir og
þess háttar um helgar, og reyndar
erum við tilbúin að taka slíkt að
okkur áfram þó hótelinu hafi ann-
ars verið lokað.“