Morgunblaðið - 07.11.1989, Blaðsíða 27
IIŒAJaMUOHOi
:ar aaaMavoM .t irroAauuHíM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1989
27
Hljómsveitin Islandica.
Fræðslu-
fundur um
jarðskjálfta
KYNNINGARNEFND Verk-
fræðingafélags íslands efiiir til
fræðslufundar um jarðskjálfta í
Norræna húsinu í dag og hefst
iundurinn klukkan 20.
Frummælendur verða Björn Ingi
Sveinsson j arðskj álftafræðingur,
sem starfað hefur í San Francisco
undanfarin 10 ár, Ragnar Sig-
björnsson forstöðumaður Verk-
fræðistofnunar Háskóla íslands og
Páll Halldórsson jarðskjálftafræð-
ingur á Veðurstofu Islands en þeir
eru nýkomnir úr kynningarferð til
San Franciseo.
Fyrirlestur um
umhverfismál
ÞORVALDUR Örn Árnason,
námsstjóri í náttúrufræði, flytur
í dag fyrirlestur á vegum Rann-
sóknastofnunar uppeldis- og
menntamála er nefiiist: Hvernig
kennum við börnum að taka
ábyrgð á umhverfinu?
Þetta er íjórði fyrirlesturinn á
vegum RUM um náttúrufræði-
kennslu í grunn- og framhaldsskól-
um. Þoi-valdur Örn mun í erindi
sínu víkja að áhyggjum manna af
umhverfismálum, auknum áhuga á
umhverfisvernd og hlutverki skóla
og félagssamtaka á þessu sviði.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Kennaraskólahúsinu við Laufásveg
og hefst kl. 16.30.
Námskeið í ung-
barnanuddi
ELÍNBORG Lárusdóttir félags-
ráðgjafí verður á næstunni með
kennslu í ungbarnanuddi fyrir
verðandi og nýbakaða foreldra.
„Ungbarnanudd er aldagömul
aðferð ti! að yiðhalda heilsu og
velferð barnsins, bæði líkamlega,
tilfinningalega og andlega. Nuddið
styrkir ónæmiskerfi líkamans,
blóðrás og öndun. Það hjálpar
barninu að slaka á, losar um
spennu og streitu og stuðlar að
betri svefni. Það hefur reynst ómet-
anlegt börnum, sem þjást af maga-
kveisu og þeim börnum sem hafa
gengið í gegnum erfiða fæðingu.
En umfram allt er nuddið börnun-
um og foreldrum þeirra tilfinninga-
leg næring og gleði,“ segir í frétta-
tilkynning:u.
*
Utskiptaregla
Kvennalistans
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
31. október sl. um fulltrúaskipti
á Alþingi vill Kvennalistinn taka
fram eftirfarandi:
„í upphafi fréttarinnar segir orð-
rétt: „Samkvæmt reglu sem Sam-
tök um kvennalista hafa sett sér,
þá á engin kona sem gegnir trúnað-
arstarfi fyrir samtökin að gegna
því lengur en sex ár samfleytt."
Þetta er misskilningur, sem reynd-
ar hefur áður komið fram í fjölmiðl-
um, og gæti því virst sem kvenna-
listakonur tækju lítið mark á eigin
starfsreglum. Sannleikurinn er hins
vegar sá, að samkvæmt samþykkt
landsfundar Kvennalistans árið
1986 er viðmiðunarreglan sú, að
engin kona gegni lengur fulltrúa-
störfum á Alþingi en að hámarki
6—8 ár í senn og sú regla hefur
sannarlega ekki verið brotin."
Sýning Jónínu
framlengd
ÁKVEÐIÐ hefur verið, vegna
mikillar aðsóknar, að framlengja
sýningu Jónínu Magnúsdóttur í
Gallerí List ft'am til fostudagsins
11. nóvember næstkomandi.
Á sýningunni eru verk unnin
með postulínslitum á flísar, olíu á
striga og krít á pappír.
Tónleikar í
Lyngbrekku
NÆSTU tónleikar tónlistarfé-
lags Borgarfjarðar verða á dag-
skrá sunnudaginn 12. nóvember
klukkan 16 í Lyngbrekku á Mýr-
um. Það er þjóðlagahljómsveitin
Islandica scm þá mun skemmta
Borgfirðingum með söng og
spili. I fréttatilkynningu segir:
„Hljómsveitin Islandica hefur
sérhæft sig í flutningi íslenskra
þjóðlaga og leitast við að fara ekki
troðnar slóðir í útsetningum, í þeim
tilgangi að færa lögin í nýjan og
ferskan búning.“ Hljómsveitina Is-
landica skipa þau Gísli Helgason,
flautuleikari, Ingi Gunnar Gunnar
Jóhannsson, söngvari og gítarleik-
ari, Herdís Hallvarðsdóttir, söngv-
ari og bassaleikari og Guðmundur
Benediktsson, söngvari, gítar- og
hljómborðsleikari.
Fræðslufundur
um plútón
í TILEFNI af alþjóðlegri friðar-
viku vísindamanna lialda Sam-
tök íslenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, almennan fræðslu-
fund á morgun. Fundurinn verð-
ur haldinn í Skólabæ, Suðurgötu
26, og hefst klukkan 20.30. Á
fundinum inun Ingvar Árnason
efnafræðingur Ijalla um plútón,
efnafræðilega eiginleika og
skaðleg áhrif.
Alþjóðleg friðarvika vísinda-
manna var haldin í fyrsta sinn
1986 með þátttöku vísindamanna
frá 20 löndum, þar á meðal ís-
landi. Síðan hefur hún verið haldin
árlega og hefur þátttaka farið vax-
andi. í fyrra samþykkti Allsheijar-
þing Sameinuðu þjóðanna að beina
þeim tilmælum til allra aðildarþjóða
samtakanna að ein vika í upphafi
nóvember ár hvert yrði helguð
fræðslu og umræðum um þýðingu
vísindarannsókna fyrir friðar- og
öryggismál.
Kynningarfimd-
ur um jarðgöng
JARÐGANGAFÉLAG íslands og
Mannvirkjafræðafélag íslands
gangast fyrir kynningarfundi í
dag í samvinnu við Sænska
sendiráðið um styrkingar í jarð-
göngum.
Kynningin verður á ensku og
nefnist „Swedish Technology in
Reinforcement of Tunnels." Ulf
Svenér frá Sænska sendiráðinu
setur fundinn og Berne Sehlberg
frá Swedengineers Minetech AB
flytur erindi um styrkingar í jarð-
göngum. Að því loknu eru fyrir-
spurnir og umræður. Þá mun Birg-
ir Jónsson frá Orkustofnun flytja
örstutta kynningu á mögulegum
jarðgöngum á íslandi í náinni
framtíð.
Fundurinn verður haldinn í fund-
arsal Orkustofnunar, Grensásvegi
9, 3. hæð og hefst klukkan 17.00.
Leiðrétting
í þættinum Markaðurinn á bls.
2 í Fasteignablaði Morgunblaðsins
sl. sunnudag misritaðist nafn höf-
undar undir mynd með greininni.
Þar átti að standa Sigurður Jóns-
son, en ekki Sigurgeir Jónasson.
Eru höfundur og lesendur beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Bók um skerp-
ingu sjónarinnar
SKERPIÐ sjónina nefnist bók
eftir Harry Benjamin sem Is-
lenska heilunarfélagið hefur gef-
ið út.
í frétt frá íslenska heilunarfé-
laginu segir að þarna sé á ferð
heildstætt og einstakt kerfi til
sjálfshjálpar í baráttunni við ýmsa
sjón- og augngalla.
Bókin er nú komin út í 5. útg-
áfu. Hún fæst víða í bókaverslun-
um.
„Lífogljör“
á Flateyri
Flat«yri.
ÆSKULÝÐSRÁÐ á Flateyri
stóð fyrir skemmtuninni „Líf og
íjör“ á Flatyeri fyrir skömmu
og bauð heim unglingum frá
Bolungarvík, Isafirði, Súðavík,
Suðureyri, Þingeyri og 9. bekk
Héraðsskólans á Núpi.
Um 230 ungiingar voru saman-
komnir á Flateyri. Þorpið iðaði af
lífi, enda varð um helmings fjölgun
á eyrinni þetta kvöld.
Dagskráin hófst með því að
unglingasveit Björgunarsveitarinn-
ar sýndi æfingar á fótboltavellin-
um, síðan voru skemmtiatriði og
leikir í sundlauginni. Settur var upp
skyndibitastaður í skólanum og um
kvöldið var svo dansleikur og ýmis-
legt fleira í félagsheimilinu. Rokk-
bændurnir léku fyrir dansi við góð-
ar undirtektir viðstaddra.
- Magnea
Fræðslumyndir
um vetrarumferð
Bifreiðatryggingafélögin,
Umferðarráð og Þjóðarátaks-
nefnd í umferðarmálum hafa lát-
ið gera fjórar fræðslumyndir fyr-
ir sjónvarp um vetrarumferð.
Myndirnar eru stuttar, 2-5
mínútur hver. Auk sýninga í sjón-
varpi er gert ráð fyrir að þær verði
sýndar í ökuskóíum, framhalds-
skólum og víðar. Myndirnar heita
Bíllinn og veturinn, Gangandi í
vetrarfærð, Vetrarakstur og Ökum
betur í vetur. Saga film annaðist
gerð þáttanna undir stjórn Egils
Eðvarðssonar, handrit skrifaði
Olafur Pétursson og Kristín Á.
Ólafsdóttir og Jónas R. Jónsson sjá
um kynningar.
Frumsýning á
Hótel Höfii '
Höfn.
LEIKFELAG Hornafjarðar
frumsýndi á Hótel Höfn tvo ein-
þáttunga í lok októbermánaðar
og var þeim vel tekið af frumsýn-
ingargestum.
Verkin eru Já frú forstjóri eftir
Danann Finn Methling og Afleið-
ingar eftir enska höfundinn Gra-
ham Swannell. Leikendur eru 3 í
hvorum þætti og eru flestir af yngri
kynslóð leikara félagsins. Leikstjóri
er Oktavía Stefánsdóttir, en hún
starfaði áður með félagsmönnum
1987 við uppfærslu á 19. júní.
Þetta er í fyrsta sinn að leik-
félagið setur upp verk á hótelinu
en þar eru sæti fyrir um 90 leikhús-
gesti. Verkin verða sýnd áfram
næstu vikur. Formaður Leikfélags
Hornafjarðar er Þorsteinn G. Sig-
urbergsson.
Tíu verk tilneftid til
T ónskáldaverðlauna
Norðurlandaráðs
EFTIRTALIN verk liafa verið lögð fram og tilnefnd til Tónskálda-
verðlauna Norðurlandaráðs:
Frá íslandi: Nágon har jeg sett
eftir Karólínu Eiríksdóttur og Styr
eftir Leif Þórarinsson.
Frá Svíþjóð: Sinfonia eftir Daniel
Börtz og Un coup de dés jamais
n’abolira la liazard eftir Lars
Ekström.
Frá Danmörku: Ekliptiske Instr-
inkter, Sinfónía nr. 7 eftir Ib Nor-
holm og Aura eftir Palle Mikkel-
borg.
Frá Finnlandi: Silkkirumpu op.
45 eftir Paavo Heininen og Tokko
eftir Jukka Tiensu.
Frá Noregi: Magma eftir Arne
Nordheim og Gjennom prisme eftir
Olav Anton Thommessen.
Niðurstaða dómnefndar verður
kunngjörð um miðjan nóvember nk.
og verðlaunin verða síðan afhent á
fundi Norðurlandaráðs sem haldinn*
verður í Reykjavík í febrúar/mars
á næsta ári.
(F réttat i 1 ky nning)
Byggingamefhd Þjóðar-
bókhlöðu mótmælir
Byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu ákvað á fundi sínum 31. október
að skrifa menntamálaráðherra bréf, þar sem því yrði mótmælt, hversu
bæði lögin um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu 1986 og lögin
um Þjóðarbóklilöðu og endurbætur menningarbygginga 1989 liafa ver-
ið þverbrotin.
Þótt lagðar hafi verið á 684 m.kr.
samkvæmt fyrri lögunum hefur ein-
ungis 249 m.kr. enn verið ráðstafað
til bókhlöðunnar.
I seinni lögunum frá í vor er
tvívegis tekið fram, að veija skuli
sjóðnum, sem myndaður skal, í upp-
hafi til að ljúka byggingu Þjóðarbók-
hlöðunnar. Þ.e. „þar til byggingu
Þjóðarbókhlöðu er lokið, skal sér-
stakur eignarskattur samkvæmt lög-
um þessum renna til þeirra fram-
kvæmda eftir því sem þörf krefur",
eins og segir að lokum í ákvæði til
bráðabirgða.
I 8. grein laganna segir svo:
„Sjóðsstjórn ákveður framlög úr
sjóðnum í byijun hvers árs, þegar.
fjárlög hafa verið samþykkt." Þrátt
fyrir þetta ákvæði og hin fyrrnefndu
um forgang Þjóðarbókhlöðu eru fjár-
lagasmiðir þegar búnir að ráðstafa
sjóðnum fyrirfram, ei'ns og Ijárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1990 sýnir, og
skeyta þar í engu um ákvæði lag-
anna. ^
Til framkvæmda við Þjóðarbók-
hlöðu 1990 eru einungis ætlaðar 60
m.kr. úr hinum nýja sjóði, þótt ráð-
gert sé að leggja á 270 m.kr. Er
Háskóla íslands síðan ætlað að
leggja byggingarsjóði bókhlöðunnar
til 60 m.kr. af happdrættisfé sínu.
Þessu hafa forráðámenn háskólans
og margir fleiri mótmælt harðlega,
eins og kunnugt er.
Skorað er á menntamálaráðherra
og Alþingi að sjá til þess, að fyrr-
nefndum lögum verði fylgt og bók-t
hlöðunni tryggt það fé, sem henni
ber samkvæmt þeim. Jafnframt, að
ríkisstjórnin standi við þau fyrirheit,
er hún gaf í stefnuyfirlýsingu sinni
haustið 1988, að lokið verði byggingu
Þjóðarbókhlöðu innan fjögurra ára,
þ.e. á árinu 1992.
(Frétt frá byggjing’arnefiid
Þjóðarbókhlöðu)
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 6. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 78,00 56,00 72,60 36,739 2.667.134
Þorskur(ósk) 70,00 70,00 70,00 2,595 181.650
Ýsa 90,00 51,00 84,12 11,050 929.537
Ýsa(ósL) 85,00 85,00 85,00 1,590 135.150
Karfi 37,00 34,00 35,62 68,340 2.434.255
Ufsi 45,00 30,00 38,62 1,473 56.864
Samtals 52,97 130,300 6.901.745
i dag verður meðal annars selt óákveðið magn úr Stakkavik ÁR.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 72,00 30,00 63,86 18,565 1.185.490
Ýsa 94,00 50,00 81,61 20,883 1.704.223
Ufsi 21,00 15,00 16,76 0,136 2.280
Samtals 70,68 43,903 3.103.228
í dag verður selt úr línu- og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(óst) .75,50 41,50 65,65 10,101 663.108
Ýsa(ósl.j 69,00 35,00 83,12 3,895 323.769
Karfi 35,00 28,00 34,77 0,811 28.198
Ufsi 26,00 20,00 25,93 2,433 63.090
Samtals 54,87 21,051 1.155.029
Selt var meðal annars úr Búrfelli KE og Nirði EA. i dag verður
selt óákveðið magn úr línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 30. október til 3. nóvember.
125,34 244,301 30.621.433
143,26 26,015 3.726.805
32,285
2,555
0,100
22,220
59,41
66,89
171,73
116,60
1.917.893
170.905
17.173
'2.590.871
39.678.849
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karli
Koli
Grálúða
Samtals 119,27 332,681
Selt var úr Stapavík Sl í Grimsby 30. okt., Gjafari VE i Hull 2,
nóv., Gullveri NS í Grimsby 3. nóv. og Hafnarey SU í Hull 3. nóv.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 30. október til 3. nóvember.
Þorskur 141,11 287,346 40.548.398
Ýsa 141,23 198,900 28.090.776
Ufsi 62,83 27,984
Karfi 63,07 17,801
Koli 125,88 37,861
Samtals 131,86 645,571
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 30. okt. til 3. nóv
Þorskur 134,80 21,401 2.884.807
Ýsa 91,83 0,857
Ufsi 77,18 28,412
Karfi 64,29 352,238
Grálúða 127,36 3,894
Samtals 66,11 451,798
1.758.168
1.122.659
4.765.959
85.125.966
78.695
2.192.974
22.646.213
495.945
29.866.418
Selt var úr Ögra RE 31. okt., Stokknesi SF 1. nóv. og Jóni Bald-
vinssyni RE 3. nóv. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven.