Morgunblaðið - 12.11.1989, Síða 5

Morgunblaðið - 12.11.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989 C 5 vegna haldið kjafti allan daginn. Mörgum finnst föndursalurinn skemmtilegasti staðurinn í húsinu. Hér vefa menn, sauma og hródera, og í einu horninu spila nokkrir brids, vist og lomber. Hér er presturinn með bænastund vikulega, og hér eni hinar ýmsu „uppákomur“. Fyrir stuttu var pönnukökudagur, en þá tóku vistmenn sig til og bökuðu pönnukökur á mörgum hellum — hver með sína leyniuppskrift að sjálf- sögðu. Síðan var slegið upp veislu og öllum boðið sem vildu. Ættingjar Andrúmsloftið undir súðinni er algjörlega laust við skarkala heims- ins fyrir utan og því dvelst manni lengur en ella þar inni. Eg rabba við vistmenn um vinnuna þeirra, fjöl- skylduna, börnin og barnabörnin, og finn og skil að það eru ættingjarnir sem skipta þetta fólk mestu máli. Öll eru þau að keppast við að ljúka ákveðnu verki sem þau ætla að færa börnum sínum og tengdabörnum. „Heldurðu að hún Anna verði ánægð með þessar diskamottur?" spyr ein efins á svipinn. „Já,“ segi ég öfundsjúk út í Önnu, og býð hénni síðan gull og græna skóga fyrir motturnar. En ég er ekki ættingi. Þau virðast hugsa lítið um fram- tíðina, dagurinn í dag er mikilvæg- ari og það hvernig börnunum og barnabörnunum vegnar. En það er alltaf nóg um að vera hjá þeim, segja þau. Tvisvar í viku fara þau í sund suður í Fjörð, vikulega sitja þau fundi með húsmóðurinni þar sem þau „ræða málin“, en þessa dagana vinna þau baki brotnu fyrir basarinn sem verður í bytjun nóvember. Stundum eru haldin dansiböll á Hrafnistu og svo fara þau annað slagið í dagsferðalög fyrir ágóðann sem kemur inn fyrir verslunina - sem þau sjálf reka. Og það eru líka nokkrir sem skella sér til Búlgaríu og Spánar á eigin vegum. Auður gangur Komið er kvöld og búið að ganga frá öllu á deiidunum. Kvöldvaktin er að dedúa eitthvað við fólkið inni á herbergjunum, einn er eitthvað óánægður með koddann sinn og ann- ar á í vandræðum með ísskápinn sinn, en ég skipti mér ekkert af þessu, er dauðuppgefin eftir hlaupin á dagvaktinni. Þrír menn sitja í setu- stofunni og fylgjast með kvöldfrétt- um sjónvarpsins, en annars er ekki hræðu að sjá. Þegar ég geng inn eftir auðum ganginum heyri ég órninn frá frétta- þulum sjónvarpsins úr flestum her- bergjum. Ef herbergin væru ekki svona lítil, þá væri þetta ekkert öðruvísi en að ganga um í fjölbýlis- húsi þar sem hver hefur sitt heimili. í þessu stóra húsi, sem gjarnan mætti vera minna, eru margir sem ef til vili eru komnir að leiðarlokum - eða halda að þeir séu það. En það eru líka aðrir sem eru að byija nýtt líf, eins og hjónin nýgiftu sem ég hitti við lyftuna einn daginn. Hér gildir það sama og úti í þjóðfélaginu, hver er sinnar gæfu smiður. Þeir sem er hennar áhugamál og „om- vendt“.“ „Við förum mikið út,“ segir Guðrún, „förum í bæinn í heim- sóknir, og höfum bæði áhuga á leikhúsi og bókmenntum. Ég fer líka oft í sund, en það er ekki lif- andi leið að fá hann með.“ Jón: „Hún er að skvampa þetta, en ég fer ekki ofan í laug fulla af bakteríum og óþverra. Hins vegar ástunda ég að þvo mér.“ Ég spyr þau um heilsufarið, sýn- ist þau bæði vera stálsiegin og þau segjast vera mjög heilsuhraust. „Mér hefur ekki orðið mis- dægurt síðan ég var sex ára,“ seg- ir Jón. — Samt reykirðu? Guðrún: „Hann er að hætta því.“ Jón móðgaður: „Ég ætla nú ekk- ert að fara að hætta því til að missa heilsuna." Guðrún segir að Jón lesi mikið, en hann segist einkum vera í því að rífa niður ljóðskap. „Annars get ég ekkert lesið því hún Guðrún talar svo mikið.“ Guðrún hristir bara höfuðið og hlær. Pau vita eiginlega hvorugt hvern- ig þetta gerðist allt saman. Jón horfir hugsi á konu sína: „Ég sá hana og hún mig svona „forbi- gáende". Við vorum alltaf að góna hvort á annað.“ „Já,“ segir Guðrún, „þetta var svo undarlegt, það var eins og okk- ur hefði alltaf verið ætlað að vera saman.“ Guðrún er 74 ára og Jón 77 og bæði voru þau gift áður. Á Jón eitt barn og Guðrún sex. Guðrún var reykvísk húsmóðir áður en hún kom inn á Hrafnistu, og hafði dval- ið þar í fjögur ár, en Jón sex mán- uði þegar þau kynntust. Lengi horfðu þau bara hvort á annað eins og þau segja, en fóru svo að spjalla saman, fara út í gönguferðir, og eitt kvöldið þegar þau sitja í setu- stofunni segir Jón með krosslagðar hendur rétt sisona: „Eigum við ekki að gifta okkur?“ Og Guðrún sagði já eins og ekk- ert væri sjálfsagðara. Þau skmppu til Stykkishólms, þaðan sem Jón er ættaður, og þar gaf sýslumaðurinn þau saman. „Við héldum upp á þetta bara tvö ein, borðuðum á hóteiinu þar sem við gistum, og fengum fallegar rósir og kort frá fólki.“ Þegar þau komu til baka á mánudeginum beið þeirra ijóma- terta á Hrafnistu. „Ég var yfir mig ánægður að vera giftur Guðrúnu," segir Jón. „Hugsaðu þér ef ég hefði nú gifst einhverri Margréti eða Sigríði." — En hvers vegna voruð þið að gifta ykkur, nú eru svo margir sem láta sér nægja að vera í sambúð? „Við erum svo heiðarlegar manneskjur," segir Jón. „Vildum ekki valda neinu hneyksli. Gróur á Leiti eru margar til með fantasíur „Það var ekkert hlægilegt áður en við kynntumst," segja nýgiftu hjónin Guðrún og Jón. Innfellda myndin er brúðarmyndin. margskonar. Ef fólk fer að laðast hvort að öðru og fara til skiptis inn -á herbergin, þá verður umtalið óþolandi. Með hjónabandi er bitinn tekjnn af því. Ég er líka eldri og fastheldnari en Guðrún. Ég er kaþólikki sjáðu til, hún er prótestant. Ég hélt að hún yrði nú að taka mína trú þeg- ar við giftum okkur, en hún sagði bara kalt nei! Svo nú er trúarstríð i hjónabandi okkar.“ Guðrún: „Nei Jón, það er nú ekki rétt hjá þér.“ Jón: „Jæja, en Marteinn Lúther reis upp gegn kristnum siðum og rýmkaði um siðareglur kaþólikka. Gerði það auðveldara fyrir menn að kalla sig kristna. En það vantar alla reisn yfir lútherska trú. Kaþ- ólska trúin er fágaðri." Ég spyr hvernig dagurinn líði hjá þeim, hvert sé þeirra áhuga- mál, og Jón svarar að bragði: „Ég — Ég sé að þið skemmtið ykkur vei saman, segi ég. „Það var ekkert hlægilegt áður en við kynntumst," segir Jón. „Ég get sagt þér, að ég er bara ekki með sjálfum mér þegar Guðrún er ekki hjá mér.“ „Ég segi það sama,“ segir Guð- rún, „hann var að spila hér eitt kvcldið og mikið ósköp fannst mér tíminn lengi að líða á meðan.“ Þau segjast ætla að vera áfram á Hrafnistu og segir Jón að þetta sé merkilegt heimili með miklum menningarbrag. „Hvergi nokkurs staðar á byggðu bóli fyrirfinnst annað eins heimili. Okkur líður ákaflega vel hérna.“ Þau fengu hjónaherbergið fyrir þremur dögum og eru næstum búin að koma sér fyrir, eiga eftir að losa sig við nokkrar mublur, „og þá getum við dansað hérna,“ segir Jón spekingslega. ÁSTIN Á sér engan aldur og gefur æskudýrkun langt nef þegar henni sýnist svo. I einu hjónaherbergjanna á Hrafiiistu eru nýgift hjón að koma sér fyrir, þau Guðrún Karlsdóttir „ og Jón Sigurðsson, en þann 7. !H september sl. létu þau pússa sig = saman eftir tveggja mánaða J3 kynni. Jón er ef til vill þekktari J undir nafninu „kadett", og skrifaði Jónas Ámason bók um -f hann á sínum tíma sem ber s heitið „Syndin er lævís og lip- § ur“. JETLDfl HVORT ÖBRU Sungið undir súð Presturinn var með bænastund í föndurstofunni og þau kunnu svo sannarlega sálmana sína. ætla sér að njóta lífsins allt til ævi- loka, og hafa heilsu til, gera það hvort sem þeir eru staddir á dvalar- heimili aldraðra eða annars staðar. En þótt húsið sé stórt og herberg- in lítil þá verður ekki annað sagt en að hér ríki heimilislegur og hlýlegur andi og það skiptir öilu máli. Hvort sem það er áhuga húsráðenda að þakka, starfsfólkinu sem margt hef- ur verið hér árum saman, eða ein- hveijum búálfum, veit ég ekki. „Það er svo mikið öryggi að vera hérna,“ sagði ein. „Ef maður veikist er hjúkrunardeildin við næstu dyr, nú og svo eru stjórnendur og starfs- fólkið elskulegt, maður gengur eins og drottning niður í „dinner", fer í hárgreiðslu þegar manni hentar, her- bergin eru ræstuð, spjarirnar þvegn- ar og maður þarf ekki einu sinni að vaska upp!“ Eldra fólkið finnur öiyggi hjá yngra fólkinu sem er fært í flestan sjó, en það er nú svo skrýtið, að yngra fólkið finnur ekki síður til notalegs öryggis að vera samvistum við eldra fólkið. Kannski þess vegna sem gangastúlkurnar eru hér árum saman, sumar hveijar. Árni var á leiðinni í bæinn til að útrétta eitt og annað. Leiddist uppvaskiö SJÓMAÐURINN OG húsasmiður- inn Árni Kr. Hansson er einn af þeim sem alltaf er finn í tauinu. Hann kom á Hrafnistu fyrir tveim- ur árum ásamt konu sinni og bjuggu þau fyrsta árið í þjónustu- íbúð við Jökulgrunn. En svo fór kona hans á hjúkrunardeildina og hann flutti í einstaklingsherbergi á dvalarheimilinu sjálfu. Við höfðum búið á Digranesvegin- um frá því 1947 en svo var kon- an mín orðin heilsulaus og þegar ég veiktist líka, fékk blóðtappa, þá fór þetta að verða erfitt. Dæturnar okk- ar þijár voru farnar að sofa heima hjá okkur til skiptis, þannig að þetta gekk ekki lengur. Við sóttum um á Hrafnistu í Hafnarfirði en biðtíminn getur verið mörg ár þar, svo við reyndum hérna og vorum svo heppin að fá þjónustuíbúð sem þá var laus.“ Árni segist sjá eftir þjónustuíbúð- inni sem var rúmgóð, 50 fermetrar að stærð með góðu geymslurými. „Ég var þarna í tvo mánuði eftir að konan mín fór yfir á hjúkrunardeild- ina, en var nú orðinn nokkuð leiður á að vera einn. Það er nú líka svo hundleiðinlegt að þvo upp,“ segir hann og hlær. ' Hann segist vera ánægður með lífið þarna, „hvað má annað vera, maður fær ailt upp í hendurnar, þarf bara að nefna það. Það mætti að vísu gjarnan vera rýmra um mann, en það er alltaf verið að lagfæra eitt- hvað hérna, það er gaman að horfa á karlana þegar þeir eru að vinna,“ segir hann og á við iðnaðarmennina sem eru að setja nýja lyftu í húsið. Árni segist oft vera uppi í föndur- stofu að vinna, og sýnir mér bæði púða sem hann hefur saumað og klukku sem hann hefur nýlokið við að smíða, og reyndar aðra sem hann er með í takinu. Hann fer í sund tvisvar í viku, ef hann er í standi til þess eins og hann segir, og segist þekkja hér marga vistmenn frá fyrri tíð. „Ég les nú ekki mikið,“ segir hann þegar ég spyr hann um önnur áhuga- mál, „fletti stundum Mogganum. En í spil tek ég aldrei, ég bara þoli ekki að spila. Nú, svo hlustar maður á allar fréttir, byijar á sjöfréttum í útvarpinu, síðan fréttum á Stöð 2 og loks sjónvarpsfréttum klukkan átta, maður má ekki missa af neinu!“ segir hann og hlær. En nu er Árni á leiðinni yfir í hjúkrunardeildina til konu sinnar, en ætlar svo á bílnum sínum niður í bæ til, að ná í myndbandsspólur fyrir hana og útrétta eitt og annað. - Þú ert þá bara ánægður með tilvenina? „Ég sé enga ókosti við dvölina hérna, ef eitthvað skyggir á þá eru það veikindi konu minnar.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.