Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ IUIANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGCR 12. NÓVEMBER 1989
C 9
SÁLARFRÆDl/JLrnwrk ab draumumf
Isvefhi sem vöku
ÐRAUMAR hafa löngum verið
taldir með dularfyllri fyrirbær-
um sálarlífsins. Um fá fyrirbæri
hafa verið hafðar uppi fleiri
skoðanir eða settar fram fleiri
kenningar. Sumir hafa litið á
þá sem helbera vitleysu og rugl,
aðrir jafnvel litið á þá sem boð-
skap frá æðri verum á öðrum
stjörnum. Sundurleitar eru
margar þessara kenninga svo
sannarlega og stangast einatt
á. Sigmund Freud gerði draum-
um hátt undir höfði, ritaði um
þá eina af sínum merkustu bók-
um og í kenningum hans um
sálarlífið skipuðu draumarnir
veglegt rúm. Hann nefiidi
drauminn konungsveginn til
dulvitundarinnar.
Ekki treysti ég mér til að taka
afstöðu til þessara kenninga
og skoðana nema að litlu leyti.
Það má vel vera að í sumum
draumum felist forspá, sýn inn í
ókomna tíð eða
fjarlæga heima.
Þá er því oft hald-
ið fram um sumt
fólk að það sé
berdreymið eða
dreymi fyrir dag-
látum. Óneitan-
lega er erfitt að
afneita allri slíkri
draumspeki, svo margar nákvæm-
ar frásagnir sem styðja tilvist
hennar. En hitt er þó jafnljóst að
hún gengur illilega í bág við alla
vísindahefð og þá sálarfræði sem
höfð er í heiðri við menntastofnan-
ir. Þyrfti því að endurskoða æði
margt, ef hún er staðreynd. Eng-
inn vísindamaður hefur enn sem
komið er treyst sér til þess, svo
ég viti.
Allur þorri drauma er hins veg-
ar bersýnilega öllu jarðneskari og
að öllum líkindum ekkl annað en
framhald þeirrar sálarstarfsemi
sem fram fer í vöku. En þó með
nokkuð öðrum hætti. Hugsun
manns í draumi er mun frjálsari
en í vöku, því að í svefninum er
siðferðislegum og vitrænum höml-
um að verulegu leyti aflétt. Hún
er einnig frumstæðari að því leyti
að hún er ekki lengur bundin af
þéim rökfræðireglum sem við
temjum okkur í daglegu lífi. Og
allmiklu hlutstæðari er hún einnig,
sem lýsir sér m.a. í því að draum-
urinn notar fremur myndmál en
hugtök. Af þessum sökum getur
oft verið erfitt að ráða í merkingu
draums og hann getur við fljóta
sýn verið tóm vitleysa. En ómaks-
ins vert er engu að síður að leggja
sig eftir því vilji menn kynnast
sjálfum sér betur.
Þeir sem gera sér far um að
skoða sjálfa sig, íhuga orsakir
gerða sinna og breytni, vilja
þekkja langanir sínar og þarfir,
ættu því að fylgjast vel með
draumum sínum. Ekki er víst að
ávallt takist að ráða merkingu eins
einstaks draums, en þegar fleiri
koma saman, rennur oft smám
saman upp fyrir manni skilnings-
Ijós sem betra er að hafa en ekki.
eftir Sigurjón
Björnsson
HURÐIR -
Hurðir fyrir
iðnaðarhúsnæði,
með eða án glugga
og gönguhuröa.
Surpkassar fyrir po
og hringir á veggi.
VSTÁLHURÐIR S/F
Dalshrauni 20, Hafnarfirði,
Sími 653150.
Auglýst eftir
frambodum
til kjörnefndar fulltrúaaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Samkvæmt ákvörðun stjórnar fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, er hér með
auglýst eftir framboðum til kjörnefndar full-
trúaráðsins.
Framboðsfrestur rennur út mánudaginn
20. nóvember kl. 17.00.
Samkvæmt 11.gr. reglugerðar fyrir fulltrúar-
áð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, eiga 15
manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefnd-
armenn kosnir skriflegri kosningu af fulltrúa
ráðinu.
Samkvæmt 5. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar
telst framboð gilt ef það berst kosninga-
stjórn fyrir lok framboðsfrests, enda sé gerð
þar um tillaga af 5 fulltrúum hið minnsta
og ekki fleiri en 10 fulltrúum. Frambjóðandi
skal gefa kost á sér með skriflegri yfirlýsingu.
Tilkynning um framboð berist stjórn fulltrúa
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, Val-
höll við Háaleitisbraut.
Stjórnin.
SORPKASSAR
ISTANBÚL
SANNKALLAÐ ÆVINTÝRl
Ferðaskrifstofurnar SAGA, ALÍS og SAS bjóða þér að slást í för þeirra mörgu sem
á þessum tíma árs streyma til ISTANBÚL.
Bláa moskan, Grand bazaar, Topkapi höllin, Gullna hornið og Bosporus
eru nöfn, sem flestir hafa aðeins kynnst í bókum.
Nú gefst tækifæri til þess að koma með og upplifa undur þessarar dásamlegu borgar.
Síðast en ekkí síst er ISTANBÚL ein fremsta verslunarborg Evrópu í dag. Hér er
fjöldi verslana með það besta er býðst í fatnaði frá stórborgum Evrópu, eins og
Róm, París, London o.fl., og á viðráðanlegu verði.
Vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við margar nýjar hópferðir.
7 DAGA HOPFERÐIR
frákr. 42>300y
BROTTFARARDAGAR:
INNIFALIÐ ER:
Flug - gisting - morgunverður - akst-
ur til og frá flugvelli, ein heilsdags
kynnisferð um Istanbul með hádegis-
verði og tvær hálfdags ferðir.
26. nóv.- 3. des -12 sæti laus
3. des.- 9. des. -10 sæti laus
10. des.-16. des. - 14 sæti laus
28.jan,- 3.feb.-laussæti
4. feb.-10. feb. - laus sæti
18. feb.-24, feb. - laus sæti
11. mars-17. mars - laus sæti
EINNIG 7 DAGA
EINSTAKLINGSFERÐIR
frákr. 39«400y“
BROTTFÖR ALLA SUNNUDAGA
(flug - gisting - akstur - morgun-
verður)
Æ |C nERCMSKMRSTOMN
Bæjarhrauni 10, sími 652266 sími 622211