Morgunblaðið - 12.11.1989, Side 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989
Guðmundur R. Guðmunds
son, fv. slökkviliðsstj.
Á morgun, 13. nóvember, verður
vinur minn Guðmundur Ragnar
sjötíu ára og er það með ólíkindum
hvað hann ber aldurinn vel. Hann
er jafnan eldhress í anda og gengur
með brennandi áhuga að öllu því
sem hann tekur sér fyrir hendur
eins og hann væri tvítugur.
Hann fæddist í Reykjavík 1919,
sonur hjónanna Guðmundar Jóns-
sonar verkstjóra og konu hans,
Sesselju Stefánsdóttur. Hann missti
föður sinn þegar hann var 9 ára
og fór þá í fóstur til móðurbróður
síns, séra Sigurðar Stefánssonar
að Möðruvöllum í Hörgárdal og var
hann þar fram yfir fermingu. Þá
kom hann aftur til Reykjavíkur og
gerðist sendisveinn hjá Olafi Hall-
dórssyni & Karlstad í Gai'ðastræti
til 15 ára aldurs.
Hann fór þá að vinna við höfnina
við uppskipun og annað sem til féll
en þá voru erfiðir tímar í Reykjavík,
atvinnuleysi mikið og kaupið lítið.
Vann svo í sænsk-íslenska frysti-
húsinu til átján ára aldurs og var
þá ráðinn í innheimtustarf hjá
Reykjavíkurborg. Pétur Halldórs-
son var þá borgarstjóri en Bjarni
Benediktsson tók við starfi hans
ári eftir að Guðmundur byijaði að
rukka fyrir borgina. Kaupið var kr.
270 á mánuði og þótti sæmilegt en
hækkaði á 5 árum í kr. 310 á mán-
uði. Þegar Guðmundur var búinn
að vera eitt og hálft ár í starfi þá
kallar Bjarni á hann inn á skrifstof-
una og tilkynnir honum að hann fái
frá þeim degi fullt kaup. Hann
ætti það skilið þar sem hann rukk-
aði meira en allir hinir rukkararnir
til samans.
, Guðmundur gekk í varaslökkvi-
liðið um þessar mundir en er svo
ráðinn í slökkvilið Reykjavíkur 1940
og 1946 varaslökkviliðsstjóri á
Reykjavíkurflugvelli og ári seinna
slökkviliðsstjóri og hefur verið þár
þangað til í sumar að hann lét af
störfum eftir 43 ára starf á
Reykjavíkurflugvelli. Var hann
kvaddu\' með mikilli viðhöfn af flug-
málastjóra og slökkviliðsmönnum
sem margir höfðu unnið með honum
í áratugi.
Guðmundur kvæntist Elínu Guð-
mundsdóttur 9. febrúar árið 1945
og eignuðust þau 8 börn sem öll
eru á lífi en hann eignaðist áður
Rut kennara, sem gift er Bjarna
Ansnes, skólastjóra á Flúðum. Börn
Elínar og Guðmundar eru: Birna
gift í Bandaríkjunum, Stefanía gift
Georg Halldórssyni trésmið, Elín
Edda gift Þorsteini Þorsteinssyni,
skólastj., María, fulltrúi, gift Jó-
hanni H. Jónssyni, framkvstj. flug-
mála, Ivar, endurskoðandi, kvæntur
Kristínu Kristjánsdóttur, Gunn-
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
H HEKLAHF
? Laugavegi 170-174 Simi 695500
VERÐ FRA KR.
873.000
laugur, flugumfei'ðarstjóri, kvænt-
ur Ingu Ingólfsdóttur, Auður, flug-
freyja, gift Gunnlaugi K. Jónssyni,
lögr.fltr., Björn, tölvufræðingur,
býr með Lenu Líndal Baldvinsdóttur
sem er nemi í lyfjafræði. Barna-
börnin eru orðin 14.
Elín hefur búið manni sínum fal-
legt og gott heimili og hafa þau
átt einstöku barnaláni að fagna
enda er hún bæði skapgóð, vinnu-
söm og ósérhlífin.
Guðmundur hefur ekki notið
langrar skólagöngu fyrir utan það
sem tengist flugmálum og slökkvi-
liðsmálum. Hann var við nám í
Bandaríkjunum hjá flugmálastjórn
Bandaríkjanna og í Ansul Training
School í Wisconsin og í Fire Service
Training School á v^um flugmála-
stjórnarinnar í Bretlandi, auk þess
hefur hann farið margar náms- og
kynnisferðir á vegum íslensku flug-
málastjórnarinnar.
■ Hann var varamaður í Flugráði
frá 1964 til 1988 og formaður
Starfsmannafélags flugmálastarfs-
manna 1969-73. Árum saman fór
hann um landið og gerði flugvelli
sem flestir eru í notkun núna og
voru tækin valtari og vörubíll. Eg
hygg að enginn hefði leikið þetta
eftir enda maðurinn harðduglegur,
ósérhlífinn og útsjónarsamur.
WordPerfect II. Útg.5.0. 22.-24. nóv. kl. 13-17
(Orðsnilld) fyrir lengra komna. Kafað enn dýpra í ritvinnsluna WordPerfect, t.d. er farið
í samsteypur, teiknun, reikning, textadálka, fjölva, kaflaham o.s.frv.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
A TH: VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sfna til þátttöku.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.
Guðmundui' Ragnar hefur tekið
mikinn þátt í ýmsum félagsmála-
störfum. Þar ber hæst störf hans í
áratugi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Ilann var formaður Málfundafél.
Óðins 1968-70 og stofnairdi og for-
maður . Byggingasamvinnufélags
verkamanna og sjómanna 1969-
1973, sem byggði marga tugi íbúða
fyrir fátækt verkafólk. Hánn er
félagsmaður í Krummaklúbbnum
og hefui' verið þar formaðui'. Hann
hefur verið í stjórn Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur og árnefndar-
formaður Gljúfurár leng'i. Hann
hefur verið sæmdur þjónustuorðum
frá Danadrottningu, Svíakonungi
og Finnlandsforseta.
Ég hef átt því láni að fagna að
vera veiðifélagi Guðmundar árum
saman bæði í laxveiði, íjúpu og
skaki svo og ferðafélagi, bæði í
ferðum hér á landi og erlendis og
mér hefur líkað það stórvel. Guð-
mundur er lúsfiskinn og harður
veiðimaður bæði á fisk og fugl og
á hann fáa sér líka í laxveiði nema
ef vera skyldi Þórarin og Eyþór en
þeir eru manna veiðnastir.
Fyrir mörgum árum áttum við
saman jeppa sem við nefndum „Við-
reisn“ því hann var eiginlega
byggður upp frá grunni úr hræi af
bíl. Á honum fórum við marga vet-
ur og veiddum minka við Gljúfurá
en þá fór Gljúfurá upp í tæpa 700
laxa. Margar sögur mætti segja úr
þessum ferðum okkar eins og þegar
við misstum jeppánn niður um ís á
Langavatni. Við vorum í fjóra tíma
að ná honum upp og höfðum bara
stuðaratjakk og járnkarl en frostið
var 12 stig. Þá voru sumir orðnir
kaldir.
Svo er vinnan við veiðihúsið
kapítuli út af fyrir sig.
Ég vil á þessum merku tímamót-
um færa Elínu og Guðmundi þakk-
ir fyrir margar ánægjustundir og
höfðinglegar móttökur á heimili
þeirra hjóna og samverustundir á
ferðalögum og óska þess að heil-
brigði og hamingja verði fylgifiskur
þeirra á ókomnum árum.
Bændavinafélag Reykjavíkur
hyllir varaformann sinn á þessum
tímamótum.
Guðjón Sverrir Sigurðsson
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSON & GO
Armstrong LDFTAPLDTUR
KORkQPLAST GÓLFFLÍSAR
^fÁRMAPLAST EINANGRUN
GLERULL STEINULL
Ævintýraleg
jólainnkaup
ílstanbul
Istanbui státar af vöruúrvali sem gefur stórborgum
Vesturlanda ekkert eftir. Þar finnuröu öll helstu
tískuvörumerkin og annaö sem þú færð á Vesturlönd-
um, en á mun lægra veröi, og Istanbul býöur ótal
margt fleira sem ekki fæst annars staöar. Ef þú ætlar
aö gefa jólagjafir, sem koma skemmtilega á óvart,
faröu þá til Istanbul og gerðu ævintýraleg
og ódýr jólainnkaup.
Útsýn, Úrval og SAS bjóöa þér ódýrar ferðir til Istanbul
með viðkomu í Kaupmannahöfn. Lagt er af stað á
sunnudegi, gist eina nótt í Kaupmannahöfn og síðan
fimm nætur á Kilim hótelinu i Istanbul fyrir aðeins
38.550 kr. á manninn í tvíbýli.
Gerðu óvenjuleg og ódýr jólainnkaup í ár og komdu til
Istanbul með okkur.
M/SAS • ÚRVAL/ÚTSÝN
Pósthússtræti 13, s: 26900 Austurstræti 17. s: 26611
Álfabakka 16, s: 603060