Morgunblaðið - 12.11.1989, Page 18

Morgunblaðið - 12.11.1989, Page 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER 1989 Sovét ljósvakans ■ Verksvið útvarpsráðs hefur gjörbreyst á síðustu árum ■ Getur útvarpsráð ráðið því sem það vill? ■ Vöxtur og viðgangur Ríkisútvarps getur ráðist af því hvernig stjórnmálaflokkum tekst til með val fulltrúa sinna HELGIN er á næsta leiti. Það er föstudagnr og klukkan er nærri ellefu að morgni. A jarð- hæð í umdeildu húsi við Efsta- leiti I í Reykjavík safhast saman hópur karla og kvenna, sjaldn- ast fleiri en tólf. Umræðuefiiið er Ríkisútvarpið — útvarp og sjónvarp. Akvarðanir sem tekn- ar eru varða dagskrár og ráðn- ingar starfsmanna dagskrár hjá ríkisQölmiðlunum. Höfúðdrætt- ir dagskránna eru dregnir. Sumir sjást vel — aðrir illa, rétt eins og gengur. Völdu dag- skrárefhi liðinnar viku eru gefnar umsagnir eða einkunnir. A borðum er kaffí og staðgott méðlæti — jafhvel kaldur mat- ur. Sjö fundarmanna fara með völdin og þeir eru kjörnir af Alþingi samkvæmt tillögum sfjórnmálaflokkanna. Þeir skipa hið eiginlega útvarpsráð sem er án efa eitt af stormasöm- ustu ráðum sem starfa á vegum hins opinbera. Sjaldnast er deilt um tilverurétt ráðsins heldur miklu frekar um hlutverk þess. Allir þeirra sem Ieitað var til vegna þessarar greinar voru hiklaust þeirrar skoðunar að eðlilegt og rétt væri að al- mannavaldið hefði yfirstjóm á fyrirtækinu þar eð það væri í eigu ríkis — sameign þjóðarinn- ar. S^yrinn uhi úívarpsráð hefur ávallt staðið tím hlutverk þess. Úlfaþyturinn um Ingimar Ingimars- son og fæmi hans sem þingfréttarit- ara snerist m.a. um það hvort út- varpsráð'ætti að skipta sér af málum af því tagi. Boga Ágústssyni, frétta- stjóra Sjónvarps, þykir bókun Magn- úsar Erlendssonar og Rúnar S. Birg- issonar þar sem honum er hálfpart- inn sagt fyrir verkum, alls ekki við hæfi. „Það er ekki í anda útvarps- laga að útvarpsráð skipti sér af verk- stjórn á einstökum deildum Ríkisút- varpsins," segir Bogi. Hann telur hins vegar tilmæli meirihluta út- varpsráðs til fréttastjóra um að hafa tvo þingfréttaritara sjálfsögð og eðli- Lög og reglu- gerðir um Ríkisút- DJ||7C17|I| varpið kveða ekki ******** ** skýrt á um hlut: verk útvarpsráðs. í lögum segir að Kári Jónasson — „ Við getum ekki hagað ferð okkar eftir því hvernig vindar blása niðri á Alþingi eða hvaða einstaklingar sitjá þennan eða hinn útvarpsráðsfundinn ...“ Bogi Ágústsson — „Það er ekki í anda útvarps- laga að útvarpsráð skipti sér af verkstjóm á einstökum deildum Ríkisútvarpsins ...“ eftir Ásgeir Fribgeirsson Útvarpsráð á fundi — „Hlutverk þess er ákaflega hipsumhaps og mörk dagskrárvalds þess enn ókannað land.“ Við borðið -sitja Magdalena Schram, Guðni Guðmundsson, Markús Á. Einarsson, Inga Jóna Þórðardótt- ir, Haraldur Blöndal, Gerður Steinþórsdóttir og Bríet Héðinsdóttir. viðtali við Markús Örn, útvarps- stjóra, að starfsfólk fari með alls konar mál framhjá yfirmönnum sínum og beint til útvarpsráðs. „Þeir sem gagnrýna útvarpsráð hvað mest einn daginn geta leitað undir verndarvæng þess þann næsta,“ segir hann. Fyrir þessu em oft gamlar hefðir frá þeim árum að útvarpsráð réð nákvæmlega öllu og þá sköpuðust tengsl og venjur sem enn setja svip sinn á samskipti ráðs- ins og starfsmanna. Á Ingu Jónu er það að skilja að skipulag Ríkisútvarpsins sé ekki ennþá með þeim hætti að sjónarmið starfsfólks njóti sín þannig að sam- an fari áhrif, ábyrgð og skyldur. Hún telur að ein af leiðunum til þess að ná því marki sé að tryggja deildarstjóra í sessi. Þar með sé þeim gert kleift að bregðast skjótt við og geta gefið starfsmönnum deilda aukið frelsi til athafna. Inga Jóna vill ekki nefna nein dæmi en ekki er óeðlilegt að benda á Rás 2 í þessum efnum þar sem hún virð- ist hafa talsvert meira sjálfræði en ýmsar aðrar einingar innan stofn- unarinnar. Líklegt er að hún hafi það vegna þess að yfírmanni henn- ar, Stefáni Jóni Hafstein, er treyst jafnt af útvarpsráðsfólki sem og undir- og yfirmönnum hans. Einnig getur það svo sem verið að sjálfræð- ið stafi af þeirri menningarlegu afstöðu útvarpsráðsfólks að dæg- urpípið og poppið sé ekki eins merkilegt og annað og þarfnast því síður hinnar leiðandi handar ráðs- ákvarðanir ráðsins varðandi dagskrá séu endanlegar. Því má spyija hvað hefði gerst ef meirihluti ráðsins hefði verið þeim Magnúsi og Rúnari S. sammála. Hefði það getað ráðið því hveijir væru þingfréttaritarar Sjón- varps? Hér verður flallað um hlutverk útvarpsráðs og ágreiningsefni varð- andi völd þess. Á útvarpsráð að stjórna dagskrá? Flestir árekstrar sem verða á milli útvarpsráðs og starfsfólks Ríkisút- varpsins verða vegna þess að starfs- fólki finnst útvarpsráð fara um of inn á sitt verksvið. Samkvæmt lög- um og reglugerð á útvarpsráð að ákveða dagskrá í aðalatriðum án þess þó að það sé skilgreint frekar en kemur fram i 8. gr. reglugerðar um Ríkisútvarp. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður ráðsins, telur að ráðið eigi að ráða heildarsvip dagskrár, svokallaðri rammadagskrá þar sem tekið er fram hvers konar þættir eigi að vera og þá hvenær. Þar með falli það undir verksvið þess að ákveða hlut- fall tónlistar og talaðs máls eins og kveðið er á um í reglugerð. Það ákvæði, sem og mest öll 8. greinin, er hins vegar þyrnir í augum hins kunna útvarpsmanns, Ævars Kjart- anssonar. Honum finnst það fárán- legt að einhver sveit pólitíkusa geti ráðið jafn miklu um dagskrárnar og henni sýndist. Hann telur eðlilegra að fagleg sjónarmið starfsfólks ráði ferðinni. Guðni Guðmundsson, rekt- or og ú.tvarpsráðsmaður, lítur á ráð- ið sem einskonar dagskrárstjóm eða „redaksjón" eins og hann orðar það sjálfur. Honum finnst eðlilegt að útvarpsráðsmenn, sem fulltrúar almennings, hafi um. það að segja hvenær fréttir væru og hvort eða hvenær jafn gagnmerk fyrirbæri og „Um daginn og veginn" væru. Útvarpsstjóri, Markús Örn Antonsson, er þeirrar skoðunar að sjónarmið útvarpsráðsmanna og raddir almennings sem berast út- varpsráðsmönnum til eýrna eigi að geta haft jákvæð áhrif á dagskrá og dagskrárgerð jafnhliða faglegum sjónarmiðum þeirra sem vinna við gerð dagskránna. Allir virðast á einu máli um að afskipti útvarpsráðs af umsjónar- mönnum einstakra þátta og inni- haldi þeirra væru nú mun minni en á árum áður og að því beri að fagna. Kári Jónasson, fréttastjóri hljóð- varps, segir t.d. frá því að fyrir fimmtán ámm hafi útvarpsráð falið honum að vinna tiltekinn sjónvarps- þátt. Honum var um leið sagt hven- ær þátturinn ætti að vera og merki- legt nokk, hveijir ættu að vera við- mælendur hans. Útvarpsráð tekur ekki lengur ákvarðanir af þessu tagi og er einkum tvennt sem veldur því. í fyrsta lagi var lögum breytt 1985 og í öðru lagi þá er það yflrlýst stefna núverandi formanns ráðsins, Ingu Jónu, að ráðið fyalli ekki fyrir- fram um hvemig taka eigi á ein- hveiju viðfangsefni heldur leggi að- aláherslu á mótun rammadagskrár. Með þessu móti á útvarpsráð ekki að vera ritskoðunaraðili en hins veg- ar er gert ráð fyrir því að það gæti stöðvað útsendingu þáttar telji það að hann eigi ekki erindi til almenn- ings. Dagskrárfólk á því að hfa svigrúm að ákveðnu marki. Afskipta- og ritskoðunarhyggja í útvarpsráði, sem einnig mætti kalla forsjárhyggju, virðist ekki vera háð neinum fokkspólitískum þáttum. Sjáífstæðismenn vilja ekkert frekar skipta sér af dagskrármálum en kratar, framsóknarmenn eða al- þýðubandalagsmenn og eftir því var tekið þegar Kvennalistinn komst til áhrifa að fulltrúar hans ætluðu að setja mark sitt á dagskrár stöðvanna þriggja. Er starfsfólki Ríkis- útvarps treystandi? Kunnur stjórnmálamaður sem eitt sinn átti sæti í útvarpsráði seg- ir að hvað sem segja megi um út- varpsráð þá sé það ekki verra en starfsmenn stofnunarinnar. Núver- andi formaður útvarpsráðs, Inga Jóna, er þeirrar skoðunar að áhrif starfsfólks á dagskrá tryggi alls ekki að fagleg sjónarmið njóti sín, því hugmyndir þess séu eklri alltaf byggðar á faglegum forsendum. í því sambandi bendir hún á að oft geti starfsfólk ekki komið sér sam- an um hlutina og leiti til útvarps- ráðs um úrskurð. Inga Jóna stað- festir einnig það sem kom fram í ms. Er gagnrýni útvarpsráðs á dagskrá marktæk? „Útvarpsráð beitir ekki valdi,“ segir Guðni Guðmundsson, vara- maður í útvarpsráði í um átta ár eða þar til fyrir tveimur árum þeg- ar hann varð aðalmaður. „Það beit- ir gagnrýni." Guðni telur gagnrýni ráðsins á dagskrá, sem þegar hefur verið send út, vera mikilvægasta hlutverk þess. Hann segir að með þeim hætti fái rödd almennings vettvang sem máli skiptir. Einkunnir útvarpsráðs og mat á einstökum þáttum hefur ekki mikil áhrif á dagskrárgerðarfólk eftir því sem næst verður komist. Ævar Kjartansson telur umsagnir ráðsins broslegar og hann segist ekki hafa orðið var við, að þær hafi mikil áhrif eða skipti einhveiju máli. Kári Jónasson segir að þær séu alltof tilviljanakenndar til þess að hægt sé að taka á þeim mark. Hann bendir á að eigi mistök af einhveiju tagi sér stað á fimmtu- degi væri miklu líklegra að athuga- semd kæmi fram í útvarpsráði, en ef þau hefðu verið gerð fyrr í vik- unni, því að fundir ráðsins væru á föstudögum. Hann segir að það sé erfitt fyrir starfsfólk að fara eftir því sem fram komi í útvarpsráði því þar séu bæði miklar breytingar á skipan frá kjörtímabili til kjörtímabils og þar að auki sé meiri- hlutamyndun í ráðinu breytileg. Kári bendir á að þegar kosið var í ráðið var annar stjórnarmeirihluti á þingi en nú er. Sú ankannalega staða er uppi núna að formaður ráðsins er svarinn andstæðingur stjórnarstefnu menntamálaráð- herra og vegna samvinnu við fu.ll- trúakjör á sínum tíma er stjórnar- sinninn og Borgaraflokksmaðurinn Rúnar S. Birgisson ýmist varamað- ur stjórnarandstæðingsins og Kvennalistakonunnar Magdalenu Schram eða alþýðubandalagskon- unnar og stjórnarsinnans Bríetar Héðinsdóttur. Kári bendir einnig á að meirihlutamyndanir í útvarps- ráði væru oft á mismunandi for- sendum. Stundum séu íhaldsöfl gegn breytingaöflum, konur gegn körlum og hægri gegn vinstri. Hann segir að það sé ekki nokkur leið að taka mið af meirihlutaskoðunum þess. „Við verðum að sigla áfram okkar leið,“ segir hann. „Við getum ekki hagað ferð okkar eftir því hvernig vindar blása niðri á Alþingi eða hvaða einstaklingar sitja þenn- an eða hinn útvarpsráðsfundinn." Flestir virðast sammála um að það sé eðlilegt að útvarpsráð fjalli að einhveiju leyti um útsenda dag- skrá þó svo þeir sömu geri sér fulla grein fyrir því að enginn ráðsmaður getur fylgst með nema broti af því sem sent er út og því verði umsagn- ir þeirra ávallt ómarkvissar. í drög- um að frumvarpi að nýjum útvarps- lögum sem nefnd á vegum núver- andi menntamálaráðherra vann undir forystu Ögmundar Jónasson- ar, formanns BSRB og fyrrverandi formanns í Starfsmannafélagi ríkisútvarpsmanna, er einmitt þetta gagniýnishlutverk sett í öndvegi hjá dagskrárráði því sem sam- Ur fundargerðum útvarpsráðs ■ „Lýst er ánægju með dægur- málaútvarpið á Rás 2, Stefán Jón Hafstein væri nánast orð- inn heimilisvinur lands- manna." (17.8. 1989.) ■ „Nokkrar umræður urðu um Meinhornið og Þjóðarsálina í dægurmálaútvarpi. Umsjón- armenn þess hefðu staðið sig með prýði en gæta þyrfti þess að hlustcndur fengju ekki of hranalega afgreiðslu ef þeim yrði á að hringja og ræða já- kvæða hluti í Meinhorni.“ (19.5. 1989.) ■ „Fram kom að óánægja væri með hve íþróttafrcttamenn væru offt hlutdrægir í lýsing- um sínum.“ (31. 3. 1989.) I „Gerð var athugasemd við þá smekklcysu að hclga síðasta menningarþáttinn Já allan útgáfúfélaginu Smekk- leysu og við fyrri bíómyndina sl. laugardagskvöld, Korsíku- bræðurna, sem hefði verið hræðilega vitlaus.“ (10.3. 1989.) I „Nokkuð var rætt uni málfar fréttamannu og athugascmd var gerð við það að sjónvarps- starfsmenn virtust eiga eríítt með að biðjast afsökunar á mistökum sínum.“ (9.6.1989.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.