Morgunblaðið - 12.11.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989
C 19
Úr útvarpslögum frá 1985
■ „Útvarpsráð skipa sjö menn.
Skulu þeir ... kosnir hlut-
fallskosningu á Alþingi eftir
hverjar alþingiskosningar.14
(Úr 19. gr. útvarpslaga.)
■ „Útvarpsráð tekur ákvarðan-
ir um hvcrsu útvarpsefni
skuli haga í höfúðdráttum
innan marka flárhagsáætlun-
ar.“ (Úr 20 gr. útvarpslaga.)
■ „ ... Það ákveður hvert vera
skuli í megindráttum idutfall
tónlistar og talaðs máls svo
og hlutur fræðslu-, mcnning-
ar-, og frétta- og skemmtiefn-
is í þeim dagskrám sem
Ríkisútvarpið sendh' út ...“
(Úr 8. gr. reglugerðar um
Ríkisútvarpið.)
■ „Ríkisútvarpið skal leggja
rækt við íslenska tungu, sögu
þjóðarinnar og menningar-
arfleið.
Ríkisútvarpið skal halda >
heiðri lýði-æðislegar grund-
valiarreglur og mannréttindi
og Érelsi til orðs og skoðana.
Það skal gæta fyllstu óhlut-
drægni i frásögn, túlkun og
dagskrárgerð.
Rikisútvarpið skal m.a.
veita almenna fréttaþjónustu
og vera vettvangur fyrir mis-
munandi skoðanir ...
Útvarpsefhi skal miða við
fjölbreytni íslensks þjóðlífs.
..(Úr 15. gr. útvarpslaga.)
■ „Ráðið setur reglur, eins og
þurfa þykir, til gæslu þess
að fylgt sé ákvæðum 15. gr.
Ákvarðanir útvarpsráðs um
útvarpsefni eru endanlegar.
Útvarpsstjóri getur þó stöðv-
að gerð þegar samþykkts
dagskrárefnis þyki sýnt að
það reynist fjárliagslega of-
viða.“ (20. gr. útvarpslaga.)
■ „Útvarpsráð getur ennfrem-
ur ákveðið að Ríkisútvarpið
ráðist í gerð tiltekinna teg-
unda eða flokka dagskrárefn-
is sem fallnir þykja tU að ná
fram markmiðum 15. gi'. út-
varpslaga ...“ (Úr 8. gr.
reglugerðar um Ríkisútvarp-
ið.)
■ „Dagskrá Ríkisútvarpsins
skal lögð fyrir útvarpsráð t.il
kynningar áður en hún kem-
ur til framkvæmda." (Úr 8.
gr. reglugerðar um Rikisút-
varp.)
■ „Starfsmenn Ríkisútvarps,
aðrir en framkvæmdastjórar,
skulu ráðnir af útvarpsstjóra,
þó að ferignum tillögum út-
varpsráðs ef um starfsfólk
dagskrár er að ræða ...“ (Úr
21. gr. útvarpslaga frá 1985.)
Samkvæmt 10. gr. reglugerð-
ar um Ríkisútvarpið er einungis
lalað um fastráðið starfsfólk
dagskrár.
kvæmt nefndartillögum á að leysa
útvarpsráð af hólmi. Það virðist því
vera almenn samstaða um að opin-
berir aðilar sinni þessu hlutverki
en hins vegar virðist enginn hafa
hugmyndir um hvernig hægt sé að
koma því við svo vel fari.
Á útvarpsráð að ráða
og reka?
Nýju lögin og reglugerðirnar frá
1985 gera ráð fyrir því að útvarps-
ráð sé umsagnaraðili um ráðningu
framkvæmdastjóra, deildarstjóra
og annarra fastráðinna starfs-
manna dagskrár. Guðna Guð-
mundssyni, sem annars hefur mjög
gaman af því að sitja í útvarps-
ráði, þykir ráðningamálin sem koma
á borð ráðsins leiðinleg og kveðst
hann vilja vera laus við allt það
þras. Markús Örn fagnar þeirri
breytingu sem orðið hefur frá því
þegar hann hóf störf hjá Sjónvarp-
inu fyrir rúmum tuttugu árum en
þá skipti útvarpsráð sér m.a. af
ráðningu dyravarða.
Kári Jónasson, fréttastjóri, kveð-
ur það vera óþolandi ósamræmi að
einungis ráðningar fréttamanna
þurfi að hljóta blessun útvarpsráðs,
fyrir því hefur skapast hefð en lög
og reglugerðir þar að lútandi eru
óafgerandi. Hann bendir á að í dag-
skrárþætti á Rás 2 ynnu menn, sem
útvarpsráð kæmi hvergi nærri, að
sömu málum — væru að ræða við
sömu menn um sömu málefni, og
fréttamenn sem sigtaðir væru í
gegnum ráðið. Kári segir að þetta
geri honum erfiðara fyrir við að
ráða besta fólkið hveiju sinni. Inga
Jóna er um margt sammála Kára.
Sjálf segist hún vilja vinna að því
að kveðið verði skýrar á í reglugerð
um að útvarpsráð hafi einungis
umsögn um ráðningu fram-
kvæmda- og deildarstjóra og þar
með yrði endi bundinn á afskipti
ráðsins af ráðningu fréttamanna.
Eins og flestir vita er það út-
varpsstjóri sem ræður í stöður yfir-
manna. Eftir að hafa gengið illilega
gegn vilja ráðsins við ráðningu á
umdeildum fréttastjóra Sjónvarps,
sem hann síðar varð að reka, hefur
útvarpsstjóri lýst því yfir að æski-
legt væri að sem víðtækust sam-
staða næðist um ráðningu yfir-
manna dagskrárdeilda.
Það er því óhætt að segja að
hlutverk útvarpsráðs varðandi
ráðningar starfsmanna sé að falla
í fastar skorður og í heild virðist
það vera að taka á sig mynd yfir-
stjórnar sem metur mikilvægi þess
að starfsmenn og starfseiningar fái
skilgreint sjálfræði og fái að ráða
sínum málum í friði.
Hlutverk ráðsins er
háð duttlungum fúll-
trúa flokkanna
Lög og reglugerðir um útvarps-
ráð eru mjög óljós og óafgerandi.
Ráðið er hvorki yfirstjórn né dag-
skrárstjórn. Það skiptir sér af því
hver sé umsjónarmaður morgun-
þáttar á Rás 1 en kom á sínum tíma
ekki nærri ákvörðuninni um að ýta
Rás 2 úr vör. Það hringlaði með
fréttatíma Sjónvarps en tók ekki
ákvörðun um að heíja tilraunir með
svæðisútvarp.
Hlutverk ráðsins getur því orðið
ákaflega hipsumhaps og, eins og
Bogi Ágústsson segir, eru mörk
dagskrárvalds þess enn ókannað
land. Þó svo núverandi formaður
sé að reyna að gera ráðið að eins
konar yfirstjóm og alla stjórnun
straumlínulagaðri, og hafi til þess
stuðning margra yfirmanna stofn-
unarinnar, þá getur eftirmaður
formanns tekið allt annan pól í
hæðina. Duttlungar einstakra út-
varpsráðsmanna geta haft varanleg
áhrif á starf dagskrárgerðarfólks
og ákvarðanir meirihlutans geta í
raun orðið það sértækar að ráðið
öðlist mjög mikið vald, allt að al-
ræði því á einum stað í útvarpslög-
um segir að ákvarðanir ráðsins
varðandi dagskrá séu endanlegar.
Hvergi er þess hins vegar getið
hvers konar ákvarðanir þarna sé
um að ræða. Samkvæmt þessu þá
getur útvarpsráð ráðið lagavali
næturútvarps, hafi það á því áhuga.
Þótt hlutverk útvarpsráðsins hafi
gjörbreyst á síðustu árum er það
deginum ljósara að á sviði ríkis-
fjölmiðlunar getur útvarpsráð leikið
það hlutverk sem það telur henta
sér. Þrátt fyrir perestrojku að frum-
kvæði þeirra sem nú fara með völd
þá getur öðruvísi skipað sovét ljós-
vakans gripið til ofstjórnar og al-
ræðisvalds.
-i.
ogHamborg’
á einstöku tilboðsverði
hjá Veröld og Pólaris
í nóvember og desember
Nú bætum við Hamborg við í tilboðið okkar.
Við höfum nú fengið viðbótargistingu á gististöðum
okkar í Amsterdam í nóvember og desember
og bjóðum nú nýtt hótel í Hamborg,
Hótel Graf Moltke, á ótrúlegu verði.
Amsterdam
Ein af fjórum vinsælustu ferðamanna-
borgum Evrópu, kölluð Feneyjar norðurs-
ins og valkostirnir endalausir. Glæsileg
verslunarhverfi, fjölskrúðugt listalíf og
veitingahús frá öllum heimshornum.
nmmtisuiii
Austurstræti 17, sími 622200
Hamborg
Hér gefst einstakt tækifæri til að versla
í mörgum bestu verslunarhúsum Evr-
ópu á frábæru verði. Að auki er Ham-
borg stórfalleg borg með óteljandi
möguleika fyrir forvitna ferðalanga,
sem vilja njóta þess besta í mat, drykk
og skemmtun.
og Kirkjutorgi 4, Sími 622011