Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989 C 21 I m 1 i | ann eftir því sem á tamninguna leið. Þetta var oft mikið þolin- mæðisverk, en skilaði venjulega góðum árangri. Guðni Magnússon og Rósa "Andr- ésdóttir voru gefin saman í hjóna- band 26. maí 1917. Rósa var dóttir Andrésar Andréssonar hreppstjóra í Hemlu og konu hans, Hólmfríðar Magnúsdóttur. Guðni og Rósa voru fyrsta búskaparár sitt í hús- mennsku að Miðkoti í V-Landeyjum en fluttu þaðan að Uxahrygg á Rangárvöllum og bjuggu þar í 6 ár. Arið 1924 fluttu þau að Hólmum í A-Landeyjum og bjuggu þar næstu 36 árin, eða til 1960 er þau létu jörð og bú í hendur uppeldis- dóttur sinnar, Gerðar Elimarsdótt- ur, og manns hennar, Kristjáns Ágústssonar. I grein, sem Magnús Finnboga- son skrifaði við fráfall Guðna í Hólmum 28. september 1978, segir maðal annars: „Guðni var bóndi af lífi og sál, átti ávallt góðan og gagn- saman búpening, gætti vel alls þes's er honum var til trúað. Hann hófst úr örbirgð til efna af eigin dugnaði og hagsýni, var ávallt veitandi en ekki þiggjandi síns samfélags. Heimili Guðna og Rósu var þeim og mörgum öðrum sérstakur griða- og menningarstaður. Og bar heimil- ið vott um listrænt handbragð Rósu ... Það fór ekki hjá því að Guðni veldist í forystusveit sinnar sveitar. Hann var í hreppsnefnd, skattanefnd og forðagæslumaður um mörg ár, auk fleiri starfa sem hann tók að sér fyrir sveit sína. í þessum störfum komu fram hans sterkustu eðlisþættir, greind, trú- mennska ásamt góðum vilja til að láta gott af sér leiða. Guðni og Rósa eignuðust fjögur börn: Jón bóndi í Götu, Hvolhreppi, Andrés stórkaupmaður í Reykjavík, Kristrún húsfrú í Reykjavík, Magnea Guðbjörg ijósmóðir, búsett í Svíþjóð. Auk þess ólu þau upp Gerði Elimarsdóttur sem missti móður sína er hún var á fyrsta ári-. Fjöldi annarra barna átti gott at- hvarf um lengri eða skemmri tíma hjá Rósu og Guðna í Hólmum. í grein sem skrifuð var um Guðna í Hólmum sjötugan segir að hann hafi aldrei talað mikið um æsku sína og hvarflar þá að greinar- höfundi að líklega hafi Guðni enga æsku átt í þeim skilningi sem venju- lega er lagt í það orð og segir þar ennfremur að ef til vill hafi það verið vegna þess hve smái hann var sjálfur að smælingjar leituðu jafnan skjóls hjá honum. Guðni í Hólmum var sérlega barngóður maður. Guðni lést í september 1978 en Rósa í janúar 1983. A.G. ViÖ flytjum BjóÖum því 30-40% afslátt af öllum vörum verslunarinnar. Skólavörðustíg 5. ORIENT armbandsúrin eru falleg og stílhrein. Ef þú gerir kröfur um gæði. veldu þá ORIENT! “ Við bjóðum ORIENT armbandsúrin í miklu úrvali: JON&OSKAR, GUÐMUNDUR B. HANNAH, úro- og skartgripoverslun, úrsmiður, Laugavegi 70, sími 24910 Laugavegi 55, sími 23710 GILBERT 0. GUDJONSSON, úrsmiður, Laugavegi 62, sími 14100 *SÍ<}|ið!"31ÍÍÍ&£jl2!á21&!l£ Margrit Strassburger les úr „GOETHES BRIEFWECHSEL MIT EINEM KINDE - Bréfaskipti Goethes við barn - og Thomas Böttger leikur „Bagatellen“ eftir Ludwig van Beethoven mónudaginn 13. nóvember 1989 kl. 20.30. N0RRÆNA HÚSIÐ ALLIR VELKOMNIR GOETHE-INSTITUT 19.g.9 I gegnum árin hefur jólaskeiðin frá GUÐLAUGI glatt hugi og hjörtu safnara jafnt íem fagurkera. Silfurjólaskeiðin 1989 er nú komin í verslun okkar. Að þessu sinni, fagurlega skreytt með mynd af Hólum í Hjaltadal, því fræga setri ís- lenskrar kirkjusögu. FAGUR SAFNGRIPUR GUÐLAUGUR A. MAGNÚSS0N SKARTGRIPAVERSLUN LAUGAVEGI 22a SÍMI: 15272 .ir i. é. x í. . í, 4: Laí h Lí Í« ts ife íá s li ík ði & 1 Íífiislkiíiii í'iíkiíkikííi kÍ%h&kílklthí i tt i k I & k t L&r2»sl&2si,-i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.