Morgunblaðið - 12.11.1989, Blaðsíða 30
1
r«* » . , ..■ }. ,T .. ,r/. , f4‘3|ii ?»«*
30 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989
ÆSKUMYNDIN...
ER AF HANS KRISTNIE YJÓLFSSYNI
Hansi varoger
alveg„spes(í
HANS KRISTINN.Eyjólfsson þekkja flestir
Reykvíkingar, að minnsta kosti í sjón. Ekki er
víst að margir komi nafninu fyrir sig, en þegar
Hansi bakari er nefndur til sögunnar taka
væntanlega fleiri við sér. Eldri borgarar muna
að líkindum eftir Hansa sem kökugerðar-
manni, en á því sviði var hann alger listamað-
ur. Hinir yngri þekkja hann hins vegar frekar
sem dyravörð stjórnarráðsins, en þar tekur
Hans á móti gestum og gangandi og sér til
þess að allt gangi eftir settum reglum.
Hans Kristinn Eyjólfsson fædd-
ist í Bjarneyjum á Breiðafirði
hinn 15. október, 1904 og er hann
því nýorðinn 85 ára gamall. Hann
var hins vegar ekki nema nokkurra
vikna gamall þegar hann fór ásamt
fóstru sinni, Margréti Magnúsdótt-
ur til Isafjarðar þar sem hann dvald-
ist til fjögurra ára aldurs. Þá fóru
þau til Reykjavíkur og vinir og
ættingjai1 Hans segja það hafa ver-
ið eitt helsta gæfuspor ævi hans.
- Hann og fóstra hans bjuggu á
heimili dóttur Margrétar og eigin-
manns hennar, hjónanna Sveins
Hjartarsonar og Steinunnar Sigurð-
ardóttur, en þau gengu honum í
foreldrastað. Heimilið var á
Bræðraborgarstíg 1, en í sama húsi
rak Sveinn Sveinsbakárí.
Steinunn Sveinsdóttir var ein
uppeldissystra Hansa og man hún
glöggt eftir uppvaxtarárum þeirra.
„Hansi var frá upphafi eins og
maður á honum að venjast: kurteis,
j*samviskusamur, lítillátur og fyrst
og fremst góður drengur. Hann var
og er alveg „spes“ eins og sagt
er,“ segír Steinunn.
Hún Segir það vissulega sett sitt
mark á þau systkinin að heimilið
var stórt eins og þá tíðkast. „Við
vorum aldrei fæn-i en 13-14 við
matarborðið og eins og nærri má
geta gekk á ýmsu, en Hansi var
alltaf samur við sig. Eg man ekki
eftir neinum uppátækjum hjá hon-
um, eins oft er hjá krökkum á þess-
Hansi 6 ára.
Hér heldur hann um axlir Kristjönu
Snæland, systur Steinunnar Sigurð-
ardóttur.
um aldri.“ Steinunn ítrekar sam-
viskusemi Hansa, en hann bytjaði
13 ára gatnall að vinna í bakaríinu.
„Síðan fór hann til Kaupmanna-
hafnar og lærði þar kökugerð og
útskrifaðist með hæstu einkunn og
fékk verðlaun fyrir sveinsstykkið.
Hann var alger listamaður á því
sviði, enda leggur hann alúð í öll
sín verk.“ Eftir að Hans kom heim
hóf hann kökugerð hér og gekk
skömmu síðar að eiga Ólöfu Jóns-
dóttur.
Þegar Steinunn er spurð um
fyrstu minninguna um Hansa svar-
ar hún því til að það sé líklega
þegar verið var að baða þau tvö
saman í stórum bala á miðju gólfinu
á Bræðraborgarstígnum. „Þannig
gekk það í þá daga.“
Þeir sem þekkja til Hans ber
saman um að hann hafi frá upp-
hafi verið það, sem stundum er
nefnt „gentleman", það hafi hann
hvergi lært.
ÚR MYNDAS AFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Svipbrigði
söngkonunttar
Bandaríska blökkusöngkonan
Ella Fitzgerald kom til Islands
um miðjan sjöunda áratuginn og
bræddi hjörtu djass-
áhugamanna með söng
sínum í Háskólabíói,
enda samdóma álit
manna að fáar söng-
konur hafi haft tærnar
þar sem hún hafði hæl-
ana á þessu sviði.
Blaðamaður Morgun-
blaðsins tók viðtal við Ellu á hót-
elsvítunni á Sögu og var Ólafur
K. Magnússon með í för og tók þá
meðfylgjandi myndir. Söngkonan
var ekkeit sérlega vel fyrir kölluð
og færðist undan því að ræða við
blaðamenn. Hún kvaðst hafa kvef-
ast í íslandsferðinni,
enda var kalt í veðri.
Auk þess kvartaði hún
undan því að sjón og
heyrn væru farin að
dofna, en sem kunnugt
er var hún nánast blind
síðustu æviár sín. í
samtalinu við blaða-
manninn flutti Ella mál sitt með
tilþrifamiklum svipbrigðum og
handapati svo sem sjá íná á mynd-
unum.
STARFID
VALGERÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, PÍANÓPÚSSARI
BÓIiIN PLATAN
Á NÁTTBORDINU Á FÓNINUM
MYNDIN
ÍTÆKINU
Valgerður Benediktsdóttir
Ber hag píanóa
fyrir brjósti
„PÍANÓPÚSSARI VERÐURað
hafa til að bera samviskuscmi og
hjartahlýju. Auk þess er æskilegt
að hann geti leikið einfóldustu lög
af fingrum fram,“ sagði Valgerður
> Benediktsdóttir, sem hefur nú á
annað ár haft píanópússun að aðal-
starfi fyrir utan nám.
Valgerður hefur mörg undanfarin
ár stundað nám í píanóleik við
Tónlistarskóla Kópavogs og er nú á
7. stigi. Hún lauk BA-prófi í íslensku
frá Háskóla íslands sl. vor og er
- vfélagi í Dómkórnum. „Ræstingakon-
urnar í skólanum hafa átt að sjá um
að halda píanóunum hreinum. Mér
fannst þær ekki bera neina virðingu
fyrir þessum fögru gripum svo að
stjórn skólans fól mér starfann, sem
ég auðvitað tek há-alvarlega.“
Valgerður vildi ekki ræða ná-
kvæmlega hinar leyndu formúlur,
sem hún notaði við hreinsun píanóa
og fíygla — sagði þær vera einskon-
ar atvinnuleyndarmál. „Ég ber hag
allra píanóa fyrir bijósti. Þetta eru
falleg hljóðfæri. Ég þarf auðvitað að
vinna fyrir mér eins og annað fólk,
en lít frekar á pússunina sem hug-
sjónastarf," sagði Valgerður.
ÞETTA SÖGDU
PAU ÞÁ . . .
Bryndís
Schram, eigin-
kona utanrikis-
ráðherra hins
isienska lýð-
veidis.
Nú eru hæg
heimatökin
Eg hef stundum beðið um
meiri reisn af hálfu for-
ystumanna þjóðarinnar í sam-
skiptum við erlend ríki.
Nýja Alþýðubandalagsblaðið 1.
árg. 4.tbl. maí, 1967.
i l g M
Elísabet
Þorkels-
dóttir nemi
Eg er þessa stundina að lesa
bókina „Setið á svikráðum"
eftir Caroline Burnes. Bókin er í
Rauðu seríunni og slíkar bókmennt-
ir dreifa huganum og hjálpa til við
að losna við áhyggjur. Annars les
ég yfirleitt miklu þyngri bókmennt-
ir, aðallega bækur um önnur lönd,
trúarbrögð og lifnaðarhætti annars
staðar.
*
Eg hlusta á allskonar tónlist,
eiginlega allt nema óperur. Ég
kaupi samt lítið af hljómplötum.
Svo skipti ég á milli útvarpsstöðv-
anna eftir því hvað mér finnst
skemmtilegt hveiju sinni. Nýjustu
popplögin finnst mér a!lt of keimlík.
Þau eru öll eins.
íris Huld
Sigur-
björnsdótt-
ir fiskvinnslu-
mær og fóstra
Siðast las ég unglingabókina
„Gauragangur" eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Sú lesning var að vísu
fyrit' skólann, en bókin var engu
að síður góð og mjög áhugaverð.
Hún er um 16 ára strák. Ég les
mikið og yfirleitt allar tegundir
bókmennta nema ástarsögur.
A
Eg hlusta aðallega á popptónlist
á tólftommum. Ég kaupi ekki
mikið af plötum sjálf. Kærastinn
minn sér um þau innkaup og fæ
ég þá auðvitað að hlusta líka. Af
útvarpsstöðvunum finnst mér tón-
listin á Stjörnunni best.
Sigurgeir
Sigmunds-
son nemi og
hljómlistar-
maður
Sem stendur er ég með tvö tón-
listarmyndbönd í láni frá vini
mínum, annað með Van Halen og
hitt með Johnny Winter. Aftur á
móti þegar kemur að bíómyndum,
vil ég helst horfa á gömlu Ham-
mer-myndböndin ef hægt er að fá
þau einhvers staðar. Þetta eru góð-
ar hrollvekjur, sem fyrirtæki eitt
sérhæfði sig í i\m tíma.
Guðmundur
Björn Jón-
assonnemi
Eg horfi á allar góðar myndir
og síðast horfði ég á spennu-
mynd, sem ég man ekki lengur
hvað heitir. Ég horfi oft á mynd-
bönd hjá vini mínum, en það er
mjög sveiflubundið hversu mikið ég
horfi á myndbönd yfirleitt.