Morgunblaðið - 12.11.1989, Síða 31

Morgunblaðið - 12.11.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1989 C 31 SÍMTALID... ER VJÐ KRISTJAN FR. GUÐMUNDSSONLEIÐBEINANDA Hljóður hugur 50166 Halló. - Jú, gott kvöld, er Kristján Guðmundsson við? Þetta er hann. - Komdu sæll, Kristín Maija Baldursdóttir heiti ég, blaðamað- ur á Morgunblaðinu. Komdu sæl. - Þú munt kenna almenna hug- rækt og hugleiðingu, er það ekki? Jú, rétt er það. — Geturðu nokkuð sagt mér í stuttu máli um hvað þetta snýst? Jú, með hugrækt reynum við að ná valdi yfir athyglinni og ákveðnar æfingar eru gerðar til að kyrra hugann, því hann er nú alltaf á hlaupum hjá svona venju- legu fólki. Ef þú horfír til dæmis á lítið fjallavatn í stormi þá er það á hreyfingu, gárast og verður kannski mórautt, og þannig er hugurinn svona vanalega. Síðan kemur logn, vatnið verður spegil- slétt, þú sérð jafnvel til botns og getur speglað þig í því. Ef við hugsum okkur vatnið sem vitund mannsins þá getur hann horft á sína eigin vitund og fylgst með og náð valdi yfír „sjálfínu“. Þetta er ansi gott dæmi, en ast í eigin vitundarlífí. Lífíð er búið að róta upp í okkur og við erum því oft á valdi ómeðvitaðra svarana. — En eru það ekki tilfinning- arnar sem stjórna okkur? Það eru svaranir getum við sagt. Jú, jú, það eni bæði tilfinn- ingar, minnið, ímyndunin, þetta eru allt þættir í vitundinni. — Getur þá nokkur stjórnað huganum í raun og veru? Með því að kyrra svona hugann eins og við tölum um, þá verða öll áhrif og truflanir á vitundarlíf- ið minna. — Hefurðu séð árangur hjá fólki sem stundar þetta? Já, já. — Tekur það ekki langan tíma? Námskeiðið sem ég er með, svona fyrsta skrefið, eru 12 stund- ir þrisvar í viku, og á þessum tíma á fólk að geta öðlast þennan hljóða huga, eins og það hefur verið kallað. En fyrst og fremst byggist þetta á því hvað hver einstakur leggur sig fram. Þetta er dálítil sjálfsrannsókn sem hver og einn verður að gefa sig í. — Hvað ert þú búinn að stunda hugrækt lengi? I tuttugu ár. — Hefur þetta g-ert þig að betri á hveiju byggir þú kennslu þína? Ég byggi hana á þeimaðferðum ipanni Kristján? sem Sigvaldi Ja, hvort ég er betri maður veit ég nú ekki’_________ — En líður þér betur en áður? Já, já, og þetta hefur gefið mér mikið eins og öll- um sem hafa lagt stund á hugrækt. — Þetta er at- hyglisvert, því er ekki að neita. En ég þakka þér fyrir Hjálmarsson þró- aði upp úr aust- rænum jógafræð- um og kristnu bænalífi. — Og hvaða ávinning hefur fólk af því að leggja stund á hugrækt? Með því að ná valdi á huganum minnkar stressið og við verðum svona eðlilegri og betur vakandi fyrir því sem er að ger- spjallið og vertu blessaður. — Jú, þakka þér sömuleiðis. * Arið 1976 vakti ungur Islend- ingur athygli hér á landi vegna þess að hann var kominn heim frá Bandaríkjunum með loftbelg í far- teskinu. Sumrinu varði hann til þess að fljúga hér og þar um landið: yfir Reykjavík, Rauðhettumótinu við Úlfljótsvatn, Sandgerði og fjölda annarra staða. Holberg segir loftbelgjaævintýri sitt eiginlega hafa hafist með gos- inu í Heimaey. Þá kynntist hann vísindamönnum frá New Mexico Tech-skólanum, sem hingað komu vegna gossins, en þeir buðu nokkr- um ungum íslendingum að koma til náms þar vestra. Holberg var einn þeirra, sem fóru, og þar vakn- aði áhugi hans af alvöru, enda er veðurfar í Nýju-Mexíkó hið ákjós- anlegasta fyrir loftbelgjaflug og fáir staðir í heiminum vinsælli til slíks. Árið 1976 keypti hann sér loft- bélg og þá um sumarið kom hann með belginn heim, sem var skráður hér sem TF-HOT. Holberg flaug mikið hér heima það sumarið, um 15 sinnum telur hann, og vakti flug hans mikla athygli. I ársbyijun 1977 var belgnum lagt og hér er hann enn þrátt fyrir að ekki hafí honum verið flogið síðan. Holberg segist enn hafa flug- bakteríuna í sér, en bæði segist hann verið upptekinn við margt annað og eins sé þetta meira fyrir- tæki en margur kynni að halda. „Þetta er ekki svo dýrt — ég held að belgurinn kosti um eina milljón — en þetta er frekt á mannafla, því þarf að vera eins og 5-10 manna gengi í kring um þetta." Holberg segir þetta vera einu helstu ástæð- ^una fyrir því að þetta gekk ekki þá og þrátt fyrir að e.t.v. myndi Holberg Másson á kafi í tölvum. honum veitast auðveldara að finna áhugamenn með sér nú, þá er hægara sagt en gert að byija aftur. En hvað aðhefst Holberg nú? „Ég er allur á kafi í tölvum,“ segir hann. Hann segir þann áhuga reyndar líka hafa fæðst vestur í Nýju-Mexíkó, en það hafí ekki ver- ið fyrr en árið 1980, sem hann aðhafðist eitthvað í því. „Þá var ég í öldungadeild Menntaskólans í Hamrahlíð og fór að læra Basic- forritun. Allt frá því hef ég haft tölvun að aðalatvinnu." Holberg vann hjá RARIK fram til 1985 og rak svo ítölu, tölvuþjón- ustu, sem vann að fyrstu tölvuteng- ingu fyrirtækja hér á landi og hafði mikið að gera í þeim málum. „Um síðustu áramót stofnaði ég HVAR ERU ÞAU NÚ? HOLBERG MÁSSON LOFTBEL GSFL UGMAÐ UR Úr lofibelg á kafí tölvur ísnet ásamt SKÝRR, Flugleiðum og Verslunarbankanum, en til- gangurinn með því fyrirtæki var að reyna að koma upp meiri tölvus- amskiptum fyrirtækja en verið hafði. Ég dró mig hins vegar út úr því máli í sumar, þar sem mér þótti framtíðarstefnan ekki nógu skýrt afmörkuð. Það er erfítt að vera að standa í brautryðjenda- starfí þegar samstarfsaðilarnir eru ekki á eitt sáttir um hvernig skuli staðið að málum.“ Auk þess sem Holberg hefur atvinnu af tölvum er hann líka starfandi á þeim vettvangi í fag- samtökum. Eg er í EDI- félaginu, sem er félagsskapur þeirra sem starfa að EDI- tölvugagnasam- skiptum fyrirtækja og stofnana, en markmiðið með slíkum samskiptum er að tölvukerfi viðskiptaaðila geti „talað" saman og skipst á stöðluð- um viðskiptaskjölum í stað þess að um endalaust pappírsflóð milli fyr- irtækjanna sé að ræða. Með þeim hætti er vonast til þess að hin pappírslausa skrifstofa geti ein- hverntíman orðið að veruleika. Þá er Holberg í ICEPRO-samtökun- um. sem fjalla um aukna hagnýt- ingu tölvusamskipta ekki síst í al- þjóðaviðskiptum. „Síðustu þijú árin hef ég svo verið formaður fagdeildar félags DEC-notenda í Evrópu, DECUS, en í því eru um 45.000 félagar, sem gerir félagið að fjölmennustu sam- tökum í heimi á þessu sviði. Þetta er það starf, sem tekur mestan frítíma minn. Ég fer a.m.k. sex sinnum á ári á ráðstefnur eða fundi vegna formennskunnar, sem getur vitaskuld verið mjög gaman, en stundum vill það líka vera voða lýjandi." Holberg er spurður hvað sé hæft í því að hann hafí unnið þann stóra í happþrættinu skömmu eftir að hann beinlínutengdist háskólatölv- unni. Holberg hlær við og svarar: „Tja, konan mín var svo heppin að vinna stærsta vinninginn í Happdrætti háskólans fyrir fjórum árum eða svo og það er dagsatt að ég var þá nýbúinn að tengjast háskólatölv- unni. Að vísu hafði happdrættið haft vit á því að kaupa sér eigin tölvu skömmu áður, þannig að ég græddi lítið á tengingunni sem slíkri. En sagan er góð,“ segir Holberg og kímir. En hvað er framundan hjá loft- belgsflugmanninum og tölvumann- inum Holberg Mássyni? „Ég er nú svona að velta fram- tíðinni fyrir mér og á meðan er ég í einstökum verkefnum við netteng- ingu fyrirtækja og fleira. Ég á ekki von á öðru en ég verði á svip- uðum slóðum næstu árum, en hlut- irnir gerast bara svo hratt í þessum bransa að það er erfítt að spá langt fram í tímann. Þessa dagana halda mörg fyrirtæki að sér höndum vegna efnahagsörðugleika og við Holberg á loftbelgnum TF-HOT undan Eiðisgranda sumarið 1976. íslendingar höfum verið svolítið eftir á, en ég hugsa að það fari nú að breytast. Framtíðin er björt."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.