Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 6

Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989 Borga foreldri með börn ekki nóg í ríkiskassann?“ „Einstæðir foreldrar fá meira til sín frá ríkinu en þeir greiða í skatt,“ segir flármálaráðherra eftir Kristínu Jónsdóttur Örlögin höguðu því svo í sumar að ég hafði töluverð samskipti við útlendinga sem gistu okkar fallega land. í samtölum okkar barst talið iðulega að því hversu hér væru sterk tengsl á milli fólks. Allir virtust þekkja alla, gestrisni íslendinga væri viðbrugðið og ef einhver vandræði kæmu upp gengi maður undir manns hönd til að bjarga málum. Full þjóð- arstolts samþykkjum við iðulega þessa ytri ímynd og jafnvel kemur það fyrir í hita umræðunnar að mað- ur trúir þeirri glansmynd sem blasir við þeim sem ekki vita betur. Full af stolti tíundum víð að íslend- ingar séu einna tekjuhæsta þjóð í heimi, hér fyrirfinnist varla atvinnu- leysi, aliir séu læsir og flestir geti vitnað í hetjur gullaldarinnar þegar við á. Hvergi í heiminum sé eins mikið um einstæða foreldra, þeir sitji við sama borð og aðrir og fordóma- leysi ríki. Allt er þetta satt og rétt svo langt sem það nær. Én þótt ytri ásýnd sé fögur eru innviðimir að verða feysknir og fúnir. Einstæðum foreldrum beitt fyrir vagninn Búum við jafn vel að þegnunum og við viljum vera láta? Tilefni þess- arar greinar eru einstæðir foreldrar. Hugtakið einstætt foreldri hefur fengið á sig heldur neikvæðan hljóm sem á ekkert skylt við það gjöfula hiutverk að eiga böm og fá að vera samvistum við þau. Mjög oft er þessum hópi beitt fyr- ir vagninn þegar sækja á félagsleg réttindi fyrir heildina eða veija áunn- in. í stað þess að segja að við viljum ekki að eitthvað sé frá okkur tekið hljómar gjaman: „En slík skerðing mun koma afar illa við einstæða for- eldra.“ Raunveruleg merking er að enginn vill taka á sig nokkra skerð- ingu hvorki hjón né aðrir. Pólitíkusar nota gjaman þennan hóp til að sýna göfuglyndi sitt þegar við á. Þeir muna eftir honum þegar það hentar pólitískri umræðu að veita fé í félagslega geirann og sýna ör- læti meðan verið er að herða ólina annars staðar. Þeir láta svo hátt á slíkum stundum að margir sem ekki vita betur trúa því að foreldri með böm sé umbunað umfram aðra hópa. Fjármálaráðherra notaði jafnvel þennan hóp til að réttlæta láglauna- stefnu sína á frægum fundi með kennurum í vor. Mun sjaldnar heyr- ist sú krafa að þessi hópur skuli sitja við sama borð og hjónafólk hvað varðar persónuafslátt, húsnæðis- bætur, eignaskatt, afborgun af námslánum o.fl. Er það satt fjármálaráðherra Ástæða þess að mælirinn fylltist hjá mér og ég tek mér penna f hönd er bein lína til íjármálaráðherra hjá þjóðarsálarmönnum í júní. Þó að langt sé um liðið em ummæli hans svo sláandi að ekki er hægt áð láta hjá líða að svara þeim. í þáttinn hringdi kona vegna per- sónuafsláttar hjóna. Hún spurði hvers vegna ekki væri hægt að líta á foreldri með böm sem fjölskyldu sem gæti nýtt sér persónuafslátt á sama hátt og hjón geta. Ólafur svaraði því til að hann hefði undir höndum tölur sem sýndu að: „Einstæðir foreldrar í heild fái meira til sín í ýmsar greiðslur frá ríkinu en þeir borgi í skatt sem heild. Þ.e. að þeir skattar sem ríkið fái séu lægri en þær sérstöku greiðslu, bamabætur og annað, sem einstæðir foreldrar fái til sín.“ Konan benti fjármálaráðherra á að hjón hafi skattfijálsar tekjur upp að 96 þús. kr., einstætt foreldri upp að 47 þús. kr. Allar tekjur þar fyrir ofan séu að fullu skattlagðar. Hún benti einnig á þá staðreynd að það muni aðeins 2 til 3 þús. kr. á mán- uði á bamabótum einstæðra foreldra og hjóna eða fólks í sambúð. Heldur finnst mér lítið leggjast fyrir kappa sem kennir sig við jafn- rétti og félagshyggju ef hann ætlar að leggja öll mannleg verðmæti á vogarskálar debets og kredits. Hann lítur greinilega ekki svo á að skatt- heimta sé tæki til tekjujöfnunar þ.e. leið til að bæta hag hinna verst settu, heldur eigi skattgreiðendur að fá sama hlutfall og þeir leggja inn. Er sósíalistaforinginn að segja með þessu að þeir sem em betur launaðir og borgi þar af leiðandi hærri skatta eigi að fá meira úr sameiginlegum sjóðum? Það virðist minna áhyggjuefni að það skuli einmitt vera þessi hópur sem hefur lægstu tekjumar. Vandamálið er ekki hve þessi hóp- ur fær mikið af almannafé heldur sú staðreynd að fyrirvinnan er ein. Einnig sú staðreynd að í þessum hópi em aðallega konur eða um 87%. Þetta minnir okkur einnig á að með- alatvinnutekjur kvenna í fullu starfi em um 60% af meðaltekjum karla. Kvennalistinn vill hækka lágmarkslaun Kvennalistakonum hefur oft verið núið því um nasir að hafa ekki viljað axla ábyrgð og fara í stjórn eftir kosningarnar 1987 og i stjómar- kreppunni haustið 1988. í bæði skipt- in strönduðu samningaumleitanir m.a. á því að hinir flokkamir vildu ekki samþykkja að það mætti ekki greiða laun undir ákv. lágmarki og þar með hækka laun kvenna sem er stærsti láglaunahópurinn. Ef við lítum nánar á debet/kredit- kenningu fjármálaráðherra vekur hún mun fleiri spurningar en hún svarar. Er hún til að slá ryki í augu fólks og telja því trú um örlæti ríkis- ins við þennan hóp? Eða er hún sett fram sem undanfari enn frekari skerðingar á tekjumöguleikum þessa hóps? Hvaða forsendur gefur Ólafur sér þegar hann slær fram svona full- yrðingu? Mér finnst að við eigum fullan rétt á að vita hvetjar þær era. Einn- ig hvort það eigi að taka fleiri þjóð- félagshópa út úr s.s. atvinnurekend- ur og ellilífeyrisþega og leggja þá undir sömu mælistiku. Síðast en ekki síst væri gaman að vita hvað fjár- málaráðherra ætlar að gera við þessa „hræðilegu" niðurstöðu. Persónuafsláttur hjóna hærri en barnabætur og mæðralaun með tveim börnum Ég vil gjarnan fá að vita hvort fjármálaráðherra hefur eftirfarandi staðreyndir í huga þegar hann gefur sér að einstæðir foreldrar séu meiri baggi á ríkiskassanum en aðrir þjóð- félagshópar. 1. Ef annað hjóna nýtir ekki sinn persónuafslátt að fullu getur maki nýtt sér hann allt að 80%. Á ári geta þetta orðið kr. 186.629. Slíkan persónuafslátt getur for- eldri með skattskyldan ungling ekki nýtt sér þótt allir viti sem vilja að unglingar í skóla eru oft íjárhagslega þungur baggi á heim- ilum. Persónuafsláttur ásamt barnabótum hjóna með tvö börn yngri en 7 ára getur orðið kr. 292.269 á ári en barnabætur og mæðralaun foreldris með tvö börn kr. 292.228. 2. Fýrir árið 1982 voru reglur um afborganir af námslánum á þann veg að ef bæði hjónin hafa tekið námslán helmingast afborgun af hvoru Iáni fyrir sig. Það er að hjón sem tóku lán fyrir 1982 borga af því eins og um eitt lán sé að ræða. 3. í þriðja lagi má nefna hús- næðisbætur. Þær eru greiddar til þeirra sem era að kaupa eða eign- ast íbúð ( fyrsta sinn. Þær eru greiddar í sex ár og eru 51.590 fyrir foreldri en hjón fá helmingi hærri bætur. 4. Þjóðarbókhlaðan er eitt af þeim menningarmannvirkjum. sem brýn þörf er á að ljúka hið fyrsta. Til að svo geti orðið hefur verið ákveð- ið að leggja svo kallaðan Þjóðar- bókhlöðuskatt upp á 0,25% á Kristín Jónsdóttir „Heldur fínnst mér lítið leggjast fyrir kappa sem kennir sig við jafíi- rétti og félagshyggju ef hann ætlar að leggja öll mannleg verðmæti á vogarskálar debets og kredits.“ eignafólk. Það er allt gott um þennan skatt að segja nema hvað mismuninn er hér sem annars staðar. Þessi skattur er lagður á hjón undir 67 ára sem eiga eignir yfir 8,5 millj. en aðra sem eiga eign yfir 4,25 millj. kr. 5. Þekktasta dæmið og það sem hefur valdið mestu fjaðrafoki er hækkun eignarskatts. í vetur hækkaði álagningarhlutfall eign- arskattsstofns úr 0,95% í 1,2% af skuldlausri eign foreldris yfir 2,5 millj. og hjóna yfir 5 millj. Áf skuldlausri eign einstaklinga yfir 7 millj. kr. og hjóna yfir 14 millj. greiðist 2,7%. Með þessum reglum verða til tvö skattþrep. Bæði þrep- in eru hærri fyrir hjón en einstakl- inga með böm. Neðra þrepið er þannig að hjón geta átt skuldlausa eign upp að 5,0 millj. kr. án þess að greiða eignarskatt en einstakl- ingur upp að 2,5 millj. kr.. Þetta þýðir að þegar hjón byija að greiða eignarskatt er þegar búið að leggja 30 þús. kr. á einstakling. Við efra þrepið hjá hjónum sem er við 14 millj. kr. er einstaklingur- inn búinn að greiða 105 þús. kr. í viðbót áður en lagt er á hjón. Fyrir utan þessa mismunun á hjón- um og foreldri með börn vekur furðu hvað þakið er lágt. Ný fjög- urra herbergja íbúð í verkamanna- bústöðum í Reykjavík kostar um 6 millj. Stærstur hluti þeirra sem fá úthlutað era einstæðir foreldr- ar. Þetta fólk þarf því að byija að borga eignarskatt þegar það er búið að eignast rúmlega 40% af íbúðinni sinni. Borgið eignarskatt eða seljið! Fáar breytingar á hagsmunamál- um einstaklinga hafa vakið jafn sterk viðbrögð og þessar breytingar á eign- arskatti. Fjármálaráðherra hefur far- ið hamföram við að veija þennan gjörning. Hann hefur hvað eftir ann- að lýst yfir að andófið sé pólitískt fjaðrafok. Því til sönnunar fullyrðir hann að forsvarsmenn þeirra sem mótlmæt hafa ekknaskattinum séu sjálfstæðiskonur. Málgagn ráðherrans, Þjóðviljinn, hefur heldur ekki legið á liði sínu við að ausa andófið auri og slíta úr samhengi eins og eftirfarandi klausa sem birtist á þjóðhátíðardaginn ber með sér: „íhaldið lætur ekkert tækifæri ónotað til að koma höggi á ríkis- stjórnina . .. Það nýjasta í þeim efn- um var þegar einhver stórskrítnasti mótmælafundur gegn meintum hækkuðum eignaskatti var haldinn á Hótel Borg í vikunni. Þar var saman kominn fríður flokkur ekkna og ekkla sem varla gat hreyft sig fyrir skart- gripaglingri, rándýram fötum og úti fyrir var hver glæsikerran á fætur annarri. Hópurinn, sem var kominn þó nokkuð til ára sinna, á það sam- merkt að búa í íburðarmiklum og ailt of stóram skuldlausum einbýlis- húsum ... Af viðbrögðum almenn- ings að dæma eftir fundinn mega fundarboðendur prísa sig sæla ef ekki kemur fram krafa um að eignar- skatturinn verði hækkaður til muna...“ Er hægt að leggjast lægra í for- dómum, þröngsýni og auvirðilegum málflutningi? Eitt af því sem þetta fólk má sitja undir er að það skuli selja hafi það ekki efni á að borga hærri eingar- skatt. Fyrir flestum er dagsskipun um að selja eign sína við fráfall maka þvílík móðgun og skilnings- leysi á mannlífinu að ótrálegt má teljast. Hvenær ef ekki við slíkar aðstæður er þörfin mest fyrir að halda öllu í fyrra horfi, sjá til þess að allt ytra umhverfi bama — ef þau era til staðar — sé-óbreytt? Áfallið er nóg samt. Við skulum ekki gleyma því að fyrir þessu fólki sem öðram er eignin ekki bara eign, hún er heim- ili þeirra. Breyting knúin fram í þinglok af stjórnarandstöðunni Fjármálaráðherra hreykir sér nú margítrekað af því að á síðustu dög- um þingsins hafi hann samþykkt lög (helst má skilja að þau hafa verið lögð fram fyrir framkvæði hans) sem ganga í þá átt að fimm árum eftir fráfall maka verði álögur eignar- skatts þær sömu og hjá hjónum sitji viðkomandi í óskiptu búi. Hið sanna er að þessi breyting var knúin fram í þinglok af stjórnarandstöðunni og gekk ekki eins langt og hún hefði óskað. Enda fæ ég ekki séð hvemig eftirlifandi maki á fremur að geta greitt eignaskatt sex áram eftir frá- fall maka en fímm. Eins og sjá má af framansögðu er hjónafólki á ýmsum sviðum umb- unað umfram foreldri með börn. Enda í fullu samræmi við þá skoðun fjármálaráðherra að þeir sem borga meira eigi að fá meira. En þá skal hann líka kalla hlutina sínum réttu nöfnum og láta ekki að því liggja í hinu orðinu að greiðslur úr sameigin- legum sjóðum eigi að vera jöfnunar- tæki. Hugtakið einstætt foreldri hefur í umræðunni fengið heldur neikvæða ímynd. Hún minnir helst á það niður- lægjandi hlutskipti sem sveitarómag- ar bjuggu við hér áður fyrr, þ.e. að þeir séu á framfæri hins opinbera. Þessi ímynd hefur skapast ekki síst fyrir þá sök að pólitíkusar era sífellt að halda því á lofti að þeir beri hag þessa fólks fyrir bijósti og umbuni því í samræmi við það. Þá — sem tráa því enn að foreldri án maka njóti hlunninda umfram aðra hjá ríkinu — skora ég á að kynna sér málin betur, ekki síst fjár- málaráðherra. Höfundur er námstjðri í tölvufræðum ogfutttrúi Kvennaiista í Húsnæðismálastjórn. Brids_____________ ArnórRagnarsson Bridsdeild Barðstrendingafélagsins Hafin er hraðsveitakeppni með þátt- töku 11 sveita. Staðan eftir fyrsta kvöldið: ReynirHólm 617 Rafn Kristjánsson 585 Lilja Halldórsdóttir 571 Loftur Pétursson 555 Spilað er í Ármúla 40 á miðvikudög- um kl. 19,30. Tafl- og bridsklúbburinn (TBK) Lokið er tveimur kvöldum af þremur í barometerkeppni félagsins og er staða efstu para nú þessi: Höskuldur Gunnarsson — Lárus Pétursson 44 Friðjón Margeirsson — Ingimundur Guðmundsson Bernharður Guðmundsson — 13 Ingólfur Böðvarsson 12 Spilað er á fimmtudögum í sal iðnað- armanna í Skipholti 70. Spilamennska hefst kl. 19,30. SIEMENS Mjó en dugleg! Uppþvottavél mm • Breidd: 45 sm. • 6 þvottakerfi. • Fjórföld vöm gegn vatnsleka. • Hljóðlát og vandvirk. • Hentar vel þar sem ' fáir eru í heimili eða þrengsli mikil í eldhúsi. j SMITH &NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMI 28300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.