Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 8

Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989 .RDASKRIFSTOFAN UTILIF SKYNDIHAPPDRÆTTI DVALARHEIMIUS ALDRAÐRA SJÚMANNA TOYOTA COROLLA TWINCAM LIFTBACK 1990 FERÐAVINNINGAR FRÁ SÖGU SUNBEAM GASGRILL HJÖLABRETTI ♦ ELITE MYNDAVÉLAR LLOYD SPORT VASAÚTVÖRP COCA COLA '/i LÍTRI Sverrir Tryggvason aíhendir Jó- hanni Árnasyni, forstöðumanni Sunnuhliðar, gjöf Eldeyjar. ■ KIWANJSKL ÚBB URINN Eldey í Kópavogi afhenti fyrir skömmu Hjúrkunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi peningagjöf. Gjöfin, sem var kr. 424.605, er ætluð til kaupa á þremur sjúkra- rúmum og þremur náttborðum. Peninganna aflaði Eldey með sölu kerta og útgáfu auglýsingablaðs. ■ UNGMENNAFÉLAGIÐ Mý- vetningur ætlar að minnast 80 ára afmælis félagsins með samkomu í Skjólbrekku laugardaginn 18. nóv- ember. í tilefni þessara tímamóta býður félagið öllum Mývetningum, svo og brottfluttum félögum, til þessa afmælisfagnaðar. Þar verður meðal annars rakin saga félagsins frá upphafi, sýndir stuttir leik- þættir, söngur, ávörp og fleira og sjálfsagt margar ræður fluttar. Laugardaginn 2. desember verður sérstök barnasamkoma í Skjói- brekku. __ ■ ÁGÚST Petersen verður átt- ræður um þessar mundir og af því tilefni verður haldin sérstök af- mælissýning í Nýhöfn. Sýningin, sem opnar á laugardaginn, hefur hlotið yfirskqftina Flýttu þér hægt og eru á henni landslagsmálverk og mannamyndir. Málverkin eru öll máluð með olíu og flest unnin á sl. tíu árum. Sýningin er opin frá kl. 10-18 virka daga og frá kl. 14-18 um helgar. I ÍSLENSKIR nemar í fata- hönnun taka þátt í norrænu fata- hönnunarkeppninni sem fram fer í Helsinki í Finnlandi 29. janúar 1990. íslensk dómnefnd, sem skip- uð er Ornu Kristjánsdóttur og Evu Vilhelmsdóttur, fatahönnuð- um og Henrik Árnasyni, auglýs- ingahönnuði, velur fjóra keppendur fyrir íslands hönd. í fyrra sigraði Guðrun Hrund Sigurðardóttir, nemi við Köbenhavns Mode- og Designskole. Sigurvegar í norrænu keppninni fær í verðlaun um 75.000 ísl. kr. Stigahæsti keppandinn frá hveiju landi tekur þátt í keppni í Royal Albert Hall í London þar sem 100 nemar í fatahönnum keppa. Jón Rafn hcfur sent frá sér sína fyrstu stóru hljómplötu. ■ JÓN Ríifn sendi nýlega frá sér sína fyrstu stóru hljómplötu, Lög fyrir þig. Jón semur öll lögin og leikur á hljóðfæri í sumum þeirra. Honum til aðstoðar á plötunni eru m.a. Rúnar Júlíusso, Björn Thor- oddsen og Pétur Hjaltested. ■ LJÓÐA TÓNLEIKAR verða haldnir í Gerðubergi mánudaginn 20. nóvember og hefjast kl. 20.30. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, mezzósópran, syngur á tónleikun- um við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar, sönglög eftir Sig- valda Kaldalóns, R. Schumann, F., Poulenc, R. Hahn og X. Mont- salvage. Þýðingu flestra ljóðanna annaðist Reynir Axelsson og er sýningarskrá innifalin í miðaverði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.