Morgunblaðið - 16.11.1989, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
C 9
Fjölnota vörusýningarhöll
eftir Jón Hjaltalín
Magnússon
Fjölnota vörusýningarhús í Laug-
ardal sem mundi nýtast fyrir al-
þjóðlegar vörusýningar, ráðstefnur
og íþróttamót kostar um 470 millj-
ónir króna.
Nú er rúmt ár síðan þing Alþjóða
handknattleikssambandsins haldið
í Seoul fól íslandi að haida 14.
A-heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik árið 1995. Forsenda fyrir
þessari ákvörðun þingsins í Seoul
var að fyrir lá yfirlýsing frá ríkis-
stjórn íslands þess efnis að fyrir-
hugað væri að byggja fjölnota vöru-
sýninga-, ráðstefnu- og íþróttahús
fyrir um 7.000 áhorfendur, sem
yrði tilbúið í tæka tíð fyrir sjálfa
keppnina.
Sérstök undirbúningsnefnd hefur
starfað á vegum HSÍ að skipulagn-
ingu keppninnar árið 1995 og er
ráðgert að hefja opinbera sam-
keppni um merki heimsmeistara-
keppninnar núna í nóvember næst-
komandi. Því markmiðið er að nýta
þessa keppni hér á íslandi sem best
til landkynningar fram yfir sjálfa
keppnina, um þjóð okkar og land,
menningu og atvinnulíf, útflutn-
ingsvörur og ferðaþjónustu.
Nokkrar umræður hafa verið í
fjölmiðlum um byggingu fýrir-
hugaðrar fjölnota vörusýningar-
hallar, sem háttvirtur menntamála-
ráðherra staðfesti við heimkomu
landsliðsins frá heimsmeistara-
keppninni í Frakklandi í vor, að
hann mundi beita sér fyrir að yrði
byggð og staðfesti loforð fyrri ríkis-
stjórna Steingríms Hermannssonar
og Þorsteins Pálssonar um stuðning
við að halda keppnina á íslandi og
Jón Hjaltalín Magnússon
„Áætlaður líftími fjöl-
nota sýningarhúsa er
um 100 ár með hefð-
bundnu viðhaldi. Því
má leika sér að áætla
gjaldeyristekjur af
þessu húsi á þeim tíma.“
eflingu ferðaþjónustunnai'. Ein-
hvers misskilnings virðist gæta í
þessari umijöllun um fyrirhugaða
byggingu þessarar fjölnota vöru-
sýningarhallar, þegar talað er um
„einhveija handboltahöll fyrir þessa
einu heimsmeistarakeppni sem
muni kosta um 1 milljarð króna“.
Stjórn HSÍ vill því upplýsa um,
að í ársbyrjun 1988 var gerð laus-
leg kostnaðaráætlun um byggingu
á hagkvæmu 8.000 fm fjölnota sýn-
ingarhúsi sem tæki um 7.000
Bókaútgáfan Bjartur:
Tvær þýddar skáldsögur
TVÆR þýddar skáldsögur koma út í haust hjá bókaútgáfúnni Bjarti.
Önnur er eftir Patrick Siiskind og hin eftir Fay Weldon.
Bók Patricks Súskind heitir Dúf-
an og fjallar hún um vaktmanninn
Jonathan Noel sem einsetur sér að
lifa fábreyttu lífi i risherbergi í
París vegna þess að mönnunum er
ekki treystandi. En þrengingum
hans er ekki lokið. Hafliði Amgrí-
msson þýddi bókina.
í Sveitasælu, eftir Fay Weldon,
segir frá Natalíu sem þarf að standa
á eigin fótum eftir að eiginmaðurinn
iætur sig hverfa með fegurðar-
drottningu staðarins. Það er Guð-
rún Tulinius sem þýddi þessa sögu.
manns í sæti. Kostnaðaráætlun
þessi var miðuð við „staðlaðan
byggingarkostnað menntamála-
ráðuneytisins um byggingu
skólaíþróttahúsa", sem þá var um
40.000 kr. á fermetra eða um 320
milljónir fyrir 8.000 fm hús. Fram-
reiknað til dagsins í dag, þá er þessi
byggingarkostnaður um 460 millj-
ónir króna.
HSÍ hefur nýlega verið kynnt
kostnaðaráætlun virts íslensks
verktakafyrirtækis í byggingu
8.000 fm fjölnota sýningarhúss sem
tæki um 7.000 áhorfendur í sæti.
Kostnaðaráætlunin hljóðar uppá
470 milljónir króna. Þess skal getið
að af þessum 470 milljón króna
byggingarkostnaði eru um 90 millj-
ónir króna greiðslur á söluskatti og
tollum í ríkissjóð, fyrir utan launa-
skatt þeirra sem að byggingunni
starfa.
Þessi byggingarkostnaður er
einnig í samræmi við byggingu
2.500 fm íþróttahúss í Kaplakrika
í Hafnarfirði, sem tekur um 2.500
áhorfendur í sæti. Byggingarkostn-
aður þessa húss er um 150 milljón-
ir króna, eða um 60.000 krónur á
fermetra. Miðað við þessar tölur,
þá mundi 8.000 fermetra fjölnota
hús'kosta um 480 milljónir.
Þá eru þessar kostnaðaráætlanir
i fullu samræmi við byggingar-
kostnað á mótsvarandi fjölnota sýn-
ingarhúsum í Finnlandi og Noregi.
Undirbúningsnefnd HSÍ hefur
verið í sambandi við aðila á sviði
ferðaþjónustu og áætlar að þetta
nýja fjölnota sýningarhús, sem nota
má til alþjóðlegra vörusýninga, ráð-
stefna, popptónleika og íþróttamóta
muni draga hingað til lands minnst
5 þúsund erlenda ferðamenn á ári.
Aætlaðar gjaldeyristekjur af þeim
eru um 400 milljónir króna á ári.
Á tíu árum er því gert ráð fyrir um
4 miiljarða króna gjaldeyrirstekjum
af því að reisa þetta fjölnota sýning-
arhús. Þess skal getið að áætlaðar
gjaldeyristekjur af heimsmeistara-
keppninni í handknattleik á íslandi
árið 1995 eru um 300 milljónir
krópa.
Áætlaður iíftími fjölnota sýning-
arhúsa er um 100 ár með hefð-
bundnu viðhaldi. Því má leika sér
að áætla gjaldeyristekjur af þessu
húsi á þeim tíma.
Bestu kveðjur,
Jón Hjaltalín Magnússon.
Höfundur er formaður
Handknattleikssambands íslands.
Ódýr eldavéi!
HN 26020
• Breidd50sm
• Geymsluskúffa.
• 2 hraðsuðuhellur og
2 venjulegar hellur.
• Venjulegt hitun m.
yfir- og undirhita.
• Glóðarsteiking.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Sími 32075
Barnabasl
Það gæti hent þig
Ein fyndnasta og áhrifamesta
gamanmynd seinni tíma.
Skopleg innsýn í daglegt líf
stórfjölskyldu. Runa af
leikurum og leikstjórinn er
Ron Howard, sem gerði
„Splash“, „Willow“ og
„Cocoon“.
Sýnd í A-sal kl. 5,7.30 og 10
Fnimsýnd ú sama tíma am alla Evrápu