Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 16

Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 16
Í6 C MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGÚR 16. NÓVEMBER 1989 NCB/1AI1I1 y Með morgunkaf&nu Auðvitað er það kjaftæði eitt að ég sé einhver milli... HÖGNI HREKKVlSI ,','pADVBRPUR. ALLIAFMÓG/E.SIN& pEGAK HANN HLEVPIR pESSO/VI KETTI UT/ Skilaði veskinu efltir tíu mánuði Til Velvakanda. I fyrravetur, milli jóla og nýárs, fór dóttir mín á menntaskólaball sem haldið var á veitingastaðnum Broadway. Á heimleiðinni, þegar hún ætlaði að fara að borga sinn hlut í leigubílnum, var hún ekki með seðlaveskið sitt. Hún hafði skilið það eftir í kápuvasanum í fatageymslunni og nú voru vasarnir tómir. Strax daginn eftir hringdi hún í Broadway og spurði hvort veskið hefði fundist en var tjáð að svo væri ekki. Nokkrum dögum síðar hringdi hún aftur en fékk sama svarið: ekkert veski. Nú leið veturinn, vorið og sumar- ið og kominn var fimmtudagurinn 2. nóvember. Þá var hringt frá lög- reglunni og sagt að dóttir niín ætti þar seðlaveski. Hun fór um hæl niður á lögreglustöð og viti menn, þar var komið rauða seðlaveskið sem horfið hafði í Broadway í fyrra- vetur. Og þar var næstum allt á sínum stað: skólaskírteinið með mynd og heimilisfangi eiganda, fleiri skilríki, myndir af erlendum vinum, og húslykillinn. Það eina sem vantaði voru peningarnir, nokkur hundruð krónur, og nær ónotað strætómiðakort. Þegar hún sagði lögreglumannin- um að hún hefði hringt tvisvar í Broadway í fyrra og spurt um vesk- ið, árangurslaust, sagði hann að fleiri hefðu sömu sögu að segja, og það ekki aðeins frá Broadway, því til væru staðir sem væru enn verri með þetta og skiluðu eftir mörg ár eða aldrei. Hann benti henni á poka sem var nýkominn ofan úr Broad- way, með vettlingum, veskjum og öðrum óskilamunum sem virtust hafa verið lengi þar. Sagðist hann nú vera að hringja í eigendur seðla- veskjanna, sem yfirleitt væri auð- velt að finna, því í veskjunum væru ökuskírteini og önnur skilríki, greiðslukort o.fl. Sagðist hann ekki sjá annað en að starfsfólki veitinga- hússins stæði hjartanlega á sama um hvort þessir hlutir kæmust til eigenda eftir dúk og disk — eða alls ekki. Það virtist ofverk þeirra að hafa samband við eigendur og líklega væri miklu auðveldara að svara nei þegar hringt væri og spurt heldur en að fara að leita. Oskila- munum væri safnað saman í poka, oft stóra ruslapoka, og þegar þeir væru orðnir fullir væri þeim skilað til lögreglunnar. Þegar veskið hvarf fékk dóttir mín auðvitað rækilega að heyra hve heimskulegt væri að skilja seðla- veski eftir í fatageymslu, jafnvel þótt þar ætti að vera gæsla, og hve óvarlegt væri að hafa húslykilinn hjá skilríkjum með heimilisfangi. Þegar nokkur tími leið frá hvarfi veskisins ákvað fjölskyldan að skipta um skrár í útidyrum. Það þurfti að skipta um þijár skrár, því sami lykill gekk að forstofu, þvotta- húsi og bílskúr. Rökin voru þessi: sá sem tekur veski úr vasa, eða finnur veski sem dottið hefur úr vasa óg er ekki það heiðarlegur að hann láti eigandann vita — er hon- um ekki alveg trúandi til að geyma lykilinn, fylgjast með ferðum íbú- anna og læðast inn þegar vel stend- ur á, viss um að bera úr býtum meira en nokkur hundruð krónur og strætómiða? Það er ekkert grín að vera for- eldri og vera að reyna að kenna börnum sínum heiðarleika og skil- vísi, þegar þau reka sig á jafnyfir- gengilegt virðingarleysi og lýst er hér að framan. Og það er heldur ekkert grín fyrir venjulegt fólk að fara á einn glæsilegasta skemmti- stað bæjarins til að njóta þar marg- auglýstra lystisemda, tapa e.t.v. skilríkjum eða dýrmætum munum og komast svo að því að starfsfólki staðarins stendur alveg hjartanlega á sama um hvort maður fær þá aftur eða ekki. Nú hefur Broadway nýlega skipt um eigendur en eftir því sem ég veit best þá rekur fyrrverandi eig- andi Broadway, Ólafur Laufdal, fleiri veitingastaði. Mig iangar því til að spyija hann hvort hann telji að eigandi veitingahúss beri ein- hveija ábyrgð á erfiðleikum og kostnaði sem gestir verða fyrir vegna kæruleysis starfsfólks? Og hve mikla áherslu leggur hann á það í „uppeldi" starfsfólks síns að það komi fram við gesti af þeim heiðarleika og skilvísi sem flestu venjulegu fólki finnst sjálfsögð? Eða getur verið að í „uppeldinu" sé að- eins lögð áhersla á skilvísi í aðra áttina, þ.e. að gengið sé eftir skil- vísi gestanna svo veitingahúsið fái sitt? Þórdís Árnadóttir Mesti smánarbletturirai Til Velvakanda. Talið er að 50 milljónir manna hafi fallið í seinni heimsstyijöld- inni. Þar af létu 20 milljónir Rússa lífið. 6 milljónir gyðinga máttu einn- ig þola kvalafullan gasdauða í fangabúðum 1000 ára ríkisins, í þann tíð. Grimmdin, mannvonskan og hatrið er einkenndi nefnt tíma- bil er algert einsdæmi í gervallri mannkynsögunni. Það er enda eng- in tilviljun þegar menn segja hisp- urslaust að stríðið 1939—1945 sé það skelfilegasta og mannskæðasta er sögur fara af, hér á jörð, og allt fyrra hernaðarbrölt ríkja falli ' í skuggann af því. Já, sex milljónir gyðinga týndu lífi á skipulegan hátt í útrýmingar- búðum nasista. Þangað var konum, körlum, börnum, sjúkum og öldruð- um stefnt til að mæta þar dauða sínum, eins og hveijum öðrum fén- aði sem leitt er til slátrunar. (Nema hvað að aðbúnaður fólksins var 100 sinnum lakari en við myndum bjóða nokkurri skepnu.) Gyðingum skyldi öllum eytt. En fyrst skyldi smána þá, þrælka þeim út og svelta. Að vísu missti draumaríki Hitlers og kó niður um sig brækurnar áður en sá áfangi náðist. Vissulega heppnaðist böðlunum að höggva risastór skörð í þeirra raðir (gyð- inga). Við skulum heldur ekki gleyma að gyðingar áttu ekki í neinum útistöðum við aðrar þjóðir á þessum árum. Þess vegna eru ofsóknirnar gegn þeim (og seinna útrýmingarherferðin) saklausum svo mikil hrollvekja í hugum flestra, sem raun ber vitni og reyndar óskiljanieg með öllu, ef grannt er gáð. Eða treystir einhver sér til að réttlæta eða útskýra þennan ósóma á trúverðugan máta? Hræddur er ég um að það dæmi muni seint ganga upp. Aðfarir þýskaranna gegn gyð- ingum er stærsti blettur mannkyns- sögunnar. Sama hvað hver segir. Þó er rangt að dæma alla Þjóðveija sökum helstefnunnar. Því málið ér auðvitað að þjóðir, sem slíkar, eru ekki vondar þótt stjórnskipulagið sé kannski sjúkt og kjánar fari með völd. Sannleikurinn er sá að örfáir aðilar í Þýskalandi nasismans réðu þar Öllu. Nánar tiltekið, einn mað- ur. Þessa nóta átti skilyrðislaust að dæma til þyngstu refsingar. Reyndi varð, því miður, önnur. Margir SS-kvalarar sluppu með skrekkinn. Sumir flúðu. Komust undan með hjálp bandamanna, að fullyrt er. Þessar hugleiðingar mínar eru vegna sýningar myndarinnar „Morðingjar meðal vor“, er ríkis- sjónvarpið flutti oss á dögunum. Búningurinn rakti hluta æviferils hins mikilfenglega Simons Wiesen- tals, „mannsins er lifði af“, eins og hann sjálfur kemst að orði. Símon þessi hefur komið fleiri stríðsglæpamönnum nasista undir lás og slá en nokkur annar maður, sem kunnugt er. Þess skal að lokum getið að ég styð ekki ráðstafanir Israela í dag, gegn aröbum. Harð- stjóra, hvort sem þeir heita Hitler, Marcos, Stalín ellegar Shamir, get ég eigi stutt. Vegna þéss einfald- lega að undirritaður er maður er þráir að friður og kærleikur verði allstaðar innleiddur. En það er ann- að mál og kemur ofanrituðu efni ekkert við. Konráð Friðfinnsson Víkverji skrifar Víkveiji hefur oft áður sagt sögur um baráttu einstaklingsins við kerfiskarla þessa lands. Þessu stríði ætlar aldrei að linna. Og það er bar- ist á mörgum vígstöðvum. En sér- hver saga kann að koma í veg fyrir aðra eins, og hér verða því tíndar til tvær orrustur í húsnæðismálum. Nýlega frétti Víkveiji af fólki, sem var að sækja um undanþágu, vegna persónulegra aðstæðna. Tekið skal fram, að sámkvæmt lögum átti þetta fólk rétt á slíkri undanþágu, ef sótt yrði um. Umsókninni var hafnað. Hún var ítrekuð með enn fleiri vott- orðum og fylgiskjölum. Aftur neitun frá undanþágunefndinni. Engar skýr- ingar fengust á þessum neitunum. Enn var skrifað og aftur fundin fleiri fylgiskjöl. Og nú leitaði fólkið til sérstaks erindreka til að fylgja málinu eftir, þar sem ljóst var að sjálft hafði það engin áhrif. Og nú fóru hjólin að snúast. Þegar erindrekinn náði fundi undanþágunefndarmanna kom í ljós, að „kerfið" hafði stungið öllum vott- orðum og fylgiskjölum niður í skúffu og lagt málið þannig fyrir nefndina, að nefndarmenn höfðu öngva hug- mynd um aðstæður umsækjanda. Þeir komu af ijöllum í sambandi við grundvallaratriði þess máls, sem þeir höfðu afgreitt í tvígang. Þetta fólk hefur nú fengið jákvætt svar. XXX Síðari saga Víkveija dagsins er um einfættan karl, sem sótti um fyrirgreiðslu til húsnæðiskerfisins til þess að skipta um íbúð. Þessi maður býr á þriðju hæð í stigahúsi. Beiðni hans var hafnað á þeirri forsendu að íbúðin, sem hann ætti, væri full- nægjandi fyrir hann. Punktur og basta. Ekkert tillit var tekið til fötlun- ar mannsins eða annarra aðstæðna. Víkveiji veltir því fyrir sér, hvers konar manngerð það er, sem afgreið- ir einstaklinga með þessum hætti. Og hvemig komust þeir að niður- stöðu? Reyndu þeir að setja sig í spor mannsins og skilja aðstöðu hans? Hoppuðu þeir á öðrum fæti upp og niður þriggja hæða stiga? Og hvað oft? Einu sinni? Tvisvar? Þrisvar? Og kerfið malar áfram. Þar hafa menn meira en nóg að gera við að afgreiða mál... og einstaklinga. Ráðherra húsnæðismála hefur líka nóg á sinni könnu. Þar á meðal þessa þjóna. Síðast þegar Víkveiji vissi, bjó ein- fætti maðurinn enn á sama stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.