Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 18

Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 18
-18 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989 n Ultra Hampers Stelp BLEIUR \ Bókaskatturinn er hneyksli Rakadrægur kjarní aðframan Rakadrægur kjarní í miðju ' • ' Stórkostleg nýjung fyrír lítla Stráka og Stelpur Þægilegri - passa betur en nokkru sinni fyrr. þó bleian sé vot eru þau þurr Eínfutumboð JÉf Ameriska Tunguhál* 11. Símí 82700. Askriftarsíminn er 83033 eftirÁrna Sigurjónsson Bækur hafa um nokkurt skeið borið hærri söluskatt á íslandi en dæmi eru til um annars staðar eða 25%. Með skattkerfisbreytingunni um áramótin er nú ráðgert að ís- lendingar slái eigið heimsmet og leggi 26% virðisaukaskatt á þessa vöru, sem ætla mætti samkvæmt því að yfirvöld telji allt of ódýra í landinu. Ekki fer vel á því að afla íslend- ingum slíkrar frægðar að endemum á sjötíu ára rithöfundarafmæli Hall- dórs Laxness. Menn geta að vísu glatt sig við að líkur eru á að tón- listar- og leiklistarstarfsemi muni ekki bera þennan skattklafa, né heldur íþróttastarfsemi. En af þessu tilefni hljóta að vakna nokkrar áleitnar spurningar: Hvað réttlætir ijárhagsleg forrétt- indi leikfimistjóra umfram skáld? Hvort ætli muni halda nafni þjóðar- innar lengur á lofti, Egils saga eða , blaklið okkar í þriðju deild? Hvort er líklegra til að duga okkur á þrengingartímum, íslandsklukkan eða bronsverðlaun í tugþraut pilta á Ólympíuleikum smáþjóða? Enn vakna spurningar: Er niður- staðan af nálega fjögurra alda ræðuhöldum um að íslendingar séu bókmenntaþjóð sú, að skattpína skuli bækur? Er það niðurstaðan af málræktarvikunni, af sjálfstæð- isbaráttunni og af valdatöku Al- þýðubandalagsins í ráðuneytum fjár- og menntamála, að íslenskt ritmál verði að bera meiri álögur ríkissjóðs en nokkurt annað ritmál á heimsbyggðinni? Islenskir lesendur eru ekki kátir yfir því að þurfa að greiða slíkan metskatt af lesningu sinni. Heimilin fagna því ekki að skólabækur telj- ist meiri munaður en ferðir í leik- hús eða á völlinn. Höfundar skilja líklega ekki hvers vegna ríkið fær mun meira fyrir hvert eintak bókar en sá sem samdi hana, og greiðir þó höfundurinn tekjuskatt af rit- launum sínum. Og þó að flest bóka- forlög landsins séu án efa rekin af ítrustu hagsýni, er líklegt að mörg þeirra standist ekki þá raun sem hin breytta og aukna skattlagning mun hafa í för með sér. Menn mega NÚ GETUR ÞÚ BORGAÐ - OG HITAVEITIIREIKNINGINN MED BOÐGREIÐSLUM SAMKORTS Hafðu samband við skrifstofur Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur. RAFAAAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22 HITAVEITA REYKJAVIKUR GRENSÁSVEGI 1, SÍMI 600100 „Skattkerfisbreyting- una um áramótin verð- ur að nota til að létta þungum álögum af þeirri menningarstarf- semi sem stendur Is- lendingum næst, en það er bókaútgáfa.“ vera mjög grunnhyggnir, ef þeir halda að bókaútgáfa í einu af minnstu málsamfélögum jarðarinn- ar geti borið meiri skattbyrði en dæmi eru um í nokkru öðru landi. Því má bæta við, að ekki er líklegt að úthlutunarsjóðir í höndum misviturra ráðamanna geti leyst þann vanda sem virðisaukaskattur á bækur skapar. Ráðamenn: Hafið þið tapað átt- um? Skattkerfisbreytinguna um áramótin verður að nota til að létta þungum álögum af þeirri rnenning- arstarfsemi sem stendur Islending- um næst, en það er bókaútgáfa. Þið getið haft ykkar hentisemi um landsmálablöðin sem flokkar ykkar þarfnast. Tónlistarstarfsemi er líka góðra gjalda verð og íþrótt- irnar sömuleiðis. En hvernig verður það skýrt, að eina íþróttin sem ríkisstjórnin vill pína með metskatti sínum er skáld- skaparíþróttin? Höfundur er ritstjóri og stundakennari við Háskóla íslands. Frainkvæmdastj órn BHM; Virðisauka- skattur verði ekki á bókum Á FUNDI í framkvæmdastjórn Bandalags háskólamanna 31. október sl. var eftirfarandi álykt- un samþykkt: Framkvæmdastjórn Bandalags háskólamanna skorar á stjórnvöld að undanskilja bækur virðisauka- skatti við gildistöku hans um næstu áramót. Islensk bókmenning skipar stærstan sess í menningararfi þjóð- arinnar. Nú á fjölmiðlaöld er nauð- synlegt að íslensk bókmenning dafni, en til þess þarf verð bóka að Jækka. í íslenskri menningarumræðu er fullt samkomulag um að bækur séu megin forsenda almennrar og sér- hæfðrar menntunar þjóðarinnar. Þess vegna er nauðsynlegt að verð- lagi bóka sé haldið eins Iágu og -unnt er og hlýtur niðurfelling skatta að vera raunhæfasta viðurkenning stjómvalda á því. Æskan gefiir út sex bækur ÆSKAN gefiir út sex bækur í haust. Æskan gefur út skáldsöguna Lífsþræði eftir Sigríði Gunnlaugs- dóttur, en höfundur hlaut verðlaun í skáldsagnasamkeppni IOGT fyrir þessa sögu. Unglingasagan Unglingar í frumskógi er eftir Hrafnhildi Val- garðsdóttur, en það er hennar þriðja unglingabók. Arni í Hólminum — engum líkur nefnist bók sem Eðvarð Ingólfsson hefur skráð um æviþætti Árna Helgasonar í Stykkishólmi, fyrrum póstmeistara og sýsluskrifara. Frændi Konráðs, föðurbróðir minn er bók eftir Vilhjálms Hjálm- arsson fyrrverandi ráðherra sem þar segir ævisögu Hermanns Vil- hjálmssonar frá Mjóafirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.