Morgunblaðið - 10.12.1989, Qupperneq 1
112 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
># A Morgunblaðið/Ól.K.M.
KVOLDSTEMMNING VIÐ GROTTU
283. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Oþefur og ang-
an í óperunni
GESTIR Ensku óperunnar í London nutu
þess nýlega að heyra og sjá óperu Pro-
kofjevs, „Hugfanginn af þrem glóaldin-
um“. Auk þessa gátu þeir fullkomnað
skemmtunina með því að anda öðru hveiju
að sér ilmi eða daun, eftir því sem hæfði
því er var að gerast á sviðinu. Við hvert
sæti var komið fyrir spjaldi með sex reit-
um og átti að skafa af þeim i réttri röð
í hvert sinn sem kórinn, er einnig hélt á
spjöldum, gaf áhorfendum merki. Óperan
fjallar um álfa og prins í leit að ástmey
sinni, sem falin er í glóaldini, og gefst
kostur á „framandi ilmi“ auk ávaxtaang-
anar en einnig lyktar af rotnandi kjöti
er hirðmatsveinar sjást við iðju sína. Lykt,
sem sögð er líkjast „blöndu af fuleggja-
stækju og illum mannaþef', gýs upp er
drísildjöfullinn Farfarello birtist. Hann á
að vera orðlagður fyrir andremmu og
búkþef úr öðrum líkamshluta og olli þessi
reitur nokkrum vandræðum í fyrstu þar
sem hann yfirgnæfði alla aðra þegar hon-
um hafði verið gefinn laus taumurinn.
Fylgishrun í
Norður-Kóreu
Fundur leiðtoga aðildarríkja Evrópubandalagsins:
Samningum við EFTA-ríkin
verði lokið fyrir árslok 1990
Strassborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
LEIÐTOGAR Evrópubandalagsins (EB) samþykktu á fiindi sinum sem lauk í Strass-
borg í gær að stefnt skuli að því að Ijúka samningaviðræðum Fríverslunarbanda-
lags Evrópu (EFTA) og EB fyrir lok næsta árs. Leiðtogarnir samþykktu jafhfraint
yfirlýsingu uin lágmarks félagslegt öryggi innan EB og að stefnt skyldi að sameigin-
legu gjaldmiðilssvæði innan bandalagsins.
Ilokayfirlýsingu fundarins fagna leiðtog-
arnir þeim árangri sem náðst hefur í
könnunarviðræðum EFTA og EB og leggja
áherslu á að væntanlegir samningar tryggi
ákjósanlegt jafnvægi milli skyldna og rétt-
inda beggja jafnframt því að i engu verði
hallað á sjálfsákvörðunarrétt þeirra. ítrekað
er að ríkjum sem standa utan EB verði
boðin aðild að Umhverfismálaskrifstofu
Evrópu, sem áformað er að koma á fót.
Vikið er að málefnum þýsku ríkjanna
tveggja í lokayfirlýsingu leiðtoganna og
segir þar að virða beri sjálfsákvörðunarrétt
íbúanna en með ákveðnum skilyrðum. í sér-
stökum kafla um samskipti EB við Austur-
Evrópu lýsa leiðtogarnir yfir vilja sínum til
að koma á fót banka er hafi það hlutverk
að hvetja til fjárfestinga þar og efla fjár-
málastarfsemi. Evrópubankanum verður
stjórnað sameiginlega af fulltrúum EB og
Austur-Evrópulandanna en gert er ráð fyrir
að bandalagslöndin eigi meira en helminginn
af hlutafé bankans.
Leiðtogarnir hvetja til samninga við Aust-
ur-Þýskaland á svipuðum nótum og þeir
samningar sem gerðir hafa verið m.a. við
Ungveija og Sovétmenn. Talið er brýnt að
opna fleiri leiðir til samstarfs og samskipta
við ríki í Austur- og Mið-Evrópu og sérstak-
lega hvatt til þess að Sovétríkin fái sem
fyrst áheyrnaraðild að GATT, hinu almenna
samkomulagi um tolla og viðskipti.
Fagnað er þeim árangri sem náðst hefur
í undirbúningi innri markaðar EB og hvatt
er til þess að sem fyrst verði tryggt að landa-
mæri á milli EB-ríkjanna verði í raun felld
niður í árslok 1992. Svo sem oft áður lenti
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, í minnihluta á fundinum. Yfirlýsingin
um félagsleg réttindi og sérstaka ráðstefnu
um breytingar á Rómarsáttmáianum var
samþykkt gegn atkvæði hennar.
VINDAR glasnost eru nú
teknir að leika um N-
Kóreu þar sem hinn ást-
sæli og alvitri leiðtogi,
Kim II Sung, stjórnar
draumaríki alþýðunnar.
Fram til þessa hefur þátt-
taka í kosningum þar í
landi jafhan verið 100%
og vitaskuld hafa öll at-
kvæðin fallið eina stjórnmálaflokki lands-
ins í skaut. Á þessu hefur nú orðið breyt-
ing. Nýverið fóru fram bæjarsljórnakosn-
ingar í N-Kóreu og vakti það eðlilega
heimsathygli er tilkynnt var að þátttakan
hefði einungis verið 99,73%. Þessi niður-
læging á sér þó eðlilegar skýringar. Að
sögn stjórnvalda stafaði þessi dræma þátt-
taka af því að óvenjumargir N-Kóreubúar
voru staddir erlendis á kjördag og menn
geta síðan velt því fyrir sér hvernig þeir
hefðu varið atkvæði sínu.
Endurtekið efini
FRÖNSKU skáldkonunni
Regine Deforges hefúr
verið gert að greiða rúm-
ar 20 millj. ísl. kr. í skaða-
bætur fyrir ritstuld. Dóm-
stóll í París úrskurðaði
nýverið að fyrstu 200
blaðsíðurnar í bók hennar
„Stúlkan á bláa hjólinu",
sem komið hefur út á íslensku ásamt fleiri
bókuin höfundar, hefðu verið „fengnar
að láni“ úr skáldsögu Margaret Mitchell
„Á hverfanda hveli“.
Eins og
magnadur
20 draumur
Jan
Hartman
rcebir um
kvikmynd-
un Njálu
VARAFLUGVOLLUR AISLANDI
I LAUSU L0FTI
ðanguis
§Ijor!nn
gengur
lau§
Jakob Jakobsson í
samtali um leitina
að lífsbjörg
íslensku þjóðar-