Morgunblaðið - 10.12.1989, Side 30

Morgunblaðið - 10.12.1989, Side 30
30. Grýlusaga Grýlutrú er ekki horfin á ís- landi. Að minnsta kosti var hún það ekki þegar ég var strák- ur inni í Bústaðahverfi. Þar voiu sagðar sögur á kvöldin af geggjuðum kon- um í skúrum sem eltu krakka til þess að beija þá með nagla- spítum. Þar bjó líka grýla í húsi við sparkvöll hverfisins. Það orð fór af henni að hún skæri sundur alla bolta sem lentu inni í garðinum. Hún hataði fótbolta. Sagnir hermdu að einu sinni hefði bolti brotið hjá henni glerið í stofuglugg- anum. Ekki var vitað hvaða spjöllum öðrum þessi sending olli, því strákahópurinn tvfstraðist á augabragði og var horfinn eins og þarna hefði aldrei verið leikinn fótbolti. Eft- ir þetta lét grýlan setja aðra rim- lagirðingu ofan á þá sem fyrir var og þrefaldan vöndul af gaddavír þar á. Allt kom þó fyr- ir ekki. Strákar héldu áfram í fótbolta og þar sem í okkar hópi voru fjölmargir sparkharðir lentu skotin stundum inni í þessum ógnvænlega garði. Ég sé grýluna fyrir mér þar sem hún kemur æðandi út í garð, mfcð' brugðið saxið og boltinn í háu grasi á miðjum blettinum. Stubbi er að vega sig upp yfir tveggja metra háa girðinguna og rétt nær að Iáta sig detta aft- ur inn á sparkvöllinn og bjarg- ast þar með naumlega frá óhugnanlegum örlögum. Hann reif að vísu buxurnar sínar á gaddavírnum en slapp úr bráð- um lífsháska. Boltinn var auð- vitað glataður og í minningunni finnst mér eins og kellingin hafi glott af ánægju þegar hún brá á hann saxinu og fleygði honum svo fyrirlitlega í grasið þar sem lágu hræ af fjórum eða fimm bræðrum hans. Félagar í knattspyrnufélag- intrSókn, sem þarna stundaði æfingar, urðu hér eftir að láta vera að sparka háum boltum í norðaustur. Við létum samt ekki deigan síga og spörkuðum grimmt frá morgni til kvölds. En Adam var ekki lengi i Paradís. Einn bjartan vormorg- uninn, þegar við ætluðum að taka upp spark þar sem frá var horfið kvöldið áður, var komið babb í bátinn. Óvinaher allra barna í Reykjavík, bæjarvinnu- mennirnir, voru komnir á stað- inn. í þetta sinn var það ekki til þess að rífa kofana okkar eða drepa dúfurnar. Nei, nú tóku þeir fótboltamörkin og til- kynntu að þessi háskalegi leik- ur væri bannaður á þessum velli héðan i frá. Við notuðum þá bara úlpurnar okkar, steina eða spítur fyrir mörk og spörk- uðum áfram. Bæjaryfirvöld sáu að við svo búið mátti ekki standa. Til þess að koma í veg fyrir hinn hættulega fótbolta gripu þau til þess ráðs að leggja þykkt lag af brunagjalli yfir all- an völlinn. Breitt var yfir raun- verulegan tilgang hryðjuverks- ins með því að setja upp tvö körfuboltamörk þarna. Körfu- bolti var óþekkt íþrótt í Bú- siaðahverfi. Enginn átti bolta, enginn kunni reglurnar og við vorum líka allir of lágvaxnir. Brunagjallið batt þvi endahnút- inn á frægðarferil íþróttafélags- ins Sóknar. Áður en hann hófst. Þegar ég lít til baka verð- ur mér ljóst, að ekki einungis voru giýlur til í Bústaðahverfi. Þær voru lika áhrifamiklar i pólitík. eftír Sigurð G. Tómasson MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRb I UIUI StjNy^D^Gyjt ^flffSEMBER 1989 1 SElFOSS folayeisla 1 heita Pottiiium péte ONN, Aísfe Sundh j 7 Selfoss hélri,, .dhallar ■ desernber • u s,n Htlu iól P°ttunum. fíin‘num af heitu kakó Var borfð ^ökPr 0o- $6177 flaut » . &&I7] a brnSðu sn*tt , "’eðiætid auSína til V} ve>slunni. *§"• JólJS. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Signrður Guðmundsson ásamt nemunum sem mættu í hefilbekkjarmótið. SELFOSS 36 nemar á hefilbekkiamótið Selfossi. Qj NEMAR SIGURÐAR Guðmundssonar húsasmíðameistara og for- stjóra SG-einingahúsa á Selfossi blésu nýlega til samkomu með meist- ara sinum. Sigurður hefur tekið 36 nema á 25 árum sem mun vera mesti fjöldi nema hjá einum meistara á Suðurlandi. Samkoman fékk heitið hefil- bekkjarmótið enda hefilbekkur sem bar uppi veisluborðið. Fyrsti nemi Sigurðar í húsasmíði, Júiíus Sigurbjörnsson, afhenti Sigurði snoturt líkan af hefilbekk sem minningarvott um samkomuna. Það voru 26 nemar sem sáu sér fært að mæta á hefilbekkjarmótið. í þeim hópi var eina konan sem lokið hefur námi í húsasmíði, Sigríð- ur Runólfsdóttir. Sigurður Guðmundsson hóf sjálf- stæðan atvinnurekstur í byggingar- iðnaði árið 1950 og á næsta ári verður fyrirtækið því 40 ára. Frá 1965 hefur fyrirtækið framleitt ein- ingahús. Nú starfar fyrirtækið SG- einingahús í 3.000 fermetra hús- næði og rekur, auk einingahúsa- framleiðslunnar, myndarlega bygg- ingavöruverslun. - Sig. Jóns. Lilja M. Sig- urvinsdóttir með Júmba og Bangsa. Fjölskyldan í jólabókaflóðinu: Unnur Þora, Elísabet, Hrafti, Ulugi og Jóhanna. Fjölskyldan í j ólabókaflóðinu ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem fimm meðlimir sömu fjölskyldu gefa út fimm bækur á sama árinu. En eigikona og Qögrur börn Jökuls heitins Jakobssonar hafa gjört slíkt í ár og því má segja að þessi fjölskylda sé nú djúpt í kafi jólabókaflóðsins. Börnin fjögur eru þau systkini Elisabet, Illugi og Hrafn og hálfsystir þeirra, Unnur Þóra Jökulsdóttir. Sú fimmta í hópnum er Jóhanna Kristjónsdóttir móðir hinna þriggja fyrstnefndu. Bók Jó- hönnu er Dulmál Dódófuglsins og hefur að geyma ferðaminn- ingar hennar frá fjarlægum löndum. Elísabet gaf út ljóðabókina Dans í lokuðu herbergi fyrr í ár en hún á einnig hlut að nýrri bók frá Almenna bókafé- iaginu sem hefur að geyma verk nokkurra ungskálda. Illugi skrifar bókina Meist- arar skákborðsins og er þar um að ræða umfjöllun um stórmeistara okkar íslendinga í skák. Hrafn skrifar, ásamt Bjarna Guðmarssyni, bókina Ástandið en eins og titillinn gefur til kynna fjallar bókin um samskipti erlendra her- manna við íslenskar yngis- meyjar og aðrar á stríðsárun- um. Unnur Þóra skrifar, ásamt eiginmanni sínum, Þorbirni Magnússyni, bókina I kjölfar kríunnar og er þar um að ræða frásögn þeirra af ævin- týraferð um heimshöfip á skú- tunni Kríunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.