Morgunblaðið - 18.01.1990, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
NÁMSKEIЗ Með lög-
um um verðbréfamiðlun og verð-
bréfasjóði voru settar nýjar reglur
um starfsemi verðbréfafyrir-
tækja, meðal annars um skilyrði
til þess að hljóta leyfi til verð-
bréfamiðlunar. Áður hafði þetta
leyfi verið háð því að menn hefðu
lokið viðurkenndum prófum í til-
teknum háskólagreinum. Nú er
eitt af skilyrðum til þess að hljóta
löggilt leyfi til verðbréfamiðlunar
að viðkomandi hafi setið nám-
skeið og tekið próf samkvæmt
þeim kröfum sem kveður á um í
reglugerð. Fyrsta námskeiðið
hófst síðastliðinn fimmtudag í
Bankamannaskólanum þar sem
þessi mynd er tekin en lokapróf
verða síðan haldin í janúar á
næsta ári. Morgunblaðið/Emilía
V,
Allir þeir, sem greitthafa laun
á árinu 1989, skulu skila
launamiðum vegna greiddra
launa á þar tilgerðum eyðu-
blöðum til skattstjóra.
Frestur til að skila launamiðum
rennur út 22. janúar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Kynning
■ STJÓRNUNARFÉLAG ís-
lands og Vinnuveitendasam-
band Islands bjóða til kynningar
á nýjung til greiningar ársreikn-
inga. Greining ársreikninga er
hugbúnaður fyrir tölvur sem Olaf-
ur B. Birgisson rekstrar- og hag-
verkfræðingur hjá Vinnuveiten-
dasambandi íslands hefur stað-
fært. Hugbúnaðurinn er stjórnun-
ar- og upplýsingatæki, sem getur
á grundvelli tiltölulega afmark-
aðra gagna greint fjárhagslega
sögu fyrirtækisins og sett hana
fram á skilmerkilegan hátt, segir
í frétt frá fyrirtækjunum. Enn-
fremur geti forritið sagt fyrir um
skammtímaáhrif af ýmsum
rekstrar- og stjórnunarlegum að-
gerðum. Forritið styðst við árs-
reikninga síðustu þijú árin ásamt
fjárhagsáætlun fyrir núverandi
eða næsta ár. Hugbúnaðurinn er
ætlaður öllum þeim sem á ein-
hvern hátt fást við fjármálastjórn
fyrirtækja og er hægt að sýna
niðurstöður með aðstoð mynd-
varpa og „PC Flat Screen“ með
útprentunum af þeim gröfum sem
greiningin skilar eða með því að
prenta út yfirlit. Kynningin fer
fram á Hótel Loftleiðum þriðju-
daginn 23. janúar kl. 13-14 í
ráðstefnusalnum Nesi.
Lausnin
fyrir
lagerinn
STAKAR HILLUR EÐA
HEIL HILLUKERFI
Lagerinn þarf að vera rétt
skipulagðurtil
að rétt nýting náist fram.
Kynntu þér möguleikana
sem við bjóðum.
LAGERKERFIFYRIR
VÖRUBRETTI
Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við
mismunandi aðstæður. Greiður
aðgangur fyrir lyftara og vöruvagna.
STÁLHILLUR FYRIR
SMÆRRIEININGAR
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
BÍLDSHÖFDA 16SÍMI6724 44 TELEFAX6725 80