Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 -f 6 B Þjónusta Endurskoðendur koma fram í sviðsljósið Breytt hlutverk löggiltra endurskoðenda og gagnrýni á störf þeirra hefur beint athygli viðskiptalífsins að þessari annars hógværu stétt HIN árlega vertíð löggiltra endurskoðenda er nýhafin. Á næstu mánuð- um fer fram árlegt uppgjör fyrirtækja jafhframt því sem reikningar þeirra eru í mörgum tilvikum endurskoðaðir. Hjá sumum endurskoð- endum hefur aukið vinnuálag teygst lengra yfir árið þar sem nokkur breyting hefur orðið á hlutverki þeirra á seinni árum. Löggiltir endur- skoðendur hafa í vaxandi mæli tekið að sér ráðgjafarstörf og eigin- lega endurskoðun í stað þess að sinna eingöngu reiknings- og skatt- skilum. í byrjum þessa árs biðu þeirra t.d. verkefni við að leiðbeina fyrirtækjum vegna upptöku virðisaukaskatts. Störf endurskoðenda hafa meðal annars af þessum ástæðum komið meira við sögu í al- mennri umræðu í þjóðfélaginu en einnig hefur borið meira á gagnrýni á störf þeirra að undanförnu en áður. Á allra síðustu árum hafa endur- skoðendur aukið við verksvið sitt með því að taka að sér ráðgjafar- störf, áætlanagerð, verkefni við fjár- mál o. fl. Þeir veita ráðgjöf varðandi skattamál, útreikning á viðskiptavild og aðstoða við mat eða eigenda- skipti á fyrirtækjum. Endurskoðun á ársreikningum fyrirtækja hefur einnig verið að aukast. Með henni fá fyrirtæki staðfestingu á þvi' að hægt sé að treysta á þær upplýsing- ar sem þar eru til staðar til notkun- ar fyrir viðkomandi fyrirtæki í sam- skiptum sínum við hluthafa, fjár- festa, Iánardrottna eða aðra. Þessi þáttur hefur vaxið bæði vegna þess að markaðurinn sjálfur hefur kallað eftir þessarri rannsóknarvinnu og eins vegna þess að skilningur for- ráðamanna fyrirtækja hefur aukist á því að slík rannsókn á ársreikning- um hafi gildi fyrir þá sjálfa. Hlut- verk endurskoðenda hefur þannig í mörgum tilvikum þróast úr því að vera nánast aðalbókari fyrirtækja í að vera sérfræðingur utan þeirra. Eftirspurn frá öðrum aðilum á borð við sveitarfélög hefur og áukist. Þróunin hefur verið tiltölulega hröð á síðustu árum í þessa átt meðal annars vegna þess að innan lána- stofnana og fjárfestingarlánasjóða er beitt faglegri vinnubrögðum en áður. Þeir óska eftir auknum upplýs- ingum um fjárhag og stöðu fyrir- tækjanna t.d. bráðabirgðauppgjör- um. Þessi þróun er raunar svipuð og þekkist hjá stórum erlendum end- urskoðunarfyrirtækjum. Þar er end- urskoðunin stærsti hlutinn af starf- inu og ráðgjafarstörfin fara stöðugt vaxandi. Endurskoðunarfyrirtækin færri og stærri Löggiltir endurskoðendur hér á landi eru 180 talsins samkvæmt upplýsingum Árna .Tómassonar, formanns Félags löggiltra endur- skoðenda. Ekki liggur fyrir nákvæm tala yfir fjölda endurskoðunarstofa en alls má finna í símaskránni 67 aðila sem virðast stunda þennan atvinnurekstur. Eins og víða í at- vinnulífinu kom til sameiningar end- urskoðunarstofa á síðasta ári. Undir lok síðasta árs sameinuðust tvær endurskoðunarstofur í Reykjavík og tvær á Akureyri. Markmiðið með að sameina stofurnar var fyrst og fremst að ná fram hagræðingu í rekstri og auka sérhæfingu, jafn- framt því að gera fyrirtækin betur í stakk búin til að eiga samskipti við erlend endurskoðunarfyrirtæki. Þannig sameinuðust undir lok síðasta árs annarsvegar Endurskoð- un og reikningsskil hf. og Stoð hf. og hinsvegar Endurskoðun Akureyri hf. og Fell hf. Nokkrar af stærri endurskoðunar- stofunum eru í samstarfi við stór erlend endurskoðunarfyrirtæki. Þannig er Endurskoðun hf. aðili að KPMG, Endurskoðun og reiknings- skil — Stoð hf. er aðili að Arthur Young, Endurskoðunarmiðstöðin að Coopers & Lybrand og Löggiltir endurskoðendur hf. eru tengdir stofu sem heitir Horwath International. Þess má geta að þrjú erlendu fyrir- tækin sem fyrst voru nefnd eru í hópi 6 stærstu endurskoðunarfyrir- tækja í veröldinni. Tengslin felast m.a. í að hingað berast rit frá er- lendu fyrirtækjunum og margvísleg önnur gögn sem víkka sjóndeildar- hring starfsmanna viðkomandi end- urskoðunarstofa. Þá gefst stofunum ennfremur kostur á námskeiðum erlendis og heimsóknum sérfræð- inga. Loks eru dæmi um að iðgjald fyrir starfsábyrgðartryggingu sé innifalið í þóknun til erlendu fyrir- tækjanna. Áritun um góða reikningsskilavenj u Löggiltum endurskoðendum ber að kanna ársreikninga hlutafélaga og segja álit sitt á honum í endur- skoðunarskýrslu. Til þessa verks eru ýmis lög og reglur hafðar til viðmið- unar auk almennt viðurkenndra reikningsskilavenja. FLE er aðili að Alþjóðlegu reikningsskilanefndinni og Alþjóðlegu endurskoðunarnefnd- inni. Samkvæmt stofnsamþykktum þessara samtaka ber aðildarfélögum að virða reglur samtakanna og vinna að því að staðlar þeirra nái fram að ganga í viðkomandi löndum. Nokkur þjóðlönd hafa ákveðið með lögum að reglur frá Alþjóðlegu reiknings- skilanefndinni séu góð reiknings- skilavenja í viðkomandi landi. Önnur lönd eins og Bandaríkin hafa látið einkageiranum eftir að ákveða staðla en einnig þekkist lagaleg hefð. Tilgangurinn með stofnun þessarra alþjóðlegu nefnda var að stuðla að meira samræmi í reikningagerð fyr- irtækja í heiminum og í rannsóknar- aðferðir endurskoðenda. Þörf var talin á þessu vegna verulegra auk- inna alþjóðlegra viðskipta. Margt hefur áunnist í þessum efnum, en samt er langt í land. Um þessar mundir beinist umræðan m.a. að meðferð viðskiptavildar í reiknings- skilum fyrirtækja, en hún er með nokkuð ólíkum hætti vestan hafs og austan. Á vegum FLE eru starfandi tvær nefndir sem sinna faglegum verkefn- um: reikningsskilanefnd og endur- skoðunarnefnd. Hugmyndin var sú, að á þessum tveimur mikilvægum sviðum stæði félagið fyrir gerð leið- beinandi reglna um hvað fælist í hugtökunum góð reikningsskila- venja og góð endurskoðunarvenja. Endurskoðunarvenjan varðar það hvernig rannsóknarstörf eru unnin til staðfestingar á ársreikningum en reikningsskilavenjan með hvaða hætti mæld er afkoma og eigið fé fyrirtækjanna. Auk þess starfar menntunarnefnd en hún annast m.a. námskeiðahald á vegum félagsins. Fram til þessa hafa engar leið- beinandi regiur um reikningsskil fyrirtækja verið samþykktar á aðal- fundi FLE. Á hinn bóginn hafa þær reikningsskilanefndir sem starfað hafa undanfarin ár, gefið út álits- imm\ VERKSTJORN - grunnnámskeið Námskeiö œtlaö nýjum stjómendum og þeim sem haffa áhuga á aö bæta námi viö reynslu. Verkstjórnarfræðslan býöur nú nýtt námskeiö um grundvallar- atriöi stjórnunar. Markmiö námskeiösins er aö þátttakendur kynnist og læri aö beita grundvallarþáttum stjórnunar, þáttum sem eru sameiginlegir öllum stjórnendum, óháö starfsgreinum. Námskeiðinu er skipt í fimm meginþætti: - Samvinna og samskipti, þ.e. mannleg samskipti frá sjónarhóli stjórnandans - Verkstjórn og vinnutækni - Verkskipulagning og tímastjómun - Vinnuhagræöing »,o8— Iðntæknistofnun Kennt er á löntækmstofnun Islands, dagana30. jan. - 3. feb. 45 kennslustundir. ©ntæknistofnun íslands Upplýsingar og skráning í síma 91 -687000 Keidnahoit, 112 Reykjavik og 91-687440. Simi (9D e® 7000 gerðir eða kynnt hugmyndir sínar fyrir félagsmönnum, varðandi tiltek- in mál á sviði reikningsskila án þess að óska eftir því við aðalfund félags- ins að hann staðfesti þær. Ástæðan til þessa er vafalaust sú að reglur um reikningagerð hafa verið í mótun á síðustu árum, einkum þær er lúta að frásögn af áhrifum verðbólgunn- ar á mælingar á afkomu og stöðu íyrirtækja. Og af þeim sökum hafa starfandi nefndir enn sem komið er ekki óskað eftir formlegri staðfest- ingu á álitsgerðum sínum þó að á því kunni að verða breyting á næst- unni. Hver á að skilgreina góða reikningsskilavenju? Endurskoðendur hafa í auknum mæli á síðustu árum vikið frá laga- fyrirmælum vegna þess að fyrir- mæli um mælingar á afkomu og efnahag eru talin gölluð og ófull- komin. Löggjafinn mælir fyrir um að ársreikningar eigi að vera sam- kvæmt lögum og góðri reiknings- skilavenju. Þeirri spurningu hefur hins vegar verið ósvarað hveijum beri að skilgreina hvað sé góð reikn- ingsskilavenja og hvort það eigi að vera endurskoðendur eða fyrirtækin sjálf. Stefán Svavarsson, formaður reikningsskilanefndar FLE og dós- ent við viðskiptadeild H.í. var spurð- ur hvort endurskoðendur litu svo á að það væri þeirra hlutverk að skil- greina hugtakið. „Við höfum litið svo á að það væri helst að vænta tillagna frá endurskoðendum og höf- um af þeim sökum reynt að koma einhveiju á framfæri um þetta mál án þess að það hafi fengið formlega staðfestingu enn sem komið er. Það kynni að verða breyting á því. Er- lendis hefur þetta verið mikið í deigl- unni og hvernig gerð staðla eigi að fara fram. í Bandaríkjunum hafa endurskoðendur séð alfarið um þetta og þar var það verðbréfanefndin (SEC) sem samþykkti að þeir sæju um að skilgreina hvað væri góð reikningsskilavenja. Síðan var því breytt árið 1973 þegar stofnuð var ný nefnd sem skilgreinir hugtakið. í henni eiga sæti endurskoðendur auk til dæmis fulltrúa félags fjár- málastjóra og verðbréfamiðlara. Það er ekki einkamál endurskoðenda hvernig reikningar líta út. í rauninni er það frekar einkamál fyrirtækj- anna þar sem þau eru formlega ábyrg fyrir ársreikningunum en end- urskoðandinn fyrir árituninni. Það er því auðvitað eðlilegt að það sé einhver samvinna milli þessara aðila um það hvernig þessar reglur eigi að vera. Við í félaginu höfum verið svolítið tvístígandi út af þessu vegna þess að umboð okkar til þess að skipa fyrir hefur ekki verið ljóst og þess vegna hafa menn verið að velta því fyrir sér hvort það eigi að fella einhveija aðra inn í þá umræðu eða jafnvel að fá heimild í lögum fyrir löggilta endurskoðendur til að skil- greina hvað felst í hugtakinu góð reikningsskilavenj a. “ Hafskipsmál tilefrii gagnrýni á endurskoðendur Gagnrýni á störf endurskoðenda hefur einkum sprottið af Hafskips- málinu margnefnda þar sem einn sakborninganna, Ragnar Kjartans- son, skrifaði skýrslu um mikið ósamræmi í vinnubrögðum þeirra. Benti hann á mikið misræmi við meðferð gengistaps þar sem endur- skoðendur hefðu ýmist notað gengi í árslok 1988 eða ársbyijun 1989. Ennfremur væri ósamræmi milli fyr- irtækja við endurmat vegna verð- bólguaðstæðna og a.m.k. 19 mis- munandi endurmatsaðferðum beitt. Sérstök athygli var vakin á því að í ársbyijun 1989 hefði reiknings- skilanefnd FLE sent félagsmönnum leiðbeiningar um að taka ætti tillit til þeirrar gengisfellingar sem varð í byijun ársins. Þrátt fyrir það hefði gætt mikils ósamræmis við meðferð gengistaps hjá endurskoðendum meðal annars hjá formanni nefndar- innar. Jafnframt var nefnt sem dæmi togaraútgerð á Skagaströnd þar sem endurskoðandi færði skip fyrirtækis- ins á 90% af vátryggingarverði í stað afskrifaðs kaupverðs. Tveir al- þingismenn sáu af tilefni skýrslunn- ar ástæðu til að leggja fram þings- ályktunartillögu þar sem ríkisstjórn- inni er falið að láta fara fram könn- un á vinnubrögðum löggiltra endur- skoðenda. Lagt er til að alþingi álykti að lög og reglur um endur- skoðun verði endurmetin og endur- bætt þannig að tryggt verði sam- ræmi. 4 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.