Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 8

Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 Fyrirtæki Siemens kaupir meiiihliita íNixdorf Bylting í evrópskum tölvuiðnaði VESTUR-þýzka stórfyrirtækið Siemens hefur fest kaup á meirihluta- eigfn í tölvufyrirtækinu Nixdorf Computer. Verður tölvu- og hug- búnaðardeild Siemens sameinuð Nixdorf í nýju fyrirtæki, Siemens- Nixdorf Informationssysteme. Nýja fyrirtækið verður hið stærsta sinnar tegundar í Evrópu með um 7 milljarða dollara ársveltu, og því töluvert stærra en til dæmis Olivetti á Ítalíu, Groupe Bull í Frakklandi eða Intemational Computers í Bretlandi. Nixdorf hefur átt við mikinn tap- rekstur að stríða undanfarin tvö ár. Engu að síður hefur orðrómi um hugsanlega sölu eða sameiningu jafnan verið neitað. Það kom því nokkuð á óvart þegar tilkynnt var að Siemens hefði keypt 51% hlut í Nixdorf fyrir tæpum hálfum mán- uði, og ætti væntanlega eftir að eignast stærri hlut í félaginu. Hjá hvorugu fyrirtækjanna hefur nokk- uð verið látið uppi um kaupverðið, en sennilegt er talið að það liggi á bilinu 450-600 miiljónir marka (16,2-21,6 milljarðar króna). Að- eins bandaríska fyrirtækið Inter- national Business Machines (IBM) verður með stærri markaðshlutdeild í Evrópu eftir þennan samruna, enda stærsti tölvuframleiðandi heims. Áætlað er að hlutdeild Siemens á markaðnum í Vestur-Þýzkalandi fyrir stærri tölvubúnað sé um 20%, á móti 70% hlut IBM. Á markaðin- um fyrir smærri tölvur er hlutur Siemens hinsvegar aðeins um 7%, en hlutur Nixdorf um 25%. Stjörnuhrap Heinz Nixdorf stofnaði tölvufyr- irtækið sem bar nafn hans árið 1954, og á fyrrihluta níunda ára- tugarins var talað um Nixdorf Computers sem fyrirmynd þess hvernig smærri fyrirtæki gæti stað- ið á eigin fótum í samkeppni við risa á borð við Siemens og IBM. Stofnandinn andaðist árið 1986, en árið eftir skilaði reksturinn 264 milljóna marka hagnaði (ísl.kr. 9,5 milljörðum), sem var 19% aukning frá árinu áður. Nýi forstjórinn, Klaus Luft, talaði þá um að mögu- leikar væru á að tvöfalda veltu fyr- irtækisins á fimm ára fresti. Luft reyndist of bjartsýnn. Þegar ljóst var orðið árið 1987 að erfið- leikar væru framundan vegna auk- innar samkeppni og lækkandi verðs á tölvum, ákvað Luft engu að síður að ráða^ nærri 4.000 nýja starfs- menn. Árið 1988 skilaði Nixdorf aðeins 26 milljón marka hagnaði, og á fyrstu níú mánuðum ársins 1989 nam hallinn á rekstrinum 465 milljónum marka (um 16,7 milljörð- um króna). Var bá áætlað að heild- Norrœnir markaðsdagar í Stokkhólmi :s® Stokkhólmur verður í sínum fegursta vetrarskrúða þegar öllum þeim sem fóst við kynningar-, útgáfu- eða sölustarf gefst tœkifœri til að kynnast þar nýjum straumum og stefnum í markaðsmálum. Hér er átt við hina Norrœnu markaðsdaga sem póststjórnir á ölium Norðurlöndum beita sér fyrir 1. og 2. febrúar 1990. Eru íslendingar eftirbátar grannþjóða sinna hvað varðar markpóst (direct mail) og aðrar aðferðir við beina markaðssetningu? Svar við þessari og öðrum brennandi spurningum fœst á sýningu og námstefnu í Stokkhólmi. Þar kynna meira en 65 viðurkenndir aðilar nýjar hugmyndir um beina markaðssetningu og greina frá framvindu mála víða um lönd á því sviði. Á sýningunni verða sýnd verk þeirra sem hafa komist í úrslit í samkeppn- inni um Gullstimpilinn, virtustu verðlaun á Norðurlöndum á sviði beinnar markaðssetningar. Verða þessi verðlaum veitt við hátíðlega athöfn 1 .febrúar. Á sýningunni verða einnig kynntar þœr aðferðir sem hafa reynst grann- þjóðum okkar vel við beina markaðssetningu. Á námsstefnunni verður meðal annars fjallað um beina markaðs- setningu í sjónvarpi, árangursríkar auglýsingaherferðir og texta í auglýsingum. Þrautreynt auglýsinga- og markaðsfólk mun miðla þáttakendum af reynslu sinni og þekkingu. Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá Markaðsdeild eða Póstmáladeild Pósts og síma í síma 91-2 60 00. Heildartekjur tíu efstu tölvufyrirtækjanna í milljörðum dollara artapið á árinu yrði á bilinu 600- 1.000 milljónir marka. Þrátt fyrir bágt gengi brást Luft ekki bjartsýnin. Á blaðamannafundi í nóvember, sem haldinn var í Berlín, hélt Luft því fastlega fram að unnt yrði að reka Nixdorf án halla árið 1990. Skömmu síðar lét Luft af embætti og við stjóminni tók Horst Nasko, sem á heiðurinn af samningnum við Siemens. Framtíðin Framtíð Nixdorf virðist nú tryggð, þótt talið sé að þar verði að fækka starfsfólki. Alls störfuðu um 30 þúsund manns hjá Nixdorf, og má reikna með að fækkað verði um allt að 6.000 manns. Siemens- Nixdorf fyrirtækið nýja ætti að reynast sterkt á markaðnum með áætlaða ársveltu upp á um 12 millj- arða marka. Framleiðsla fyrirtækj- anna tveggja tengist vel saman. Styrkur Siemens liggur í stærri tölvubúnaði frá Fujitsu í Japan og eigin megintölvum, en Siemens hef- ur lítið látið til sín taka á markaðn- um fyrir einkatölvur og smærri tölvubúnað. Þar kemur Nixdorf vel inn í dæmið með gott úrval af viður- kenndum tölvum. En megin styrkur nýja fyrirtæk- isins liggur í þeim fjölda hæfra sérfræðinga á sviði hugbúnaðar sem þar starfa nú. Sumir sem til þekkja hafa haldið því fram að það hefði verið hagkvæmt fyrir Siemens að hlaupa undir bagga með Nixdorf fyrir það eitt að fá að njóta starfs- krafta þeirra 4.000 sérfræðinga á sviði hugbúnaðar sem hjá Nixdorf störfuðu. Aukin samvinna Eftir er að koma í ljós hvort samruni Siemens-Nixdorf á eftir að verða fordæmi fyrir aðra tölvu- framleiðendur í Evrópu. Því hefur áður verið spáð að innan fárra ára standi aðeins örfá stórfyrirtæki eft- ir á markaðnum. En svo þarf ekki að fara. Nú er talið öllu líklegra að fyrirtækin sem fyrir eru á mark- aðnum — svo sem Olivetti, Bull, ICL ofl. — auki samvinnuna sín í milli og vinni að sameiginlegri markaðs- setningu. Heimild: Financial Times. Flug Air France stærsta flugfélag í Evrópu FRANSKA flugfélagið Air France hefúr ákveðið að kaupa flugfélag- ið UTA, eina stóra flugfélagið í einkaeigu í Frakklandi, og verður Air France þá eftir sameininguna stærsta flugfélag í Evrópu. Air France, sem er í ríkiseigu að mestu, kaupir 54,58% í UTA fyrir rúmlega 40 milljarða ísl. kr. og er seljandinn franska eignahaldsfélag- ið Chargeurs, sem á 82% hlutafjár- ins. Þá eignast Air France einnig Air Inter, sem hefur næstum því einkaleyfi á innanlandsflugi í Frakkiandi, en það er nú að 35,8% í eigu UTÁ og að 37% í eigu Air France. Búist er við, að framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins muni ekki lítast allt of vel á þessi kaup enda vilja menn þar á bæ koma í veg fyrir, að evrópskur flugrekstur verði á of fárra höndum. Er haft eftir háttsettum embættismanni EB, að bandalagið hyggist beita valdi sínu til að koma í veg fyrir sameiningu fyrirtækja sé talið, að samkeppnin líði fyrir hana. UTA á nú tiltölulega fáar f lugvél- ar eða aðeins 19 en á í pöntun 12 Airbus a-340 og 12 Boeing 767. Air France á 113 flugvélar og 12, sem eru í eigu dótturfélagsins Air Charter. Það á 60 vélar í pöntun og er að huga að öðrum 52. Evrópubandalagið Meira en helmingur nauðsyn- legra samþykkta afgreiddur Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. RÁÐHERRAR Evrópubandalagsins (EB) hafa nú þegar afgreitt 142 tillögur lrá framkvæmdastjórninni varðandi innri markað EB en sam- kvæmt hvítbók bandalagsins um undirbúning EB-markaðarins þarf að afgreiða 279 tillögur um skipulag hans og samræmingar af ýmsum toga. Framkvæmdastjórn EB hefur lagt fyrir ráðherraráðið 261 tillögu þannig að einungis 18 tillögur eru óafgreiddar af hennar hálfu. Ráð- herraráðið hefur 139 tillögur til umfjöllunar um þessar mundir en nokkrar tafir hafa orðið m.a. vegna kosninga til Evrópuþingsins á síðasta ári. Þingið er umsagnaraðili um margar tillagnanna. Frá gildistöku evrópsku einingar- laganna hefur afgreiðslutími til- lagna í ráðherraráðinu styst að mun og að jafnaði líða 15 mánuðir frá því að tillaga er lögð fram þar til hún er afgreidd. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja um staðfestingu aðildarríkjanna á samþykktum ráð- herranna. Samkvæmt ákvæðum einingarlaganna áttu aðildarríkin þegar að hafa staðfest og tekið inn í eigin lög og reglur 88 samþykktir fyrir lok síðasta árs en þá höfðu einungis 14 samþykktir verið stað- festar í aðildarríkjunum öllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.