Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 12

Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 12
T£ 098i nAir/. ?!3/jaXTJDHO/ |Wtr0iW!nIWíiMSi VIÐSKIFTIAIVINNUIIF Hraðrétta veitingastaóur íhjartaboigarinnar áhomi ^ Tryggvagötu og Pósthússtrætis Sí'mi 16480 FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 1990 Iðnaður Nýtt stórveldi á lyftumarkaðniun Svissneskt alþjóðafyrirtæki með helm- ings eignaraðild HÉÐINN hf. og Björgvin Kristófersson hf. hafa ásamt svissneska fyrirtækinu Schindler lifts stofinað fyrirtækið Héðinn Schindler lyftur hf. Bæði innlendu fyrirtækin hafa um árabil ve;rið umsvifa- mikil á lyftumarkaðnum og hefur Héðinn Schindler lyftur yfirtek- ið viðskiptasambönd og þjónustusamninga þeirra. Samanlögð markaðshlutdeild Héðins og Björgvins Kristóferssonar var áður 65% og er gert ráð fyrir að hið nýstoftiaða fyrirtæki haldi þeirri hlutdeild. Schindler lifts á um helming hlutaflár í hinu nýstofhaða fyrirtæki en heildarhlutafé að ijárhæð 25 milljónir króna hefur verið greitt. Gert er ráð fyrir að veltan á fyrsta starfsárinu verði um 90 milljónir króna. Að sögn Guðmundar Sveinsson- ar, stjórnarformanns Héðins Schindler lyfta varð ljóst eftir könnunarviðræður í sumar og haust að stofnun fyrirtækisins hefði í för með sér mikla hagræð- ingu fyrir alla aðila. Björgvin Kristófersson hf. hefur haft umboð fyrir Schindler frá árinu 1963 og annast sölu og uþp- setningu á víralyftum fyrir há- hýsi. Þessar lyftur eru hannaðar og smíðaðar hjá verksmiðjum Schindler í Sviss og Þýskalandi. Héðinn hefur selt lyftur frá ýmsum framleiðendum frá árinu 1945 en árið 1977 hófst upp- bygging sjálfstæðrar lyftudeildar innan fyrirtæksins. Sú uppbygg- ing var í samvinnu við sænska vökvalyftuframleiðandann DEVE sem framleiðir bæði drif og stjórn- búnað. Héðinn hefur framleitt lyftuklefa, burðarramma, hurðir og annað sem smíða þarf sérstak- smíði á öllum lyftum í Kringlunni og Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Schindler er annar af tveimur stærstu lyftuframleiðendum heims með ársveltu sem er um 3,7 millj- arðar svissneskra franka (148 milljarðar ísl. kr.). Starfsemi fyrir- tækisins fer fram í 110 þjóðlönd- um og starfsmenn eru samtals 110 þúsund talsins að meðtöldum starfsmönnum dótturfyrirtækja. Nýverið vígði Schindler tvær nýjar verksmiðjur í Kína og á síðasta ári yfírtók fyrirtækið alla lyftu- starfsemi Westinghouse í Banda- ríkjunum. Verkeftii fyrir 40 m.kr. framundan Starfsemi Héðins Schindler lyfta er hafin og hefur þegar ver- ið gengið frá samningum um verk- efni fyrir um 40 milljónir króna. lega. Þannig var t.d. staðið að LYFTOR — Reiknað er með að fyrirtækið Héðinn Schindler lyftur hf. sem stofnað var um áramót hafi um 65% markaðshlutdeild á lyftumarkaðnurm Svissneska stórfyrirtækið Schindler á tæpan helming hlutafjár á móti Héðni hf. og Björgvin Kristóferssyni. Á myndinni eru forráðamenn og starfsmenn hins nýja fyrirtæk- is þeir (f.v.)Guðmundur Sveinsson, stjórnarformaður, Jón Þorkelsson, Eyjólfur Ingimarsson og Björgvin Kristófersson, framkvæmdastjóri. Til að auka hagkvæmni í rekstrin- um hefur verið gerður samningur við Héðinn um að annast allt skrif- stofuhald að sögn Guðm'undar. „Kostirnir við samstarfíð koma einkum fram í þeirri breidd sem þessir þrír aðilar skapa,“ segir hann. „Björgvin Kristófersson og Héðinn hafa sameiginlega gífur- lega sterka stöðu á heimamark- aði, og Schindler býr yfir mikilli þekkingu og sterkri stöðu á al- þjóðamarkaði. Sú reynsla sem Héðinn býr yfir í sérsmíði færist inn í nýja fyrirtækið þannig að styrkur þess verður mikill.“ Guðmundur segir það sennilega einsdæmi hér á landi að fyrirtæki sé byggt upp á þennan máta. Það sé athyglisvert í því krepputali sem einkenni allan rekstur hér á landi nú að svissneskt stórfyrirtæki sjái fyrir sér svo arðvænlega rekstrar- einingu hér, að það sæki á um að fá að vera þátttakandi. Ljóst sé að uppbygging síðari ára hafi skil- að sér hjá Björgvin Kristóferssyni og Héðni. Framkvæmdastjóri Héðins Schindler lyfta hf. er Björgvin Kristófersson en aðrir starfsmenn verða hinir sömu og áður störfuðu hjá Björgvin og lyftudeild Héðins. VERSLUNAR INNRÉTTINGAR Sérsmíðum allar innréttingar úr System standex álprófílum. Selt í metratali: Álprófílar, álrör, álskúffur, államir, flatál, álrennibrautir. OtP&.GJ • Faxafeni 12 • Sfmi 38000 • Laxeldi Brýnt að hefja kynbætur á eldislaxi - segir Vigfús Jóhannsson fiskifræðingur AÆTLAÐ útflutningsverðmæti á þeim eitt þúsund tonnum af eldis- laxi sem flutt voru út á síðasta ári er 340-350 milljónir kr. Er það lítið meira en útflutningsverðmæ- tið árið áður, er það var 300 millj- ónir. í byrjun síðasta árs reiknuðu fiskeldismenn og Veiðimálastofn- un með því að framleiðslan yrði 3.500 til 4.000 tonn og að lax að verðmæti 750-800 milljónir yrði fluttur úr landi. Til samanburðar má geta þess að útflutningsverð- mæti lagmetis var 1,3 milljarður kr. á síðasta ári. I byijun síðasta árs áætlaði Veiðimálastofnun að framleiðslugeta eldisstöðvanna væri 7.600 tonn á ári og að hún yrði komin í 11 þúsund tonn í lok ársins. Vigfús Jóhannsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar Veiðimálastofnunar, nefndi nokkur atriði þegar hann var spurður um skýringar á minni fram- leiðslu en reiknað var með. Framleiðsluspár eru mikið miðaðar við fjölda ásettra seiða. Sagði Vigfús að enn virtust vera mikil vandræði með gæði seiða, út úr þeim kæmi Vigfus Jóhannsson mun minni framleiðsla en búast mætti við. Stöðvarnar nýttu ekki sem skyldi þá þekkingu sem fyrir hendi væri í landinu og slæm ytri skilyrði fiskeldisins skapaði vandræði sem hefði áhrif á eldið meðal annars á þann hátt að vegna peningaleysis væri ekki hægt að gefa fiskinum fóðrið á réttum tíma. Mikið hefði verið um tjón í kvíaeldi og meira af fiski færi til vinnslu innanlands en áður. Síðast en ekki síst vildi Vigfús nefna það að eldisfiskurinn skilaði ekki því sem gengið hefði verið út frá vegna þess að ekki væru notaðir kynbættir eldisstofnar. Það lýsti sér meðal annars í því að laxinn yrði kynþroska of fljótt og hætti að vaxa. Vigfús sagði að í mörgum tilvikum hefði eldið tekið lengri tíma en menn ætluðu. Þá hefði lágt verð og útlit fyrir hækkandi leitt til þess að ein- hveijir fiskeldismenn hefðu frestað slátrun fram yfir áramót og kæmi hluti af áætlaðri framleiðslu fram í ár. „Það er eitt brýnasta verkefnið í fiskeldinu núna að hefja kynbætur á eldisstofnum,“ sagði Vigfús. Hann sagði að í Kollafirði væru stundaðar tilraunir með kynbætur á hafbeitar- laxi og þar væri hægt að bæta á hagkvæman hátt við hluta af nauð- synlegum tilraunum með eldisstofna. Sagði hann að þessi mál væru nú í athugun hjá fiskeldismönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.