Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANUAR 1990
C 7
Gerir orðið okkur að mönn-
um - eða gjörðir okkar?
Árni Pétur Guðjónsson í hlutverki Begga og Þröstur Leó Gunnars-
son sem AIli
_________Leiklist_____________
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi í Borgarleikhúsinu
lýjöt eftir Ólaf Ilauk Símonarson
Leikmynd og búningar: Messí-
ana Tómasdóttir
Lýsing: Egjll Örn Árnason
Leikhljóð: Ólafúr Örn Thorodds-
en
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdótt-
ir
Nýtt íslenskt verk í Borgarleik-
húsi vekur umsvifalaust forvitni og
eftirvæntingu. Ungir leikarar að
stíga sín fyrstu skref og gera það
svo að til sóma er. Og í félagsskap
reyndari leikara í fremstu röð. Efn-
ið er einnig hnýsilegt; samfélag
vinnustaðarins, í þessu tilfelli kjöt-
búð, innan um lifandi kjöt og
dautt, samskipti fólksins klukk-
utímum saman daginn út og inn.
Átök þeirra inná við og út á við,
ástin, lífið, háskinn og dauðinn.
Gamalkunnugt efni sem lifnar og
blómstrar í hvert sinn ef tökin eru
listræn, ef nóg er að segja og ef
það er sagt vel, ef textinn er mark-
viss og þjónar tilgangi, ef persónur
sviðsins kalla á samsvörun og
skírskotun til þeirra sem sitja á
áhorfendabekkjunum.
Til þess er vitanlega ekki nóg
að hafa fullt af dauðu og lifandi
kjöti. Ógnunin og sársaukinn þurfa
að komast til skila. Hvort sem er
um að ræða í lífsreynslusögum úr
bernskunni eða vangaveltum um
hvort mennirnir séu innst inni góð-
ir — rétt eins og Anna Frank orð-
aði það. Það dugar ekki ef það
vantar sannfærandi forsendur.
Ólafur Haukur Símonarson hef-
ur skrifað ýmis athyglisverð leik-
verk, en hér fannst mér sem eitt-
hvað færi úrskeiðis. Fyrri þættirnir
tveir eru um margt vel gerðir, fólk-
ið er leitt fram og við kynnumst
því smám saman og byggð er upp
atburðarás. Áhugi er vakinn.
Seinni hluti verksins er einkenni-
lega sundurlaus og vinnubrögð óö-
guð, allt að því hirðuleysisleg
stundum.
Eftir langan og erfiðan vinnudag
hafa allir í kjötbúðinni drifið sig á
ball nema Salvör því sonur hennar
bannar henni að koma með. Áfram
er haldið með brennivínsdrykkju,
stefið um harm bemskúnnar er
leikið margsinnis, en tilbrigðin eru
eintóna, sneydd háska, hvað svo
sem fer fram á sviðinu. Alli opnar
hug sinn fyrir Möllu af því hún bjó
líka í bragga. Og ólétta kærastan
og mamman og Matti og Beggi eru
uppi að borða skinku og drekka
kaffi í rólegheitunum. Svo vill Alli
vera með Möllu og hún vill það
ekki. Og eins og hendi sé veifað
kemur langþjáða fólkið á vettvang,
slær Alla niður og dembir honum
inn í frystiklefann. Þá kemur
Magni á vettvang. Hann er líka
vondur og er raunar faðir Alla þó
pilturinn hafi aldrei haft græna
glóru um það. Faðirinn rogast út
úr klefanum með son sinn. Fer að
því búnu. Móðir og sonur eru eftir.
Það getur verið að Alli lifi en hvaða
von á hann lengur. Og það sem
meira er mér var bara nokk sama.
Það kann að hljóma mótsagna-
kennt; en vegna þess hve frammi-
staða leikara og leikstjóra er góð
undirstrikast vankantar leikritsins.
í sjálfu sér er þetta ekki jafn fjarri
lagi sem ætla mætti: væri ekki slíkt
einvalalið leikara mundi hugur
dreifast ögn við að velta fyrir sér
framgöngu þeirra. En framsögn
er skýr og afgerandi, blæbrigðarík
og aldrei leitað til öfga. Staðsetn-
ingar langoftast vel unnar og svip-
brigði eðlileg og óþvinguð.
Hanna María Karlsdóttir á fal-
legan leik sem móðirin, sem- ein-
lægt hrasaði á yngri árum en var
kannski bara lífsglöð og langaði
að skemmta sér. Nú hefur sektar-
kenndin gagnvart syninum dregið
úr henni máttinn, hún er naumast
nema skuggi af manneskju. Sjálfs-
virðing hennar er fyrir löngu farin
veg allrar veraldar og þrælsleg
framkoma sonarins frá því hann
komst til ára hefur skilið eftir ör
á sál hennar. Einstöku sinnum
reynir hún að rísa upp en er jaf-
nótt lamin niður aftur. Hanna
María dró þessa konu af nærfærni
og tókst að forðast ýmsar aúm-
ingjagangsgryfjurnar sem textinn
gæti gefið tilefni til. Þröstur Leó
Gunnarsson er ekki öfundsverður
af því að leika Alla. Hann var litli
drengurinn sem lá einn og yfirgef-
inn í fúlum bragganum. Óttinn
hefur breyst í fyrirlitningu á móð-
urinni, öll hans beiskja beinist að
henni. Samt getur hann sennilega
ekki slitið sig frá henni eins og
móðirin segir í lokaþættinum.
Umburðarlyndi gagnvart breyskri
móður virðist hann aldrei hafa haft.
Viðbrögðin eru að beita öllu til að
ná sér niður á henni, hún liggur
svo vel við höggi. Ekki stórmann-
legt það, en kannski mannlegt.
Samband móður og sonar er auð-
vitað fýsilegt rannsóknar-
efni.Ást/hatursamband þeirra
mæðgina hér verður með holum
hljóm. Það er gárað við yfirborð
og beitt klisjusálfræði sem nær
ekki að sýna sársauka þeirra. Alli
er of einlit manneskja, hann vekur
ekki áhuga, sögur hans og spaklegt
orðfæri við furðulegustu kringum-
stæður, líkingar hans lotlegar.
Hvað er til dæmis fyndið/vitiegt/ír-
ónískt/grátbroslegt við eftirfar-
andi:„ Það eiga að vera rækjur í
rækjusalati, er það skilið! Fjórar
rækjur! Og þær eiga ekki að vera
sokknar niður á botn einsog kjafta-
sögur síðan í gær, þær eiga að
synda ofaná jukkinu eins og hórur
í líkfylgd."
Leikur Árna Péturs Guðjónsson-
ar í hlutverki afgreiðslumannsins
Begga og tryggs vinar Alla, þó
hann geri sér að sumu leyti ljóst
hversu svikull hann er, var einlæg-
ur og sannur. Framsögnina sem
truflaði leikarann stundum hefur
leikstjórinn náð að hefla og pússa
svo að er til fyrirmyndar. Svip-
brigði og hreyfingar Árna Péturs
voru virktavel unnar. Elva Ósk
Ólafsdóttir er töffstelpan Malla
sem er alin upp við ámóta aðstæð-
ur og Alli og var auk þess barin
eins og harðfiskur. Þetta er annað
hlutverk hennar eftir Leiklistar-
skólann og glæsilegt debút. Elva
gerir Möllu sannfærandi; hún hefur
mátt þola sitt lítið af hveiju. Hún
er létt á bárunni og kannski ekki
ábyggileg en hún hefur ekki beðið
þetta voðatjón á sálinni eða altjent
leyst þau mál á sinn hátt. Elva var
eins og fiskur í vatni á sviðinu og
sama mátti segja um nýliðann Stef-
án Jónsson sem ég man eftir úr
menntaskólaleikjum en hefur lokið
námi erlendis. Hann er hinn spræki
Matti sem kemur um stund í heim
kjötbúðarinnar, áttar sig svo sem
ekki meira en svo á öllum þessum
harmi. Frammistaða sem lofar
ljómandi góðu. Ragnheiður Arnar-
dóttir er Marta sem elskar Alla af
frumstæðri einlægni. Hún er
kauðaleg en væn og öll af vilja
gerð að þóknast Alla og vinna ást
hans og langar að skilja hann en
fær fyrir skæting og niðurlægingu.
Ragnheiður nær góðum tökum á
persónunni, hreyfingar hennar
hæfilega brussulegar. Tilsvörin
sem Mörtu eru lögð í munn gefa
að öðru leyti ekki kost á tilþrifum.
Þorsteinn Gunnarsson er í vand-
ræðalegu hlutverki Magna sem á
búðir út um allt, hefur haldið Sal-
vöru uppi árum saman, á að vera
groddamenni en návist/fjarvist
hans sem einhvers konar ógnvalds
kemst ekki í gegn.
Það segir sig sjálft af því sem
ég hef hér rætt um leikarana að
ég er vel sátt við vinnu leikstjór-
ans, Sigrúnar Valbergsdóttur. Á
hinn bóginn fannst mér leikmynd
Messíönu Tómasdóttur flækja mál-
ið. í fyrsta lagi var of mikil víðátta
í leikmyndinni. Það var engu líkara
en við værum stödd í meiri háttar
kjötvinnslustöð. Stiginn fyrir miðju
sviði upp i myrkrið „gefur þannig
til kynna einangrun sviðsins og
tímaleysi atburðanna. í stiganum
standa persónur og hlusta og horfa
á það sem gerist fyrir neðan þar á
meðal ýmislegt sem þeim er ekki
ætlað að vera vitni að, sem eykur
ákveðnum háska við atburðarásina.
Upp og niður stigann ganga per-
sónur svo á ögurstundum leikrits-
ins og verða skóhljóð þeirra til að
auka á spennuna." Þessi orð eru
höfð eftir Messíönu tii skýringar á
stiganum, en fá varla staðist vegna
breiddarinnar í leikmyndinni enda
er hún býsna raunsæisleg að öðru
leyti og mikið í hana lagt. Því sting-
ur stiginn meira í augu en ella að
mínum dómi. Mér fannst lýsing
vera prýðilegt verk og í sumum
atriða, svo sem lokaatriðinu, ná
fram áhrifum.
Þetta verk hefði- þurft meiri
sinnu af hálfu höfundar, skarpari
sjálfsgagnrýni á hveiju er ofaukið,
hvenær þarf að þjappa og þétta.
Samt — einhvers staðar bak við
orðin og alltaf öðru hvetju hefur
áhorfandi á tilfinningu að þetta
hefði getað orðið gott leikverk.
Fyrri hlutinn gefur um það fyrir-
heit eins og ég nefndi. Fyrirheit
sem síðan fóru of oft fyrir lítið.
Til Búdapest fyrir aðeins 27.460,-
Til Istanbul fyrir aðeins QÍoo*
Til Rómar fyrir aðeins Í30J20r
Til Kairó fyrir aðeins 35.390^
Til Vínar fyrir aðeins
Hafðu samband við
ferðaskrifstofuna þína
S4S
Laugavegi 3, sími 62 22 11