Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
C 11
UMHVERFISMÁL/Emm vió „stikk fri“?
Mengun láðs og lagar
STUNDUM er því haldið fram
að mengun andrúmsloftsins
komi okkur íslendingum ekkert
við — loftið hér sé svo hreint
vegna þess að hér blási mikið
og sjórinn sé hreinn vegna þess
að við búum úti í miðju Atlants-
hafi norðanverðu. Slíkar lúllyrð-
ingar eru auðvitað tóm blekking.
Enginn mannlegur máttur getur
hindrað það að mengað loft
úr öðrum heimshlutum berist hing-
að til íslands. Vindarnir sjá um
það. Og enginn getur spomað við
því að óhreinn og
mengaður sjór
berist á fiskimið
okkar og að
ströndinni. Þessi
mál eru aldrei
einkamál þjóða.
Hér dugar ekkert
nema alþjóðlegt
samstarf ef vel á
eftir Huldu
Valtýsdóttur
að takast.
Enn em margir þeirrar skoðunar
að lega landsins svo nálægt heims-
skautasvæðinu tryggi hreint og
ómengað umhverfi. Þetta er líka
mikill misskilningur. Samkvæmt
nýjustu rannsóknum sem hafa 'far-
ið fram á svæðinu umhverfis Norð-
urpólinn er ástandið vægast sagt
ískyggilegt.
Norðurheimskautaförum verður
nú mjög tíðrætt um að hin skæra
birta þar norðurfrá sé úr sögunni.
Nú sé umhverfið hulið gráleitu
mistri sem berst frá iðnaðarhéruð-
um á norðurhvelinu. Sovéskir
vísindamenn hafa rannsakað jarð-
veginn ofan á freðmýrunum á Kola-
skaga þar sem skógardauði hefur
verið- gífurlegur undanfarin ár.
Þeir segja að þetta þunna jarðveg-
slag sé ekki bara mengað heldur
mettað af hættulegum efnasam-
böndum.
Enda þótt ráðstafanir hafi verið
gerðar til að hefta frekari mengun
víða um lönd ertalið að 100 milljón-
ir tonna af brennisteinstvíildi fari
árlega út í andrúmsloftið frá iðnað-
arhéruðum Sovétríkjanna, Mið-
Evrópu og Norður-Ameríku. Til að
menn skilji betur hve mikið magn
er um að ræða má benda á að það
jafnast á við að hvert einasta
mannsbam í Sovétríkjunum, Aust-
ur og Vestur-Evrópu, Kanada,
Skandinavíu og Bandaríkjunum
dreifi sóti út í andrúmsloftið úr
tveggja punda poka hvern einasta
dag ævi sinnar. Við þetta bætast
svo tugmilljónir tonna af köfnunar-
efnissamböndum sem sleppt er út
í andrúmsloftið frá Sovétríkjunum
og Mið-Evrópu.
Rannsóknir sem gerðar hafa
verið á vegum NASA og veður-
rannsóknastöðvar í Bretlandi sýna
að klórildi í háloftunúm við heims-
skautið er 50 sinnum meira en
ætlað var en það er m.a. talið or-
saka eyðingu ozon-lagsins.
Við þetta bætist loks að koltvíild-
ið í andrúmsloftinu eykst um 1%
árlega og veðurfar hlýnar meira
nú en nokkru sinni á síðustu
120.000 árum.
Við rannsóknir hefur einnig
komið í ljós að áhrifa þessarrar
mengunar verður vart í æ ríkara
mæli hjá íbúum á þessum norðlægu
slóðum. Efnaúrgangurinn frá iðn-
ríkjunum berst með loftstraumum
norður á bóginn og fellur þar til
jarðar með snjókomu. Snjórinn
bráðnar á sumrin og rennur til sjáv-
ar. Þar með blandast þessi úr-
gangs- og eiturefni í örverur og
skeldýr sem eru undirstaða fæðu-
búskaparins. íbúamir nærast fyrst
og fremst á fiski, hval og selkjöti
og verða því fórnarlömb mengunar-
innar. Nú er svo komið að þessi
hættulegu efni hafa fundist í ríkum
mæli í bijóstamjólk grænlenskra
mæðra. Þetta veldur heilbrigðis-
yfirvöldum í Kanada t.d. miklum
áhyggjum eins og gefur að skilja.
En fátt er til ráða. Svo gæti
farið að íbúamir þurfi að gerbreyta
mataræði sínu og temja sér að-
fluttar fæðutegundir, kjúklinga,
hamborgara og kók. Það kann ekki
góðri lukku að stýra. Veiðimennska
leggst af en hún hefur verið undir-
staða mannlífs á þessum slóðum.
Að vísu hefur ungbamadauði
minnkað með nýtískulegri aðbún-
aði. En annað böl hefur komið í
staðinn — áfengisböl er hvergi
meira á byggðu bóli en þar.
Vélsleðar hafa verið vel þegnir
fararskjótar en era hinir mestu
vandræðagripir þegar til lengdar
lætur. Allir geta ekið þeim út og
suður en þeir era dýrir í rekstri og
bila fljótt. Þá eru þeir bara skildir
eftir á víðavangi. Þeir geta líka
kostað mannslíf ef bilunin verður
fjarri öllum mannabyggðum.
Hundasleðarnir vora miklu öragg-
ari farartæki en nú kann varla
nokkur maður að temja hundaeyki
fyrir sleða. Sömu sögu er að segja
frá Sama-byggðum í norðanverðri
Skandinavíu. Vélsleðar eru valdir
umfram uppranalegan ferðamáta,
þrátt fyrir gífurlegan kostnað og
loftmengun sem þeim fylgir.
Olíuvinnslan á þessum slóðum
er svo hörmungarsaga fyrir sig að
því er öryggismál varðar og er
skemmst að minnast Exxon-Vald-
es-slyssins við Alaska á síðasta ári.
Ef olíuleki kæmi í leiðslur neðan-
sjávar í september þegar ísinn hef-
ur lagst yfir hafflötinn er útilokað
að stöðva hann fyrr en í júní næsta
vor þegar ísinn bráðnar. Olían
mundi þá setjast á neðra borð íssins
og breiðast út með honum yfir
ógnarvíddir. Og eðli málsins sam-
kvæmt mundi olían vera enn á
þessum slóðum 10 áram síðar.
Olíufélögin hafa ekki gert neinar
ráðstafanir varðandi slík slys —
segjast bara mundu kveikja í olí-
unni á haffletinum þegar þar að
kæmi. Þá væri olíumengaða svæðið
hins vegar orðið svo víðáttumikið
að slíkt væri ómögulegt. Og ef af
yrði væri gífurlegu magni af kol-
vatnsefnum þar með hleypt út í
andrúmsloftið við heimskautið.
Við sem teljum okkur trú um
að allt sé með felldu í þessum
heimshluta ættum að kynna okkur
málin betur. Til dæmis verða menn
að gera sér ljóst að enginn er „stikk
frí“ að því er umhverfisvernd varð-
ar og að ekki verður snúið til betri
vegar nema með alþjóðlegri sam-
vinnu. Það gildir um íslendinga
sem aðra.
Þ.ÞORCRlMSSON&CO
QQB3QD0B.
gólfflísar - kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
) Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO 3»«
MiiiiMiiit WFSlmim ■ imi inmi mii
IFÍIflSU* HHITÉUI UUUtll - Ifctt Infclelttla.
Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
ARMA
PLAST
ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640
'S*
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
A.HANSEN • VEITINGAHÚSIÐ í FIRÐINUM • A.HANSEN • RÓMAÐ FYRIR VEITINGAR
*
Veitingahúsið í Firðinum
... nœr en þig grunar!
febrúar og mars bjóðum
við spennandi máltíð á
aðeins 795 kr. Val eftir vild.
Forréttur
• Súpa dagsins.
• Reyktur lax með eggjahrœru.
Aðalréttur
• Omeletta með þremur
mismunandi fyllingum.
• Pasta Fortelini með
sveppum, skinku og fleski.
• Soðinn saltfiskur með
spínatsósu.
• Vínarsnitsel með
pönnusteiktum kartöflum.
Kaffi
HELGARTILBOÐ
• Reykþurrkuð gœsabringa
með Waldorfsalati.
• Kjötseyði „Julienne“.
• Sítrónu sorbet.
• Turnbauti með sveppum
og bakaðri kartöflu.
• ís „Melba“.
Verð samtals 2.450 kr.
í dag er ekki meira mál að skella sér
suður í Fjörð í A.HANSEN úr miðbæ Reykjavíkur
en upp í Breiðholt eða Árbæ.
ALHLIÐA
VEITINGAHÚS
í rúmgóðum og vinalegum
veitingasal á neðri hæð
leggjum við metnað okkar í
lipra og þægilega þjónustu
á öllum veitingum. í nýjum
sérréttaseðli er að finna ótal
spennandi og girnilega rétti.
SÉRÁPARTl
Salirnir á efri hæðinni eru
tilvaldir fyrir smærri og
stærri kaffi- og matarfundi,
hádegisklíkur í leit að næði
og árshátíðir klúbba og félaga
AHANSEN
Vesturgötu4 (gegnt Strandgötu) s. 651130
FAGMENNSKA í
FYRIRRÚMI
Nú þegar fermingarnar
nálgast, er rétt að hafa í
huga fjölbreytta veislu-
þjónustu okkar í húsinu
og utan þess.
í DAGSINS ÖNN
Það er heitt á könnunni
allan daginn og kakóið
okkar yljar ekki síður en
kaffið.
LÍF
OG FJÖR
„Pobbinn" á efri hæðinni
er vinsæll samkomustaður
á hverju kvöldi. Frá
fimmtudagskvöldi til
sunnudagskvölds er
sprelllifandi tónlist og
stemningin ólýsanleg!
A.HANSEN • NQTALEGT UMHVERFI • A.HANSEN » ALHLIÐA VEITINGAHÚS • A.HANSEN