Morgunblaðið - 28.01.1990, Page 17
Stuart færði sér þessa fordóma í nyt
þegar hann sagði að svartur maður
hefði ráðist á þau hjónin.
Stuart-málið
uppspretta totryggni
Málið leysti mikla ólgu úr læð-
ingi. Fréttaskýrandi hjá vikuritinu
The Boston Phoenix gekk svo langt
að segja að ástandið í Boston vegna
Stuart-málsins væri svipað og það
var í Bandaríkjunum þegar Nixon
varð að segja af sér vegna Water-
gate.
Fjölmiðlar í Boston hafa einnig
verið gagnrýndir fyrir fréttaflutning
um Stuart-málið. Þeir gleyptu við
sögu Charles Stuarts og því hefur
verið haldið fram að þeir hafi kynt
undir óttanum og offorsinu sem greip
um sig eftir að morðin voru framin.
Gagnrýnin kemur úr ýmsum áttum.
Leiðtogar svertingja, dómstólar,
fræðimenn og aðrir blaðamenn hafa
verið harðorðir.
Fjölmiðlar vændir um offors
Dagblöðin sökuðu lögreglu um að
hafa leitt sig á villigötur. Til dæmis
hafi lögregla sagt að tveir menn
lægju undir sterkum grun án þess
að hafa haft nokkrar sannanir því
til stuðnings þegar allt kom til alls.
Blaðamenn viðurkenna að hafa vitað
að orðrómur var á kreiki um að
Charles Stuart segði ósatt nánast frá
upphafi. Sár hans hafi hins vegar
verið þess eðlis að ástæðulaust hafi
verið að rengja hann. Auk þess sé
Gróa á Leiti ætíð mikilvirk þegar
stórmál af þessu tagi komi upp og
ógerlegt að elta hvern orðróm.
Sú afsökun dugar skammt þegar
litið er á viðbrögð fjölmiðla þegar
Stuart stökk fram af brúnni. Þá
kepptust dagblöð, útvarp og sjónvarp
við að upplýsa málið, oft meira af
kappi en forsjá. Hver einasti orðróm-
ur komst á prent án þess að heimild-
armanna væri getið.
Lois A. Elisa, forvígismaður sam-
takanna NAACP (Þjóðarsamtaka um
framgang litaðra manna), sagði að
fjölmiðlar hefðu ekki viljað rengjæ
sögu Stuarts af ótta við reiði hvítra
manna í Boston. Samkeppnin milli
fjölmiðla í borginni sé slík að enginn
hafi þorað að taka áhættuna. Þetta
er í samræmi við þá speki að vissu-
lega vilji fjölmiðlar vera á undan
með fréttina, en þó ekki það langt á
undan á enginn fylgi á eftir.
Aðrir segja að fjölmiðlar viti ein-
faldlega ekki hvað fram fari 1 lág-
stéttarhvefum borgarinnar. Bill
Kovac, stjórnandi Niemann-stofnun-
arinnar við Harvard-háskóla, sagði
að blaðamenn væru háskólamennt-
aðir og byggju í betri hverfum. Þeir
fjölluðu ekki um hverfi á borð vð
Misson Hill og þegar á þyi-fti að
haida yrðu þeir að treysta á upplýs-
ingar frá lögreglu. Blaðamenn gætu
ekki sótt upplýsingar til íbúanna
sjálfra vegna sambandsleysis.
Víst er að kynþáttafordómar komu
fram í viðbrögðum almennings, fjöl-
miðla og yfirvalda í Stuart-málinu.
Því hefur hins vegar verið neitað að
blaðamenn hafi vísvitandi notað
málið til að sleppa beislinu fram af
kynþáttafordómum sínum. Allt slíkt
hafi verið ómeðvitað.
Stuart-málið haft að féþúfu
Búast má við því að á næstunni
komi út bækur og bíómyndir um
Stuart-málið og því er ekki að neita
að málið allt er reyfarakennt. Charl-
es Stuart hafði ekki fyrr stokkið fram
af Tobin-brúnni en bókaforlög
reyndu að ná í blaðamenn til að
skrifa um málið og öfugt. Einn útgef-
andi kvaðst hafa lesið sextán drög
að bæði kvikmyndahandritum og
bókum um málið.
Þegar sérstætt sakamál af þessu
tagi er annars vegar má einu gilda
um stíl, dýpt og innsæi. Hraðinn
skiptir öllu. Truman Capote var sex
ár að skrifa Með köldu blóði, sem
fjallar um morð á fjölskyldu í Kans-
as. Norman Mailer varði mörgum
árum í að skrifa bók sína Söng böð-
ulsins um morðingjann Gary Gil-
more, sem krafðist þess að dauða-
refsingu sinni yrði fullnægt.
Nú er ekki verið að bíða þess að
öll kurl komi til grafar. Fyrsta bók-
in, Morð í Boston, verður komin í
bókaverslanir í mars. Sjónvarpstöðin
CBS hyggst sýna leikna sjónvarps-
mynd um málið á þessu ári.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANUAR 1990
C 17
VEGGTENNIS
Skemmtileg íbrfitt sem allir hafa gaman af.
—
v
ATH!
Skólaafsláttur á tímabilinu 13.15-17.00
alla virka daga
9.30-16.00 laugardaga.
Aðeins 250 kr. á mann
SÓLEYJAR
Engjateigi 1
Símar 687701 og 687801
VIÐSKIPTATÆKNI
Aukín samkeppní í verslun og víð-
skiptum kallar á sérhæft nám í hernaðarlist
viðskíptanna.
Raunhæf dæmi krufin tíl mergjar, faríð
yfir grunnatriði og nýjar baráttuaðferðír í
stjórnun og stefnumótun , fjármálum og
markaðsmálum. 92 tímar.
Skráning hafín í síma 626655.
Viðskiptaskólinn
HAGNÝTT NÁM - ÞEKKING SEM NÝTIST!
UársnyrLislofan n
4lAD-KJALlÁQMy
Öll almenn hársnyrtiþjónusta.
Dömu-, herra- og barnaklippingar,
permanent, litanir, strípulitanir, lagningar,
blástur, djúpnæringar o.fl.
Eingöngu unnið úr
1. flokks efnum.
Svava Jáhannesdsttlr,
hárgreiðslumeistari,
Skólabraut 5. Sími 61 1940.
Fótaadgerda- og snyrtistofan
LIPURTÁ
Skólabraut 5, 170 Seltjarnarnesi, s. 612131.
Andlitsmeðferðir: Hrukkur, bólur o.fl.
Ge/Otétic Brjóstameðferðir: Styrking, minnkun
7 og stækkun.
Likamsmeðferðir, cellulite, styrking
o.fl.
Einnig fótaaðgerðir og öll almenn snyrting.
t Þórhalla Ágústsdðttir,
"^FÍSF sn^rtl" °9 ^ótasérfræðingur.
Irene ofnæmisprófaðar
gervineglur, mjög vandaðar og eðlilegar.
Fallegar neglur án fyrirhafnar.
Gyða Einarsdðttir.
N',
Höfdinglegt hádegi
á Hótel Holti
Ljúffengt oghétt
Næstu vikurnar býður Hótel Holt gestum sínum
upp á sérstakan matseðil í hádeginu, þar sem
léttleikinn og hollustan eru í fyrirrúmi.
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur sem hver velur
að vild, með gæði og góða þjónustu að
leiðarljósi sem fyrr.
Forréttir
Hreindýrapáte
Rækjur og reyktur lax í ostasósu
Gæs og avocado í pastasalati
Rjómasúpa með fersku grænmeti
Fitusnautt pastasalat með jógúrtsósu
Aðalréttir
Marineraðar grísasneiðar
Grillað heilagfiski
Heitt sjávarsalat í pastahreiðri
Hreindýrasmásteik í púrtvínssósu
Steikt karfaflök með spínatsósu
Eftirréttir
Heitt epli með vanillusósu
Sítrónubollur með hunangi
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur
kr. 995
Hafðu það fyrsta flokks - það kostar ekki meira.