Morgunblaðið - 28.01.1990, Síða 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ MEIMIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
Kvikmyndaklúbbur íslands:
Forvitnilegar og fjöl-
breytilegar myndir
ÞRIÐJA sýningartímabil
Kvikmyndaklúbbs ís-
lands er hafið með sýn-
ingum í janúar á tveimur
myndum gríska leikstjór-
ans Theo Angelopoulos
en Landslag í þoku er
önnurþeirra, Felixverð-
launamyndin sl. ár.
Dagskráin í febrúar,
mars, apríl og maí er
óneitanlega gimileg. Boðið
verður uppá verk leikstjóra
úr ólíkum áttum og af ólík-
um sviðum, allt frá sænska
leikstjóranum Victor
Sjöström til bandaríska B-
kóngsins, Rogers Cormans
og frá Antonioni
Andy Warhol.
febrúar verða
Mauritz
Stiller-
myndir.
Agúrkuskrímsli í gamalli
Cormanmynd
Fjársjóður herra Ame
(1919), byggð á sögu Selmu
Lagerlöf og Saga Gunnars
Hede (1923), einnig eftir
Lagerlöf.
Þá verður á dagskrá
Stormurinn (1927) eftir
Victor Sjöström, gerð í
Bandaríkjunum á hápunkti
þöglu myndanna méð Lilian
Gish í aðalhlutverki.
Lokamynd mánaðarins
verður Byssuóð (Gun Crazy,
1949) eftir Joseph H. Lew-
is, verðugur fulltrúi film
noir stefnunnar í Banda-
ríkjunum.
Mars er mjög blandaður
mánuður. Hann hefst á
Trompi í bakhöndinni (Ace
in the Hole, 1951) eftir Billy
Wilder, síðan kemur Konan
á ströndinni (The Woman
Leikstjórarnir Victor Sjöström og
MauritZyStiller með Gretu Garbo.
ity>t
wm
on the Beach, 1946) eftir
Jean Renoir gerð í Banda-
ríkjunum, Fjalla-Eyvindur
(1917) eftir Sjöström, Orf-
eus (1950) eftir Jean Coc-
teau og Sólmyrkvi (1962)
eftir Antonioni.
Rússneskar myndir ein-
kenna aprílsýningarnar í
bland við Fellini en mynd
hans Kvennabærinn (1980)
verður sýnd með Solaris
(1972) eftir Tarkovskí, Que
viva Mexico (1931-32) eftir
Eisenstein og Komið og sjá-
ið (1985) eftir Elem Klimov.
Loks er maí bandarískur
mánuður og byrjar á Fran-
kenstein (1973) Andy War-
hols en síðan verða sýndar
myndirnar Pytturinn og
pendúllinn (The Pit and the
Pendulum, 1961) og Gríma
rauða dauðans (The Masque
of the Red Death, 1964)
eftir Roger Corman.
í lok tímabilsins verður
reynt að sýna Rokk í
Reykjavík en eftir er að ná
samkomulagi um það.
Sýningar Kvikmynda-
klúbbs Islands fara fram í
Regnboganum og eru orð-
inn fastur liður í bíótilver-
unni hér og er ástæða til
að hvetja allt áhugafólk um
kvikmyndir til að kynna sér
þær.
Prentuð dagskrá klúbbs-
ins er stútfull af upplýsing-
um um leikstjóra, tímabil
og myndirnar sem sýndar
verða.
■ VEGNA listans yfir tíu
mestsóttu myndir síðasta árs
sem birtist á kvikmyndasíðu
fyrir viku er rétt að .taka
fram að aðsóknartölurnar
fyrir útlensku myndirnar
náðu aðeins yfir Reykjavík
en voru ekki á landsvísu eins
og Magnús. Má reikna með
að Regnmaðurinn og • Ja-
mes Bond hafi farið uppí
50.000 eftir því sem Ámi
Samúelsson bíóstjóri í Bíó-
höllinni segir og því sigrað
Magnús, sem er þá í þriðja
sæti en hafði þó Batman
undir og fleiri góða.
0 DIE Hard II er komin
vel á veg með Bruce Willis í
aðalhlutverki löggunnar eins
og síðast. Enn er hann að
fást við hryðju-
verkamenn en
í þetta sinn í ■
kunnuglegra
umhverfi,
Friðsöm stund; Turner og Douglas komin í háttinn.
Illvígar hjónaerjur
AÐSÓKNARMESTA myndin í Bandaríkjunum um jólin
var svarta kómedían Rósastríðið („War of the Roses“)
með Michael Douglas, Kathleen Turner og Danny De
Vito í aðalhlutverkum en Danny er einnig leiksjóri.
Rósastríðið er gerð eftir
skáldsögu Warren Adl-
ers en í myndinni leika Dou-
glas og Turner hjón sem eiga
við vægast sagt hrikalega
hjónabandsörðugleika að
stríða. Þau voi-u framúrskar-
andi par, urðu ástfangin þeg-
ar hann var úrvals laganemi
í Harvard og hún fimleika-
stjarna háskólanna. Þau gift-
ast, eignast böm og fallegt
hús í frjðsælu úthverfi og
■ BANDARÍSKI leikar-
inn John Voight mun vera
á leið til landsins í boði Bíó-
hallarinnar með mynd sína
„Etemity“ í farteskinu. Vo-
ight hefur ekki leikið síðan
í „Runaway Train“ en í
nýju myndinni er hann nk.
Highlandertýpa og ferðast
úr-nútíðinni í fortíðina. Ef
af verður kemur leikarinn í
lok mars.
vinnualkinn Oliver (Douglas)
veit ekki betur en allt sé í
lukkunnar velstandi þar til
einn daginn þegar hann kem-
ur heim að Barbara (Turner)
tilkynnir að hún vilji skilja.
En af hveiju? spyr hann.
„Vegna þess að þegar ég
horfi á þig borða ... langar
mig að beija þig,“ segir hún
stuttu áður en hún ræðst á
hann.
Það er upphafið á heiftar-
legum bardaga hinna elsku-
legu hjóna þar sem öllum
brögðum er beitt og áður en
honum líkur hefur siðmenn-
ing hjónabandsins verið lögð
í rúst ásamt húsinu.
Danny De Vito hefur mik-
ið verið hrósað fyrir leik-
stjómina enda sýndi hann
með grínmyndinni Hentu
mömmu af lestinni að hann
hefur góða tilfinningu fyrir
svartri kómedíu. Turner og
Douglas hafa rifist heiftar-
lega í tveimur öðmm mynd-
um, „Romancing the Stone“
og Nílarsteininum, en það
vora bamagælur miðað við
þessi ósköp. Leikurinn í
myndinni mun þó ekki hafa
haft nein afgerandi áhrif á
áralanga vináttu þeirra.
KVIKMY N DIR—-
Hvadan kemur húmorinn, Óskar?
ÓSKA RSMYND
UM VÍKINGALEIÐA
STUTTMYND Óskars Jónassonar, Sérsveitin Laugarás-
vegi 25, hefúr vakið verðskuldaða athygli og hlotið góða
dóma gagnrýnenda fyrir gott kómískt innsæi og örugg
tök Óskars á kvikmyndamiðlinum. í upphafí átti aðeins
að sýna myndina í vikutíma í Regnboganum en vikurnar
eru nú orðnar Qórar og áhorfendur eru orðnir um 1.500
sem er met á stuttmynd.
Eg reiknaði aldrei með að
hún gengi vel í almenn-
ing, hélt að hún væri mest
fyrir fólk sem þekkti til henn-
ar en hún virðist ná til venju-
legra ís-
lendinga.
Mér finnst
það mjög
gleðilegt,"
sagði Oskar
í stuttu
spjalli.
eftir Arnold Myndin,
Indriðason sem segir á
einstaklega gamansaman
hátt frá ungu fólki í heimatil-
búinni víkingasveit á mis-
heppnaðri æfingu uppi í sveit,
er lokaverkefni Óskars við
National Film and Television
School í Bretlandi og er ko-
stuð að tveimur þriðju af skól-
anum en afganginn borga
Sykurmolarnir, sem Óskar
hefur unnið tónlistarmynd-
bönd fyrir. SSL 25 var tekin
sumarið 1988 á litlu sandrifí
sem heitir Akranes í Mýrar-
sýslu og kostaði tvær milljón-
ir.
„Það er mjög ódýrt. Það
fær enginn kaup sem vinnur
við hana,“ segir Óskar og
bætir við að myndin eigi enn
eftir að fara fyrir skólann.
Hann hefur sent inn umsókn
til Kvikmyndasjóðs vegna bíó-
myndar sem hann langar að
gera í fullri lengd um
skemmtanalífið í Reykjavík.
Óskar hefur sterka tilfinn-
ingu fyrir hinu myndræna og
sagt hefur verið í tengslum
við stuttmyndina að hann
boði eitthvað nýtt í íslenskri
kvikmyndagerð með bak-
grunn í gerð tónlistarmynd-
banda. En er bíómynd og
myndband ekki tvennt
ólíkt?„í mínu tilfelli er það
nokkuð samtvinnað. Ég hef
reynt að gera myndbönd sem
era svolítið eins og bíómynd-
ir, þau eru ekki eins hrað-
klippt og önnur og það er
ekki eins mikið um endur-
tekningar en áhersla lögð á
sviðsetningar og senur og
eitthvað sem líkist sögu eða
tilvitnun í söguform."
En hvaðan kernur húmor-
inn og hvað vill hann segja
með SSL 25?
„Hann kemur frá hjart-
anu,“ segir Óskar. „Þegar
maður skrifar um svona fólk
eins og er í víkingasveitinni
er ekki hægt að gera það án
þess að brosa svolítið. Ég
skrifa það sem mér dettur í
hug í það og það sinnið án
þess að vita nákvæmlega
hvað ég er að fara. Ef ég vissi
svarjð við svona spumingu
þá þyrfti ég ekki að gera bíó-
myndina. En eftir á að hyggja
fjallar myndin svolítið um
uppeldi og kannski hvernig
fólk á aldur við krakkana í
myndinni veit ekki hvað það
vill verða en lætur tilleiðast
undir pressu að vera í víkinga-
sveit.“
Leikstjórinn, Óskar Jónasson Húmorinn kemur frá hjart-
anu.
Frá upptöku á SérsveitinniSterk tilfínning fyrir hinu myndræna.
ÍBÍÓ
Til ykkar sem farið í
bíó einu sinni á ári:
Það má vera að stundin
sé runnin upp þótt fyrsti
mánuðurinn sé ekki liðinn.
Bekkjarfélagið („Dead
Poets Soeiety“), um drengi
í bandariskum einkaskóla
sem taka höfuðskáld eins
og Whitman og Thoreau
fram yfir unglingapretti
en eru kúgaðir til að hætta
því, er ein besta mynd
Ástralans Peters Weirs til
þessa.
Fyrir þá sem vilja full-
orðinsástir með hættulegu
ívafi í takt við „Fatal
Attraction“ er bent á
Losta í Laugarásbíói með
meyrum og löngunarfull-
um A1 Pacino. Sérstök
ánægja að sjá hann aftur
eftir nokkurt hlé frá kvik-
myndunum.
Þetta eru bestu mynd-
imar í Reykjavík í upphafi
árs.