Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Rætt um að Oddi hf.
yfírtaki Blaðaprent
„ Morgunblaðið/Bjami
Á blaðamannafundi forsætisráðherra Norðurlanda og forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Frá hægri
eru Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra íslands, Jan P. Syse forsætisráðherra Noregs, Poul
Schliíter forsætisráðherra Danmerkur, Bjarne Mörk Eidem fyrrum sjávarútvegsráðherra Noregs og
meðlimur í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, og Ólafur G. Einarsson alþingismaður og meðlimur í forsæt-
isnefndinni.
Forsætisráðherrar Norðurlanda;
Viðræður EB og EFTA heQ-
ast í maí samkvæmt áætlun
VIÐRÆÐUR hafa undanfarið
verið um að prentsmiðjan Oddi
Ráðist á íslending
í Jóhannesarborg;
Rændur og
stunginn
íjórum hníís-
stungum
HÓPUR blökkumanna réðst
siðastliðinn föstudag á Hilmar
Kristjánsson, ræðismann íslands
í Jóhannesarborg í Suður-Afríku,
og var hann stunginn íjórum
hnífsstungum í handlegg og fót-
legg og rændur sem svarar 275
þúsund krónum.
Að sögn Hilmars gerðist þetta
fyrir framan fyrirtæki sem hann
rekur í Jóhannesarborg, en hann var
þá að koma úr banka með laun
starfsmanna sinna.
„Þeir komu aðvífandi átta saman
á tveimur bílum, og réðust fjórir
þeirra að mér með hnífum, en tveir
stóðu álengdar með byssur á lofti.
Þeir náðu af mér peningunum eftir
nokkrar ryskingar, og komust und-
an. Ég slapp mjög vel frá þessu, en
gerði þau mistök að slást við þá í
stað þess að afhenda þeim pening-
ana mótþróalaust," sagði Hilmar.
Utanríkisráðuneytinu bárust í
gær upplýsingar um að færeyska
landsstjórnin hefði ákveðið að
legga íyrir lögþingið frumvarp
þess efnis að bátum sem stunda
laxveiðar, sem bijóta í bága við
NASCO-samkomulagið, verði
bannað að leita hafnar í Færeyj-
um. Uffe Ellemann Jensen, ut-
anríkisráðherra Danmerkur, lýsti
yfir á fundi í Kaupmannahöfn í
gær með fulitrúum laxakvóta-
nefndar, að hann myndi beita fúll-
um stuðningi sínum og utanrikis-
ráðuneytisins til að stöðva lax-
veiðar í sjó utan 200 milna. Pólski
sendifulltrúinn hér á landi til-
kynnti utanríkisráðuneytinu hér í
gær, að pólsk sljórnvöld hefðu
ákveðið setningu reglugerðar,
sem bannaði bátum þaðan lax-
veiðar í sjó í samræmi við sam-
þykkt NASCO, þjóðanna við Norð-
ur-Atlantshafið.
Á fundi með Orra Vigfússyni og
Ingva Hrafni Jónssyni í gær sagði
danski utanríkisráðherrann að
starfsmenn ráðuneytisins hefðu und-
Flugleiðavél tafðist;
Reyk lagði
úr hreyflum
DC-8 flugvél Flugleiða tafðist í
New York í gærmorgun vegna
þess að reyk lagði úr hreyflum
hennar þegar hún var gangsett.
Ekkert fannst athugavert og er
talið að þetta hafí verið vegna
þess að mjög kalt var í veðri.
Flugvél þessi varð fyrir hnjaski á
föstudag er bíl var ekið utan í einn
hreyfil hennar þar sem hún stóð á
flugvellinum í New York. Skipt var
um hreyfílhlíf um helgina. Flugvélin
Ienti í Keflavík í gær og hélt síðan
áfram til Lúxemborgar.
hf. taki yfir rekstur Blaðaprents
hf., sem er í eigu Alþýðublaðs-
ins, Tímans og Þjóðviljans. Full-
trúar fyrirtækjanna áttu fiind
um þetta mál síðastliðinn laug-
ardag.
„Málið er ekki á því stigi að
hægt sé að segja að Oddi sé að
taka yfir rekstur Blaðaprents en
ég get ekki neitað því að við áttum
fund með fulltrúum Blaðaprents
um þetta mál á laugardaginn. Of
snemmt er að segja nokkuð um
hvort um samstarf eða eitthvað
annað yrði að ræða,“ sagði Þor-
geir Baldursson, forstjóri Odda hf.
Blaðaprent hf., sem er í eigu
Þjóðviljans, Alþýðublaðsins og
Tímans, hefur átt við rekstrarörð-
ugleika að stríða og sagði Þorgeir
ljóst að Blaðaprent yrði að finna
lausn á málum sínum. „Við höfum
ekki framleitt dagblöð og við verð-
um að skoða sitt af hveiju áður
en við hættum okkur út í það. Ef
af þessu yrði myndi það kalla á
miklar breytingar í prentsmiðju
okkar,“ sagði Þorgeir.
Hann sagði að annar fundur
hefði ekki verið ákveðinn en aðilar
verið sammála um að draga málið
ekki úr hömlu. „Ákvörðun um
framhaldið verður að taka mjög
fljótlega."
Hrafn Magnússon, stjórnarfor-
maður í Blaðaprenti, kvaðst ekki
vilja tjá sig um málið.
anfarnar tvær vikur unnið að lausn
þessa máls og myndu á næstu dögum
reyna að leggja fram ákveðnar tillög-
ur. „Ráðherrann, sem sjálfur er
áhugamaður um laxveiðar, lýsti yfir
ánægju sinni og stuðningi við kaup
okkar á laxakvótum í sjó,“ sagði
Orri Vigfússon í samtali við Morgun-
blaðið. „Lögreglurannsókn á málinu
í Danmörku stendur yfir og sagðist
ráðherrann óska eftir að henni yrði
hraðað. Hann sagði það ekki fara á
milli mála, að umræddir bátar væru
danskir að öllu öðru leyti en að þeir
hefðu nýlega skipt danska fánanum
NORÐURLÖNDIN eru sammála
um að ekkert sé því til fyrirstöðu
að viðræður EFTA og Evrópu-
bandalagsins geti hafist í maí,
samkvæmt áætlun. Þetta kom
fram á fréttamannafúndi forsætis-
ráðherra Norðurlandanna sem
haldinn var eftir ftind þeirra í
Reykjavík í gær.
Fundur ráðherranna tengist 38.
út fyrir fána Panama og Póllands.
Við lýstum því sérstaklega fyrir ráð-
herranum að við teldum þetta bæði
brot á hafréttarsáttamálanum og
NASCO-samkomulaginu, það ætti
líka við útgerðir og áhafnir, ekki
áðeins skráningu bátanna," sagði
Orri Vigfússon.
Guðmundur Eiríksson, sendiherra,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
í gær hefði pólski sendifulltrúinn hér
á landi komið í utanríkisráðuneytið
og tilkynnt að pólsk stjómvöld hefðu
ákveðið að gefa út reglugerð, sem
banna umræddar veiðar á þeim
þingi Norðurlandaráðs sem hefst í
Háskólabíói í dag. Á ráðherrafund-
inn vantaði þó Ingvar Carlsson for-
sætisráðherra Svía, sem kemur ekki
til Islands vegna stjómarmyndunar
í Svíþjóð. í gær áttu sjávarútvegs-
ráðherrar og félagsmálaráðherrar
Iandanna einnig fundi.
Á fréttamannafundinum með for-
sætisráðherrunum og fulltrúum for-
svæðum sem NASCO-samkomulagið
næði til. Hve skamman tíma þetta
tæki, væri ekki víst, en viðbrögð
Pólveija í þessu máli væru bæði hröð
og góð. Ekki væri vitað hvort þessir
bátar hefðu landað einhveijum laxi
í Póllandi og ekki gengið hart eftir
því að komast að því vegna skjótra
viðbragða pólskra stjómvalda.
Loks má geta þess, að Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra,
mun ræða þetta mál við hinn danska
starfsbróður sinn Kent Kirk, sem
staddur er hér á landi vegna þings
Norðurlandaráðs.
sætisnefndar Norðurlandaráðs í
gær, var m.a. spurt hvort undirbún-
ingur viðræðna EFTA og EB raskað-
ist vegna stjórnarkreppunnar í
Svíþjóð, en Svíar hafa nú tekið við
formennsku í EFTA. Þessu neitaði
Mats Hellström, fyrrum landbúnað-
arráðherra Svía og staðgengill Carl-
sons á fundi forsætisráðherranna.
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra var spurður hvort hann
væri sammála þessu og hann svar-
aði að undirbúningurinn hefði geng-
ið vel meðan íslendingar höfðu for-
mennskuna með höndum, og hann
tryði því ekki að yerr gengi með
Svía í formennsku. íslendingar hefðu
verið órólegir yfir að það gætu kom-
ið upp vandamál vegna stjómar-
kreppunnar í Svíþjóð en væra nú
sannfærðir um að það muni ekki
valda vandræðum.
Poul Schlviter forsætisráðherra
Dana sagðist vera bjartsýnn á við-
ræður EB og EFTA. Hann undir-
strikaði þó, að EFTA-löndin yrðu
að vera reiðubúin til að slaka til í
þeim viðræðum og bjóða EB eitthvað
í staðinn fyrir aðgang að sameigin-
lega markaðnum. Hann nefndi sem
dæmi að skera niður ríkisstyrki til
útflutningsfyrirtækja.
Harri Holkeri forsætisráðhera
Finna upplýsti að Finnar hefðu þeg-
ar hundrað eða þúsundir Eistlend-
inga í starfsþjálfun og meðal þeirra
væri sonur Indreks Toome, forsætis-
ráðherra Eistlands.
Myndbirting af kynferðisafbrotamanni:
Veist að lögreglu-
manni og hann talinn
vera afbrotamaðurimi
JÓHANNES Björgvinsson rannsóknarlögreglumaður hefúr tvisvar
sætt aðkasti á almannafæri eftir að birst hafa í fréttum Stöðvar 2
og DV myndir af honum handjárnuðum við Steingrím Njálsson,
margdæmdan kynferðisafbrotamann, sem nú situr í gæsluvarðhaldi
grunaður um tilraun til brots gegn sjö ára gömlum dreng. Þeir
sem veist hafa að Jóhannesi hafa haldið hann vera Steingrím, hafa
úthúðað honum og spurt hvort hann ætti ekki að vera í fangelsi.
Þegar Jóhannes reyndi að útskýra málið sögðust viðkomandi ekk-
ert hafa við svona menn að tala og strunsuðu á brott.
„Ég varð fyrst var við þetta í
strætisvagni á leið heim til mín
tveimur eða þremur dögum eftir
að myndir af mér birtust í fréttum
Stöðvar 2 þar sem ég færi Stein-
grím fyrir dómara," sagði Jóhann-
es í samtali við Morgunblaðið.
„Þegar ég gekk inn í vagninn tók
ég eftir tveimur fullörðnum konum
sem horfðu stíft á mig. Ég settist
rétt fyrir aftan þær og heyrði aðra
þeirra pískra: „Á þessi maður að
ganga laus. Þú sérð að þetta er
hann, sá sem var í sjónvarpinu."
Þá sagði hin hvort þetta væri ekki
lögreglumaðurinn sem verið hefði
með Steingrími en þessi tók það
ekki í mál,“ sagði Jóhannes. Hann
sagðist hafa leitt þetta atvik hjá
sér og ekkert hafa gert til að leið-
rétta misskilninginn. Fáeinum
dögum síðar var hann staddur í
Jóhannes Björgvinsson, rann-
sóknarlögreglumaður.
Kringlunni. „Þar koma tvær konur
gangandi og önnur þeirra vindur
sér að mér, hreytir í mig ónotum,
hrækir á öxlina á mér og segir:
„Þú ættir að vera í tugthúsi." Ég
hváði og ætlaði að ræða við kon-
una en hún stransaði á brott í fylgd
vinkonu sinnar og kallaði til mín
að hún hefði ekkert við svona kyn-
brenglaða menn að ræða.“ Jóhann-
es sagði að þetta atvik hefði feng-
ið nokkuð á sig en þó hefði fyrst
gengið fram af sér'í Þjóðleikhúsinu
...........................y,. ;>
á laugardagskvöldið þar sem hann
sótti leiksýningu ásamt eiginkonu
sinni. í hléi brá hann sér á salem-
ið. „Þar vindur sér að mér fullorð-
inn maður og segir: „Átt þú ekki
að vera í tugthúsinu, ég sá það í
fréttunum í gær.““ Jóhannes sagð-
ist hafa byijað að útskýra málið
fyrir manninum en þá hefði hann
svarað að hann horfði nú á sjón-
varpið, vissi upp á hár hvaða mann
Jóhannes hefði að geyma og hefði
bara ekkert við hann að tala.
Á myndum þeim sem nokkrir
fjölmiðlar hafa sýnt af Jóhannesi
Björgvinssyni að leiða Steingrím
Njálsson fyrir dómara, eru þeir
handjámaðir sainan og Steingrím-
ur ber hönd fyrir andlit sér. Jó-
hannes segir að sér þyki undar-
legt, ekki síst miðað við látbragð
sakborningsins á myndirini, að
nokkur geti velkst í vafa um hvor
sé hvor. Þá segist hann telja að
atvik af þessu tagi ættu fjöl-
miðlar, þeir sem leggja í vana sinn
að birta myndir af meintum saka-
mönnum, að hafa í huga og gera
hvað þeir geta til að fyrirbyggja.
Hann segist einkum telja hlut
Stöðvar 2 aðfinnsluverðan en þar
hafi nú þegar sömu myndirnar af
þessu atviki verið sýndar þrisvar
eða íjóram sinnum.
Færeyska landsstjórnin:
Laxveiðibátum verði bannað
að leita haftiar í Færejrjum