Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Rætt um að Oddi hf. yfírtaki Blaðaprent „ Morgunblaðið/Bjami Á blaðamannafundi forsætisráðherra Norðurlanda og forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Frá hægri eru Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra íslands, Jan P. Syse forsætisráðherra Noregs, Poul Schliíter forsætisráðherra Danmerkur, Bjarne Mörk Eidem fyrrum sjávarútvegsráðherra Noregs og meðlimur í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, og Ólafur G. Einarsson alþingismaður og meðlimur í forsæt- isnefndinni. Forsætisráðherrar Norðurlanda; Viðræður EB og EFTA heQ- ast í maí samkvæmt áætlun VIÐRÆÐUR hafa undanfarið verið um að prentsmiðjan Oddi Ráðist á íslending í Jóhannesarborg; Rændur og stunginn íjórum hníís- stungum HÓPUR blökkumanna réðst siðastliðinn föstudag á Hilmar Kristjánsson, ræðismann íslands í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, og var hann stunginn íjórum hnífsstungum í handlegg og fót- legg og rændur sem svarar 275 þúsund krónum. Að sögn Hilmars gerðist þetta fyrir framan fyrirtæki sem hann rekur í Jóhannesarborg, en hann var þá að koma úr banka með laun starfsmanna sinna. „Þeir komu aðvífandi átta saman á tveimur bílum, og réðust fjórir þeirra að mér með hnífum, en tveir stóðu álengdar með byssur á lofti. Þeir náðu af mér peningunum eftir nokkrar ryskingar, og komust und- an. Ég slapp mjög vel frá þessu, en gerði þau mistök að slást við þá í stað þess að afhenda þeim pening- ana mótþróalaust," sagði Hilmar. Utanríkisráðuneytinu bárust í gær upplýsingar um að færeyska landsstjórnin hefði ákveðið að legga íyrir lögþingið frumvarp þess efnis að bátum sem stunda laxveiðar, sem bijóta í bága við NASCO-samkomulagið, verði bannað að leita hafnar í Færeyj- um. Uffe Ellemann Jensen, ut- anríkisráðherra Danmerkur, lýsti yfir á fundi í Kaupmannahöfn í gær með fulitrúum laxakvóta- nefndar, að hann myndi beita fúll- um stuðningi sínum og utanrikis- ráðuneytisins til að stöðva lax- veiðar í sjó utan 200 milna. Pólski sendifulltrúinn hér á landi til- kynnti utanríkisráðuneytinu hér í gær, að pólsk sljórnvöld hefðu ákveðið setningu reglugerðar, sem bannaði bátum þaðan lax- veiðar í sjó í samræmi við sam- þykkt NASCO, þjóðanna við Norð- ur-Atlantshafið. Á fundi með Orra Vigfússyni og Ingva Hrafni Jónssyni í gær sagði danski utanríkisráðherrann að starfsmenn ráðuneytisins hefðu und- Flugleiðavél tafðist; Reyk lagði úr hreyflum DC-8 flugvél Flugleiða tafðist í New York í gærmorgun vegna þess að reyk lagði úr hreyflum hennar þegar hún var gangsett. Ekkert fannst athugavert og er talið að þetta hafí verið vegna þess að mjög kalt var í veðri. Flugvél þessi varð fyrir hnjaski á föstudag er bíl var ekið utan í einn hreyfil hennar þar sem hún stóð á flugvellinum í New York. Skipt var um hreyfílhlíf um helgina. Flugvélin Ienti í Keflavík í gær og hélt síðan áfram til Lúxemborgar. hf. taki yfir rekstur Blaðaprents hf., sem er í eigu Alþýðublaðs- ins, Tímans og Þjóðviljans. Full- trúar fyrirtækjanna áttu fiind um þetta mál síðastliðinn laug- ardag. „Málið er ekki á því stigi að hægt sé að segja að Oddi sé að taka yfir rekstur Blaðaprents en ég get ekki neitað því að við áttum fund með fulltrúum Blaðaprents um þetta mál á laugardaginn. Of snemmt er að segja nokkuð um hvort um samstarf eða eitthvað annað yrði að ræða,“ sagði Þor- geir Baldursson, forstjóri Odda hf. Blaðaprent hf., sem er í eigu Þjóðviljans, Alþýðublaðsins og Tímans, hefur átt við rekstrarörð- ugleika að stríða og sagði Þorgeir ljóst að Blaðaprent yrði að finna lausn á málum sínum. „Við höfum ekki framleitt dagblöð og við verð- um að skoða sitt af hveiju áður en við hættum okkur út í það. Ef af þessu yrði myndi það kalla á miklar breytingar í prentsmiðju okkar,“ sagði Þorgeir. Hann sagði að annar fundur hefði ekki verið ákveðinn en aðilar verið sammála um að draga málið ekki úr hömlu. „Ákvörðun um framhaldið verður að taka mjög fljótlega." Hrafn Magnússon, stjórnarfor- maður í Blaðaprenti, kvaðst ekki vilja tjá sig um málið. anfarnar tvær vikur unnið að lausn þessa máls og myndu á næstu dögum reyna að leggja fram ákveðnar tillög- ur. „Ráðherrann, sem sjálfur er áhugamaður um laxveiðar, lýsti yfir ánægju sinni og stuðningi við kaup okkar á laxakvótum í sjó,“ sagði Orri Vigfússon í samtali við Morgun- blaðið. „Lögreglurannsókn á málinu í Danmörku stendur yfir og sagðist ráðherrann óska eftir að henni yrði hraðað. Hann sagði það ekki fara á milli mála, að umræddir bátar væru danskir að öllu öðru leyti en að þeir hefðu nýlega skipt danska fánanum NORÐURLÖNDIN eru sammála um að ekkert sé því til fyrirstöðu að viðræður EFTA og Evrópu- bandalagsins geti hafist í maí, samkvæmt áætlun. Þetta kom fram á fréttamannafúndi forsætis- ráðherra Norðurlandanna sem haldinn var eftir ftind þeirra í Reykjavík í gær. Fundur ráðherranna tengist 38. út fyrir fána Panama og Póllands. Við lýstum því sérstaklega fyrir ráð- herranum að við teldum þetta bæði brot á hafréttarsáttamálanum og NASCO-samkomulaginu, það ætti líka við útgerðir og áhafnir, ekki áðeins skráningu bátanna," sagði Orri Vigfússon. Guðmundur Eiríksson, sendiherra, sagði í samtali við Morgunblaðið, að í gær hefði pólski sendifulltrúinn hér á landi komið í utanríkisráðuneytið og tilkynnt að pólsk stjómvöld hefðu ákveðið að gefa út reglugerð, sem banna umræddar veiðar á þeim þingi Norðurlandaráðs sem hefst í Háskólabíói í dag. Á ráðherrafund- inn vantaði þó Ingvar Carlsson for- sætisráðherra Svía, sem kemur ekki til Islands vegna stjómarmyndunar í Svíþjóð. í gær áttu sjávarútvegs- ráðherrar og félagsmálaráðherrar Iandanna einnig fundi. Á fréttamannafundinum með for- sætisráðherrunum og fulltrúum for- svæðum sem NASCO-samkomulagið næði til. Hve skamman tíma þetta tæki, væri ekki víst, en viðbrögð Pólveija í þessu máli væru bæði hröð og góð. Ekki væri vitað hvort þessir bátar hefðu landað einhveijum laxi í Póllandi og ekki gengið hart eftir því að komast að því vegna skjótra viðbragða pólskra stjómvalda. Loks má geta þess, að Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, mun ræða þetta mál við hinn danska starfsbróður sinn Kent Kirk, sem staddur er hér á landi vegna þings Norðurlandaráðs. sætisnefndar Norðurlandaráðs í gær, var m.a. spurt hvort undirbún- ingur viðræðna EFTA og EB raskað- ist vegna stjórnarkreppunnar í Svíþjóð, en Svíar hafa nú tekið við formennsku í EFTA. Þessu neitaði Mats Hellström, fyrrum landbúnað- arráðherra Svía og staðgengill Carl- sons á fundi forsætisráðherranna. Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra var spurður hvort hann væri sammála þessu og hann svar- aði að undirbúningurinn hefði geng- ið vel meðan íslendingar höfðu for- mennskuna með höndum, og hann tryði því ekki að yerr gengi með Svía í formennsku. íslendingar hefðu verið órólegir yfir að það gætu kom- ið upp vandamál vegna stjómar- kreppunnar í Svíþjóð en væra nú sannfærðir um að það muni ekki valda vandræðum. Poul Schlviter forsætisráðherra Dana sagðist vera bjartsýnn á við- ræður EB og EFTA. Hann undir- strikaði þó, að EFTA-löndin yrðu að vera reiðubúin til að slaka til í þeim viðræðum og bjóða EB eitthvað í staðinn fyrir aðgang að sameigin- lega markaðnum. Hann nefndi sem dæmi að skera niður ríkisstyrki til útflutningsfyrirtækja. Harri Holkeri forsætisráðhera Finna upplýsti að Finnar hefðu þeg- ar hundrað eða þúsundir Eistlend- inga í starfsþjálfun og meðal þeirra væri sonur Indreks Toome, forsætis- ráðherra Eistlands. Myndbirting af kynferðisafbrotamanni: Veist að lögreglu- manni og hann talinn vera afbrotamaðurimi JÓHANNES Björgvinsson rannsóknarlögreglumaður hefúr tvisvar sætt aðkasti á almannafæri eftir að birst hafa í fréttum Stöðvar 2 og DV myndir af honum handjárnuðum við Steingrím Njálsson, margdæmdan kynferðisafbrotamann, sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um tilraun til brots gegn sjö ára gömlum dreng. Þeir sem veist hafa að Jóhannesi hafa haldið hann vera Steingrím, hafa úthúðað honum og spurt hvort hann ætti ekki að vera í fangelsi. Þegar Jóhannes reyndi að útskýra málið sögðust viðkomandi ekk- ert hafa við svona menn að tala og strunsuðu á brott. „Ég varð fyrst var við þetta í strætisvagni á leið heim til mín tveimur eða þremur dögum eftir að myndir af mér birtust í fréttum Stöðvar 2 þar sem ég færi Stein- grím fyrir dómara," sagði Jóhann- es í samtali við Morgunblaðið. „Þegar ég gekk inn í vagninn tók ég eftir tveimur fullörðnum konum sem horfðu stíft á mig. Ég settist rétt fyrir aftan þær og heyrði aðra þeirra pískra: „Á þessi maður að ganga laus. Þú sérð að þetta er hann, sá sem var í sjónvarpinu." Þá sagði hin hvort þetta væri ekki lögreglumaðurinn sem verið hefði með Steingrími en þessi tók það ekki í mál,“ sagði Jóhannes. Hann sagðist hafa leitt þetta atvik hjá sér og ekkert hafa gert til að leið- rétta misskilninginn. Fáeinum dögum síðar var hann staddur í Jóhannes Björgvinsson, rann- sóknarlögreglumaður. Kringlunni. „Þar koma tvær konur gangandi og önnur þeirra vindur sér að mér, hreytir í mig ónotum, hrækir á öxlina á mér og segir: „Þú ættir að vera í tugthúsi." Ég hváði og ætlaði að ræða við kon- una en hún stransaði á brott í fylgd vinkonu sinnar og kallaði til mín að hún hefði ekkert við svona kyn- brenglaða menn að ræða.“ Jóhann- es sagði að þetta atvik hefði feng- ið nokkuð á sig en þó hefði fyrst gengið fram af sér'í Þjóðleikhúsinu ...........................y,. ;> á laugardagskvöldið þar sem hann sótti leiksýningu ásamt eiginkonu sinni. í hléi brá hann sér á salem- ið. „Þar vindur sér að mér fullorð- inn maður og segir: „Átt þú ekki að vera í tugthúsinu, ég sá það í fréttunum í gær.““ Jóhannes sagð- ist hafa byijað að útskýra málið fyrir manninum en þá hefði hann svarað að hann horfði nú á sjón- varpið, vissi upp á hár hvaða mann Jóhannes hefði að geyma og hefði bara ekkert við hann að tala. Á myndum þeim sem nokkrir fjölmiðlar hafa sýnt af Jóhannesi Björgvinssyni að leiða Steingrím Njálsson fyrir dómara, eru þeir handjámaðir sainan og Steingrím- ur ber hönd fyrir andlit sér. Jó- hannes segir að sér þyki undar- legt, ekki síst miðað við látbragð sakborningsins á myndirini, að nokkur geti velkst í vafa um hvor sé hvor. Þá segist hann telja að atvik af þessu tagi ættu fjöl- miðlar, þeir sem leggja í vana sinn að birta myndir af meintum saka- mönnum, að hafa í huga og gera hvað þeir geta til að fyrirbyggja. Hann segist einkum telja hlut Stöðvar 2 aðfinnsluverðan en þar hafi nú þegar sömu myndirnar af þessu atviki verið sýndar þrisvar eða íjóram sinnum. Færeyska landsstjórnin: Laxveiðibátum verði bannað að leita haftiar í Færejrjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.