Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Siglufjörður: Atkvæðagreiðslu um samningana frestað Á FUNDI í verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði á sunnudag var ákveðið að fresta um óákveðinn tíma atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga vegna fyrirhug- aðrar 10% verðhækkunar hjá Hitaveitu Siglufjarðar 1. mars næstkomandi, svo og 10-15% hækkunar á þjónustugjöldum bæj- arins, til dæmis dagheimilis-, tón- skóla- og sundlaugargjöldum, að sögn Hafþórs Rósmundssonar formanns Vöku. Hafþór sagði í samtali við Morgunblaðið að borg- í kjarasamningum bæjarstarfs- mannafélaganna í BSRB fékkst fram að fólk fær einu sinni fímmt- án vinnudaga frí til að fara í tækni- frjóvgun og gildir það bæði fyrir eiginmann og eiginkonu. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur þessa regla gilt í reynd arafundur um fjárhagsáætlun Siglufjarðar yrði haldinn næst- komandi fimmtudag en hún yrði afgreidd 15. mars. „Við erum með eina af þessum vandræðahitaveitum og hún er núna í gjörgæslumeðferð hjá ríkinu," sagði Hafþór Rósmundsson. „Fyrsti áfang- inn í þeim aðgerðum er að veita hita- veitunni 36 milljóna króna lán með ríkisábyrgð og þessi 10% hækkun 1. mars er eitt af skilyrðunum, sem fjármálaráðuneytið setur fyrir þess- ari lánveitingu. Á sama tíma fá sveit- hjá ríkinu að undanförnu og þess vegna er þetta til komið í kjarasamn- ing bæjarstarfsmannafélaganna. Hins vegar er ekki kveðið á um þetta í kjarasamningum ríkisstarfsmanna- félaganna, þó reglan hafi gilt í reynd. Fólk fær greidda dagvinnu og vaktaálag ef um það er að ræða. arfélögin vinsamleg tilmæli frá stjórnvöldum um að stilla hækkunum á þjónustugjöldum í hóf,“ sagði Haf- þór. ísak Ólafsson, bæjarstjóri á Siglu- firði, sagði að ekki væri búið að ákveða hversu mikið þjónustugjöld bæjarins yrðu hækkuði „Það eina sem liggur ákveðið fyrir er 10% hækkun á hitaveitunni og að gjald- skrá hennar fylgi almennum launa- breytingum á árinu. Þessi hækkun er liður í samkomulagi á milli bæjar- yfirvalda og fj'ármálaráðuneytisins og tengist meðal annars fyrir- greiðslu, sem hitaveitan fær hjá ráðuneytinu." ísak sagði að Hitaveita Siglufjarð- ar fengi 36 milljóna króna lán, sam- kvæmt lánsfjárlögum, og ríkisábyrgð væri á láninu. „Við gerum okkur vonir um að niðurstaðan verði sú að ríkissjóður muni yfirtaka eitthvað af skuldum hitaveitunnar, eins og gerð- ist varðandi Hitaveitu Akureyrar og Hitaveitu Borgarness," sagði ísak Ólafsson. Kj arasamningar bæjarstarfemannafélagamia: 15 daga M vegiia tæknifrj ó vgunar VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 27. FEBRÚAR YFIRLIT í GÆR: Norðan- og norðaustanátt, víða hvassviðri og snjókoma um norðanvert landið, en kaldi eða stinningskaldi og þurrt að mestu syðra. Skafrenningur var víða á landinu. Mildast var 2ja stiga hiti á Vatnsskarðshólum, en kaldast á Hveravöllum, 5 stiga frost. SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, víðast allhvasst eða hvasst. Snjó- koma norðanlands, en úrkomulítið syðra. Skafrenningur um mest allt land. ( nótt og í fyrramálið dregur nokkuð úr veðurhæð vestast á landinu. Veður fer smám saman kólnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðan- og norðaustanátt við norður- ströndina og suður með Austfjörðum, en annars þurrt. Víða léttskýj- að sunnanlands. Frost 5 til 12 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Vestan- og suðvestanátt. Snjókoma vestanlands, en úrkomulaust og víða bjart veður ui^n landið austan- vert. Frost 2 til 8 stig. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / # / * / * Slydda / * / * * * *# * * Snjókoma * * * ■jfl Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir Él Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður V * V 5 oo 4 K m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 0 snjókoma Reykjavlk 0 skafrenningur Björgvin 4 rigning Helsinki 0 snjóél Kaupmannahöfn 7 rigning Narssarssuaq vantar Nuuk ^10 snjókoma Ósló 5 rigning Stokkhólmur 5 rigning Þórshöfn 3 slydduél Algarve 16 léttskýjað Amsterdam 11 léttskýjað Barcelona 14 mistur Berlín 13 rigning Chicago +7 alskýjað Feneyjar 10 þoka Frankfurt 11 rigning Glasgow 5 skúr Hamborg 11 skúr Las Palmas 20 léttskýjað Lundúnir 10 skúr Los Angeles 11 þoka Lúxemborg 11 skúr Madrld 14 mistur Malaga vantar Mallorca vantar Montreal vantar New York +12 léttskýjað Orlando 10 heiðskírt París 13 skúr Róm 14 þokumóða Vín 18 skýjað Washington +10 heiðskirt Winnipeg +9 skýjað * Morgunblaðið/Svernr Fjöldi manns var samankominn við ferðaskrifstofuna Samvinnu- ferðir-Landsýn á sunnudagsmorgun. Mikill áhugi fyrir orlofsferðum VR SALA hófst i orlofsferðir Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Samvinnu- ferða-Landsýnar síðastliðinn sunnudag. Áð sögn Helga Jó- hannssonar, forstjóra ferða- skrifstofimnar, gekk salan vel og íjóst er að mikill ferðahugur er í fólki. Ferðaskrifstofan hóf að selja í þessar ferðir kl. 13 á sunnudag en þeir áhugasömustu höfðu beð- ið fyrir utan dyr ferðaskrifstof- unnar frá því um ellefuleytið á laugardagskvöld, eða í fjórtán tíma. Helgi sagði að salan hefði skipst jafnt á milli Norðurlanda og meginlands Evrópu. Mest seldist í ferðir til Kaupmanna- hafnar og Lúxemborgar. Alls voru 500 sæti í boði. Fé- lögum í ASÍ verða boðin 800 sæti á niðursettu verði til sömu áfangastaða 19. mars nk. Um mánaðarmótin mars-apríl kemur röðin að BSRB-félögum. Alls bjóða launþegasamtökin upp á 4.700 sæti að þessu sinni. Reglugerð frá utanríkisráðuneyti: Umferð og dvöl á Keflavík- urflugvelli takmörkuð með sérstökum skilríkjum Utanríkisráðherra heftir sett reglugerð um takmörkun umferðar og dvalar á svæði Keflavíkurflugvallar þar sem segir, að engum sé heimil umferð eða dvöl á svæði Keflavíkurflugvallar nema hann hafi til þess leyfí samkvæmt sérstökum skírteinum útgefnum af Iögreglu- stjóranum á Keflavíkurflugvelli. Reglugerðin nær til íslenskra starfe- manna hjá stofnunum á Keflavíkurflugvelli, bæði á varnarsvæðinu og í Flugstöð Leife Eiríkssonar. t reglugerðinni segir, að lögreglustjóri geti afturkallað leyfi fyrirvaralaust hvenær sem er. Aðspurður sagði Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, hugsanlegt að upp kæmi sú staða að starfemanni yrði vegna afturköllunar leyfís ókleift að vinna starf sitt á svæðinu. Leyfí verða gefin út til ákveðins tíma í senn. Þau má binda ákveðnum störfum eða starfsemi og takmarka við ákveðna vikudaga og hluta sólar- hringsins. Auk varnarliðsmanna eru erlendir sendierindrekar, flugliðar og flugfarþegar á eðlilegri leið til og frá loftfari undanþegnir þessari Dró upp byssu í leigubíl Leigubílstjóri kærði til lögreglu á sunnudagsmorgun að farþegi sem hann ók úr Fellahverfi yfir í Selja- hverfi hefði dregið upp litla svarta byssu þegar komið var á leiðarenda og sagt að þeir sem reyndu að standa í vegi fyrir sér yrðu drepnir. Að því loknu fór maðurinn út úr bílnum og á brott. Hann var ófundinn í gær. skyldu, enda beri þeir á sér önnur skilríki eða heimildir er leyfi aðgang þeirra að viðkomandi svæðum. „Það er verið að færa þetta í takt við þær breytingar sem orðið hafa, í framhaldi af því að búið er að flytja flugstöðina út úr miðri her- stöðinni," sagði Þorgeir Þorsteins- son lögreglustjóri á Keflavíkurflug- velli aðspurður um tilefni þessarar reglugerðar. Hann sagði að að hluta til hefði þessi breyting áhrif inn i flugstöðvarbygginguna, þar þyrfti að aðskilja að vissu leyti umgang milli lokaðra svæða. „Það verða gef- in út skírteini með mynd af viðkom- andi og í mismunandi litum sem gefa aðgang að mismunandi svæð- urn,“ sagði Þorgeir, en honum er í reglugerðinni falið í samráði við flugvallarstjóra að setja nánari regl- ur um leyfisveitingu, meðferð og notkun skírteinanna. Hann sagði að verið væri að vinna að þeim reglum. Atvinnuleysisbætur voru 133,5 milljónir 1 janúar í janúarmánuði voru samtals greiddar út úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði í atvinnuleysis- bætur 133,656 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess að á öllu síðasta ári voru greiddar 870 milljónir úr sjóðnum í at- vinnuleysisbætur, sem er það mesta sem greitt hefúr verið úr honum frá upphafí. Frá 1. febrúar eru fullar atvinnu- leysisbætur, en þær hækkuðu í kjöl- far kjarasamninganna, 1.912,64 krónur fyrir hvern vinnudag og 76,51 króna með hvetju barni yngra en sextán ára. í meðalmánuði teljast vera 21,67 vinnudagar. Fjármagn sjóðsins kemur frá at- vinnurekendum að fjórðungi og að þremur fjórðu frá ríkinu. Atvinnu- rekendur greiða 1% af byrjunartaxta í fiskvinnu, sem er nú 8.254 krónur á viku og ríkið leggur þrefalt á móti. Sjóðurinn tók til starfa 1. apríl 1956 og í árslok 1988 voru rúmir tveir milljarðar í honum. i i í I i I 1 Í I I i I I i I i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.