Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Siglufjörður:
Atkvæðagreiðslu um
samningana frestað
Á FUNDI í verkalýðsfélaginu
Vöku á Siglufirði á sunnudag var
ákveðið að fresta um óákveðinn
tíma atkvæðagreiðslu um nýgerða
kjarasamninga vegna fyrirhug-
aðrar 10% verðhækkunar hjá
Hitaveitu Siglufjarðar 1. mars
næstkomandi, svo og 10-15%
hækkunar á þjónustugjöldum bæj-
arins, til dæmis dagheimilis-, tón-
skóla- og sundlaugargjöldum, að
sögn Hafþórs Rósmundssonar
formanns Vöku. Hafþór sagði í
samtali við Morgunblaðið að borg-
í kjarasamningum bæjarstarfs-
mannafélaganna í BSRB fékkst
fram að fólk fær einu sinni fímmt-
án vinnudaga frí til að fara í tækni-
frjóvgun og gildir það bæði fyrir
eiginmann og eiginkonu.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur þessa regla gilt í reynd
arafundur um fjárhagsáætlun
Siglufjarðar yrði haldinn næst-
komandi fimmtudag en hún yrði
afgreidd 15. mars.
„Við erum með eina af þessum
vandræðahitaveitum og hún er núna
í gjörgæslumeðferð hjá ríkinu," sagði
Hafþór Rósmundsson. „Fyrsti áfang-
inn í þeim aðgerðum er að veita hita-
veitunni 36 milljóna króna lán með
ríkisábyrgð og þessi 10% hækkun
1. mars er eitt af skilyrðunum, sem
fjármálaráðuneytið setur fyrir þess-
ari lánveitingu. Á sama tíma fá sveit-
hjá ríkinu að undanförnu og þess
vegna er þetta til komið í kjarasamn-
ing bæjarstarfsmannafélaganna.
Hins vegar er ekki kveðið á um þetta
í kjarasamningum ríkisstarfsmanna-
félaganna, þó reglan hafi gilt í reynd.
Fólk fær greidda dagvinnu og
vaktaálag ef um það er að ræða.
arfélögin vinsamleg tilmæli frá
stjórnvöldum um að stilla hækkunum
á þjónustugjöldum í hóf,“ sagði Haf-
þór.
ísak Ólafsson, bæjarstjóri á Siglu-
firði, sagði að ekki væri búið að
ákveða hversu mikið þjónustugjöld
bæjarins yrðu hækkuði „Það eina
sem liggur ákveðið fyrir er 10%
hækkun á hitaveitunni og að gjald-
skrá hennar fylgi almennum launa-
breytingum á árinu. Þessi hækkun
er liður í samkomulagi á milli bæjar-
yfirvalda og fj'ármálaráðuneytisins
og tengist meðal annars fyrir-
greiðslu, sem hitaveitan fær hjá
ráðuneytinu."
ísak sagði að Hitaveita Siglufjarð-
ar fengi 36 milljóna króna lán, sam-
kvæmt lánsfjárlögum, og ríkisábyrgð
væri á láninu. „Við gerum okkur
vonir um að niðurstaðan verði sú að
ríkissjóður muni yfirtaka eitthvað af
skuldum hitaveitunnar, eins og gerð-
ist varðandi Hitaveitu Akureyrar og
Hitaveitu Borgarness," sagði ísak
Ólafsson.
Kj arasamningar bæjarstarfemannafélagamia:
15 daga M vegiia tæknifrj ó vgunar
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 27. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Norðan- og norðaustanátt, víða hvassviðri og
snjókoma um norðanvert landið, en kaldi eða stinningskaldi og
þurrt að mestu syðra. Skafrenningur var víða á landinu. Mildast
var 2ja stiga hiti á Vatnsskarðshólum, en kaldast á Hveravöllum,
5 stiga frost.
SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, víðast allhvasst eða hvasst. Snjó-
koma norðanlands, en úrkomulítið syðra. Skafrenningur um mest
allt land. ( nótt og í fyrramálið dregur nokkuð úr veðurhæð vestast
á landinu. Veður fer smám saman kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðan- og norðaustanátt við norður-
ströndina og suður með Austfjörðum, en annars þurrt. Víða léttskýj-
að sunnanlands. Frost 5 til 12 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Vestan- og suðvestanátt. Snjókoma
vestanlands, en úrkomulaust og víða bjart veður ui^n landið austan-
vert. Frost 2 til 8 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
*# * * Snjókoma
* * *
■jfl Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
*
V
5
oo
4
K
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 0 snjókoma Reykjavlk 0 skafrenningur
Björgvin 4 rigning
Helsinki 0 snjóél
Kaupmannahöfn 7 rigning
Narssarssuaq vantar
Nuuk ^10 snjókoma
Ósló 5 rigning
Stokkhólmur 5 rigning
Þórshöfn 3 slydduél
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Barcelona 14 mistur
Berlín 13 rigning
Chicago +7 alskýjað
Feneyjar 10 þoka
Frankfurt 11 rigning
Glasgow 5 skúr
Hamborg 11 skúr
Las Palmas 20 léttskýjað
Lundúnir 10 skúr
Los Angeles 11 þoka
Lúxemborg 11 skúr
Madrld 14 mistur
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York +12 léttskýjað
Orlando 10 heiðskírt
París 13 skúr
Róm 14 þokumóða
Vín 18 skýjað
Washington +10 heiðskirt
Winnipeg +9 skýjað *
Morgunblaðið/Svernr
Fjöldi manns var samankominn við ferðaskrifstofuna Samvinnu-
ferðir-Landsýn á sunnudagsmorgun.
Mikill áhugi fyrir
orlofsferðum VR
SALA hófst i orlofsferðir
Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og Samvinnu-
ferða-Landsýnar síðastliðinn
sunnudag. Áð sögn Helga Jó-
hannssonar, forstjóra ferða-
skrifstofimnar, gekk salan vel
og íjóst er að mikill ferðahugur
er í fólki.
Ferðaskrifstofan hóf að selja
í þessar ferðir kl. 13 á sunnudag
en þeir áhugasömustu höfðu beð-
ið fyrir utan dyr ferðaskrifstof-
unnar frá því um ellefuleytið á
laugardagskvöld, eða í fjórtán
tíma. Helgi sagði að salan hefði
skipst jafnt á milli Norðurlanda
og meginlands Evrópu. Mest
seldist í ferðir til Kaupmanna-
hafnar og Lúxemborgar.
Alls voru 500 sæti í boði. Fé-
lögum í ASÍ verða boðin 800
sæti á niðursettu verði til sömu
áfangastaða 19. mars nk. Um
mánaðarmótin mars-apríl kemur
röðin að BSRB-félögum. Alls
bjóða launþegasamtökin upp á
4.700 sæti að þessu sinni.
Reglugerð frá utanríkisráðuneyti:
Umferð og dvöl á Keflavík-
urflugvelli takmörkuð
með sérstökum skilríkjum
Utanríkisráðherra heftir sett reglugerð um takmörkun umferðar
og dvalar á svæði Keflavíkurflugvallar þar sem segir, að engum sé
heimil umferð eða dvöl á svæði Keflavíkurflugvallar nema hann hafi
til þess leyfí samkvæmt sérstökum skírteinum útgefnum af Iögreglu-
stjóranum á Keflavíkurflugvelli. Reglugerðin nær til íslenskra starfe-
manna hjá stofnunum á Keflavíkurflugvelli, bæði á varnarsvæðinu og
í Flugstöð Leife Eiríkssonar. t reglugerðinni segir, að lögreglustjóri
geti afturkallað leyfi fyrirvaralaust hvenær sem er. Aðspurður sagði
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, hugsanlegt
að upp kæmi sú staða að starfemanni yrði vegna afturköllunar leyfís
ókleift að vinna starf sitt á svæðinu.
Leyfí verða gefin út til ákveðins
tíma í senn. Þau má binda ákveðnum
störfum eða starfsemi og takmarka
við ákveðna vikudaga og hluta sólar-
hringsins. Auk varnarliðsmanna eru
erlendir sendierindrekar, flugliðar
og flugfarþegar á eðlilegri leið til
og frá loftfari undanþegnir þessari
Dró upp byssu
í leigubíl
Leigubílstjóri kærði til lögreglu á
sunnudagsmorgun að farþegi sem
hann ók úr Fellahverfi yfir í Selja-
hverfi hefði dregið upp litla svarta
byssu þegar komið var á leiðarenda
og sagt að þeir sem reyndu að standa
í vegi fyrir sér yrðu drepnir. Að því
loknu fór maðurinn út úr bílnum og
á brott. Hann var ófundinn í gær.
skyldu, enda beri þeir á sér önnur
skilríki eða heimildir er leyfi aðgang
þeirra að viðkomandi svæðum.
„Það er verið að færa þetta í takt
við þær breytingar sem orðið hafa,
í framhaldi af því að búið er að
flytja flugstöðina út úr miðri her-
stöðinni," sagði Þorgeir Þorsteins-
son lögreglustjóri á Keflavíkurflug-
velli aðspurður um tilefni þessarar
reglugerðar. Hann sagði að að hluta
til hefði þessi breyting áhrif inn i
flugstöðvarbygginguna, þar þyrfti
að aðskilja að vissu leyti umgang
milli lokaðra svæða. „Það verða gef-
in út skírteini með mynd af viðkom-
andi og í mismunandi litum sem
gefa aðgang að mismunandi svæð-
urn,“ sagði Þorgeir, en honum er í
reglugerðinni falið í samráði við
flugvallarstjóra að setja nánari regl-
ur um leyfisveitingu, meðferð og
notkun skírteinanna. Hann sagði að
verið væri að vinna að þeim reglum.
Atvinnuleysisbætur voru
133,5 milljónir 1 janúar
í janúarmánuði voru samtals
greiddar út úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði í atvinnuleysis-
bætur 133,656 milljónir króna.
Til samanburðar má geta þess að
á öllu síðasta ári voru greiddar
870 milljónir úr sjóðnum í at-
vinnuleysisbætur, sem er það
mesta sem greitt hefúr verið úr
honum frá upphafí.
Frá 1. febrúar eru fullar atvinnu-
leysisbætur, en þær hækkuðu í kjöl-
far kjarasamninganna, 1.912,64
krónur fyrir hvern vinnudag og
76,51 króna með hvetju barni yngra
en sextán ára. í meðalmánuði teljast
vera 21,67 vinnudagar.
Fjármagn sjóðsins kemur frá at-
vinnurekendum að fjórðungi og að
þremur fjórðu frá ríkinu. Atvinnu-
rekendur greiða 1% af byrjunartaxta
í fiskvinnu, sem er nú 8.254 krónur
á viku og ríkið leggur þrefalt á
móti. Sjóðurinn tók til starfa 1. apríl
1956 og í árslok 1988 voru rúmir
tveir milljarðar í honum.
i
i
í
I
i
I
1
Í
I
I
i
I
I
i
I
i