Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 7

Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 7
7 ■> ínoA iia.fFVHí ^trif! '■} i MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Aftiám sóknarmarksins: Eyjaflotinn yrði af um 1.800 tonnum af þorskígildum VIÐ afnám sóknarmarks eins og gert er ráð fyrir í drögum að frumvarpi um stjórnun fiskveiða yrði floti Vestmanneyinga af um 1.800 tonnum af þorskígildum miðað við slægðan físk, samkvæmt útreikningum Krisljáns Skarphéðinssonar hjá sjávarútvegsráðu- neytinu. Er þá miðað við nettóveiðiheimildir ársins 1989 og áætlað- ar bætur vegna afíiáms sóknarmarksins. Vestmanneyingar höfðu talið að niðurfelling sóknarmarksins hefði í för með sér að þeir töpuðu um 8.000 til 10.000 tonna afla af ýsu og ufsa að verðmæti um 300 til 400 milljón- ir króna, en áætlað verðmæti þess afla sem Kristján Skarphéðinsson hefur reiknað út að þeir gætu orðið af er á bilinu 80 til 100 milljónir króna. Samkvæmt útreikningum Krist- jáns eru áætlaðar veiðiheimildir Eyjaflotans fyrir árið 1989 18.172 lestir af þorski, 11.240 lestir af ýsu, 11.700 lestir af ufsa, 6.175 lestir af karfa og 23 lestir af grá- lúðu. Er þá miðað við aflamark skipanna eins og það var fyrir árið, það sem þau fluttu frá fyrra ári og það sem framselt var til Vest- mannaeyja, en dregið frá það sem flutt var til ársins 1990 og það sem framselt var frá Vestmannaeyjum, Einnig eru áætlaðar sérstakar bæt- ur til Vestmanneyinga vegna af- náms sóknarmarksins, og eins al- mennar bætur sem koma til allra. Afli þessara sömu skipa á síðasta ári var 18.564 lestir af þorski, 10.437 lestir af ýsu, 12.636 lestir af ufsa, 6.813 lestir af karfa og 1.996 lestir af grálúðu. Miðað við gefnar forsendur nemur munurinn því um 1.800 tonnum af þorskígild- um. * Fimmtán Islending- ar 100 ára eða eldri Aldís Einarsdóttir á Stokkahlöðum elst ALDÍS Einarsdóttir á Stokka- hlöðum í Eyjafirði er elsti nú- lifandi íslendingurinn. Hún er 105 ára, fædd 4. nóvember 1884. Nú eru 15 Islendingar 100 ára eða eldri, 14 konur og einn karlmaður. Þrjár kvenn- anna eru 101 árs og tíu 100 ára. Elsti karlmaðurinn er Anton Þorvarðarson á Glæsi- stöðum í Vestur-Landeyjum, 100 ára, fæddur 26. september 1889; Halldóra Bjarnadóttir á Blönduósi hefur náð hæsta aldri íslendinga, samkvæmt lista Hag- stofunnaryfirelstu íslendingana, en hann nær aftur til ársins 1951. Halldóra varð 108 ára, fæddist 14. október 1879 og lést 27. nóvember 1981. Fjórir aðrir ís- lendingar hafa náð 106 ára aldri og eru það allt konur. Guðrúnu Þórðardóttur á Húsavík vantaði rúman mánuð í 107 árið þegar hún lést 27. júlí 1986. Helga Brynjólfsdóttir í Hafnarfirði, sem lést 1953, Jenný Guðmundsdóttir í Vestmannaeyjum, sem lést 1985, og María Andrésdóttir í Stykkishótmi, sem lést 1965, náðu einnig 106 ára aldri. Sjötti í röðinni er Sigurður Þorvaldsson á Sleitustöðum í Skagafirði, sem lést í desember síðastliðinn, og vantaði einn mán- uð f 106 ára aldurinn. Hann er sá íslenski karlmaður sem náð hefur hæstum aldri. Þeir þrír karlmenn sem orðið hafa elstir eru Skagfirðingar. Þorvaldur Jónsson sem lengi bjó í Skaga- firði er næstur Sigurði á Sleitu- stöðum, var 104 ára þegar hann lést á síðasta ári og þriðji í röð- inni er Kristján Jóhann Jónsson frá Lambanesi í Fljótum sem var 104 ára þegar hann lést fyrir þtjátíu árum. ItSmðíi bfíl ©r bædl skottbfíl ©g skutbíllf OAIHATSU APPLAUSE Nýr og stærri framhjóladrifinn fjölskyldubíll frá Daihatsu, hlaðinn lúxusbúnaði, s.s.: 1600 cc 16 ventla vél, vökvastýri, samlæsingu á hurðum, sjálfstæðri fjöðrun á hverju hjóli og fáanlegur með sjálfskiptingu, veltistýri o.fi, o.fl. Daihatsu Applause er nútíma fjölskyldubfll meö einstakt notagildi — á frábæru verði Kr. 898.000,- stgr. á götuna Komið og reynsluakið Applause daihatsu Brimborg hf. - draumur aö aka Faxafeni 8, sími 685870 Ógleymanleg helgarrispa Flug til Stokkhólms og aftur til Keflavíkur, sigling á skemmtif erðaskipi í tvo daga og gisting á góðu hóteli í Helsinki með morgunverði. Allt fyrir 27.300* krónur Finnst þér ekki tímabært að gera eitthvað sem þú hefur ekki gert áður? UrfTborð í skemmtiferðaskipum Viking Line eru veitingastaðir, næturklúbbar, spilavíti, tollfrjálsar verslanir, ráðstefnusalir fyrir 12-300 manns, sundlaug og gufuböð. * Verðið miðast við flug til Stokkhólms og til baka, gistingu í 2ja manna C-klefa um borð í lúxusskipi Viking Line og gistingu í 2ja manna herbergi í Helsinki með morgunverði. Allar nánarí upplýsingar færðu á söluskrífstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. FLUGLEIDIR Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju, Kringlunni og Leifsstöð. Upplýsingar og farpantanir í síma 690 300. l9Þ-lÞP0tPÍ V|S/>mV

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.