Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 7
7
■> ínoA iia.fFVHí ^trif! '■} i
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Aftiám sóknarmarksins:
Eyjaflotinn yrði af
um 1.800 tonnum
af þorskígildum
VIÐ afnám sóknarmarks eins og gert er ráð fyrir í drögum að
frumvarpi um stjórnun fiskveiða yrði floti Vestmanneyinga af um
1.800 tonnum af þorskígildum miðað við slægðan físk, samkvæmt
útreikningum Krisljáns Skarphéðinssonar hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu. Er þá miðað við nettóveiðiheimildir ársins 1989 og áætlað-
ar bætur vegna afíiáms sóknarmarksins.
Vestmanneyingar höfðu talið að
niðurfelling sóknarmarksins hefði í
för með sér að þeir töpuðu um 8.000
til 10.000 tonna afla af ýsu og ufsa
að verðmæti um 300 til 400 milljón-
ir króna, en áætlað verðmæti þess
afla sem Kristján Skarphéðinsson
hefur reiknað út að þeir gætu orðið
af er á bilinu 80 til 100 milljónir
króna.
Samkvæmt útreikningum Krist-
jáns eru áætlaðar veiðiheimildir
Eyjaflotans fyrir árið 1989 18.172
lestir af þorski, 11.240 lestir af
ýsu, 11.700 lestir af ufsa, 6.175
lestir af karfa og 23 lestir af grá-
lúðu. Er þá miðað við aflamark
skipanna eins og það var fyrir árið,
það sem þau fluttu frá fyrra ári og
það sem framselt var til Vest-
mannaeyja, en dregið frá það sem
flutt var til ársins 1990 og það sem
framselt var frá Vestmannaeyjum,
Einnig eru áætlaðar sérstakar bæt-
ur til Vestmanneyinga vegna af-
náms sóknarmarksins, og eins al-
mennar bætur sem koma til allra.
Afli þessara sömu skipa á síðasta
ári var 18.564 lestir af þorski,
10.437 lestir af ýsu, 12.636 lestir
af ufsa, 6.813 lestir af karfa og
1.996 lestir af grálúðu. Miðað við
gefnar forsendur nemur munurinn
því um 1.800 tonnum af þorskígild-
um.
*
Fimmtán Islending-
ar 100 ára eða eldri
Aldís Einarsdóttir á Stokkahlöðum elst
ALDÍS Einarsdóttir á Stokka-
hlöðum í Eyjafirði er elsti nú-
lifandi íslendingurinn. Hún er
105 ára, fædd 4. nóvember
1884. Nú eru 15 Islendingar
100 ára eða eldri, 14 konur og
einn karlmaður. Þrjár kvenn-
anna eru 101 árs og tíu 100
ára. Elsti karlmaðurinn er
Anton Þorvarðarson á Glæsi-
stöðum í Vestur-Landeyjum,
100 ára, fæddur 26. september
1889;
Halldóra Bjarnadóttir á
Blönduósi hefur náð hæsta aldri
íslendinga, samkvæmt lista Hag-
stofunnaryfirelstu íslendingana,
en hann nær aftur til ársins 1951.
Halldóra varð 108 ára, fæddist
14. október 1879 og lést 27.
nóvember 1981. Fjórir aðrir ís-
lendingar hafa náð 106 ára aldri
og eru það allt konur. Guðrúnu
Þórðardóttur á Húsavík vantaði
rúman mánuð í 107 árið þegar
hún lést 27. júlí 1986. Helga
Brynjólfsdóttir í Hafnarfirði, sem
lést 1953, Jenný Guðmundsdóttir
í Vestmannaeyjum, sem lést
1985, og María Andrésdóttir í
Stykkishótmi, sem lést 1965,
náðu einnig 106 ára aldri.
Sjötti í röðinni er Sigurður
Þorvaldsson á Sleitustöðum í
Skagafirði, sem lést í desember
síðastliðinn, og vantaði einn mán-
uð f 106 ára aldurinn. Hann er
sá íslenski karlmaður sem náð
hefur hæstum aldri. Þeir þrír
karlmenn sem orðið hafa elstir
eru Skagfirðingar. Þorvaldur
Jónsson sem lengi bjó í Skaga-
firði er næstur Sigurði á Sleitu-
stöðum, var 104 ára þegar hann
lést á síðasta ári og þriðji í röð-
inni er Kristján Jóhann Jónsson
frá Lambanesi í Fljótum sem var
104 ára þegar hann lést fyrir
þtjátíu árum.
ItSmðíi bfíl
©r bædl skottbfíl ©g skutbíllf
OAIHATSU
APPLAUSE
Nýr og stærri framhjóladrifinn
fjölskyldubíll frá Daihatsu, hlaðinn
lúxusbúnaði, s.s.:
1600 cc 16 ventla vél, vökvastýri,
samlæsingu á hurðum, sjálfstæðri
fjöðrun á hverju hjóli og
fáanlegur með sjálfskiptingu,
veltistýri o.fi, o.fl.
Daihatsu Applause er nútíma fjölskyldubfll
meö einstakt notagildi — á frábæru verði
Kr. 898.000,- stgr. á götuna
Komið og reynsluakið Applause
daihatsu Brimborg hf.
- draumur aö aka Faxafeni 8, sími 685870
Ógleymanleg helgarrispa
Flug til Stokkhólms og aftur til Keflavíkur, sigling á skemmtif erðaskipi
í tvo daga og gisting á góðu hóteli í Helsinki með morgunverði.
Allt fyrir 27.300* krónur
Finnst þér ekki tímabært að gera eitthvað sem þú hefur ekki gert áður?
UrfTborð í skemmtiferðaskipum Viking Line eru veitingastaðir, næturklúbbar, spilavíti,
tollfrjálsar verslanir, ráðstefnusalir fyrir 12-300 manns, sundlaug og gufuböð.
* Verðið miðast við flug til Stokkhólms og til baka, gistingu í 2ja manna C-klefa um borð í lúxusskipi Viking Line og
gistingu í 2ja manna herbergi í Helsinki með morgunverði.
Allar nánarí upplýsingar færðu á söluskrífstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju, Kringlunni og Leifsstöð. Upplýsingar og farpantanir í síma 690 300.
l9Þ-lÞP0tPÍ V|S/>mV