Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 13
1 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 13 Sonur skóarans o g dóttir bakarans Fleur bræðir hjarta sjóarans í þorpinu. _________Leiklist____________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Thalia, leikfélag Menntaskólans við Sund, sýnir „Sonur skóarans og dóttir bakarans eða Söngur- inn frá My Lai“ eftir Jökul Jak- obsson. Tónlist/leikhljóð: Örlygur Sig- uijónsson og Finnur Björnsson. Lýsing: Gunnar K. Steinarsson. Leikmynd: Þórarinn Eyfjörð. Leikstjóri: Þórarinn Eyfjörð. Allt frá því að Hart í bak var frumsýnt í Iðnó 1962 og þar til Jökull lést í apríl 1978 var hann eitt mikilsvirtasta leikskáld okkar. Sonur skóarans og dóttir bakrans var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í september 1978 en forsýningar höfðu verið á Listahátíð fyrr um sumarið. Eins og Sjóleiðin til Bagdad fjallar það öðrum þræði um ungan pilt sem kemur heim í litla þorpið sitt eftir langa fjarveru, í leit að óbrjálaðri tilveru. Piltur- inn, Jói, hefur farið víða og m.a. tekið þátt í stríði hinum megin á hnettinum og lagt þar lítil þorp í rúst. Þorp eins og þorpið hans á íslandi. Þegar hann kemur aftur heim er allt athafnalíf þorpsins lamað því að verksmiðjunni hefur verið lokað og eymdin ríkir á öllum sviðum. Með Jóa í förinni er Kap, maður fjármagnsins. Hann kaupir verksmiðjuna og allt fer á fulla ferð á ný. Inn í þessa sögu fléttast svo ástarsaga Jóa og Dísu, sonar skóarans og dóttur bakarans. Jói hélt að Dísa biði hans ennþá, en hann hafði verið of lengi í burtu. Og svo er það Fleur sem er komin í þetta litla þorp alla leið úr öðru þorpi hinum megin af hnettinum sem varð gjöreyðingunni að bráð. Sjálf missti hún hendurnar en hún er ekki í leit að hefnd heldur að spiladósinni sem afi hennar gaf henni. Spiladósin var það eina sem Jói kom með heim utan úr hinum stóra heimi. Hér eru margir þræðir fléttaðir saman og kannski fullmargir. Sýn- ing Thaliu leggur megináhersluna á að sýna vald fjármagnsins yfir lífí og dauða. Þess sem Kap er holdgerving fyrir. Þeir sem reyna að lifa fyrir andans hugsjónir eru hlægilegar verur eins og Albjartur barnaskólakennari. Hann lifir ekki í veruleikanum heldur í draumheimi skáldskaparins og er sífellt hafður að skotspæni í þorpinu. Réttlætið nær þó fram að ganga í lokin er Fleur og Jói sprengja upp verk- smiðjuna sem framleiðir ekki vítamín eins og Kap telur fólki trú um, heldur sams konar efni og gjör- eyddi þorpinu hennar Fleur. Þetta verk er langt frá því að vera besta leikverk Jökuls. Hið góða og hið illa eru full einfaldar andstæður og í lokin stendur eftir draumurinn um betra líf: maður og kona, bátur, matjurtagarður, einfalt og saklaust líf; draumsýn nútímamannsins sem því miður stenst sjaldnast. Leikmyndin var einföld og góð. Ryðgaðar bárujárnsplötur gáfu til kynna niðumíðslu þorpsins en þeg- ar peningar Kaps voru komnir til sögunnar voru þær málaðar í skær- um og sterkum litum. Sviðskipting- ar eru nokkuð tíðar í textanum. Leikurinn gerist niður við bryggju, inni á hóteli Fíu, úti á torgi, í kirkju- garðinum og fleiri stöðum. Leik- myndin þjónar þessu ágætlega og er oft um haganlegar lausnir að ræða. Lýsingin hjápaði líka til og átti sinn þátt í því að skapa ólík leikrými. Búningarnir tókust hins vegar ekki eins vel. Þorpsbúar voru klæddir eins og á fjórða áratugnum eða þar um bil. En Kap og Jói voru klæddir á nútímavísu. Það er að vísu aldrei gefínn upp neinn ákveðinn tími í leikritinu en aug- ljóst virðist þó að það gerist eftir Víetnamstríðið. Þessi misvísun í búningum verður því stílbrot og veikir heildarmyndina. Leikararnir stóðu stig flestir ágætlega þó þeir væru auðvitað misjafnlega öruggir. Eiríkur Sig- urðsson lék Jóa og tókst vel upp. Hann var afslappaður og eðlilegur í hlutverki sínu og hefur góða og skýra rödd. Fanney Sigurðardóttir í hlutverki Fíu hótelstýru var ekki síður góð. Hún lék af krafti og gustaði af henni þegar hún setti ofaní við þorpsbúa. Þessi tvö voru að hinum ólöstuðum langbest. Bogi Birgisson og Brynhildur Einars- dottir voru í hlutverkum Albjarts og Matthildar konu hans. Bogi var oft sniðugur en mátti stundum gæta sín á að ofleika ekki. Svandís Nína Jónsdóttir lék Dísu og Þor- gerður Magnúsdóttir lék Fleur. Það var einna helst að þær væru svolít- ið deyfðarlegar en hlutverkin bjóða heldur ekki upp á mikið. Auðun G. Ólafsson var prýðilegur oddviti með mikla og djúpa rödd en Ellert B. Sigþórsson í hlutverki Kaps hefði mátt passa framburð aðeins betur. Aðrir leikarar voru í smærri hlutverkum og flestir með fleiri en eitt. Auðvitað getur maður ekki gert kröfu um að þetta unga fólk búi yfir tækni á við menntaða leikara. Á móti kemur að leikáhuginn er yfirleitt mikill og það er það besta við skólasýningarnar. Þær sýna að ungt fólk hefur áhuga á leiklist og ræktar hann, hafi það tækifæri til. Sýningin rann ágætlega hjá þess- um ungu leikurum og óhætt að hvetja fólk til að eyða með þeim einni kvöldstund í leikhúsnæði Frú Emilíu í Skeifunni. Öflug rvksuga! VS91153 • Stillanlegur sogkraftur (250- 1100 W). • 4 fylgihlutir í inn- byggðu hólfi. • Fjórföld sýklasía í útblæstri. !• Sjálfinndregin snúra || og hleðsluskynjari. • SfEMENS framleiðsla |' tryggir endingu og gæði. • Verð kr. 16.500,- ■ SMUH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Nýjung á Islandi Svalahurðir úr límtré. Nú getum við boðið svalaburðir úr límtré þar sem kjarnviður er límdur á risju. Það dregur úr spennu sem annars myndast við rakabreytingu frá umbverfinu og eykur jafnframt styrk efnisins þannig að minni hætta er á vindingi og svignun í burðinni. Þetta leysir af bóbni Oregon-furu sem hefur verið notuð til þessa í mörg ár, með misjöfnum árangri. Við bjóðum einnig sérstök dropnef, bæði á hurðina sjálfa og fyrir ofan burðir og fóg, til þess að fyrirbyggja að það vatn, sem lekur niður vegginn fyrir ofan, leiti inn á miHi karms og hurðar eða fags. Slíkir hlutir þóttu sjálfsagðir bér áður fyrr, en hafa því miður orðið útundan í þeim mikla hraða sem einkennt hefur allar byggingaframkvæmdir síðustu áratugi. Allir okkar gluggar, fög og svalahurðir, eru gerð fyrir hið fjölbreytta úrval af lömum og læsingum frá IPA sem hægt er að nota án nokkurra breytinga eða fyrirhafna. íhÆ \\ víA \ \V \ \ \ /77 .. , ý/MW'/, /(«/</</ K\v\\Wv\V\x '///«//////«/ m Vy///Æ/A\\\w\ TRESMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSSONAR ht V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI SÍMAR: 54444, 54495 \V\V V\V\\\\\\xN-Vx\\ FYRSTIR OG FREMSTIR I HURÐASMIÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.