Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 13
1
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
13
Sonur skóarans
o g dóttir bakarans
Fleur bræðir hjarta sjóarans í þorpinu.
_________Leiklist____________
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Thalia, leikfélag Menntaskólans
við Sund, sýnir „Sonur skóarans
og dóttir bakarans eða Söngur-
inn frá My Lai“ eftir Jökul Jak-
obsson.
Tónlist/leikhljóð: Örlygur Sig-
uijónsson og Finnur Björnsson.
Lýsing: Gunnar K. Steinarsson.
Leikmynd: Þórarinn Eyfjörð.
Leikstjóri: Þórarinn Eyfjörð.
Allt frá því að Hart í bak var
frumsýnt í Iðnó 1962 og þar til
Jökull lést í apríl 1978 var hann
eitt mikilsvirtasta leikskáld okkar.
Sonur skóarans og dóttir bakrans
var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í
september 1978 en forsýningar
höfðu verið á Listahátíð fyrr um
sumarið. Eins og Sjóleiðin til
Bagdad fjallar það öðrum þræði
um ungan pilt sem kemur heim í
litla þorpið sitt eftir langa fjarveru,
í leit að óbrjálaðri tilveru. Piltur-
inn, Jói, hefur farið víða og m.a.
tekið þátt í stríði hinum megin á
hnettinum og lagt þar lítil þorp í
rúst. Þorp eins og þorpið hans á
íslandi. Þegar hann kemur aftur
heim er allt athafnalíf þorpsins
lamað því að verksmiðjunni hefur
verið lokað og eymdin ríkir á öllum
sviðum. Með Jóa í förinni er Kap,
maður fjármagnsins. Hann kaupir
verksmiðjuna og allt fer á fulla
ferð á ný. Inn í þessa sögu fléttast
svo ástarsaga Jóa og Dísu, sonar
skóarans og dóttur bakarans. Jói
hélt að Dísa biði hans ennþá, en
hann hafði verið of lengi í burtu.
Og svo er það Fleur sem er komin
í þetta litla þorp alla leið úr öðru
þorpi hinum megin af hnettinum
sem varð gjöreyðingunni að bráð.
Sjálf missti hún hendurnar en hún
er ekki í leit að hefnd heldur að
spiladósinni sem afi hennar gaf
henni. Spiladósin var það eina sem
Jói kom með heim utan úr hinum
stóra heimi.
Hér eru margir þræðir fléttaðir
saman og kannski fullmargir. Sýn-
ing Thaliu leggur megináhersluna
á að sýna vald fjármagnsins yfir
lífí og dauða. Þess sem Kap er
holdgerving fyrir. Þeir sem reyna
að lifa fyrir andans hugsjónir eru
hlægilegar verur eins og Albjartur
barnaskólakennari. Hann lifir ekki
í veruleikanum heldur í draumheimi
skáldskaparins og er sífellt hafður
að skotspæni í þorpinu. Réttlætið
nær þó fram að ganga í lokin er
Fleur og Jói sprengja upp verk-
smiðjuna sem framleiðir ekki
vítamín eins og Kap telur fólki trú
um, heldur sams konar efni og gjör-
eyddi þorpinu hennar Fleur.
Þetta verk er langt frá því að
vera besta leikverk Jökuls. Hið
góða og hið illa eru full einfaldar
andstæður og í lokin stendur eftir
draumurinn um betra líf: maður
og kona, bátur, matjurtagarður,
einfalt og saklaust líf; draumsýn
nútímamannsins sem því miður
stenst sjaldnast.
Leikmyndin var einföld og góð.
Ryðgaðar bárujárnsplötur gáfu til
kynna niðumíðslu þorpsins en þeg-
ar peningar Kaps voru komnir til
sögunnar voru þær málaðar í skær-
um og sterkum litum. Sviðskipting-
ar eru nokkuð tíðar í textanum.
Leikurinn gerist niður við bryggju,
inni á hóteli Fíu, úti á torgi, í kirkju-
garðinum og fleiri stöðum. Leik-
myndin þjónar þessu ágætlega og
er oft um haganlegar lausnir að
ræða. Lýsingin hjápaði líka til og
átti sinn þátt í því að skapa ólík
leikrými.
Búningarnir tókust hins vegar
ekki eins vel. Þorpsbúar voru
klæddir eins og á fjórða áratugnum
eða þar um bil. En Kap og Jói
voru klæddir á nútímavísu. Það er
að vísu aldrei gefínn upp neinn
ákveðinn tími í leikritinu en aug-
ljóst virðist þó að það gerist eftir
Víetnamstríðið. Þessi misvísun í
búningum verður því stílbrot og
veikir heildarmyndina.
Leikararnir stóðu stig flestir
ágætlega þó þeir væru auðvitað
misjafnlega öruggir. Eiríkur Sig-
urðsson lék Jóa og tókst vel upp.
Hann var afslappaður og eðlilegur
í hlutverki sínu og hefur góða og
skýra rödd. Fanney Sigurðardóttir
í hlutverki Fíu hótelstýru var ekki
síður góð. Hún lék af krafti og
gustaði af henni þegar hún setti
ofaní við þorpsbúa. Þessi tvö voru
að hinum ólöstuðum langbest. Bogi
Birgisson og Brynhildur Einars-
dottir voru í hlutverkum Albjarts
og Matthildar konu hans. Bogi var
oft sniðugur en mátti stundum
gæta sín á að ofleika ekki. Svandís
Nína Jónsdóttir lék Dísu og Þor-
gerður Magnúsdóttir lék Fleur. Það
var einna helst að þær væru svolít-
ið deyfðarlegar en hlutverkin bjóða
heldur ekki upp á mikið. Auðun
G. Ólafsson var prýðilegur oddviti
með mikla og djúpa rödd en Ellert
B. Sigþórsson í hlutverki Kaps
hefði mátt passa framburð aðeins
betur. Aðrir leikarar voru í smærri
hlutverkum og flestir með fleiri en
eitt.
Auðvitað getur maður ekki gert
kröfu um að þetta unga fólk búi
yfir tækni á við menntaða leikara.
Á móti kemur að leikáhuginn er
yfirleitt mikill og það er það besta
við skólasýningarnar. Þær sýna að
ungt fólk hefur áhuga á leiklist og
ræktar hann, hafi það tækifæri til.
Sýningin rann ágætlega hjá þess-
um ungu leikurum og óhætt að
hvetja fólk til að eyða með þeim
einni kvöldstund í leikhúsnæði Frú
Emilíu í Skeifunni.
Öflug rvksuga!
VS91153
• Stillanlegur sogkraftur
(250- 1100 W).
• 4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
• Fjórföld sýklasía í
útblæstri.
!• Sjálfinndregin snúra ||
og hleðsluskynjari.
• SfEMENS framleiðsla |'
tryggir endingu og gæði.
• Verð kr. 16.500,- ■
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Nýjung á Islandi
Svalahurðir úr límtré.
Nú getum við boðið svalaburðir úr límtré þar sem kjarnviður er límdur á risju. Það dregur úr
spennu sem annars myndast við rakabreytingu frá umbverfinu og eykur jafnframt styrk
efnisins þannig að minni hætta er á vindingi og svignun í burðinni. Þetta leysir af bóbni
Oregon-furu sem hefur verið notuð til þessa í mörg ár, með misjöfnum árangri.
Við bjóðum einnig sérstök dropnef, bæði á hurðina sjálfa og fyrir ofan burðir og fóg, til þess
að fyrirbyggja að það vatn, sem lekur niður vegginn fyrir ofan, leiti inn á miHi karms og hurðar
eða fags. Slíkir hlutir þóttu sjálfsagðir bér áður fyrr, en hafa því miður orðið útundan í þeim
mikla hraða sem einkennt hefur allar byggingaframkvæmdir síðustu áratugi.
Allir okkar gluggar, fög og svalahurðir, eru gerð fyrir hið fjölbreytta úrval af lömum og læsingum
frá IPA sem hægt er að nota án nokkurra breytinga eða fyrirhafna.
íhÆ
\\ víA \ \V \ \ \
/77 .. ,
ý/MW'/,
/(«/</</
K\v\\Wv\V\x
'///«//////«/ m
Vy///Æ/A\\\w\
TRESMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR ht
V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI
SÍMAR: 54444, 54495
\V\V V\V\\\\\\xN-Vx\\
FYRSTIR OG FREMSTIR I HURÐASMIÐI