Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
19
Stórsigur þjóðernissinna í þingkosningum í Litháen:
Boða að landið fái sjálf-
stæði á ný á þessu ári
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
SAJUDIS, hreyfing þjóðernissinna, vann stórsigur í þing'kosnirigum
sem fram fóru í Sovétlýðveldinu Litháen á laugardag. Fi'ambjóðend-
ur er nutu stuðnings hreyfingarinnar unnu 72 af 90 sætum og náðu
þar með hreinum meirihluta á þingi en þar situr 141 fulltrúi. Tals-
menn Sajudis sögðu úrslitin sýna að almenningur í lýðveldinu vildi
að Litháen yrði á ný sjálfstætt ríki og boðuðu úrsögn úr sovéska
ríkjasambandinu á þessu ári.
Þetta er í fyrsta skipti frá árinu
1917 sem fijálsar þingkosningar
fara fram í Sovétríkjunum. Það ár
tóku nokkrir flokkar þátt í kosning-
um til stjórnlagaþings sem bolsje-
vikkar leystu síðan upp með valdi
ári síðar.
Umbótasinnuðum
kommúnistum haftiað
Því hafði verið spáð að Sajudis
færi með sigur af hólmi í kosning-
unum en engu að síður kom á óvart
hversu mikið fylgi frámbjóðendur
hreyfingarinnar reyndust hafa. A
sunnudag var frá því skýrt að full-
trúar hreyfingarinnar hefðu unnið
72 þingsæti af 90. Hins vegar eru
nokkrir þeirra sem náðu kjöri
kommúnistar sem þó nutu stuðn-
ings Sajudis. Kommúnistar unnu
alls 29 þingsæti og kom lítið fylgi
þeirra verulega á óvart. Tveir flokk-
ar kommúnista buðu fram í kosn-
ingunum og fengu harðlínumenn,
sem enn fylgja stjórnvöldum í
Moskvu að málum og eru andvígir
úrsögn Litháa úr sovéska ríkjasam-
bandinu, sjö menn kjörna. Fylgi sitt
sóttu þeir einkum til aðfluttra
Rússa í lýðveldinu og pólska minni-
hlutans.
Flokkur umbótasinnaðra komm-
únista sem sagði sig úr lögum við
Moskvu-valdið í desember, fékk 22
menn kjöma en nokkrir þeirra nutu
stuðnings Sajudis eins og áður
sagði. Höfðu menn ætlað að um-
bótasinnar nytu meira trausts á
meðal þjóðarinnar, Alltjent hermdu
fréttir að sú ákvörðun þeirra að
slíta sambandinu við Moskvu hefði
mælst vel fyrir meðal alþýðu manna
auk þess sem leiðtogi flokksins,
Algirdas Brazauskas, er vinsælasti
stjórnmálamaður lýðveldisins. Jafn-
aðarmenn fengu níu menn og
Græningjar og kristilegir demó-
kratar tvo menn hvor.
Úrslit fengust ekki í 45 kjördæm-
um og verður kosið á ný milli
tveggja efstu manna 10. mars auk
þess sem kosið verður að nýju í sex
kjördæmum. í nokkrum tilvikum
munu tveir frambjóðendur, sem
njóta stuðnings Sajudis, keppa um
sæti á þingi. Algimantas Cekuolis,
einn leiðtoga flokks umbótasinn-
aðra kommúnista sem einnig naut
stuðnings Sajudis, kvaðst telja að
hreyfingin myndi alls hafa 95 til
100 fulltrúa á þingi eftir kosning-
arnar í næsta mánuði.
Samsteypusljórn verður
mynduð
Vytautas Landsbergis, leiðtogi
Sajudis, sagði úrslitin mikilvægan
sigur fyrir hreyfinguna. Alþýða
manna í lýðveldinu hefði veitt
stjórnvöldum umboð til að heija
viðræður við ráðamenn í Moskvu
um úrsögn Litháa úr sovéska ríkja-
sambandinu og stofnun sjálfstæðs
ríkis. Lýsti hann yfir því að sjálf-
stæði Litháa væri ekki lengur
stefnumál framtíðarinnar heldur
væri nú hugsanlegt að þessu mark-
miði þjóðernissinna yrði náð á þessu
ári en Eystrasaltsríkin þijú, Eist-
land, Lettland og Litháen, nutu
sjálfstæðis á árunum milli heims-
styijaldanna. Hann sagði að nú
væri það undir þinginu komið að
mynda nýja ríkisstjórn í Litháen.
Sagði hann engan vafa leika á því
að samsteypustjórn yrði mynduð en
kvaðst ekíri telja að vilji væri fyrir
því að mynduð yrði stjórn með þátt-
töku þeirra sem væru því andvígir
að stofnað yrði sjálfstætt ríki Lit-
háa.
Líklegt þykir að Algirdas Braz-
auskas verði næst forseti Litháen
og að það komi í hans hlut að
stjórna samningaviðræðunum við
ráðamenn í Moskvu. Romualdas
Ozolas, sem á sæti í stjórnmálaráði
lítháenska kommúnistaflokksins,
sagði á fundi með blaðamönnum á
sunnudag að flokknum bæri nú að
hefja samningaviðræður um úrsögn
Vinningstölur laugardaginn
24. feb. ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 . 5 af 5 1 2.473.872
O Z. 4af5^§pl 3~~ 143.357
3. 4af5 108 6.869
4. 3af 5 4.049 427
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.374.718 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
úr ríkjasambandinu. „Vilji stjórn-
völd í Moskvu ekki ganga til slíkra
viðræðna er brostnar forsendurnar
fyrir því að starfrækja flokk komm-
únista í Litháen. Tilgangur flokks-
ins er nú einvörðungu sá að við-
halda formlegum tengslum við
Moskvu".
Lettneskir kommúnistar
vilja óháðan flokk
. Kommúnistar í nágrannaríkinu
Lettlandi samþykktu á laugardag
að fara að fordæmi Litháa og segja
skilið við flokksstjórnina í Moskvu.
Ákveðið var að nýr og óháður flokk-
ur yrði formlega stofnaður á sérs-
takri flokksráðstefnu þann 14.
apríl. Sovéska fréttastofan TASS
sagði að ágreiningur væri uppi
meðal lettneskra kommúnista og
kvað flokkinn í raun klofinn. I þriðja
Eystrasaltsríkinu, Eistlandi, sam-
þykktu þingmenn með 194 atkvæð-
um gegn 14 að leita eftir viðræðum
við ráðamenn í Moskvu um sjálf-
stæði landsins. I samþykktinni
sagði og að tryggja bæri þátttöku
Eistlendinga í viðræðum um sam-
einingu þýsku ríkjanna tveggja auk
þess sem því var lýst yfir að fulltrú-
ar Eistlands myndu sitja framhalds-
fund Helsinki-ráðstefnunnar árið
1992.
ALLAR GERÐIR
STIMPLA
PENNASTIMPLAR
Skapaðu þér ímynd með okkar
sjálfblekandi stimpilpenna, það
gæti gert gæfumuninn
að hafa stimpil með
nafni þínu, fyrirtæki
eða góðu slagorði alltaf
við hendina.
STIMPLAGERÐ
l>0a]s[kis
KRÓKHÁLSl 6 SÍMI 67 1900
* /
MUNIÐ
MERKJASÖLUNA
RAUÐI KROSS ÍSLANÐSj
SKIPA PL0TUR - INNRETTINGAR
SKIPAPLÖTUR í LESTAR
. B0R0-SERVANT PLÖTUR
IWC HÓLF ME0 HURÐ
| BAÐHERBERGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR
N0RSK VIÐURKENND HÁGÆÐA VARA
b.MRBBlMSSOH tCO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
KAFFIRJÓMI ■ GEYMSLUÞOLim RJÓMI
KAFFIRJOMI
þegar þú \ill rjómabragd
af kaffinu þínu
Rjómabragðið er á sínum stað þótl fitu-
innihaldið sé aðeins 12%.
Kaffirjóminn er G-vara og geymist
mánuðum saman utan kælis.
Vei kældur bragðast hann
sem besta rjómabland
úl á skyr og
ávaxtagrauta.
nmr
KAFFIRJÓMI ■ GEYMSL UÞOLINN RJÓMI
Bílalyftur
2ja oy 4ra pósta
Verð frá kr. 208.700,-
án vsk.
Olíufélagið hf
681100
SIEMENS
Frábœr eldavél!
HL66120
5 ólíkar hitunaraðferðin
venjuleg hitun, hitun
með blæstri, glóðar-
steiking m. blæstri,
venjuleg glóðarsteiking
og sjálfvirk steiking.
Keramíkhelluborð.
Rafeindaklukka.
S***^%ð'
I -^09
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300