Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 19 Stórsigur þjóðernissinna í þingkosningum í Litháen: Boða að landið fái sjálf- stæði á ný á þessu ári Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. SAJUDIS, hreyfing þjóðernissinna, vann stórsigur í þing'kosnirigum sem fram fóru í Sovétlýðveldinu Litháen á laugardag. Fi'ambjóðend- ur er nutu stuðnings hreyfingarinnar unnu 72 af 90 sætum og náðu þar með hreinum meirihluta á þingi en þar situr 141 fulltrúi. Tals- menn Sajudis sögðu úrslitin sýna að almenningur í lýðveldinu vildi að Litháen yrði á ný sjálfstætt ríki og boðuðu úrsögn úr sovéska ríkjasambandinu á þessu ári. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1917 sem fijálsar þingkosningar fara fram í Sovétríkjunum. Það ár tóku nokkrir flokkar þátt í kosning- um til stjórnlagaþings sem bolsje- vikkar leystu síðan upp með valdi ári síðar. Umbótasinnuðum kommúnistum haftiað Því hafði verið spáð að Sajudis færi með sigur af hólmi í kosning- unum en engu að síður kom á óvart hversu mikið fylgi frámbjóðendur hreyfingarinnar reyndust hafa. A sunnudag var frá því skýrt að full- trúar hreyfingarinnar hefðu unnið 72 þingsæti af 90. Hins vegar eru nokkrir þeirra sem náðu kjöri kommúnistar sem þó nutu stuðn- ings Sajudis. Kommúnistar unnu alls 29 þingsæti og kom lítið fylgi þeirra verulega á óvart. Tveir flokk- ar kommúnista buðu fram í kosn- ingunum og fengu harðlínumenn, sem enn fylgja stjórnvöldum í Moskvu að málum og eru andvígir úrsögn Litháa úr sovéska ríkjasam- bandinu, sjö menn kjörna. Fylgi sitt sóttu þeir einkum til aðfluttra Rússa í lýðveldinu og pólska minni- hlutans. Flokkur umbótasinnaðra komm- únista sem sagði sig úr lögum við Moskvu-valdið í desember, fékk 22 menn kjöma en nokkrir þeirra nutu stuðnings Sajudis eins og áður sagði. Höfðu menn ætlað að um- bótasinnar nytu meira trausts á meðal þjóðarinnar, Alltjent hermdu fréttir að sú ákvörðun þeirra að slíta sambandinu við Moskvu hefði mælst vel fyrir meðal alþýðu manna auk þess sem leiðtogi flokksins, Algirdas Brazauskas, er vinsælasti stjórnmálamaður lýðveldisins. Jafn- aðarmenn fengu níu menn og Græningjar og kristilegir demó- kratar tvo menn hvor. Úrslit fengust ekki í 45 kjördæm- um og verður kosið á ný milli tveggja efstu manna 10. mars auk þess sem kosið verður að nýju í sex kjördæmum. í nokkrum tilvikum munu tveir frambjóðendur, sem njóta stuðnings Sajudis, keppa um sæti á þingi. Algimantas Cekuolis, einn leiðtoga flokks umbótasinn- aðra kommúnista sem einnig naut stuðnings Sajudis, kvaðst telja að hreyfingin myndi alls hafa 95 til 100 fulltrúa á þingi eftir kosning- arnar í næsta mánuði. Samsteypusljórn verður mynduð Vytautas Landsbergis, leiðtogi Sajudis, sagði úrslitin mikilvægan sigur fyrir hreyfinguna. Alþýða manna í lýðveldinu hefði veitt stjórnvöldum umboð til að heija viðræður við ráðamenn í Moskvu um úrsögn Litháa úr sovéska ríkja- sambandinu og stofnun sjálfstæðs ríkis. Lýsti hann yfir því að sjálf- stæði Litháa væri ekki lengur stefnumál framtíðarinnar heldur væri nú hugsanlegt að þessu mark- miði þjóðernissinna yrði náð á þessu ári en Eystrasaltsríkin þijú, Eist- land, Lettland og Litháen, nutu sjálfstæðis á árunum milli heims- styijaldanna. Hann sagði að nú væri það undir þinginu komið að mynda nýja ríkisstjórn í Litháen. Sagði hann engan vafa leika á því að samsteypustjórn yrði mynduð en kvaðst ekíri telja að vilji væri fyrir því að mynduð yrði stjórn með þátt- töku þeirra sem væru því andvígir að stofnað yrði sjálfstætt ríki Lit- háa. Líklegt þykir að Algirdas Braz- auskas verði næst forseti Litháen og að það komi í hans hlut að stjórna samningaviðræðunum við ráðamenn í Moskvu. Romualdas Ozolas, sem á sæti í stjórnmálaráði lítháenska kommúnistaflokksins, sagði á fundi með blaðamönnum á sunnudag að flokknum bæri nú að hefja samningaviðræður um úrsögn Vinningstölur laugardaginn 24. feb. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1 . 5 af 5 1 2.473.872 O Z. 4af5^§pl 3~~ 143.357 3. 4af5 108 6.869 4. 3af 5 4.049 427 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.374.718 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 úr ríkjasambandinu. „Vilji stjórn- völd í Moskvu ekki ganga til slíkra viðræðna er brostnar forsendurnar fyrir því að starfrækja flokk komm- únista í Litháen. Tilgangur flokks- ins er nú einvörðungu sá að við- halda formlegum tengslum við Moskvu". Lettneskir kommúnistar vilja óháðan flokk . Kommúnistar í nágrannaríkinu Lettlandi samþykktu á laugardag að fara að fordæmi Litháa og segja skilið við flokksstjórnina í Moskvu. Ákveðið var að nýr og óháður flokk- ur yrði formlega stofnaður á sérs- takri flokksráðstefnu þann 14. apríl. Sovéska fréttastofan TASS sagði að ágreiningur væri uppi meðal lettneskra kommúnista og kvað flokkinn í raun klofinn. I þriðja Eystrasaltsríkinu, Eistlandi, sam- þykktu þingmenn með 194 atkvæð- um gegn 14 að leita eftir viðræðum við ráðamenn í Moskvu um sjálf- stæði landsins. I samþykktinni sagði og að tryggja bæri þátttöku Eistlendinga í viðræðum um sam- einingu þýsku ríkjanna tveggja auk þess sem því var lýst yfir að fulltrú- ar Eistlands myndu sitja framhalds- fund Helsinki-ráðstefnunnar árið 1992. ALLAR GERÐIR STIMPLA PENNASTIMPLAR Skapaðu þér ímynd með okkar sjálfblekandi stimpilpenna, það gæti gert gæfumuninn að hafa stimpil með nafni þínu, fyrirtæki eða góðu slagorði alltaf við hendina. STIMPLAGERÐ l>0a]s[kis KRÓKHÁLSl 6 SÍMI 67 1900 * / MUNIÐ MERKJASÖLUNA RAUÐI KROSS ÍSLANÐSj SKIPA PL0TUR - INNRETTINGAR SKIPAPLÖTUR í LESTAR . B0R0-SERVANT PLÖTUR IWC HÓLF ME0 HURÐ | BAÐHERBERGISÞIUUR LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR N0RSK VIÐURKENND HÁGÆÐA VARA b.MRBBlMSSOH tCO Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640 KAFFIRJÓMI ■ GEYMSLUÞOLim RJÓMI KAFFIRJOMI þegar þú \ill rjómabragd af kaffinu þínu Rjómabragðið er á sínum stað þótl fitu- innihaldið sé aðeins 12%. Kaffirjóminn er G-vara og geymist mánuðum saman utan kælis. Vei kældur bragðast hann sem besta rjómabland úl á skyr og ávaxtagrauta. nmr KAFFIRJÓMI ■ GEYMSL UÞOLINN RJÓMI Bílalyftur 2ja oy 4ra pósta Verð frá kr. 208.700,- án vsk. Olíufélagið hf 681100 SIEMENS Frábœr eldavél! HL66120 5 ólíkar hitunaraðferðin venjuleg hitun, hitun með blæstri, glóðar- steiking m. blæstri, venjuleg glóðarsteiking og sjálfvirk steiking. Keramíkhelluborð. Rafeindaklukka. S***^%ð' I -^09 SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.