Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 26

Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 26
Autjtýsingastota Gunnars. 26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Bjóðum nú BLUE CHIP, PC og XT tölvur með mús og 2 ára ábyrgð, á einstöku tilboðsverði frá kr. 59.900_ Nú er tœkifœri til að fjáifesta ífullkominni PC eða XT tölvu BLUE CHIP tölvurnar eru meðal 10 mest seldu vélunum í Bandaríkjunum í dag. L TAKMARKAÐ MAGN Að auki bjóðum við tölvu + /' /i n ít/ii' i»i r /1 o /i // /i 1A rt Skipholti 17, 105 Reykjavík, sími: 91-27333. Fullhomi#? lína atvinnutæhja KONICA IJ-BIX Ijósritunarvélar eru þekhtar fyrir gæði og endingu Veldu einungis það besta — það borgar sig Á MARKAÐI Bjarni Sigtryggsson Nú eru dýrráðgóð! Verðlagsráð hefur kunngjört að rekstrarráðgjöfum leyfist ekki að taka hærra gjald fyrir hollráð sín en tekið var á gamlársdag síðastliðinn. Þetta virðist vera hluti af því að framfylgja fyrir- heitum almennra kjarasamninga um almenna verðstöðvun í landinu. Ákvarðanir af þessu tagi eru, eins og Verðlagsráð sjálft, grát- broslegt dæmi um tímaskekkju og staðfestir að hugsunarháttur skömmtunaráranna hefur orðið eftir einhvers staðar í stjórnkerf- inu meðan samfélagið sjálft hefur tekið almennum breytingum í takt við þróun umheimsins. Með stofnauka að vopni Það versta við stjórnvaldsað- gerðir af þessu tagi er sú hugsun sem býr þeim að baki. Nefnilega sú, að þróuninni skuli stýrt og stjórnað frá einum stað. Arftakar skömmtunarstjóranna tneð stofn- auka sína og smjörlíkisseðla að vopni hafa ekki frétt af þeirri þróun sem varð í föðurlöndum forræðishyggjunnar austantjalds, né virðast þeir gera sér grein fyr- ir því, að Islendingar eru nú al- mennt farnir að líta til aukinnar þátttöku í alþjóðlegum viðskipt- um, þar sem gæði framboðs og styrkur eftirspurnar hafa tekið við af stofnaukunum. Opinberar tilskipanir um verð- lagningu sérhæfðrar og mjög ein- staklingsbundinnar þjónustu eru svipaðar því og gefinn væri út taxti fyrir listmálara að selja málverk sín eftir, þar sem tiltekið gjald skuli greiðast fyrir hvern málaðan fersentimetra. Gömul sannindi í rauninni er ekkert sem segir að það þurfi að setja verðlags- hömlur í kjölfar kjarasamning- anna. Samningar um litla kaup- hækkun draga sjálfkrafa úr eftir- spurn. Það leiðir aftur á móti til lítilla verðhækkana — og þarf ekki opinberar tilskipanir til. Það eru hins vegar gömul sannindi að góð ráð séu jafnan dýr. Önnur eru yfirleitt ókeypis. -Henti það einu fyrirtæki að leita mikilvægrar „Það eru gömul sannindi að góð ráð séu jafnan dýr. Önnur eru yfir- leitt ókeyp- ráðgjafar um vandasöm úrlausn- arefni, þá er það jafnan reiðubúið að greiða forgangsverð fyrir. Oft- ast borga slík ráð sig með rentum. Opinber afskipti af verðlags- málum yfirleitt eru auk þess arna iítilsvirðing við sjálfsákvörðunar- rétt fijálsra borgara. Sú forn- hyggja að einhverjir opinberir embættismenn eigi að meðhöndla almenning eins og ómálga börn — leyfa þetta og banna hitt — skip- ar okkur á bekk með þeim ríkjum, sem dregist hafa aftur úr í sam- félagsþróuninni. Hugsað um leikreglur Verðlagsstofnun er enn að gefa út verðsamanburð á súpudiskum án tillits til gæða eða umhvérfis í stað þess að beina kröftum sínum að eftirliti með hringamyndun eða einokunaraðferðum. Verðlagsráð er enn að koma saman til þess að ákveða það að öll þjónusta sé í sama gæðaflokki. Það er eiginlega móðgun við hæfni fólksins sem sinnir þessum embættum og störfum að setja því ekki ný og tímabærari verk- efni fyrir. Af nógu er að taka. Ætli Islendingar sér einhver umsvif á vettvangi sameiginlegs Evrópumarkaðar þurfa þeir að temja sér þá viðskiptahætti sem þar munu ríkja. Þar hafa verð- lagsyfirvöld eftirlit með því að leikreglur séu haldnar, ekki því hvort innflutt íslenskt vatn hækki í verði þegar mengaða Perrier- vatnið vantar í hillur verslana. NÚ ERU GÓÐ RÁÐ ÓDÝR Eina leiðin til að ganga frá uppgjöri virðisaukaskatts fyrir mánaðamót, og þar með geta gert viðeigandi ráðstafanir á morgun, er að nota forritið VASKHUGA. Keyptu því VASKHUGA í dag og fáðu stöðuna á hreint. Ef hann hentar ekki endurgreiðum við, sé honum skilað innan viku. VASKHUGI er á kynningarverði út febrúar, kr. 9.900 (+VSK) íslensk tæki, Garðatorgi 5, sími 656510. SKRIFSTOFUVÉLAR GÍSLI J. JOHNSEN HF. VERSLUN HVERFISGÖTU 33 SÍMI: 623737 VERSLUN NÝBÝLAVEGI 16 SÍMI: 641222 t BRÉFA- 1 WjtKjA p’-'p' WMi /—’ i 1 BINDIN i Btwfffgí frá Múlalundi... z I SSŒqi ... þar eru gögnin á góðum stað. 5 mll Múlalundur § ■1—/I V3|P SfMI: 62 84 50

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.