Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 26
Autjtýsingastota Gunnars.
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Bjóðum nú BLUE CHIP, PC
og XT tölvur með mús og 2
ára ábyrgð, á einstöku
tilboðsverði frá kr. 59.900_
Nú er tœkifœri til að fjáifesta
ífullkominni PC eða XT tölvu
BLUE CHIP tölvurnar eru
meðal 10 mest seldu vélunum
í Bandaríkjunum í dag.
L
TAKMARKAÐ MAGN
Að auki bjóðum við tölvu +
/' /i n ít/ii' i»i r /1 o /i // /i 1A rt
Skipholti 17, 105 Reykjavík, sími: 91-27333.
Fullhomi#? lína atvinnutæhja
KONICA IJ-BIX Ijósritunarvélar eru
þekhtar fyrir gæði og endingu
Veldu einungis það besta
— það borgar sig
Á MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Nú eru dýrráðgóð!
Verðlagsráð hefur kunngjört
að rekstrarráðgjöfum leyfist ekki
að taka hærra gjald fyrir hollráð
sín en tekið var á gamlársdag
síðastliðinn. Þetta virðist vera
hluti af því að framfylgja fyrir-
heitum almennra kjarasamninga
um almenna verðstöðvun í
landinu.
Ákvarðanir af þessu tagi eru,
eins og Verðlagsráð sjálft, grát-
broslegt dæmi um tímaskekkju
og staðfestir að hugsunarháttur
skömmtunaráranna hefur orðið
eftir einhvers staðar í stjórnkerf-
inu meðan samfélagið sjálft hefur
tekið almennum breytingum í takt
við þróun umheimsins.
Með stofnauka að vopni
Það versta við stjórnvaldsað-
gerðir af þessu tagi er sú hugsun
sem býr þeim að baki. Nefnilega
sú, að þróuninni skuli stýrt og
stjórnað frá einum stað. Arftakar
skömmtunarstjóranna tneð stofn-
auka sína og smjörlíkisseðla að
vopni hafa ekki frétt af þeirri
þróun sem varð í föðurlöndum
forræðishyggjunnar austantjalds,
né virðast þeir gera sér grein fyr-
ir því, að Islendingar eru nú al-
mennt farnir að líta til aukinnar
þátttöku í alþjóðlegum viðskipt-
um, þar sem gæði framboðs og
styrkur eftirspurnar hafa tekið
við af stofnaukunum.
Opinberar tilskipanir um verð-
lagningu sérhæfðrar og mjög ein-
staklingsbundinnar þjónustu eru
svipaðar því og gefinn væri út
taxti fyrir listmálara að selja
málverk sín eftir, þar sem tiltekið
gjald skuli greiðast fyrir hvern
málaðan fersentimetra.
Gömul sannindi
í rauninni er ekkert sem segir
að það þurfi að setja verðlags-
hömlur í kjölfar kjarasamning-
anna. Samningar um litla kaup-
hækkun draga sjálfkrafa úr eftir-
spurn. Það leiðir aftur á móti til
lítilla verðhækkana — og þarf
ekki opinberar tilskipanir til. Það
eru hins vegar gömul sannindi að
góð ráð séu jafnan dýr. Önnur eru
yfirleitt ókeypis. -Henti það einu
fyrirtæki að leita mikilvægrar
„Það eru gömul
sannindi að
góð ráð séu
jafnan dýr.
Önnur eru yfir-
leitt ókeyp-
ráðgjafar um vandasöm úrlausn-
arefni, þá er það jafnan reiðubúið
að greiða forgangsverð fyrir. Oft-
ast borga slík ráð sig með rentum.
Opinber afskipti af verðlags-
málum yfirleitt eru auk þess arna
iítilsvirðing við sjálfsákvörðunar-
rétt fijálsra borgara. Sú forn-
hyggja að einhverjir opinberir
embættismenn eigi að meðhöndla
almenning eins og ómálga börn —
leyfa þetta og banna hitt — skip-
ar okkur á bekk með þeim ríkjum,
sem dregist hafa aftur úr í sam-
félagsþróuninni.
Hugsað um leikreglur
Verðlagsstofnun er enn að gefa
út verðsamanburð á súpudiskum
án tillits til gæða eða umhvérfis
í stað þess að beina kröftum sínum
að eftirliti með hringamyndun eða
einokunaraðferðum. Verðlagsráð
er enn að koma saman til þess
að ákveða það að öll þjónusta sé
í sama gæðaflokki.
Það er eiginlega móðgun við
hæfni fólksins sem sinnir þessum
embættum og störfum að setja
því ekki ný og tímabærari verk-
efni fyrir. Af nógu er að taka.
Ætli Islendingar sér einhver
umsvif á vettvangi sameiginlegs
Evrópumarkaðar þurfa þeir að
temja sér þá viðskiptahætti sem
þar munu ríkja. Þar hafa verð-
lagsyfirvöld eftirlit með því að
leikreglur séu haldnar, ekki því
hvort innflutt íslenskt vatn hækki
í verði þegar mengaða Perrier-
vatnið vantar í hillur verslana.
NÚ ERU GÓÐ RÁÐ ÓDÝR
Eina leiðin til að ganga frá uppgjöri virðisaukaskatts fyrir
mánaðamót, og þar með geta gert viðeigandi ráðstafanir á
morgun, er að nota forritið VASKHUGA.
Keyptu því VASKHUGA í dag og fáðu stöðuna á hreint. Ef
hann hentar ekki endurgreiðum við, sé honum skilað innan viku.
VASKHUGI er á kynningarverði út
febrúar, kr. 9.900 (+VSK)
íslensk tæki,
Garðatorgi 5, sími 656510.
SKRIFSTOFUVÉLAR GÍSLI J. JOHNSEN HF.
VERSLUN HVERFISGÖTU 33 SÍMI: 623737 VERSLUN NÝBÝLAVEGI 16 SÍMI: 641222
t BRÉFA- 1
WjtKjA p’-'p' WMi /—’ i 1 BINDIN i
Btwfffgí frá Múlalundi... z
I SSŒqi ... þar eru gögnin á góðum stað. 5
mll Múlalundur §
■1—/I V3|P SfMI: 62 84 50