Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Hvar er þjónustan keypt? Ljóst að stórar Qár- hæðir fara suður — segir Sigurður P. Sigmundsson NIÐURSTÖÐUR könnunar sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar gerði fyr- ir atvinnumálanefhd Akureyrar á því hvar fyrirtæki og stoftianir kaupa þjónustu af ýmsu tagi benda til þess að þegar um stærri verkeftii er að ræða, einkum á sviði auglýsingagerðar, tölvu- og tækniþjónustu og prentun, þá sé þjónustan sótt til Reykjavíkur. í mörgun tilfellum kaupa fyrirtæki og stoftianir þjónustu sína bæði í Reykjavík og á Akureyri. Sigurður P. Sigmundsson fram- kvæmdastjóri IFE sagði að ljóst væri samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar, að þær fjárhæðir sem færu suður vegna kaupa á þjónustu skiptu í heildina milljónum. Spum- ingalistar voru sendir í 102 fyrirtæki og stofnanir og bárust svör frá 56. Bæði var spurt um hvar þessir aðilar keyptu þjónustu og fyrir hversu mik- ið fé. Flestir kaupa prentþjónustu, eða 54, og kváðust allir kaupa hana á Akureyri, en einnig keyptu 9 aðilar prentþjónustu í Reykjavík. Sjö aðilar keyptu prentþjónustu fyrir meira en eina milljón króna. Margir keyptu lögfræðiþjónustu, eða 41 af þeim sem svöruðu, 48 aðilar keyptu endurskoðun, 40 aðilar keyptu tölvuþjónustu, 38 auglýsinga- gerð og 36 bókhaldsþjónustu. Flestir kaupa þessa þjónustu bæði á Akur- eyri og í Reykjavík, en sú þjónusta sem mest er sótt til Reykjavíkur er tölvuþjónusta, sem 20 aðilar á Akur- eyri kaupa þaðan, 14 sögðust kaupa endurskoðunarþjónustu í Reykjavík og 11 tækniþjónustu. Sigurður sagði að hugmyndin með könnuninni væri fyrst og fremst sú að vekja athygli Akureyringa og Eyfirðinga á því að nota þjónustu í heimabyggð og rætt hefði verið um það í atvinnumálanefnd að útbúa lista með fyrirtækjum í bænum sem bjóða upp á ýmiss konar þjónustu og koma honum á framfæri við fyrir- tæki. Helgamagrastræti 53: Fjögur tilboð bárust í lokafrágang hússins FJÖGUR tilboð bárust í innrétt- ingasmíði og lokafrágang Qöl- býlishússins við Helgamagra- stræti 53, en tilboðin voru opnuð í gær. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 81.189.433 krónur. Fjölnismenn hf. áttu lægsta til- boðið, 73.084.829 krónur, sem er 90,0% af kostnaðaráætlun. SJS verktakar voru næstlægstir, en þeirra tilboð hljóðaði upp á -*í4.568.720 krónur, sem er 91,8% af kostnaðaráætlun. Tilboð SS Byggis hljóðaði upp á 79.775.209 krónur, sem er 98,2% af kostnað- aráætlun. Aðalgeir Finnsson hf. átti tilboð upp á 82.391.521 krón- ur, sem er 1,5% yfír kostnaðar- áætlun. I húsinu eru 22 íbúðir og er stefnt að því að þær verði af- hentar kaupendum næsta haust, en miðað við upphaflegar áætlanir átti að afhenda íbúðimar um miðj- an apríl. Morgunblaðið/Rúnar Þór Súlan EA landará Raufarhöfh Súlan EA landaði 780 tonnum af loðnu hjá Síldarverksmiðjum ríkis- ins á Raufarhöfn í fyrri viku, en þangað og af miðunum var 28 tíma sigling. Súlan var í gær á leið til Seyðisíjarðar með fullfermi, um 800 tonn og verður byijað að landa úr skipinu í dag. Sverrir Leós- son útgerðarmaður Súlunnar sagði að vel hefði gengið frá áramót- um. „Þetta er búið að vera ævintýri líkast og við erum ákaflega ánægðir, því staðan var vægast sagt bágborin fyrir áramótin. En það er trúin sem heldur í manna lífin, ég trúði aldrei öðru en loðnan gæfí sig,“ sagði Sverrir. Súlan á eftir að fara fimm veiðiferðir áður en hún klárar kvóta sinn og er þá miðað við fullfermi. Finnskt guffubaö með öllu tilheyrandi til sölu. Nær ónotað. Verð ca 120.000. Upplýsingar í síma 96-27991. Þú svalar lestrarþörf dagsins Á á^íöum Moggans!_^<x r~~jl Morgunblaðið/Rúnar Þór Moka meiri snjó Leiðindaveður hefur verið á Akureyri síðan á sunnu- dag og em flestir vegir í nágrenni bæjarins ófærir. Lögregla á Dalvík hefur aðstoða nokkra bílstjóra sem setið hafa fastir í sköflum í bifreiðum sínum. Lögreglumaður í Ólafsfirði sagði að engum væri fært að komast til bæjarins nema fuglinum fljúgadi, en Múlinn er ófær sem og einnig flugvöllurinn á staðnum. Á Akureyri urðu 6 árekstrar um helgina og má rekja þá að nokkru leyti til mikiila snjóruðn- inga við gatna mót, sem birgja ökumönnum sýn. Yfir hundrað ungmenni lentu í nokkrum hrakningum á Öxnadalsheiði í fyrrinótt, en þau vom á leið til Akureyrar frá Reykjavk. Hópurinn komst þó klakk- laust yfir heiðina. Á myndinni eru starfsstúlkur á hársnyrtistofunni Passion að moka tröppurnar svo viðskiptavinir komist áfallalaust í klippingu, en víða mátti sjá fólk með skóflur á lofti í gær. Slippstöðin: Nýsmíðaskipið aftur inn á borð Fiskveiðasjóðs Viðræður í gangi um smíði á öðru skipi ALLT bendir nú til þess að samningur Slippstöðvarinnar hf. og Meleyrar hf. á Hvammstanga um kaup Meleyrar á nýsmíðaskipi Slipp- stöðvarinnar komi aftur inn á borð Fiskveiðisjóðs, í kjölíár breyttra forsendna Meleyrar og nýrrar rekstraráætlunar sem fyrirtækið hef- ur lagt fram. Slippstöðin á nú í viðræðum við íslenskan útgerðar- mann um smíði á skipi af svipaðri stærð. Sigurður Ringsted forstjóri Slippstöðvarinnar hf. sagði að allar líkur væm á að Fiskveiðasjóður tæki málið upp að nýju, en sem kunnugt er hafnaði sjóðurinn lán- veitingu til Meleyrar hf. skömmu fyrir síðustu jól. Sigurður sagði að Meleyri hefði lagt fram nýjar áætl- anir varðandi reksturinn og fyrir- tækið væri betur í stakk búið til að reka skipið, en var miðað við fyrri áætlanir þess. Sigurður sagði að nú stæðu yfír viðræður á milli Slippstöðvarinnar og íslensks útgerðarmanns um smíði á skipi, sem yrði svipað að stærð og nýsmíðaskipið B-70, eða um 240 rúmlestir. Ef af samningum Dynheimar: • • Oskudagsball ÖSKUDAGSBALLIÐ í Dynheim- um á Akureyri verður haldið í þriðja sinn, en það hefst kl. 14, á morgun, öskudag og stendur til kl. 17. Það er Zontaklúbburinn Þórunn hyma sem stendur fyrir öskudags- ballinu og er það opið bæði bömum og fullorðnum og verður þar margt til skemmtunar, leikir, söngur og diskótek. Þá verður haldin grettu- keppni, en slík keppni vakti mikla athygli á síðasta öskudagsballi. Verðlaun verða veitt fyrir bestu bún- ingana. Á staðnum verður selt gos og sælgæti, kaffí og vöfflur. um smíði skipsins verður yrði smíði hafínn á skipinu næsta vetur. Jóhanna kom sem kaupakona í Gautlönd vorið 1917 til Jóns Gauta Péturssonar og konu hans Önnu Jakobsdóttur. Hún ólst upp á Laugum i Flóa, fædd 16. mars 1891. Jóahanna dvaldist síðan á Gautlöndum meðan heilsa og kraftar entust. Hún tók við bús- forráðum hjá Jóni Gauta þegar eiginkona hans andaðist 1934. Hún annaðist síðan heimilið og bömin af stakri fórnfýsi og var ætíð ein af fjölskyldunni. Jóhanna lést 1. febrúar síðastliðnn, tæplega 99 ára. Hún var jarðsett frá Skútu- staðakirkju 17. febrúar. Kristjana Ásbjarnardóttir var fædd á Guðmundarstöðum í Vopnafirði 21. september 1913. Hún kom hingað í Mývatnssveit sem kaupakona. Áður hafði hún stundað nám í Menntaskólanum á Akureyri og tekið þaðan gagn- fræðapróf. Síðan hefur hún átt „Þetta er það sem við þurfum yfir dauða tímann á veturna, við þurfum að hafa einhver verkefni til að sinna á þessum tíma,“ sagði Sigurður. Um 170 manns vinna hjá Slipp- stöðinni og sagði Sigurður að sá mannskapur myndi halda áfram störfum og ekki á dagskrá að segja fleiri starfsmönnum upp. Að und- anförnu hefur verið frekar lítið að gera og engin stór verkefni í gangi. heima, héma í sveitinni. Árið 1936 hóf hún búskap með eiginmanni sínum Dagbjarti Sigurðssyni á ‘/4- hluta jarðarinnar Álftagerði II, þar sem þau hafa síðan búið. Hún stundaði um tíma kennslu við barna- og unglingaskólann á Skútustöðum. Ennfremur var hún í skólanefnd Skútustaðahrepps. Hún var velvirkur félagi í kvenfé- lagi Myvatnssveitar. Kristjana var margfróð og fylgdist ætíð vel með öllu. Dagbjartur og Kristjana eign- uðust 6 börn, sem öll eru á lífi. Þau eru velmenntuð og sinna margvíslegum opinberum störfum bæði hér á landi og erlendis. Fjöl- menn og virðuleg athöfn var í Skútustaðakirkju síðastliðinn sunnudag til minningar um Kristj- önu Ásbjarnardóttur. Útför henn- ar var gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 19. febrúar. -Krislján Tvær konur úr Mývatnssveit kvaddar Björk, Mývatnssveit NYLÁTNAR eru tvær mývetnskar konur, Jóhanna Illugadóttir á Gautlöndum og Kristjana Ásbjarnardóttir í Álftagerði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.