Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Hvar er þjónustan keypt?
Ljóst að stórar Qár-
hæðir fara suður
— segir Sigurður P. Sigmundsson
NIÐURSTÖÐUR könnunar sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar gerði fyr-
ir atvinnumálanefhd Akureyrar á því hvar fyrirtæki og stoftianir kaupa
þjónustu af ýmsu tagi benda til þess að þegar um stærri verkeftii er
að ræða, einkum á sviði auglýsingagerðar, tölvu- og tækniþjónustu og
prentun, þá sé þjónustan sótt til Reykjavíkur. í mörgun tilfellum kaupa
fyrirtæki og stoftianir þjónustu sína bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri IFE sagði að ljóst
væri samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar, að þær fjárhæðir sem
færu suður vegna kaupa á þjónustu
skiptu í heildina milljónum. Spum-
ingalistar voru sendir í 102 fyrirtæki
og stofnanir og bárust svör frá 56.
Bæði var spurt um hvar þessir aðilar
keyptu þjónustu og fyrir hversu mik-
ið fé. Flestir kaupa prentþjónustu,
eða 54, og kváðust allir kaupa hana
á Akureyri, en einnig keyptu 9 aðilar
prentþjónustu í Reykjavík. Sjö aðilar
keyptu prentþjónustu fyrir meira en
eina milljón króna.
Margir keyptu lögfræðiþjónustu,
eða 41 af þeim sem svöruðu, 48
aðilar keyptu endurskoðun, 40 aðilar
keyptu tölvuþjónustu, 38 auglýsinga-
gerð og 36 bókhaldsþjónustu. Flestir
kaupa þessa þjónustu bæði á Akur-
eyri og í Reykjavík, en sú þjónusta
sem mest er sótt til Reykjavíkur er
tölvuþjónusta, sem 20 aðilar á Akur-
eyri kaupa þaðan, 14 sögðust kaupa
endurskoðunarþjónustu í Reykjavík
og 11 tækniþjónustu.
Sigurður sagði að hugmyndin með
könnuninni væri fyrst og fremst sú
að vekja athygli Akureyringa og
Eyfirðinga á því að nota þjónustu í
heimabyggð og rætt hefði verið um
það í atvinnumálanefnd að útbúa
lista með fyrirtækjum í bænum sem
bjóða upp á ýmiss konar þjónustu
og koma honum á framfæri við fyrir-
tæki.
Helgamagrastræti 53:
Fjögur tilboð bárust í
lokafrágang hússins
FJÖGUR tilboð bárust í innrétt-
ingasmíði og lokafrágang Qöl-
býlishússins við Helgamagra-
stræti 53, en tilboðin voru opnuð
í gær. Kostnaðaráætlun hljóðar
upp á 81.189.433 krónur.
Fjölnismenn hf. áttu lægsta til-
boðið, 73.084.829 krónur, sem er
90,0% af kostnaðaráætlun. SJS
verktakar voru næstlægstir, en
þeirra tilboð hljóðaði upp á
-*í4.568.720 krónur, sem er 91,8%
af kostnaðaráætlun. Tilboð SS
Byggis hljóðaði upp á 79.775.209
krónur, sem er 98,2% af kostnað-
aráætlun. Aðalgeir Finnsson hf.
átti tilboð upp á 82.391.521 krón-
ur, sem er 1,5% yfír kostnaðar-
áætlun.
I húsinu eru 22 íbúðir og er
stefnt að því að þær verði af-
hentar kaupendum næsta haust,
en miðað við upphaflegar áætlanir
átti að afhenda íbúðimar um miðj-
an apríl.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Súlan EA landará Raufarhöfh
Súlan EA landaði 780 tonnum af loðnu hjá Síldarverksmiðjum ríkis-
ins á Raufarhöfn í fyrri viku, en þangað og af miðunum var 28 tíma
sigling. Súlan var í gær á leið til Seyðisíjarðar með fullfermi, um
800 tonn og verður byijað að landa úr skipinu í dag. Sverrir Leós-
son útgerðarmaður Súlunnar sagði að vel hefði gengið frá áramót-
um. „Þetta er búið að vera ævintýri líkast og við erum ákaflega
ánægðir, því staðan var vægast sagt bágborin fyrir áramótin. En
það er trúin sem heldur í manna lífin, ég trúði aldrei öðru en loðnan
gæfí sig,“ sagði Sverrir. Súlan á eftir að fara fimm veiðiferðir áður
en hún klárar kvóta sinn og er þá miðað við fullfermi.
Finnskt guffubaö með öllu tilheyrandi til sölu. Nær ónotað. Verð ca 120.000. Upplýsingar í síma 96-27991. Þú svalar lestrarþörf dagsins Á á^íöum Moggans!_^<x r~~jl
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Moka meiri snjó
Leiðindaveður hefur verið á Akureyri síðan á sunnu-
dag og em flestir vegir í nágrenni bæjarins ófærir.
Lögregla á Dalvík hefur aðstoða nokkra bílstjóra
sem setið hafa fastir í sköflum í bifreiðum sínum.
Lögreglumaður í Ólafsfirði sagði að engum væri
fært að komast til bæjarins nema fuglinum fljúgadi,
en Múlinn er ófær sem og einnig flugvöllurinn á
staðnum. Á Akureyri urðu 6 árekstrar um helgina
og má rekja þá að nokkru leyti til mikiila snjóruðn-
inga við gatna mót, sem birgja ökumönnum sýn.
Yfir hundrað ungmenni lentu í nokkrum hrakningum
á Öxnadalsheiði í fyrrinótt, en þau vom á leið til
Akureyrar frá Reykjavk. Hópurinn komst þó klakk-
laust yfir heiðina. Á myndinni eru starfsstúlkur á
hársnyrtistofunni Passion að moka tröppurnar svo
viðskiptavinir komist áfallalaust í klippingu, en víða
mátti sjá fólk með skóflur á lofti í gær.
Slippstöðin:
Nýsmíðaskipið aftur inn
á borð Fiskveiðasjóðs
Viðræður í gangi um smíði á öðru skipi
ALLT bendir nú til þess að samningur Slippstöðvarinnar hf. og
Meleyrar hf. á Hvammstanga um kaup Meleyrar á nýsmíðaskipi Slipp-
stöðvarinnar komi aftur inn á borð Fiskveiðisjóðs, í kjölíár breyttra
forsendna Meleyrar og nýrrar rekstraráætlunar sem fyrirtækið hef-
ur lagt fram. Slippstöðin á nú í viðræðum við íslenskan útgerðar-
mann um smíði á skipi af svipaðri stærð.
Sigurður Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar hf. sagði að allar
líkur væm á að Fiskveiðasjóður
tæki málið upp að nýju, en sem
kunnugt er hafnaði sjóðurinn lán-
veitingu til Meleyrar hf. skömmu
fyrir síðustu jól. Sigurður sagði að
Meleyri hefði lagt fram nýjar áætl-
anir varðandi reksturinn og fyrir-
tækið væri betur í stakk búið til
að reka skipið, en var miðað við
fyrri áætlanir þess.
Sigurður sagði að nú stæðu yfír
viðræður á milli Slippstöðvarinnar
og íslensks útgerðarmanns um
smíði á skipi, sem yrði svipað að
stærð og nýsmíðaskipið B-70, eða
um 240 rúmlestir. Ef af samningum
Dynheimar:
• •
Oskudagsball
ÖSKUDAGSBALLIÐ í Dynheim-
um á Akureyri verður haldið í
þriðja sinn, en það hefst kl. 14,
á morgun, öskudag og stendur
til kl. 17.
Það er Zontaklúbburinn Þórunn
hyma sem stendur fyrir öskudags-
ballinu og er það opið bæði bömum
og fullorðnum og verður þar margt
til skemmtunar, leikir, söngur og
diskótek. Þá verður haldin grettu-
keppni, en slík keppni vakti mikla
athygli á síðasta öskudagsballi.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu bún-
ingana. Á staðnum verður selt gos
og sælgæti, kaffí og vöfflur.
um smíði skipsins verður yrði smíði
hafínn á skipinu næsta vetur.
Jóhanna kom sem kaupakona í
Gautlönd vorið 1917 til Jóns Gauta
Péturssonar og konu hans Önnu
Jakobsdóttur. Hún ólst upp á
Laugum i Flóa, fædd 16. mars
1891. Jóahanna dvaldist síðan á
Gautlöndum meðan heilsa og
kraftar entust. Hún tók við bús-
forráðum hjá Jóni Gauta þegar
eiginkona hans andaðist 1934.
Hún annaðist síðan heimilið og
bömin af stakri fórnfýsi og var
ætíð ein af fjölskyldunni. Jóhanna
lést 1. febrúar síðastliðnn, tæplega
99 ára. Hún var jarðsett frá Skútu-
staðakirkju 17. febrúar.
Kristjana Ásbjarnardóttir var
fædd á Guðmundarstöðum í
Vopnafirði 21. september 1913.
Hún kom hingað í Mývatnssveit
sem kaupakona. Áður hafði hún
stundað nám í Menntaskólanum á
Akureyri og tekið þaðan gagn-
fræðapróf. Síðan hefur hún átt
„Þetta er það sem við þurfum yfir
dauða tímann á veturna, við þurfum
að hafa einhver verkefni til að sinna
á þessum tíma,“ sagði Sigurður.
Um 170 manns vinna hjá Slipp-
stöðinni og sagði Sigurður að sá
mannskapur myndi halda áfram
störfum og ekki á dagskrá að segja
fleiri starfsmönnum upp. Að und-
anförnu hefur verið frekar lítið að
gera og engin stór verkefni í gangi.
heima, héma í sveitinni. Árið 1936
hóf hún búskap með eiginmanni
sínum Dagbjarti Sigurðssyni á ‘/4-
hluta jarðarinnar Álftagerði II, þar
sem þau hafa síðan búið. Hún
stundaði um tíma kennslu við
barna- og unglingaskólann á
Skútustöðum. Ennfremur var hún
í skólanefnd Skútustaðahrepps.
Hún var velvirkur félagi í kvenfé-
lagi Myvatnssveitar. Kristjana var
margfróð og fylgdist ætíð vel með
öllu.
Dagbjartur og Kristjana eign-
uðust 6 börn, sem öll eru á lífi.
Þau eru velmenntuð og sinna
margvíslegum opinberum störfum
bæði hér á landi og erlendis. Fjöl-
menn og virðuleg athöfn var í
Skútustaðakirkju síðastliðinn
sunnudag til minningar um Kristj-
önu Ásbjarnardóttur. Útför henn-
ar var gerð frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 19. febrúar.
-Krislján
Tvær konur úr
Mývatnssveit kvaddar
Björk, Mývatnssveit
NYLÁTNAR eru tvær mývetnskar konur, Jóhanna Illugadóttir á
Gautlöndum og Kristjana Ásbjarnardóttir í Álftagerði.