Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 29

Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 29 Áfangaskýrsla um stofnun Menningar- og fjölmiðlasjóðsins: Menningarsj óður verði lagður niður STARFSHÓPUR sem menntamálaráðherra skipaði til að vinna tillög- ur um menningar- og fjölmiðlasjóð hefur skilað áfangaskýrslu með tillögum um fyrirkomulag sjóðsins. Þar er rneðal annars lagt til að stofnaður verði sjóður til að jafna aðstöðu fjölmiðla og útgáfufyrir- tækja, honum verði markaðir ákveðnir tekjustofhar, hann veiti að- stoð til skýrt afmarkaðra verkefha og að hann taki við hlutverki Menningarsjóðs, sem um leið verði lagður niður. í áfangaskýrslunni segir að markmið sjóðsins eigi að vera, sam- kvæmt tillögum sem Svavar Gests- son menntamálaráðherra lagði fyrir ríkisstjórn 31. október síðastliðinn, „að jafna aðstöðu fjölmiðla hér á landi og að vera lánasjóður til þess að aðstoða útgáfufyrirtæki við að standa undir meiriháttar verkefnum á sviði menningarmála. Ennfremur að styrkja einstakar dagskrár í ljós- vakamiðlum enda þjóni þær menn- ingarlegum tilgangi." Menntamálaráðherra lagði jafn- framt tii að hinn nýi sjóður yfir- tæki hlutverk Menningarsjóðs. Til- iögur menntamálaráðherra voru samþykktar í ríkisstjórn. Starfshópurinn gerir í skýrslu sinni grein fyrir hvernig styrkjum til fjölmiðla er háttað á hinum Norð- urlöndunum og hér á landi. Tillögur starfshópsins fela í sér nokkra val- kosti um leiðir, en miða allar að því að koma hér á sjóði eða sjóðum, Sem hafi það hlutverk að styrkja fjölmiðla og útgáfustarfsemi á einn eða annan hátt. Um forsendur niðurstaðna sinna segir starfshópurinn meðal annars: „Jafnframt því sem ljóst er að fjöl- miðlarnir eru sífellt minna háðir stjórnmálaflokkunum og sjónarmið- um þeirra er hitt ljóst að þeir verða á sama tíma stöðugt háðari mark- aðnum og auglýsingatekjum. Við- horf markaðarins mega ekki ein- hliða ráða úrslitum um fjölmiðlun í landinu. Ríkisvaldið hefur viður- kennt það með því að veita Ríkisút- varpinu sérstaka lögvarða tekju- stofna.“ Þeir styrkir sem veittir eru nú til þessara málaflokka eru raktir. Auk framlaga til Ríkisútvarps og Menningarsjóðs, er um að ræða lið- lega 110 milljónir króna sem á fjár- lögum eru veittar til stjórnmála- flokka og útgáfustarfsemi þeirra, að auki er veitt 54 milljónum til að kaupa dagblöð. Þá er rætt um óbeina styrki með auglýsingum. Ekki er gerð grein fyrir hve stór hluti þessa fjár, þegar á heildina er litið, gengur til fjölmiðla og hve mikið til stjórnmálaflokka. Þá er greint frá því að auglýsingar séu ekki ávallt styrkur, þar sem stjórn- völd þurfi einnig að koma upplýs- ingum á framfæri við almenning með auglýsingum. Auk þessa njóta fjölmiðlar hlunn- inda í formi skattfríðinda. Þar má nefna að áskrift að dagblöðum er undanþegin virðisaukaskatti, fjöl- miðlar eru undanþegnir launaskatti og tollar af aðföngum séu ekki baggi á rekstrinum. „Fullyrða má að þessi stuðningur er fjölmiðlunum mikils virði þótt ekki verði hér gerð tilraun til að meta hann í krónum. Gera má ráð fyrir að án þessara sérstöku rekstrarskilyrða væri grundvöllur fjöimiðlanna brostinn. Aftur á móti er vant að koma auga á réttlætingu fyrir þessum opinbera stuðningi við stærstu fjölmiðlana, einkum í blaðaútgáfu, öflug fyrir- tæki sem um áraraðir hafa skilað eigendum sínum vænum hagnaði," segir i skýrslunni. I tiliögum um fyrirkomulag fjöl- miðlastyrkja telur hópurinn eðlilegt að framtíðarskipan þeirra mála sé með þeim hætti að ljóst sé hvert féð rennur og til hvaða nota það sé ætlað. Þá segir í skýrslunni: „Sjóði eins og þessum sem rætt er um 'í þessari skýrslu er ætlað að hamla gegn því að duttlungar markaðarins setji alvarlegri fjöl- miðlun stólinn fyrir dyrnar, og slíkum sjóði er einnig ætiað að tryggja að fleiri komist að fjölmiðl- un í landinu en hinir íjársterkustu. Hópurinn telur mikilvægt að jafn- framt sé haft í huga að það á ekki að vera hlutverk umrædds sjóðs að viðhalda óbreyttu því ástandi sem ríkir við sjóðstofnun eða reyna að töfra fram liðna tíma. Sjóðurinn á ekki að vera til að hefta eðlilegar breytingar í fjölmiðlun, endumýjun og nýsköpun, Hlutverk hans er þvert á móti að hvetja til siíkra breytinga í samræmi við hvort tveggja, staðreyndir efnahagslífsins og almenna stefnumótun um heppi- lega samfélagsþróun. Þessi rök hafa m.a. leitt hópinn að þeirri nið- urstöðu, að óheppilegt sé að stofna sjóð sem styrki almennan rekstur fjölmiðla annarra en Ríkisútvarps- ins. Slíkur „krani“ úr ríkissjóði mundi til lengdar ekki vera heppi- legur þeim fjölmiðlum sem hans nytu af ýmsum ástæðum, og hætt er við að stuðningur af því tagi yrði hemill á eðlilega framþróun og nýsköpun í fjölmiðlun. Hins vegar er full þörf á sjóði sem bæði aðstoð- ar fjölmiðla við einstök stórverk- efni, og hjálpar þeim til sjálfshjálp- ar í rekstri.“ Tillögur hópsins ganga út frá að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður. Hópurinn leggur til að markmið sjóðsins verði stuðningur við menn- ingarþróunina í landinu sem tryggi að menningarleg stórverkefni séu gefin út og landsmönnum gefist kostur á að njóta þeirra, ennfremur stuðningur við íslenska fjölmiðlun til að jafna aðstöðu fjölmiðla um aðgang að fé, auðvelda hagræðingu og samvinnu í greininni, ýta undir menningarlega og lýðræðislega þætti í fjölmiðlun til að stuðla að margbreytileika, skoðana- og tján- ingarfrelsi. Þá miði stuðningurinn einnig að því að efla einstök um- fjöllunar- og rannsóknarverkefni fjölmiðla og fjölmiðlamanna. Hópurinn telur þijár leiðir koma til álita um fyrirkomulag sjóðsins. í fyrsta lagi að stofna einn sjóð, Menningar- og fjölmiðlasjóðinn, sem lúti einni stjórn. í öðru lagi einn sjóður sem skipt verði í tvær deildir, útgáfudeild og fjölmiðla- deild, sem lúti hvor sinni stjórn og hafi að einhverju leyti sameiginlega stjórn. Þriðji valkosturinn er tveir sjóðir, hvor með sína stjórn, annar um fjölmiðlun, hinn um útgáfu- starfsemi. Lagt er til að sjóðurinn/sjóðirnir njóti öruggrar fjármögnunar, út- hlutun fari fram eftir ströngum reglum og að fjölmiðlar sem geti sótt um stuðning séu dagblöð, landsmálablöð og héraðsfréttablöð, Ijósvakamiðlar og tímarit. Útgáfu- fyrirtæki geti sótt um stuðning og að þessi sjóður/sjóðir verði farvegur hins opinbera fyrir stuðning við fjöl- miðlun og útgáfustarfsemi. Fjárþörf slíkra sjóða hefur ekki verið könnuð og leggur hópurinn til að það verði gert. Þá leggur hann til að tekna verði aflað með mörkuðum tekjustofnum og/eða fjárveitingum á fjárlögum. Eftirfar- andi leiðir komi til greina: Auglýs- ingatengdar tekjur sem gætu verið 5% gjald ofan á skattverð allra auglýsinga, 10% gjald ofan á skatt- verð allra auglýsinga eða hlutfall af innheimtum virðisaukaskatti sem nemi 10-12% af birtingarverði aug- lýsinga. í öðru lagi það hlutfall skemmtanaskatts sem nú rennur til Menningarsjóðs/menntamála- ráðs, í þriðja lagi jafngildi núver- andi ríkisframlags til blaða- og út- gáfumála stjómmálaflokka, í fjórða lagi framlög úr ríkissjóði og loks gjafir. Hópurinn leggur til að úthlutað verði til afmarkaðra verkefna og nefnir nokkur. Þar á meðal fjárfest- ingar- og þróunaraðstoð til umtals- verðrar hagræðingar í rekstri, stofnaðstoð til nýrra fjölmiðla eða nýjunga í fjölmiðlun, aðstoð vegna tímabundinna aðstæðna, „sem að- eins yrði veitt í vel skilgreindum og ljósum tilvikum og háð því að fjölmiðill stefni að því að koma rekstri sínum á réttan kjöl með aðstoðinni frá sjóðnum og öðrum markvissum aðgerðum, sem sjóð- stjóm era kynntar bæði fyrirfram og á aðstoðartíma." Nefndir era þrír kostir um skipan stjórnar sjóðsins. í fyrsta lagi að fimm eða sjö menn sitji þar kosnir hlutfallskosningu á Alþingi, í öðru lagi að menntamálaráðherra skipi stjóm til ákveðins tíma, hluti stjóm- armanna verði tilnefndur af aðilum úr menningarlífinu og af fjölmiðla- sviðinu, annar hluti sé skipaður af ráðherra án tilnefningar, í þriðja lagi að menntamálaráðherra skipi stjórn án tilnefningar til ákveðins tíma. Starfshópinn skipa Guðrún Ágústsdóttir, tilnefnd _af mennta- málaráðherra, Mörður Árnason, til- nefndur af fjármálaráðherra, Jón Sveinsson, tilnefndur af forsætis- ráðherra, Lára Sólnes, tilnefnd af ráðherra Hagstofu, og Guðmundur Einarsson, tilnefndur af viðskipta- ráðherra. ÞINQBRÉF STEFÁN FRIÐBJARNARSON Hóffjaðrir og reiðvegagerð Hestar og hestamenn á góðri stund. „Akveginn skulu menn ríða en aka reiðveginn“ „Gera má ráð fyrir að 7-8 þúsund manns stundi hesta- mennsku nú um þessar mundir og eigi hver að meðaltali um fjóra hesta. Ef gert er ráð fyrir að 30 hóffjaðrir fari í járningu og járnað sé að jafhaði fimm sinnum á ári gæti tveggja krónu gjald á hverja hóffjöður gefið tekjur til reiðvegagerðar sem nema um 10 milljónum króna á ári.“ Svo segir í greinargerð með frumvarpi til laga um breytingu á lögum til vegagerðar nr. 3/1987 sem Guðmundur G. Þór- arinsson (F-Rv) og fleiri þing- menn flytja. , I Fram hafa verið lögð þrjú tengd þingmál, sem varða gerð reiðvega og íjármögnun framkvæmda. Fyrsti flutningsmaður þingmál- anna þriggja er Guðmundur G. Þórarinsson (F-Rv). Meðflutn- ingsmenn eru og úr Framsóknar- flokki. Þingmálin eru þessi: * l)Tillagatilþingsályktunarum fjögurra ára reiðvegaáætlun. * 2) Frumvarp til breytinga á vegalögum nr. 6/1977: „Vega- gerð ríkisins skal sjá um gerð og viðhald reiðvega, samkvæmt sérs- takri reiðvegaáætlun, sem sam- gönguráðherra lætur gera í sam- ráði við samtök hestamanna og sveitarfélaga til fjögurra ára í senn.“ * 3) Frumvarp til breytinga á lögum um fjáröflun til vegagerðar nr. 3/1987: „Greiða skal sérstakt innflutningsgjald — hóffjaðra- gjald — af hófíjöðrum. Gjald þetta skal vera tvær krónur á hveija hóffjöður. Innlendir framleiðend- ur skuli einnig greiða hóffjaðra- gjald." Gjaldið skal fylgja vísitölu byggingarkostnaðar. II Þingsályktunartillagan felur samgönguráðherra, verði hún samþykkt, að skipa nefnd til að semja áætlun um reiðvegagerð til fjögurra ára — sem og að for- gangsraða verkefnum. Samráð skal haft við samtök hestamanna, samtök sveitarfélaga, Vegagerð ríkisins, Náttúruvemdarráð, Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins, skipulagsstjóra, Ferða- þjónustu bænda — og einstök sveitarfélög og landeigendur. Tilgangur: 1) Að bæta aðstöðu hestamanna og fyrirbyggja sem kostur er slys í umferð. 2) Ná fram viðurkenningu á umferð ríðandi manna sem hluta af sam- göngum landsmanna. 3) Friðlýsa fornar reiðleiðir og halda þeim við. 4) Tryggja vernd svæða sem hafa sérstakt gildi vegna nátt- úrufegurðar og hamla gegn því að umferð ríðandi manna spilli ræktuðu landi. Við mat umferðar á hestum skal hafa hliðsjón af hesthúsa- hverfum, skeiðvöllum, hrossabú- um, hagagöngu, staðsetningu gisti- og ferðamannastaða og veit- inga- og útivistarstaða, segir í texta tillögunnar. m Árið 1982 var gert samkomu- lag milli Landssambands hesta- manna og Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega. „Ágreiningur varð fljótlega um túlkun þessa sam- komulags,“ segir í greinargerð með frumvarpi til breytinga á vegalögum. „Með flutningi þessa frumvarps," segir og, „era tekin af öll tvímæli um að Vegagerð ríkisins skuli annast gerð reið- vega.“ Þá segir að umferð ríðandi manna sé víða orðin mjög mikil, einkum í nágrenni þéttbýlis, og að nauðsynlegt sé að taka tillit til hestamennsku í umferðinni umfram það sem gert hefur verið. Síðara frumvarpið fjallar um fjáröflun til reiðvegagerðar: tveggja króna skattálag á hveija innflutta og hér smíðaða hóffjöð- ur. Með sértekjum af þessu tagi til viðbótar svipuðú fjárlagafram- lagi til reiðvegagerðar hér eftir sem hingað til megi fjármagna framkvæmd fyrirhugaðrar reið- vegaáætlunar. IV Ekki er að efa að flutnings- menn hafa sitt hvað til síns máls, þótt efni þessara þingmála stingi nokkuð í stúf við hefðbundið þing- þras. Hestamennska á Vaxandi vinsældum að fagna og umferð ríðandi manna krefst viðbragða til að tryggja öryggi í umferð. Náttúravemd og friðlýsing fomra reiðleiða mæta og trúlega skiln- ingi fólks. íslenzki hesturinn er í senn útflutningsvara og mikil- vægur þáttur í uppbyggingu þjón- ustu við ferðafólk í landinu. Allt sem hann varðar er vert jákvæðr- ar skoðunar, umfjöllunar og af- greiðslu. Það er því hvorki af stráksskap né til að gagnrýna sérstaklega efnisatriði þessara þingmála — heldur einvörðungu til gamans gert — að ljúka þessum pistli á kvæðisbroti eftir Stein skáld Steinar, sem ber yfirskriftina: „Framvarp til laga um akvegi meðfram reiðvegum“: Hver landsstjóm sé framsýn og fáist við athafnir góðar, sem fólki má verða til blessunar, giftu sem einhleypu. Meðfram hveijum og einstökum reiðvegi þessarar þjóðar skal þegar í stað leggja akveg úr jám- bentri steinsteypu. Og orðstír vor lifir í verki, sem mikils er metið, þótt margt fari í súginn og þjóðin sé alls konar neyð slegin. Að endingu virðist mér óhætt að láta þess getið, að akveginn skulu menn riða, en aka reið- veginn. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.