Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 31

Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990 31 Minning: Krístín Guðmundsdótt- * ir Asbrandsstöðum Fædd 27. júlí 1900 Dáin 20. febrúar 1990 „Hún frænka er dáin. Hún fékk hvíldina seint í gærkvöldi,“ sagði Heiðrún kona mín við mig þegar hún hringdi til mín snemma að morgni þriðjudagsins, 20. febrúar sl. „Frænka“, sem hún nefndi ávallt svo, var móðursystir hennar, sem gekk henni í móður stað frá þriggja ára aldri. Kristín fæddist á Ásbrandsstöð- um í Vopnafirði 27. júlí aldamóta- árið og ól þar allan sinn aldur. Hún var nærstelst í sex systkina hópi. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Kristjánsson, bóndi á Ás- brandsstöðum og póstur, og kona hans, Sesselja Eiríksdóttir frá Hafrafelli í Fellum. Hin systkinin voru: Runólfur bóndi og póstur á Ásbrandsstöðum, fæddur 1898, dáinn 1989. Hann var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, fædd 1899, frá Hrauntanga í Axarfirði sem lifir mann sinn og býr heima á Ásbrandsstöðum. Halldór, fæddur 1903, bóndi á Ásbrandsstöðum, tvíburabræðurnir Ásgeir og Gunn- laugur, fæddir 1905, létust með skömmu millibili síðla árs 1976, og Sigrún, fædd 1910, dáin 1945. Hún var gift Þorsteini J. Stefáns- syni frá Rauðhólum í Vopnafirði. Þau eignuðust tvær dætur, Heiðr- únu og Aðalbjörgu. Kristín ólst upp í foreldrahúsum. Þegar Runólfur bróðir hennar kvæntist tók hann við búsforráðum að hluta, en síðar tóku þau systkin- in Halldór, Kristín og Ásgeir við búsforráðum að hluta af foreldrum sínum. Frá þeim tíma voru í raun tvö heimili á Ásbrandsstöðum, en þó ekki nema eitt, svo samhent var fólkið í búrekstrinum og störfum öllum. Runólfur og Guðrún eignuðust sjö börn sem öll eru á lífi. Þau systkinin Kristín og Halldór tóku tvær dætra Runólfs í fóstur og ólu upp sem sínar dætur, þær Guðnýju húsfreyju á Torfastöðum í Vopna- firði og Sigrúnu húsfreyju á Ás- brandsstöðum. Þegar Sigrún systir þeirra féll frá langt um aldur fram tóku þau Heiðrúnu dóttur hennar einnig í fóstur. Það hefur oft verið mannmargt og gestkvæmt á Ásbrahdsstöðum um dagana. Margir hafa átt erindi við póstinn sem átti póstleið norður að Víkingavatni í Kelduhverfi og austur í Jökulsárhlíð. Frændgarð- urinn var líka stór og samband gott milli ættingja. Á Ásbrandsstöðum hefur lengst af verið búið myndarbúi. Þar hefur hagsýni og ráðdeild verið í fyrir- rúmi. í kringum 1960 var ráðist í það stórvirki að byggja nýtt íbúð- arhús, sem í raun eru tvö hús, sambyggð svo haganlega að sam- vinna heimilanna tveggja nýtur sín til hins ýtrasta. Þótt Kristín ætti sinn starfsvett- vang öðru fremur á Ásbrands- staðaheimilinu hleypti hún heim- draganum milli tvítugs og þrítugs og dvaldi þá um tíma sem vinn- ustúlka á Reyðarfirði en einnig hjá læknishjónunum Aagot og Árna Vilhjálmssyni á Vopnafirði. Margir unglingar, skyldir og vandalausir, hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dvelja sumarlangt við leiki og störf á Ásbrandsstöðum. Sum hver mörg sumur. Ég veit að mörgum þeirra er þakklæti í huga þegar þau hugsa til dvalar sinnar þar og ég vil færa „frænku“ sérstakar þakkir barna minna fyrir það að hafa átt þess kost að dvelja þar, kynnast fólkinu og störfum þess og vera þátttak- andi í því frjóa lífsstarfi sem unnið er í sveitum landsins. Þrátt fyrir háan aldur var Kristín lengst af fremur hraust og naut þess, sem því miður allt of fáir aldraðir fá að njóta, að geta verið heima. Þar er ekki síst fyrir að þakka bróðurdætrum hennar, Sigrúnu og Kristínu Rúnólfsdætr- um, sem hugsað hafa af mikilli nærfærni um eldri kynslóðina og gert þeim kleift að eyða ævikvöld- inu á heimili sínu. Blessuð sé minning Kristínar Guðmundsdóttur. Hermann Hansson Minning: Kristján L. Sölvason Hreiðarsstöðum Finnskt guf ubaó með öllu tilheyrandi til sölu. Nær ónotað. Verð ca 120.000. Upplýsingar í síma 96-27991. Fæddur 1. júlí 1970 Dáinn 7. nóvember 1989 „Vits er þörf, þeim sem víða ratar“ segir í Hávamálum. En við, sem þekktum Kristján Sölvason, Hreiðarsstöðum í Svarf- aðardal, vissum að þar fór maður sem ekki þurfti að segja þetta, því alltaf vissi hann í hvað stefndi. Hann var mannvinur, félagi góður og glaður á góðri stund, alltaf hress og ræðinn. Hann var alltaf til í að spjalla um hvaðeina og vissi alltaf hvað hann söng, hvort það var pólitík eða fótbolti, eða eitthvað þar á milli, eða þá tónlist sem hann hafði smekk fyrir og fór ekki dult með. Og víst breyttist hann þegar hann hafði gítar milli handanna þá gjarna í hávært skrímsli eða tifandi lækjarklið. Hvort hann spilaði vel eða illa dæmi ég ekki um, enda ekki maður til þess. Að sjálfsögðu spilaði hann í hljómsveit nokkurri sem ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að spila í um tíma. Þá lentum við í því að setja hljóðkerfi sveitar- innar upp í rútu einni er átti að Benedikt Jakobsson vélstjóri - Minning’ Fæddur 23. september 1925 Dáinn 21. janúar 1990 Hann vinur minn er farinn, búinn að kveðja þennan heim. Margar voru okkar samverustufidir, aðal- lega störf við sjó. Hann var minn yfirmaður á Hugrúnu ÍS í mörg ár og var gott að hafa notið þess að starfa með honum. Margt lærði ég af þessum sér- staka manni. Hann var vélstjóri og sá vel um það starf eins og allt sem hann tók sér fyrir hendur. Benedikt fæddist í Reykjafirði í Grunnavíkur- hreppi 23. sept. 1925 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hann fór svo í vélstjóraskóla á ísafirði og stundaði það starf í mörg ár, en sjómennskan varð hans ævistarf. Benedikt kvæntist eftirlifandi konu sinni, Níelsínu Þorvaldsdóttur, 18. sept. 1954 og stofnuðu þau sitt heimili í Bolungarvík. Þau eignuð- ust 3 dætur, misstu eina unga. Einnig gekk Benedikt dóttur Níelsínu í föðurstað og var henni sem besti faðir, sýnir það bést að synir hennar voru mörg ár með afa sínum á sjó. Þegar Benedikt var búinn að vera vélstjóri á stærri skipum í mörg ár kaupir hann sér trillu og gerði hana út á sumrin, en vann við rækjuvinnslu hjá íshúsfélagi Bolungarvíkur hf. á vetrum. Bene- dikt var heppinn sjómaður, fiskaði vel og var mörgum yngri mönnum fyrirmynd. Ég sem þetta skrifa átti sérstakt taka við þeim sem ekki komust að jarðarför einni í Dalvíkurkirkju. Átti jarðarförin að hefjast klukkan tvö á laugardegi. Um klukkan tíu samstarf alla tíð með honum. Við vorum báðir komnir með smábáta og unnum mikið saman. í sumar veiktist hann og fer suður í rann- sókn, þá kom í Ijós alvarlegur sjúk- dómur og gekkst hann undir mikla skurðaðgerð sem virtist hafa tekist vel, en stuttu fyrir jól fór hann aft- ur að fínna fyrir þessum sjúkdómi. 3. janúar sl. fer hann aftur á sjúkra- hús og þá kom í ljós að aðgerðin hafði ekki dugað. Hann lést í Land- spítalanum 21. janúar sl. Ég vonaði fram á síðustu stundu að Benedikt kæmi heill til baka. Ég votta Níelsínu, dætrum, tengdasyni, barnabörnum og barna- barni dýpstu samúð. Krislján Þorleifsson um morguninn kom ég í Staðarhól, þar sem við höfðum mælt okkur mót og var hann þá að drekka morgunkaffi í eldhúsinu hjá ömmu sinni. Stuttu seinna stormuðum við út og gerðum nokkrar snúrur klár- ar, höfðum keypt efni í á Akureyri daginn áður, fórum með kerfið í kirkjuna, tengdum það upp og sett- um boxin upp í rútunni og rétt náðum að klára fyrir klukkan tvö. Þegar fólkið fór svo að tínast inn í kirkjuna kom í ljós að þennan útbúnað þurfti ekki. Víst voru þetta vonbrigði fyrir okkur en hann tók þeim með þvílíkri ró að hún smitaði út frá sér, vonbrigðin gleymdusl og við áttum góða stund samar þarna í rútunni, báðir sátum við og hlustuðum á það sem fram fór í kirkjunni og ræddum þau eilitlu mistök sem okkur höfðu orðið á, stoltir af dagsverkinu. Guð blessi góðan dreng. Hjalti Árnason SJÁLFSTIEDISFLOKKURIHN F É I. A G S S T A R F Kópavogur - spilakvöld Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður í Sjálfstæðishúsinu Hambraborg 1,3. hæð, þriöjudaginn 27. febrúar kl. 21 stundvíslega. Ný keppni. Mætum öll. Stjórnin. Tálknafjörður Fundur verður haldinn í kaffistofu Þórs- bergs miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20.30. Þorvaldur Garðar Kristjánsson mætir á fundinn og ræðir um stjórnmálaviðhorfið og byggðamál. Sjálfstæðisfólk, fjölmennið. Sjálfstæðisfélag Tálknafjarðar. Egilsstaðir Fundur ( Sjálfstæðisfélaginu á Egilsstöðum verður í Valaskjálf mið- vikudaginn 28. febrúar kl. 21.00. Fundarefni: Undirbúningur bæjarstjórnarkosninganna. Stjórnin. Patreksfjörður Félagsfundur í sjálfstæðisfélaginu Skildi verður haldinn í Matborg þriðjudaginn 27. febrúar kl. 21.00. Fundarefni: 1. Stjórnmálaviðhorfið, Þorvaldur Garðar Kristjánsson. 2. Sveitarstjórnarkosningar. 3. Önnur mál. Stjórnin. Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Selfossi Almennur félagsf undur verður haldinn 1. mars nk. kl. 20.30 í Hótel Selfossi, norðursal. Dagskrá fundarins verður: 1. Tillaga kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á Selfossi. 2. Kosningaundirbúningurinn. 3. Húsnæðismál. 4. Önnur mál. Allir, sem þátt tóku í prófkjörinu, eru hvattir til að mæta og taka þátt f flokksstarfinu. Stjórn sjálfstæðisfélagsins Óðins. Við höfum skömm á skattastjórnum Opinn fundur um skattamál verður haldinn á Hótel Borg fimmtudag- inn 1. mars kl. 17.00 undir fyrirsögininni: Við höfum skömm á skatta- stjórnum. Erindi flytja: Þuríður Pálsdóttir, Ólafur B. Thors, Kristján Guðmundsson, Geir H. Haarde og Halldór Blöndal. Fundarstjóri verður Davíð Stefánsson. Allir, sem fengið hafa nóg af skattpíningu rikisstjórnar Steingríms Hermannssonar, eru velkomnir á fundinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.