Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990
31
Minning:
Krístín Guðmundsdótt-
*
ir Asbrandsstöðum
Fædd 27. júlí 1900
Dáin 20. febrúar 1990
„Hún frænka er dáin. Hún fékk
hvíldina seint í gærkvöldi,“ sagði
Heiðrún kona mín við mig þegar
hún hringdi til mín snemma að
morgni þriðjudagsins, 20. febrúar
sl. „Frænka“, sem hún nefndi
ávallt svo, var móðursystir hennar,
sem gekk henni í móður stað frá
þriggja ára aldri.
Kristín fæddist á Ásbrandsstöð-
um í Vopnafirði 27. júlí aldamóta-
árið og ól þar allan sinn aldur.
Hún var nærstelst í sex systkina
hópi. Foreldrar hennar voru Guð-
mundur Kristjánsson, bóndi á Ás-
brandsstöðum og póstur, og kona
hans, Sesselja Eiríksdóttir frá
Hafrafelli í Fellum. Hin systkinin
voru: Runólfur bóndi og póstur á
Ásbrandsstöðum, fæddur 1898,
dáinn 1989. Hann var kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur, fædd 1899,
frá Hrauntanga í Axarfirði sem
lifir mann sinn og býr heima á
Ásbrandsstöðum. Halldór, fæddur
1903, bóndi á Ásbrandsstöðum,
tvíburabræðurnir Ásgeir og Gunn-
laugur, fæddir 1905, létust með
skömmu millibili síðla árs 1976,
og Sigrún, fædd 1910, dáin 1945.
Hún var gift Þorsteini J. Stefáns-
syni frá Rauðhólum í Vopnafirði.
Þau eignuðust tvær dætur, Heiðr-
únu og Aðalbjörgu.
Kristín ólst upp í foreldrahúsum.
Þegar Runólfur bróðir hennar
kvæntist tók hann við búsforráðum
að hluta, en síðar tóku þau systkin-
in Halldór, Kristín og Ásgeir við
búsforráðum að hluta af foreldrum
sínum.
Frá þeim tíma voru í raun tvö
heimili á Ásbrandsstöðum, en þó
ekki nema eitt, svo samhent var
fólkið í búrekstrinum og störfum
öllum.
Runólfur og Guðrún eignuðust
sjö börn sem öll eru á lífi. Þau
systkinin Kristín og Halldór tóku
tvær dætra Runólfs í fóstur og ólu
upp sem sínar dætur, þær Guðnýju
húsfreyju á Torfastöðum í Vopna-
firði og Sigrúnu húsfreyju á Ás-
brandsstöðum. Þegar Sigrún systir
þeirra féll frá langt um aldur fram
tóku þau Heiðrúnu dóttur hennar
einnig í fóstur.
Það hefur oft verið mannmargt
og gestkvæmt á Ásbrahdsstöðum
um dagana. Margir hafa átt erindi
við póstinn sem átti póstleið norður
að Víkingavatni í Kelduhverfi og
austur í Jökulsárhlíð. Frændgarð-
urinn var líka stór og samband
gott milli ættingja.
Á Ásbrandsstöðum hefur lengst
af verið búið myndarbúi. Þar hefur
hagsýni og ráðdeild verið í fyrir-
rúmi. í kringum 1960 var ráðist í
það stórvirki að byggja nýtt íbúð-
arhús, sem í raun eru tvö hús,
sambyggð svo haganlega að sam-
vinna heimilanna tveggja nýtur sín
til hins ýtrasta.
Þótt Kristín ætti sinn starfsvett-
vang öðru fremur á Ásbrands-
staðaheimilinu hleypti hún heim-
draganum milli tvítugs og þrítugs
og dvaldi þá um tíma sem vinn-
ustúlka á Reyðarfirði en einnig hjá
læknishjónunum Aagot og Árna
Vilhjálmssyni á Vopnafirði.
Margir unglingar, skyldir og
vandalausir, hafa orðið þeirrar
gæfu aðnjótandi að fá að dvelja
sumarlangt við leiki og störf á
Ásbrandsstöðum. Sum hver mörg
sumur. Ég veit að mörgum þeirra
er þakklæti í huga þegar þau hugsa
til dvalar sinnar þar og ég vil færa
„frænku“ sérstakar þakkir barna
minna fyrir það að hafa átt þess
kost að dvelja þar, kynnast fólkinu
og störfum þess og vera þátttak-
andi í því frjóa lífsstarfi sem unnið
er í sveitum landsins.
Þrátt fyrir háan aldur var
Kristín lengst af fremur hraust og
naut þess, sem því miður allt of
fáir aldraðir fá að njóta, að geta
verið heima. Þar er ekki síst fyrir
að þakka bróðurdætrum hennar,
Sigrúnu og Kristínu Rúnólfsdætr-
um, sem hugsað hafa af mikilli
nærfærni um eldri kynslóðina og
gert þeim kleift að eyða ævikvöld-
inu á heimili sínu.
Blessuð sé minning Kristínar
Guðmundsdóttur.
Hermann Hansson
Minning:
Kristján L. Sölvason
Hreiðarsstöðum
Finnskt guf ubaó
með öllu tilheyrandi til sölu. Nær
ónotað. Verð ca 120.000.
Upplýsingar í síma 96-27991.
Fæddur 1. júlí 1970
Dáinn 7. nóvember 1989
„Vits er þörf,
þeim sem víða ratar“
segir í Hávamálum.
En við, sem þekktum Kristján
Sölvason, Hreiðarsstöðum í Svarf-
aðardal, vissum að þar fór maður
sem ekki þurfti að segja þetta, því
alltaf vissi hann í hvað stefndi.
Hann var mannvinur, félagi góður
og glaður á góðri stund, alltaf hress
og ræðinn. Hann var alltaf til í að
spjalla um hvaðeina og vissi alltaf
hvað hann söng, hvort það var
pólitík eða fótbolti, eða eitthvað þar
á milli, eða þá tónlist sem hann
hafði smekk fyrir og fór ekki dult
með. Og víst breyttist hann þegar
hann hafði gítar milli handanna þá
gjarna í hávært skrímsli eða tifandi
lækjarklið. Hvort hann spilaði vel
eða illa dæmi ég ekki um, enda
ekki maður til þess. Að sjálfsögðu
spilaði hann í hljómsveit nokkurri
sem ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að spila í um tíma. Þá lentum
við í því að setja hljóðkerfi sveitar-
innar upp í rútu einni er átti að
Benedikt Jakobsson
vélstjóri - Minning’
Fæddur 23. september 1925
Dáinn 21. janúar 1990
Hann vinur minn er farinn, búinn
að kveðja þennan heim. Margar
voru okkar samverustufidir, aðal-
lega störf við sjó. Hann var minn
yfirmaður á Hugrúnu ÍS í mörg ár
og var gott að hafa notið þess að
starfa með honum.
Margt lærði ég af þessum sér-
staka manni. Hann var vélstjóri og
sá vel um það starf eins og allt sem
hann tók sér fyrir hendur. Benedikt
fæddist í Reykjafirði í Grunnavíkur-
hreppi 23. sept. 1925 og ólst þar
upp í stórum systkinahópi. Hann
fór svo í vélstjóraskóla á ísafirði
og stundaði það starf í mörg ár,
en sjómennskan varð hans ævistarf.
Benedikt kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Níelsínu Þorvaldsdóttur,
18. sept. 1954 og stofnuðu þau sitt
heimili í Bolungarvík. Þau eignuð-
ust 3 dætur, misstu eina unga.
Einnig gekk Benedikt dóttur
Níelsínu í föðurstað og var henni
sem besti faðir, sýnir það bést að
synir hennar voru mörg ár með afa
sínum á sjó.
Þegar Benedikt var búinn að
vera vélstjóri á stærri skipum í
mörg ár kaupir hann sér trillu og
gerði hana út á sumrin, en vann
við rækjuvinnslu hjá íshúsfélagi
Bolungarvíkur hf. á vetrum. Bene-
dikt var heppinn sjómaður, fiskaði
vel og var mörgum yngri mönnum
fyrirmynd.
Ég sem þetta skrifa átti sérstakt
taka við þeim sem ekki komust að
jarðarför einni í Dalvíkurkirkju.
Átti jarðarförin að hefjast klukkan
tvö á laugardegi. Um klukkan tíu
samstarf alla tíð með honum. Við
vorum báðir komnir með smábáta
og unnum mikið saman. í sumar
veiktist hann og fer suður í rann-
sókn, þá kom í Ijós alvarlegur sjúk-
dómur og gekkst hann undir mikla
skurðaðgerð sem virtist hafa tekist
vel, en stuttu fyrir jól fór hann aft-
ur að fínna fyrir þessum sjúkdómi.
3. janúar sl. fer hann aftur á sjúkra-
hús og þá kom í ljós að aðgerðin
hafði ekki dugað. Hann lést í Land-
spítalanum 21. janúar sl.
Ég vonaði fram á síðustu stundu
að Benedikt kæmi heill til baka.
Ég votta Níelsínu, dætrum,
tengdasyni, barnabörnum og barna-
barni dýpstu samúð.
Krislján Þorleifsson
um morguninn kom ég í Staðarhól,
þar sem við höfðum mælt okkur
mót og var hann þá að drekka
morgunkaffi í eldhúsinu hjá ömmu
sinni. Stuttu seinna stormuðum við
út og gerðum nokkrar snúrur klár-
ar, höfðum keypt efni í á Akureyri
daginn áður, fórum með kerfið í
kirkjuna, tengdum það upp og sett-
um boxin upp í rútunni og rétt
náðum að klára fyrir klukkan tvö.
Þegar fólkið fór svo að tínast inn
í kirkjuna kom í ljós að þennan
útbúnað þurfti ekki. Víst voru þetta
vonbrigði fyrir okkur en hann tók
þeim með þvílíkri ró að hún smitaði
út frá sér, vonbrigðin gleymdusl
og við áttum góða stund samar
þarna í rútunni, báðir sátum við og
hlustuðum á það sem fram fór í
kirkjunni og ræddum þau eilitlu
mistök sem okkur höfðu orðið á,
stoltir af dagsverkinu.
Guð blessi góðan dreng.
Hjalti Árnason
SJÁLFSTIEDISFLOKKURIHN
F É I. A G S S T A R F
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður í Sjálfstæðishúsinu
Hambraborg 1,3. hæð, þriöjudaginn 27. febrúar kl. 21 stundvíslega.
Ný keppni. Mætum öll.
Stjórnin.
Tálknafjörður
Fundur verður haldinn í kaffistofu Þórs-
bergs miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20.30.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson mætir á
fundinn og ræðir um stjórnmálaviðhorfið
og byggðamál.
Sjálfstæðisfólk, fjölmennið.
Sjálfstæðisfélag Tálknafjarðar.
Egilsstaðir
Fundur ( Sjálfstæðisfélaginu á Egilsstöðum verður í Valaskjálf mið-
vikudaginn 28. febrúar kl. 21.00.
Fundarefni: Undirbúningur bæjarstjórnarkosninganna.
Stjórnin.
Patreksfjörður
Félagsfundur í sjálfstæðisfélaginu Skildi
verður haldinn í Matborg þriðjudaginn 27.
febrúar kl. 21.00.
Fundarefni:
1. Stjórnmálaviðhorfið, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
2. Sveitarstjórnarkosningar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Selfossi
Almennur félagsf undur
verður haldinn 1. mars nk. kl. 20.30 í Hótel Selfossi, norðursal.
Dagskrá fundarins verður:
1. Tillaga kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar á Selfossi.
2. Kosningaundirbúningurinn.
3. Húsnæðismál.
4. Önnur mál.
Allir, sem þátt tóku í prófkjörinu, eru hvattir til að mæta og taka
þátt f flokksstarfinu.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins Óðins.
Við höfum skömm á
skattastjórnum
Opinn fundur um skattamál verður haldinn á Hótel Borg fimmtudag-
inn 1. mars kl. 17.00 undir fyrirsögininni: Við höfum skömm á skatta-
stjórnum.
Erindi flytja:
Þuríður Pálsdóttir, Ólafur B. Thors, Kristján Guðmundsson, Geir H.
Haarde og Halldór Blöndal. Fundarstjóri verður Davíð Stefánsson.
Allir, sem fengið hafa nóg af skattpíningu rikisstjórnar Steingríms
Hermannssonar, eru velkomnir á fundinn.