Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 35

Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 35
ólst síðan upp hjá þeim. Hún er kennari að mennt, gift Helga Gunn- arssyni hagfræðingi og eiga þau tvö börn. Á hveiju ári söfnuðust vinir og ættingjar saman á afmæli Dísu. Var þetta ánægjuleg stund að sjá hina myndarlegu og samhentu fjöl- skyidu ekki síst nú á tímum minnk- andi persónulegra samskipta. Sjálf var Dísa allra manna minnugust á afmæli og aðra merk- isdaga í lífi vina sinna. Hún var mjög vinmörg og rækti vel vinátt- una. Dísa var hógvær kona og háttvís og svo æðruiaus að ekkert virtist raska ró hennar og alltaf hafði hún tíma til alls. Hún starfaði t.d. um árabil sem sjálfboðaliði Rauða krossins á sjúkrahúsum. Einnig vann hún mikið við rekstur fyrirtækis þeirra hjóna, Radíóhúsið. Ég votta ijölskyldu Dísu innilega samúð. Við söknum öll góðrar konu. Gerður Magnúsdóttir Nú er hún farin frá okkur hún Hjördís, farin leiðina sem bíður okkar allra. Hjördís var blessun í mínu lífi frá því að ég byijaði að starfa fyrir þau hjónin og ekki síður eftir að við hófum viðskipti saman. Hún bar alltaf umhyggju fyrir mér eins og hún væri amma mín. Sér- stakt dálæti hafði hún á börnum og betri ömmu var ekki hægt að hugsa sér. Þegar viðskiptavinir, sem komu að versla í búðina, voru með börn með sér sneri hún sér oft fyrst að bömunum og fór að tala við þau áður en hún sneri sér að viðskiptavinunum. Hjördís var ein- staklega geðgóð manneskja, var alltaf í góðu skapi og hafði jákvæð áhrif á fólkið í kringum sig. Aldrei sá ég hana verða reiða eða hasta á nokkurn mann. Við störfuðum saman í tæp tólf ár og alltaf gekk það samstarf vel. Á þeim tímum í mínu lífi þegar ég átti í erfiðleikum og gat ekki stund- að vinnuna sem skyldi, var til nóg af skilningi og umburðarlyndi handa mér. Hjördís var yndisleg kona og lífið verður tómlegra án hennar. Hugg- un er þó harmi að vita af henni hjá drottni föður vorum. Ég þakka fyr- ir samfylgdina. Eftirlifandi eiginmanni, Ólafi Jónssyni, og öðrum ættingjum votta ég fyllstu samúð mína. Hartmann Guðmundsson Snemma árs 1968, rúmu ári eft- ir stofnun Kvennadeildar Rauða kross íslands, hófu sjúkravinir störf við sjúklingabókasafn Borgarspítal- ans. Það voru 15 konur, sem tóku þátt í þessari starfsemi undir ör- uggri handleiðslu Kristínar H. Pét- ursdóttur, bókasafnsfr. Ein þessara kvenna, Hjördís Jónsdóttir, varð bráðkvödd föstudaginn 16. febr. sl. Eins og svo oft áður gerði dauð- inn ekki boð á undan sér — okkur samstarfskonum Hjördísar brá ónotalega, þegar við fréttum að hún væri öll. Aðeins tveimur dögum áður hafði hún verið með okkur á hádegisverðarfundi kvennadeildar- innar, kát og hress að vanda. Hjördís var sérlega félagslynd og ótrúlega dugmikil, alltaf tilbúin að hlaupa í skarðið, taka á sig vakt- ir eða skipta ef þess var þörf — sá eiginleiki var henni einnig gefinn að gera alltaf gott úr öllu, leggja aldrei nema gott til málanna ef ein- hver ágreiningur kom upp — það er því sannarlega skarð fyrir skildi við fráfall hennar í okkar hópi. Við eigum eftir að sakna hennar, en minningin um góðan vin og sam- starfsmann mun ylja okkur á ókomnum dögum. Kæri Ólafur, við vottum þér og íjölskyldu þinni okk- ar dýpstu samúð. Hjördísi biðjum við Guðs blessunar á eilífðarbraut. Sjúkravinir á sjúkra- bókasafni Borgarspítalans I dag er til moldar borin frá Dómkirkjunni Hjördís Jónsdóttir, sem lést á heimili sínu, Lynghaga 24 hér í borg, hinn 16. febrúar sl. Með henni er í valinn fallin ein af hinum glæsilegu Reykjavíkurstúlk- um, sem mótuðu og tóku þátt í MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990 ------------------------------(—r félagslífí ungs fólks hér í borg á árunum fyrir seinni heimsstyijöld- ina, en þeim fækkar nú óðum eftir því sem árin líða. Hjördís fæddist á Akranesi hinn 1. febrúar 1915. Að henni stóðu sterkir stofnar í báðar ættir. Faðir hennar var Jón Júlíus Pálsson, fæddur í Melshúsum, Reykjavík, sonur hjónanna Þuríðar Jónsdóttur og Páls Jónssonar, sem þar bjuggu. Móðir hennar var Elín Ólafsdóttir, fædd að Bræðraparti á Akranesi, dóttir hjónanna Guðrúnar Tómas- dóttur Zoéga og Ólafs Jóhannes- sonar, útvegsbónda þar. Forfaðir Hjördísar var því Jóhannes Zoéga, sem fluttist hingað til lands á veg- um íslensku konungsverslunarinnar um 1780 og er hann ættfaðir allra þeirra, sem bera nafnið Zoéga hér á landi. En upphaflega mun vagga Zoéga-ættarinar hafa staðið á It- alíu. Dísa, en svo var hún venjulega kölluð, ólst upp í foreldrahúsum í Reykjavík, fyrst í Tjarnargötu 8, en lengst af á Ránargötu 32 og var elst þriggja systkina, er á legg kom- ust. Á þessari stundu er litla bróð- ur, sem þessar línur ritar, efst í huga þakklæti til stóru systur, sem sýndi honum ávallt vinarþel og til hinstu stundar allt að því móðurlega umhyggju. Dísa varð snemma tápmikil stúlka. Hún stundaði á unglings- árum íþróttir hjá Glímufélaginu Ármanni og var um árabil í sýning- arflokki félagsins í kvennaleikfími. Fljótlega eftir fermingu hóf hún störf á vinnumarkaðinum, fyrst sem afgreiðslustúlka við verslanir Slát- urfélags Suðurlands, en síðar sem skrifstofustúlka hjá lögfræðiskrif- stofu Ólafs Þorgrímssonar hér í borg. Arið 1949, hinn 2. júlí, gekk hún að eiga sinn ágæta eftirlifandi eig- inmann, Ólaf Jónsson, útvarps- virkjameistara, en hann er sonur merkishjónanna Emilíu Sighvats- dóttur Bjarnasonar, sem varð árið 1904 einn af fyrstu bankastjórum gamla íslandsbanka hf., og Jóns Kristjánssonar læknis. Þau Óli og Dísa voru ætíð hamingjusöm í sínu hjónabandi og samheldni fjölskyld- unnar ávallt með ágætum, enda var hún bundin tryggðaböndum. Þau hjónin höfðu um nokkurra ára skeið í samstarfí starfrækt verslunina Radíóhúsið. Gekk Hjördís þar til starfa hvern virkan dag af miklum dugnaði og atorku allt til hinstu stundar og sýndi þar með hversu mikill starfsvilji og seigla í henni bjó. Þeim hjónum varð tveggja mann- vænlegra sona auðið, sem eru Jón '■; h ! 1 .»■" • • i -—11 t (t j;. > lyíjafræðingur, fæddur 30. júlí 1949, kvæntur Elsu Karólínu Ás- geirsdóttur meinatækni, og Ólafur einnig lyfjafræðingur, fæddur 1. apríl 1951, kvæntur Hlíf Þórarins- dóttur læknaritara. Einnig ólst upp frá unga aldri á heimili þeirra hjón- anna bróðurdóttir Hjördísar, Sigríð- ur, kennari, fædd 12. október 1955, en hennar maður er Helgi Gunnars- son, hagfræðingur. Barnabörnin eru nú orðin 8, sem eiga nú á bak að sjá góðri og kærleiksríkri ömmu, því að barnabörnin áttu ávallt ör- uggt hæli og skjól á heimili afa og ömmu á Lynghaga 24. Sá sem þetta. ritar sér einnig ástæðu til að bera fram alúðar- fyllstu þakkir fyrir ánægjulegar samverustundir á heimili Dísu syst- ur sinnar og Ólafs mágs síns, með þeim, börnum þeirra, tengdabörn- um og bamabörnum. Heimilið hefur ætíð staðið mér opið sem mitt ann- að heimili og samskiptin við þetta ágæta fólk hafa verið mér mikils virði. Hjördís missti föður sinn í apríl- mánuði árið 1933, og frá þeim tíma studdi hún ávallt þétt við bak móð- ur okkar í ekkjustandinu, allt þar til hún lést 1. júlí 1964. Hjördís hafði til að bera flesta góða kosti, sem prýða mega konu. Hún var greind, glaðlynd, vinamörg og trygglynd. Hún hélt því ávallt tryggð við æskuvinkonur sínar, þótt tímans tönn hafi oft á tíðum höggvið skörð í vinahópinn, eftir því sem árin hafa liðið. Hún hafði jákvæða afstöðu til Iífsins. Lagði jafnan gott til allra mála og var fús til að rétta hjálparhönd, ef þess þurfti með. Hún var ekki dómhörð í samskiptum við menn, umtalsgóð og kappkostaði ætíð að horfa á björtu hliðina bæði á mönnum og málefnum. Hún rækti öll sín störf af fyllstu alúð og samviskusemi og voru öll málefni í góðum höndum, sem hún tók að sér að vinna að. í allmörg ár starfaði hún í félags- skap þeirra ágætu kvenna, sem á vegum Rauða kross íslands hafa í sjálfboðavinnu unnið að málefnum sjúklinga á sjúkrahúsum borgarinn- ar og hafði hún af því starfi mikla unun og sýndi því mikinn áhuga. Með Hjördísi er til moldar gengin ein af þessum kærieiksríku mann- kostakonum, sem hafa kosið sérþað hlutskipti að lifa lífi hinna kyrrlátu í landinu og sem hafa það efst í huga að fórna sér fyrir þá, sem eru þeim kærir. Þessar konur spyija sjaldnast um hvað aðrir geti gert fyrir þær, heldur hvað þær geti gert fyrir aðra. Kærleiksverk unnin af alúð í kyrrþey eru þeirra aðals- —n—|---------------------------------- merki. Hjördís kappkostaði því fyrst og fremst að helga líf sitt því að vera ástrík og góð eiginkona og móðir og síðar einnig góð tengda- móðir og amma. Ég vil að lokum fyrir hönd mína og míns skylduliðs færa Ólafi, börn- um hans, tengdabörnum og barna- börnum okkarinnilegustu samúðar- kveðjur. En það er huggun harmi gegn, að minningin um góða konu gleymist ekki. Hún mun lifa í hug- um okkar alla tíð. Því. eins og segir í Hávamálum: Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr it 'sama; en orðstírr deyr aldregi, hveim er sér góðan getr. Sverrir Jónsson í dag kveðjum við Dísu, okkar beztu frænku, sem var okkur eins og stóra systir. Og við eigum henni svo margt að þakka. Við vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í húsi foreldra hennar, allt frá fæð- ingu. Þá var faðir hennar látinn og móðir hennar, sem var afasystir okkar, bjó þar með þrem börnum sínum. En á loftinu bjuggu foreldrar okkar með okkur fimm systkinin. Við vorum öll sem ein stór fjöl- skylda. Okkar gæfa var, að þau systkinin Dísa, Sverrir og Gunnar voru það eldri en við, að við nutum þess að hjá þeim var gnægð af gæsku og fróðleik. Oft var hlaupið niður stigann með spurningar óg alltaf var komið aftur upp með bros á vör og góð svör. Ung misstum við foreldra okkar, systkinin á loftinu. Missirinn var okkur mikill, en hjartahlýjan og umhyggjan hjá þeim niðri var sem smyrsl á sárin. Þeirri hlýju og um- hyggju sem við fengum þá, verður ekki gleymt og seint þakkað. Árin líða, sárin gróa og gleðin tekur við. Þá koma bjartir dagar vonir rætast. Gleði okkar yfir in- dælu hjónbandi Dísu og Öla, og þeirra hlýja og fallega heimili sem stóð okkur alltaf opið, þökkum við af heilum hug. Dísa frænka var sameiningar- tákn okkar Ijölskyldna, allir elskuðu hana og virtu, hún fylgdist með okkur öllum frá fæðingu og einnig börnum okkar og barnabörnum. Mesta gleði okkar og barnanna var að koma á heimili Dísu og Óla á aðfangadagskvöld þar sem allir voru saman komnir til að fagna fæðingu Frelsarans. Okkur langar til að enda þessi 35 fátæklegu þakkarorð á Grafminn- ingarbroti Bjarna Thorarensens skálds, um móður sína látna, þar sem hann segir: Mikilla manna minning lifir. Gleymist góð kona. • Einn býr ógleyminn ofar stjörnum sá karla skóp og konur. Únna og Hulda Hún amma á Lynghaga er dáin. Hún sem var nýbúin að halda upp á 75 ára afmælið sitt með okkur. Við vorum svo stolt af því að fara út að borða með henni á afmælis- daginn 1. febrúar sl. Þetta kvöld var ævintýri fyrir okkur, þar sem amma var miðpunkturinn. Það er gott að muna hana ömmu. Hún var alltaf svo kát og glöð og- vildi allt fyrir okkur og hin barna- börnin gera. Það var sama hvað okkur datt í hug — alltaf var hún jákvæð og til í að prófa. Auðvitað máttum við tína allt upp úr skúff- unni „okkar“ í eldhúsinu og bera það upp á loft — hengja band í fötu og hífa dót á milli hæða! Það var frekar að mömmu og pabba þætti nóg um. Þótt hún amma hafi oft verið lasin í fætinum sínum lét hún það ekki aftra sér frá því að vinna í búðinni á hveijum degi — vera á bókasafninu á Borgarspítalanum fyrir Rauða krossinn eða fara það sem hún ætlaði sér. Við eigunVgóðar minningar frá ferðalagi með henni og afa, pabba og mömmu til Kaupmannahafnar fyrir 4 árum. Þaðan átti hún svo margar sögur að segja, frá því hún var þar sumarlangt með vinkonum sínum 1939. Já, hún talaði oft um ’39 og það var greinilegt að það sumar hafði verið hennar ævintýri. Hún amma átti góða ævi. Hún átti góðan mann og voru þau afi miklir vinir. Þau voru svo samhent. Amma vildi allt fyrir okkur gera — helst ekkert þiggja sjálf. Samt átti hún alltaf pláss fyrir'föndrið, fígúr- urnar og myndirnar sem við ásamt frændsystkinum okkar bjuggum til handa henni og afa. Allir þessir hlutir áttu sitt pláss og engu var hent. Góði guð, viltu vaka yfír honum afa og vera hjá honum alltaf — því hann hefur misst svo mikið. Viltu líka skila til hennar ömmu þakk- læti fyrir allt sem hún hefur verið okkur og mömmu og pabba. Guð geymi hana ömmu okkar. Þórarinn Óli, Hildur Elín, Hjördís Maria. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR frá Kjalvararstöðum, síðast til heimilis í Borgarnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 24. febrúar. Gísli Sumarliðason, Elsa Arnbergsdóttir, Sigfús Sumarliðason, Helga Guðmarsdóttir, Margrét Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Kaerar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð við andlát og útför móður okkar, ÁSTU MÁLFRÍÐAR BJARNADÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík. Ásta K. Michie, Ólöf M. Haggerty, Einar St. Einarsson. + Ástvinur minn og faðir okkar, ÓSKAR JÓNSSON, Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, sem lést af slysförum 19. febrúar sl. verður jarðsunginn frá Nes- kirkju fimmtudaginn 1. mars kl. 13.30. Ester Sveinbjarnadóttir, Markús Óskarsson, Jón Sveinbjörn Óskarsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVAIMHVÍT MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis í Stigahlíð 30, andaðist í Kumbaravogi 26. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Erna Williams, Magnús Thorsteinsson, Súsanna Pálsdóttir og barnabörn. • + Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför SÖRU D. W. KRISTJÁNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki dvalarheimilisins Selja- hlíðar fyrir góða umönnun síðustu misserin. Karitas Kristbjörnsdóttir, Egill Kristbjörnsson, Ingigerður Jónsdóttir, Anna Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t EINAR JÓNSSON frá Ásólfsskála, Háaleitisbraut 117, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 24. febrúar. Ásta Steingrímsdóttir, Hermann og Arnar Einarssynir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.