Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 44
Rynkeby
HREINN
APPELSI'NUSAFI
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Æskulýðs- og íþróttamál:
Framlag borgarínn-
ar um 800 milljónir
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er áætlað að veija
tæplega 795 miiljónum króna til æskulýðs-, tómstunda- og íþrótta-
mála á þessu ári, en í fyrra var varið tæplega 455 milljónum til
þessa málaflokks. Meðal annars er áætlað að verja 100 milijónum
til byggingar vélfrysts skautasvells í Laugardalnum, áætlað er að
verja 78 milljónum vegna framkvæmda við íþróttahús við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, sem tekið verður í notkun næsta haust, og
áætlað er að verja 25 milþ'ónum króna vegna framkvæmda sem
hefjast á þessu ári við byggingu íþróttahúss í Grafarvogi.
Framkvæmdir við vélfryst
skautasvell í Laugardal eru þegar
hafnar, og er áætlað að fram-
kvæmdum við 1. áfanga án yfir-
byggingar ljúki í nóvember, en
► áætlaður kostnaður við skautasvell-
ið án yfirbyggingar er 150 milljón-
ir. Þegar byggt hefur verið yfir
skautasvellið verður hægt að breyta
því í íþróttasal, sem til dæmis mun
rúma þijá handboltavelli eða þijá
tennisvelli, en áhorfendarými fyrir
tvö þúsund manns verður í bygging-
unni.
Á bls. B8 og B9 í blaðinu í dag
er fjallað um íþróttahús í Reykjavík
og nágrannasveitarfélögum, og þar
kemur fram að auk íþróttahússins
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
verður tekið í notkun íþróttahús í
Kaplakrika í Hafnarfirði á þessu
ári, og auk íþróttahússins í Grafar-
vogi er fyrirhugað að reisa þijú
stór íþróttahús í Kópavogsdal á
næstu árum og stefnt er að bygg-
ingu íþróttahúss við Ásvelli í Hafn-
arfirði.
Morgunblaðið/Þorkell
Máltíð í Sædýrasafhinu
Tveir af fjórum háhyrningum sem veiddir voru í október eru enn í
Sædýrasafninu í Hafnarfirði, en tveir þeirra voru seldir til Frakklands
í byijun ársins. Að sögn Helga Jónassonar forráðamanns Sædýra-
safnsins hefur ekki verið ákveðið með sölu á háhyrningunum, og
dvelja þeir væntanlega áfram í Sædýrasafninu næstu vikur.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Siguijón Garðarsson í flotgallanum við trollið sem hann lenti undir á miðunum skammt frá Surtsey.
„Þá lenti ég undir troll-
inu og fór alveg í kaf4
„ÉG VAR í sjónum í 4-5 mínútur. Kunningi minn einn, sem er
kafari, hefúr sagt mér að ég hefði dugað í mesta lagi tvær mínútur
í ísköldum sjónum hefði ég ekki verið í flotgalla," sagði Siguijón
Garðarsson, 19 ára gamall Vestmanneyingur, sem fór útbyrðis
af bátnum Dala Rafni VE þegar hann var við veiðar skammt frá
Surtsey í síðustu viku.
„Það reið skyndilega brot yfir
bátinn. Ég skall út í lunninguna
og út fyrir. Ég hafði engan tíma
til að hugsa í sjónum og man
ekki hvort ég varð hræddur. Ég
synti að trollinu og náði taki á
rússanum, bandi sem liggur aftur
úr því. Skipsfélagar mínir reyndu
að draga mig upp en ég var
máttlítill í höndunum og rann aft-
ur niður. Þá lenti ég undir trollinu
og fór aiveg í kaf. Ég gæti trúað
að ég hafi verið undir því í fimm
sekúndur. Síðan náði ég aftur
taki á rússanum og tókst að vefja
honum um mittið. Skipsfélagamir
drógu mig síðan upp,“ sagði Sig-
uijón.
Siguijón sagðist ekki efast eitt
augnablik um að flotgallinn hefði
orðið sér til lífs í þessum hremm-
ingum. Hann kvaðst ekki hafa
fundið fyrir kulda í sjónum. „Það-
vildi svo vel til að við fórum allir
i vinnuflotgalla vegna þess hversu
slæmt var í sjó. Þetta var í fyrsta
sinn sem við vorum allir samtaka
um að gera það,“ sagði Siguijón.
Bílatryggingar hafa
hækkað um 18,3 á ári
Bifreiðaeigendur greiða þó lægri upp-
hæð vegna niðurfellingar á söluskatti
MEÐALIÐGJALD af ábyrgðar-,
slysa- og framrúðutryggingu bif-
reiðaeigenda hefúr hækkað sam-
tals um 18,3% frá 1. mars í fyrra.
Enginn virðisaukaskattur er
greiddur af tryggingaiðgjöldum
og greiða því þeir bifreiðaeigend-
ur sem endurnýja tryggingu sína
1. mars nk. lægri upphæð en í
fyrra. Til dæmis verður meðalið-
gjald hjá Sjóvá-Almennum
29.249 krónur á móti 30.907
krónum 1. mars 1989. Hjá Vá-
tryggingafélagi íslands greiða
eigendur meðalstórra bíla 32.715
krónur á móti 34.078 krónum 1.
mars 1989.
Siguijón Pétursson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sjóvá-
Álmennra, sagði að nú væri iðgjald
Samkomulag um aflamiðlun, fiskverð og heimalöndunarálag:
Deílt um forræði aflaniiðlunar
SAMKOMULAG um skipan aflamiðlunar sem taki að sér stjórnun á
útflutningi á ísuðum fiski tókst á sunnudag. Samhliða þessu ákvað
yfirnefhd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hækkun flskverðs um 3% til
nóvemberloka og sérstakt heimalöndunarálag. Utanríkis- og sjávar-
útvegsráðherra eru ósammála um hvoru ráðuneytinu beri forræði
yfir aflamiðluninni.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að yfirstjóm
aflamiðlunarinnar heyri undir ut-
anríkisráðuneytið þar til ný lög um
stjómarráðið verði samþykkt, sem
ekki yrði á þessu þingi. Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
segir hins vegar að aflamiðlun sé
hluti af fiskveiðístjórnuninni. Segir
hann að frá því hafí verið gengið
við myndun ríkisstjórnarinnar að
þessi mál heyrðu undir sjávarút-
vegsráðuneytið þegar samkomulag
hefði náðst um skipan mála sem
nú væri í höfn. Halldór segir þó
aðalatriðið að aflamiðlun verði nú
komið á fót undir forræði hags-
munaaðila og að þessum málum því
ekki stýrt úr ráðuneytum.
Lengst af tafði ágreiningur um
skipan í stjóm aflamiðlunar ákvörð-
un um fiskverð en hann var að lok-
um leystur með samkomulagi hags-
munaaðila þess efnis að Sigurbjörn
Svavarsson útgerðarstjóri Granda
hf. og formaður Utvegsmannafé-
lags Reykjavíkur, yrði formaður.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur LÍÚ, telur engan vafa á
því að Sigurbjörn sé fulltrúi útgerð-
armanna í stjórninni. Utanríkisráð-
herra og Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Verkamannasam-
bands íslands, segja að svo sé ekki,
heldur sé hann oddamaður.
Sigurbjörn segir sjálfur að ekki
skipti máli hvernig nefndarmenn
séu kynntir, hvaða starfsheiti eða
titla þeir beri. Aðalatriðið sé að
skipan stjórnar aflamiðlunar hafi
verið ákveðin og samþykkt af öllum
viðkomandi aðilum.
Sjá nánari frásögn og viðbrögð
í miðopnu í dag.
af slysatryggingu ökumanns og eig-
anda 5.484 krónur á ári, en útreikn-
ingar sem gerðir voru í samræmi
við reglur Tryggingaeftirlitsins
sýndu að iðgjaldsþörfin væri rúmar
6.200 krónur. „Við lítum á þetta
sem framlag okkar til þjóðarsáttar-
innar,“ sagði Siguijón. „Menn eru
að vonast til að hagræðing í kjölfar
sameiningar félaganna skili líka
einhveiju.“
Meðalbónus hjá Sjóvá-Almenn-
um var í fyrra 51,2% en er nú
52,5%. Siguijón sagði að þessi
hækkun væri eðlileg og í samræmi
við þá þróun sem verið hefur. Hann
sagði að langflestir væru í efstu
bónusflokkunum, þ.e.a.s. með
50-65% bónus, eða 83% allra öku-
manna sem tryggðir eru hjá fyrir-
tækinu.
Hilmar Pálsson, framkvæmda-
stjóri hjá Vátryggingafélagi ís-
lands, sagði að reglur um bónus
yrðu óbreyttar í ár, en hámarks-
bónus er 70%. Meðalbónus við-
skiptavina Vátryggingafélagsins er
tæplega 55%.
Vátryggingafélagið gefur nú út
„Græna kortið“ sem gildir í 32 lönd-
um í Evrópu. Bifreiðatrygging
handhafa kortsins gildir fyrir bif-
reið hans í þessum löndum og kost-
ar það 2.500 krónur. Fleiri nýjung-
ar verða teknar upp hjá félaginu
nú, t.d. sérstök trygging fyrir hús-
bíla og fornbíla.