Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 44

Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 44
 Rynkeby HREINN APPELSI'NUSAFI ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Æskulýðs- og íþróttamál: Framlag borgarínn- ar um 800 milljónir SAMKVÆMT fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er áætlað að veija tæplega 795 miiljónum króna til æskulýðs-, tómstunda- og íþrótta- mála á þessu ári, en í fyrra var varið tæplega 455 milljónum til þessa málaflokks. Meðal annars er áætlað að verja 100 milijónum til byggingar vélfrysts skautasvells í Laugardalnum, áætlað er að verja 78 milljónum vegna framkvæmda við íþróttahús við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti, sem tekið verður í notkun næsta haust, og áætlað er að verja 25 milþ'ónum króna vegna framkvæmda sem hefjast á þessu ári við byggingu íþróttahúss í Grafarvogi. Framkvæmdir við vélfryst skautasvell í Laugardal eru þegar hafnar, og er áætlað að fram- kvæmdum við 1. áfanga án yfir- byggingar ljúki í nóvember, en ► áætlaður kostnaður við skautasvell- ið án yfirbyggingar er 150 milljón- ir. Þegar byggt hefur verið yfir skautasvellið verður hægt að breyta því í íþróttasal, sem til dæmis mun rúma þijá handboltavelli eða þijá tennisvelli, en áhorfendarými fyrir tvö þúsund manns verður í bygging- unni. Á bls. B8 og B9 í blaðinu í dag er fjallað um íþróttahús í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum, og þar kemur fram að auk íþróttahússins við Fjölbrautaskólann í Breiðholti verður tekið í notkun íþróttahús í Kaplakrika í Hafnarfirði á þessu ári, og auk íþróttahússins í Grafar- vogi er fyrirhugað að reisa þijú stór íþróttahús í Kópavogsdal á næstu árum og stefnt er að bygg- ingu íþróttahúss við Ásvelli í Hafn- arfirði. Morgunblaðið/Þorkell Máltíð í Sædýrasafhinu Tveir af fjórum háhyrningum sem veiddir voru í október eru enn í Sædýrasafninu í Hafnarfirði, en tveir þeirra voru seldir til Frakklands í byijun ársins. Að sögn Helga Jónassonar forráðamanns Sædýra- safnsins hefur ekki verið ákveðið með sölu á háhyrningunum, og dvelja þeir væntanlega áfram í Sædýrasafninu næstu vikur. Morgunblaðið/Sigurgeir Siguijón Garðarsson í flotgallanum við trollið sem hann lenti undir á miðunum skammt frá Surtsey. „Þá lenti ég undir troll- inu og fór alveg í kaf4 „ÉG VAR í sjónum í 4-5 mínútur. Kunningi minn einn, sem er kafari, hefúr sagt mér að ég hefði dugað í mesta lagi tvær mínútur í ísköldum sjónum hefði ég ekki verið í flotgalla," sagði Siguijón Garðarsson, 19 ára gamall Vestmanneyingur, sem fór útbyrðis af bátnum Dala Rafni VE þegar hann var við veiðar skammt frá Surtsey í síðustu viku. „Það reið skyndilega brot yfir bátinn. Ég skall út í lunninguna og út fyrir. Ég hafði engan tíma til að hugsa í sjónum og man ekki hvort ég varð hræddur. Ég synti að trollinu og náði taki á rússanum, bandi sem liggur aftur úr því. Skipsfélagar mínir reyndu að draga mig upp en ég var máttlítill í höndunum og rann aft- ur niður. Þá lenti ég undir trollinu og fór aiveg í kaf. Ég gæti trúað að ég hafi verið undir því í fimm sekúndur. Síðan náði ég aftur taki á rússanum og tókst að vefja honum um mittið. Skipsfélagamir drógu mig síðan upp,“ sagði Sig- uijón. Siguijón sagðist ekki efast eitt augnablik um að flotgallinn hefði orðið sér til lífs í þessum hremm- ingum. Hann kvaðst ekki hafa fundið fyrir kulda í sjónum. „Það- vildi svo vel til að við fórum allir i vinnuflotgalla vegna þess hversu slæmt var í sjó. Þetta var í fyrsta sinn sem við vorum allir samtaka um að gera það,“ sagði Siguijón. Bílatryggingar hafa hækkað um 18,3 á ári Bifreiðaeigendur greiða þó lægri upp- hæð vegna niðurfellingar á söluskatti MEÐALIÐGJALD af ábyrgðar-, slysa- og framrúðutryggingu bif- reiðaeigenda hefúr hækkað sam- tals um 18,3% frá 1. mars í fyrra. Enginn virðisaukaskattur er greiddur af tryggingaiðgjöldum og greiða því þeir bifreiðaeigend- ur sem endurnýja tryggingu sína 1. mars nk. lægri upphæð en í fyrra. Til dæmis verður meðalið- gjald hjá Sjóvá-Almennum 29.249 krónur á móti 30.907 krónum 1. mars 1989. Hjá Vá- tryggingafélagi íslands greiða eigendur meðalstórra bíla 32.715 krónur á móti 34.078 krónum 1. mars 1989. Siguijón Pétursson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjóvá- Álmennra, sagði að nú væri iðgjald Samkomulag um aflamiðlun, fiskverð og heimalöndunarálag: Deílt um forræði aflaniiðlunar SAMKOMULAG um skipan aflamiðlunar sem taki að sér stjórnun á útflutningi á ísuðum fiski tókst á sunnudag. Samhliða þessu ákvað yfirnefhd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hækkun flskverðs um 3% til nóvemberloka og sérstakt heimalöndunarálag. Utanríkis- og sjávar- útvegsráðherra eru ósammála um hvoru ráðuneytinu beri forræði yfir aflamiðluninni. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra segir að yfirstjóm aflamiðlunarinnar heyri undir ut- anríkisráðuneytið þar til ný lög um stjómarráðið verði samþykkt, sem ekki yrði á þessu þingi. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir hins vegar að aflamiðlun sé hluti af fiskveiðístjórnuninni. Segir hann að frá því hafí verið gengið við myndun ríkisstjórnarinnar að þessi mál heyrðu undir sjávarút- vegsráðuneytið þegar samkomulag hefði náðst um skipan mála sem nú væri í höfn. Halldór segir þó aðalatriðið að aflamiðlun verði nú komið á fót undir forræði hags- munaaðila og að þessum málum því ekki stýrt úr ráðuneytum. Lengst af tafði ágreiningur um skipan í stjóm aflamiðlunar ákvörð- un um fiskverð en hann var að lok- um leystur með samkomulagi hags- munaaðila þess efnis að Sigurbjörn Svavarsson útgerðarstjóri Granda hf. og formaður Utvegsmannafé- lags Reykjavíkur, yrði formaður. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur LÍÚ, telur engan vafa á því að Sigurbjörn sé fulltrúi útgerð- armanna í stjórninni. Utanríkisráð- herra og Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamannasam- bands íslands, segja að svo sé ekki, heldur sé hann oddamaður. Sigurbjörn segir sjálfur að ekki skipti máli hvernig nefndarmenn séu kynntir, hvaða starfsheiti eða titla þeir beri. Aðalatriðið sé að skipan stjórnar aflamiðlunar hafi verið ákveðin og samþykkt af öllum viðkomandi aðilum. Sjá nánari frásögn og viðbrögð í miðopnu í dag. af slysatryggingu ökumanns og eig- anda 5.484 krónur á ári, en útreikn- ingar sem gerðir voru í samræmi við reglur Tryggingaeftirlitsins sýndu að iðgjaldsþörfin væri rúmar 6.200 krónur. „Við lítum á þetta sem framlag okkar til þjóðarsáttar- innar,“ sagði Siguijón. „Menn eru að vonast til að hagræðing í kjölfar sameiningar félaganna skili líka einhveiju.“ Meðalbónus hjá Sjóvá-Almenn- um var í fyrra 51,2% en er nú 52,5%. Siguijón sagði að þessi hækkun væri eðlileg og í samræmi við þá þróun sem verið hefur. Hann sagði að langflestir væru í efstu bónusflokkunum, þ.e.a.s. með 50-65% bónus, eða 83% allra öku- manna sem tryggðir eru hjá fyrir- tækinu. Hilmar Pálsson, framkvæmda- stjóri hjá Vátryggingafélagi ís- lands, sagði að reglur um bónus yrðu óbreyttar í ár, en hámarks- bónus er 70%. Meðalbónus við- skiptavina Vátryggingafélagsins er tæplega 55%. Vátryggingafélagið gefur nú út „Græna kortið“ sem gildir í 32 lönd- um í Evrópu. Bifreiðatrygging handhafa kortsins gildir fyrir bif- reið hans í þessum löndum og kost- ar það 2.500 krónur. Fleiri nýjung- ar verða teknar upp hjá félaginu nú, t.d. sérstök trygging fyrir hús- bíla og fornbíla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.