Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 8
P Q
OÍ>er XMAM .81 5íUöÁ(l JÍQ15IM (1Í(1AJHHU1)5!0M
L'i-w HHHHH HHHHI
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Ziirforiggen
jafnaði met
Gustavo Thöni
- sigraði í heimsbikarkeppninni í fjórða skipti
PIRMIN Zurbriggen frá Sviss
sigraði í risasvigi í Hemsedal í
Noregi á laugardaginn og
tryggði sér það með sigur í
heimsbikarnum ífjórða skipti.
Hann vann einnig risasvigstitil-
inn og á enn möguleika á brunt-
itlinum.
Zurbriggen, sem er 27 ára og
ætlar að hætta keppni eftir
þetta tímabil, hefur nú 344 stig í
heildarstigakeppninni. Ole Kristian
Furuseth frá Noregi er í öðru sæti
með 228 stig og Giinther Mader í
þiðja sæti með 213 stig. Nú eru
aðeins tvö brunmót eftir og því
enginn sem getur ógnað sigri Ziir-
briggens.
Zúrbriggen vann heimsbikarinn
einnig 1984, 1987 og 1988. Hann
hefur unnið alls fímm gullverðlaun
á ólympíuleikum og heimsmeistara-
keppni. Sigurinn í risasviginu á
laugardaginn var 40. sigur hans í
heimsbikarmóti þau 10 ár sem hann
hefur keppt þar.
„Ég hef enn gaman að því að
taka áhættu," sagði Zúbriggen um
risasvigið. „Ég hef ekki trú á því
að mér takist að vinna bruntitilinn
líka, en ég reyni að sjálfsögðu að
gera mitt besta,“ sagði skíðakapp-
inn, sem ætlar að halda vinum
sínum kveðjuhóf í Crans Montana
í Sviss 31. mars.
Tomba sigraði í síðustu svig-
keppninni
Alberto Tomba, ítalski ólympíu-
meistarinn í svigi, sigraði í síðustu
svigkeppni heimsbikarsins sem
fram fór í Saelen í Svíþjóð í gær.
Tomba var aðeins með fírnmta besta
tírnann eftir fyrri umferð, en tók
mikla áhættu í síðari umferðinni
og náði lang besta tímanum og það
nægði til sigurs.
„Sigurinn í sviginu var einn sá
mikilvægasti á ferlinum. í síðari
umferðinni keyrði ég eins og ég
gerði best í gamla daga,“ sagði
Tomba „La bomba“.
Urslit / B7
Pirmin Zurbriggen fagnar sigri.
SKIÐI / KONUR
Einvígi Kronberger og
Wachter helduráfram
Petra Kronberger og Anita Wachter frá Austurríki beijast nú um heims-
bikartitilinn af mikilli hörku. Kronberger hefur nú aðeins 15 stiga forskot
á Wachter þegar þrjú mót eru eftir. Það er ljóst að önnur hvor þeirra hlýtur
heimsbikarinn og er það í fyrsta sinn í ellefu ár sem austurrísk stúlka hlýtur
titilinn, en Anne-Marie Moser Pröll gerði það síðast 1979.
Um helgina var keppt í svigi og stórsvigi Stranda í Noregi. Carole Mere
frá Frakklandi sigraði í stórsviginu - þriðji sigur hennar í röð. Anita Wach-
ter varð í 12. sæti, en það nægði henni til að vinna stórsvigstitilinn.
Austurrískar stúlkur urðu í þremur efstu sætunum í svigkeppninni á sunnu-
dag. Karin Buder sigraði í sinni fyrstu svigkeppninni, Claudia Strobl varð
önnur, aðeins 0,06 sek á eftir Buder, og Anita Wachter í þriðja sæti.
Konurnar eiga eftir að keppa í svigi, stórsvigi og risasvigi. Heimsbikar-
keppninni lýkur formlega með samhliðasvigi í karla og kvennaflokki í Áre í
Svíþjóð 18. mars.
Vilhelm
bætist
f hópinn
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
alpagreinum, sem tekur þátt í
heimsmeistaramóti unglinga,
heldur utan í dag. Upphaflega
var gert ráð fyrir að þrír íslend-
ingartæku þátt í mótinu, en
nú hefur Vilhelm Þorsteinssyni
frá Akureyri verið bætt við.
Íslenska liðið er skipað þeim
Kristni Björnssyni frá Ólafsfirði,
Arnóri Gunnarssyni frá ísafirði,
Hauki Arnórssyni frá Reykjavík og
Vilhlem Þorsteinssyni frá Akureyri-
Liðið heldur utan í dag ásamt
þjálfara sínum, Kajsu Nyberg. ís-
lendingarnir taka þátt í þremur
FlS-mótum í Frakklandi í næstu
viku áðuren haldið verður til Zinal
í Sviss, þar sem heimsmeistaramó-
tið fer fram dagana 18. til 25.
mars. Mótið átti upphaflega að fara
fram í Vestur-Þýskalandi, en var
flutt til Zinal vegna snóleysis í
Þýskalandi.
Íslendingarnir keppa í risasvigi,
stórsvigi og svigi.
SKÍÐAGANGA
Ulvang
vann heims-
bikarinn
Vegard Ulvang frá Noregi vann
heimsbikarinn í skíðagöngu 1990
þó svo að eitt mót sé enn eftir. Ul-
vang hefur hlotið 145 stig, 26 stigum
meira en Gunde Svan frá Svíþjóð, sem
hefur haft mikla yfirburði í keppninni
undanfarin ár.
Ulvang varð í fjórða sæti í 30 km
göngunni, sem fram fór í Ornskold-
svik í Svíþjóð á laugardaginn. Hann
var einni mínútu á eftir Terje Langli,
sem sigraði. Gunde Svan náði sér ekki
á strik og hafði ekki réttan áburð,
eins og reyndar fleiri Svíar, og hafn-
aði í 50. sæti og hefur aldrei áður
verið svo aftarlega á merinni.
Síðasta heimsbikarmót vetrarins
verður I Noregi í næstu viku.
Norska stúlkan Trude Ðybendahl
sigraði í 10 km göngu kvenna á sama
stað á laugardaginn. Hún var 7,1 sek.
á undan Manuela Di Centa frá Ítalíu.
Sovésku stúlkurnar hafa mikla yfír-
burði í heildarstigakeppninni. Svetlana
Nageykina er efst með 134 stig, Lar-
isa Lasutina með 129 og Elena Valbe
með 126 stig. Það ræðst því á síðasta
heimsbikarmótinu hver þeirra hlýtur
titilinn.
Klaus Sulzenbacher, Austurríki,
sigraði í norrænni tvíkeppni. Hann
hlaut 156 stig, 21 stigi meira en Allar
Levandi frá Sovétríkjunum, sem varð
í öðru sæti.
HANDKNATTLEIKUR
Inn og útum gluggann.
SÖGULEGRl heimsmeistara-
keppni í handknattleik er lok-
ið. íslendingar, sem lentu i
10. sæti, fóru niður í B-flokk,
aftur uppí A að því er menn
héldu og svo aftur niður í B.
Handboltafræðingar íslenska
liðsins vissu ekki hvort þeir
voru að koma eða fara og blaða-
menn og stuðningsmenn lands-
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
iiðsins helltu vatnl
úr eyrunum. Eng-
inn veit hvernig
þetta byijaði en
menn hafa gert því
skóna að stjórnar-
menn IHF hafi
ákveðið að reyna
að moka ísiend-
ingum aftur upp í
A-fiökk með því
að leggja annan skilning í reglum-
ar, því íslendingar em vinsælir
og flestir vilja haida þeim meðal
þeirra bestu. Þegar sú saga fór á
kreik að Frakkar hefðu vitað um
Logi Bergmann
Eiðsson
skrilar
þessa nýju „túlkun" reglanna fyr-
ir leikinn við íslendinga, lögðu
menn saman tvo og tvo og kom-
ust að þeirri niðurstöðu, að hugs-
anlega hefði átt að tiyggja Frökk-
um sæti í A-keppninni í Svíþjóð
þó þeir töpuðu leiknum um 9.
sætið. Aðalritari alþjóða hand-
knattleikssambandsins, Raymond
Hahn, væri jú Frakki.
Síðar kom í ljós að forseti IHF
hélt að þetta væri svona og sá
ekki ástæðú til að athuga betur
áður en hann sagði ísiendingum
þessar gleði/sorgarfréttir.
Gífurleg vonbrigði
Vonbrigðin á laugardaginn
voru gífurleg. Leikmenn gengu
niðurlútir af velli og mátti sjá tár
á hvetjum vanga. Dauðaleit
áhangenda hófst að sökudólgum
og ákveðið var að skella skuldinni
á þjálfarann. Síðdegis heyrðu
menn orðróm þess efnis að 10.
sætið nægði til sætis í A-flokk
en það fékkst ekki staðfest.
A sunnudagsmorgni, þegar ís-
lendingar voru að yfírgefa hótelið,
ræddu þeir við Svíana. „Við
sjáumst í Svíþjóð 1993,“ sögðu
Svíarnir. íslendingarnir hváðu og
sögðu að það væri ekki ömggt.
B-keppnin væri erfíð og um fá
sæti að keppa. Svíunum fannst
þetta svar afar sniðugt og spurðu
hvað íslendingar ætiuðu að gera
í B-keppnina, þegar þeir væm
ömggir með sæti í A-flokki.
Þannig var staðan þegar komið
var útá flugvöllinn og þar var
fundað með forráðamönnum IHF.
Morgunblafiið/Júlíus
Stuðningsmenn íslenska liðsins létu sitt ekki eftir liggja.
Þeir sögðu að það væri nokkuð
Ijóst að íslendingar yrðu með í
Svíþjóð, enda ætti líunda sætið
að duga og bætti því við að það
væri jafnvel möguleiki á að fjölga
liðum á Ólympíuleikunum 1992,
svona rétt til að koma íslending-
um fyrir.
Það var því skiljanlega mikið
fjör í flugvélinni, ennþá í fremstu
röð, engar áhyggjur af B-keppni
og jafnvel sæti á Ólympíuleikum.
En í gær kom bakslagið; aftur í
B og lítil von um Ólympíuleikana.
Sveigjanlegar reglur
Handbolli er undarleg íþrótt.
Reglurnar er hægt að sveigja á
alla vegu, til að koma skemmti-
legu liðunum inn og þeim Ieiðin-
iegu út. Ein skýringin á þessum
reglubreytingum var sú að íslend-
ingar væru með svo skemmtilegt
lið að nauðsynlegt væri að halda
þeim uppi. Stjómin virtist þó ekki
sammála um þetta og því kom
upp undarlega staða.
Islendingar eru því aftur komn-
ir í B-keppni, eins og reglurnar
sögðu til um. Jón Hjaltalín Magn-
ússon, formaður HSÍ, á þó líklega
frumlegustu skýringuna á því.
Hann sagði á Bylgjunni í gær að
fjölmiðlar hefðu skemmt fyrir með
því að hafa samband við skrif-
stofu IHF vegna málsins en hugs-
anlega hefði verið hægt að leið-
rétta þetta og koma íslendingum
í A-keppni að nýju hefðu fjölrniðl-
ar á ísiandi ekki farið af stað.
GETRAUNIR: X X 2 1 1 X
.OTTO: 4 9 11 23 24 + 17