Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 1

Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 69. tbl. 78. árg. FOSTUDAGUR 23. MARZ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þjóðernisróstur í Rúmeníu: Her og lögregla lætur ofbeldið viðgangast - segir utanríkisráðherra Ungverjalands Búdapest. Frá Önnu Bjarnaclóttur, íréttarítara Morgunblaðsins. GYULA Horn, utanríkisráðherra Ungverjalands, sagði í gær að rúm- ensk stjórnvöld héfðii virt að vettugi ítrekaðar tilraunir ungversku ríkisstjórnarinnar til að koma á viðræðum vegna árása Rúmena á ungverska minnihlutann í Rúmeníu undanfarna daga. Hann sagði að ungverska stjórnin ætlaðist til þess að rúmensk sljórnvöld tryggðu öryggi allra íbúa landsins en benti á að rúmenska lögreglan og herlið landsins hefði fram til þessa látið ofbeldi og yfirgang gagn- vart ungverska minnihlutanum viðgangast. Þingkosningar fara fram í Ung- verjalandi á sunnudag. Flokkarnir 12 sem bjóða fram hafa ekki gert óhroðann í Rúmeníu að kosninga- máli en talið er að hann komi Lýð- ræðishreyfingunni vel þar sem flokkurinn hefur ávallt talað máli ungverskra minnihlutahópa í ná- grannaríkjunum og höfðar til þjóð- ernistilfinningar landsmanna. Flokknum er spáð mestu fylgi í kosningunum. Janos Kyr, formaður fijálsra demókrata, sagði í gær að atburð- irnir í Rúmeníu væru of alvarlegir til að tengja þá “atkvæðahlutfalli einstakra flokka. „Atburðir þessir stofna lýðræðisbaráttunni í Ung- veijalandi og Rúmeníu í hættu,“ sagði hann. Kyr gerði lítið úr full- yrðingum Rúmena um að það tíðkaðist hvergi í Evrópu að minni- hlutahópar fengju að ganga í eigin skóla. Hann benti á að í Finnlandi, Frakklandi, Sviss og Kanada væru skólar reknir fyrir þjóðarbrot sem tala önnur tungumál en meirihluti England; íhaldsflokk- urinn geldur mikið afliroð Lundúnum. Reuter. Skoðanakannanir, sem gerðar voru fyrir utan kjör- staði í aukakosningunum í Mið-Staffordskíri í Englandi í gær, bentu til þess að breski íhaldsflokkurinn myndi bíða mikinn ósigur. Verkamannaflokkurinn fékk 51 af hundraði atkvæða sam- kvæmt könnun sem breska út- varpið BBC gerði en 49% í könnun Independent Television News. Báðar kannanirnar bentu til þess að íhaldsflokkurinn fengi 32% atkvæða. Flokkurinn fékk hins vegar 51% í síðustu þing- kosningum í kjördæminu, sem frám fóru árið 1987. Fengi Verkamannaflokkur- inn jafn mikið fylgi og kannan- irnar bentu til yrði þetta mesti kosningasigur Verkamanna- flokksins í 55 ár. Mið-Staf- fordskíri hefur verið eitt af sterkustu vígjum íhaldsflokks- ins undanfarna áratugi. „Kjósendur tóku afstöðu gegn Margaret Thatcher for- sætisráðherra og stefnu hennar í flestum málum,“ sagði fram- bjóðandi Verkamannaflokks- ins, Sylvia Heal. íbúanna og sagði flokkinn ráðleggja Rúmenum að setja sig í samband við sérfræðinga í löndum þessum. Allir stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram í kosningunum utan einn skrifuðu undir sameiginlega yfirlýs- ingu á miðvikudag, þar sem átökin eru fordæmd og skorað er á lýð- ræðisöfl í Rúmeníu að taka höndum saman gegn fasískum hreyfingum. Gamli kommúnistaflokkurinn, sem nú nefnist Sósíalíski verkamanna- flokkurinn, er ekki aðili að yfirlýs- ingunni. Reuter Á skilti á landamærum Litháens og Hvíta-Rússlands stendur ekki lengur „Sovét-Litháen“ heldur einfald- lega „Litháen". Fréttastofan TASS skýrði lirá því í gær að öryggissveitir KGB hefðu nú aukið gæslu á landamærum Litháens og Póllands og við strönd Eystrasalts til þess að framfylgja tilskipun Míkhaíls Gorbatsjovs forseta um hert eftirlit með fólks- og vöruflutningum til lýðveldisins. Deila Litháa og Moskvustjórnarinnar: Skrá sjálfboðaliða til að taka við af Sovéthemum Viðbrögð Hollendinga við sjálfstæðisyfírlýsingunni vinsamlegust, segir Ilona Rukjene, starfsmaður útvarpsins í Vilnius, í samtali við Morgunblaðið „UNDANFARNA þijá daga hafa stjórnvöld í Litháen skráð sjálf- boðaliða á aldrinum 19-40 ára til að taka við landamæravörslu og gæslu í fangelsum af sovéska hernum þegar hann fer á brott,“ sagði Ilona Rukjene, starfsmaður útvarpsins í Vilnius, höfuðborg Litháens, í símasamtali við Morgunblaðið í gær. Breska útvarpið BBC greindi frá því í gærkvöldi að Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti hefði sent leið- togum Litháa orðsendingu um að hætta skráningunni og gaf þeim tveggja daga frest til að leggja sveitirnar niður. Gennadíj Ger- asímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að ef leiðtogar Litháa framfylgdu ekki skipun Míkhaíls Gorbatsjovs forseta frá því í fyrrakvöld um að kalla inn öll skotvopn á sjö dögum þá gæti það leitt til „aukinnar spennu sem kæmi engum vel“. Að sögn Eeuters-fréttastofunnar útilokaði Gerasímov ekki að forysta Litháa yrði sett í fangelsi ef hún óhlýðnaðist. Fulltrúar ríkissaksóknara Sov- étríkjanna eru nú komnir til Litháens. ef einhver kæmi og krefði það um vopn þess. Sögusagnir eru á kreiki um að sovéski herinn ætli að leita að vopnum hjá Litháum sem gegnt hafa herþjónustu." Aðspurð um viðurkenningu er- lendra ríkja á sjálfstæði Litháens sagði Rukjene að hún hefði mikla þýðingu. „Viðbrögð Hollendinga voru þau vinsamlegustu til þessa. Hins vegar voru yfirlýsingar Svía undarlega kuldalegar. Við lifum í voninni um að einhver svari ákalli okkar til lýðræðisþjóða um viður- kenningu." Aldimos Drisjus, blaðamaður hjá upplýsingaskrifstofu Sajudis, tók í sama streng í samtali við Morgun- blaðíð. „Því fyrr sem eitthvert ríki viðurkennir Litháen því betra,“ sagði hann. „Við væntum þess að Danmörk, Sviþjóð eða Finnland verði fyrst til að viðurkenna sjálf- stæðið." Að sögn breska blaðsins The Daiiy Telegraph hafa um þúsund Litháar yfirgefið Rauða herinn að undanförnu og kvartað undan illri meðferð. Hefur þeim verið gefinn frestur til morguns til að gefa sig fram. Að sögn BBC hefur hluti þeirrk látið skrá sig í sjálfboðaliða- sveitir stjórnvalda í Litháen. „Hér lætur enginn vopn af hendi því við höfum engin vopn,“ sagði Ilona Rukjene, starfsmaður útvarps- ins í Vilnius, þegar haft var sam- band við hana símleiðis síðdegis í gær. „Það eru kannski helst bændur úti á landi sem afhenda haglabyssur sínar. í gærkvöldi var Sajudis með sjónvarpsþátt þar sem gert var grín að fyrirskipun sovéskra ráðamanna og talað var um að fólk ætti kannski að koma með leikfangabyssur og safna þeim í haug á einu torgi borg- arinnar. Fólk er frekar bjartsýnt og grínast með tilskipun Gorbatsjovs." Að sögn Rukjene gengur lífið sinn vanagang í Vilnius þrátt fyrir tauga- stríðið sem nú geisar milli ráða- manna hins nýstofnaða lýðveldis og Moskvuvaldsins. „Reyndar flaug sovésk herþyrla yfir byggingu okkar fyrir fimmtán mínútum en hún var sú fyrsta um nokkurt skeið,“ sagði Rukjene. „Nú vinnur Sajudis [samtök þjóð- ernissinna] að því að skrá alla sem fluttir hafa verið á brott frá Litháen frá innlimuninni 1940. í gær var sjónvarpað áskorun til fólks um að skýra frá öllum upplýsingum sem það hefði um brottflutta og yfirleitt um allan skaða sem Sovétrikin hafa valdið Litháum. Ástæðan er meðal annars sú að Sovétríkin hafa krafist þess að við greiðum milljarða rúblna fyrir aðskilnað. Við teljum að við eigum þeim enga skuld .að gjalda, frekar ættu þau að borga okkur fyrir þúsundir fallinna og margt annað tjón. Einnig var fólk beðið um að láta skrifstofu Sajudis vita Óvenjuleg skurð- aðgerð Skurðlæknum i Mel- bourne í Ástralíu hefur tekist að koma hjarta nýfædds drengs fyrir í bijóstholi hans eftir að hann hafði fæðst með hjartað utan líkamans. Skurðaðgerðin tók sjö klukkustundir og þurfti meðal annars að stækka bijóstholið. Talið er að slík aðgerð hafi aldrei verið gerð áður. Myndin er af drengnum, sem er á batavegi, og foreldrum hans. Reuter

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.